Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 25

Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 25
og afa á efri hæðinni og það var ósjaldan sem maður fór upp í heim- sókn til að fá „ömmu“-vínarbrauð með sultu og mjólkurglas. Svo laum- aði maður sér nú ósjaldan í nammi- krukkuna hennar ömmu til að stela einum mola eða svo. Laugarásveg- urinn var æðislegur staður til að alast upp á og við lékum okkur mikið út um allt í húsinu og þá sérstaklega á efstu hæðinni, inni á háalofti og í garðinum sem við erum nú farnir að kalla „Geirs-garð“. Amma var alltaf rosalega glöð og brosmild, hún var síhlæjandi og góð amma. Einu skiptin sem hún faldi fallega og góða brosið sitt voru þeg- ar einhver reyndi að taka mynd af henni, en hún átti það til að vera svo- lítið feimin við myndavélina. En það fyrsta sem kemur upp í hugann þeg- ar maður hugsar til ömmu er brosið hennar og gleðin. Amma Hekla var ávallt mjög ást- rík bæði sem amma, mamma og eig- inkona. Hún lifir áfram í minningum okkar sem einstök kona sem var full af lífsgleði og hamingju og sýndi okkur bræðrunum einstaka um- hyggju og ást sem við munum aldrei gleyma. Við munum sakna þín, amma mín. Ástarkveðja, Kolbeinn og Jóhann Geir. Þórunn Hekla Árnadóttir eða Hekla eins og hún var ætíð kölluð er fallin frá. Hekla var mikil sómakona og einstök manneskja. Auk þess var hún stórglæsileg kona. Hekla ólst upp í stórum systkinahópi og hefur eflaust snemma lært að deila með öðrum og taka til hendinni. Þeir eig- inleikar sem umfram allt einkenndu hana voru einstök hógværð og góð- vild. Það ríkti mikil ró í návist Heklu og það var alltaf gott að umgangast hana. Ég kynntist Heklu fyrir 35 ár- um er ég kom inn í fjölskylduna sem tengdadóttir þeirra Geirs. Við urð- um fljótt góðar vinkonur og hún reyndist mér ætíð vel. Hekla var af- skaplega barngóð og taldi ekki eftir sér að gæta barnabarnanna ef á þurfti að halda. Það var ekki ónýtt fyrir unga drengi að koma í heim- sókn til afa og ömmu á Laugarás- veginn og fá að leika sér í stóra, fal- lega garðinum þeirra. Ekki spillti fyrir að á neðri hæðinni bjuggu fleiri barnabörn Heklu og Geirs. Það var því eftirsótt af mínum drengjum að komst í fjörið á Laugarásveginn og það kom fyrir að afi Geir blandaði sér í hópinn, ýmist til að leika sér í fótbolta með piltunum eða skakka leikinn. Hekla lærði hattagerð sem hún starfaði við þegar hún var ung. Það fór ekki fram hjá neinum að Hekla var mikil hannyrðakona og afskap- lega vandvirk við allt sem hún tók sér fyrir hendur. Ég sé hana fyrir mér nostra við allt sem hún gerði. Aldrei að flýta sér, alltaf þessi ró- semi. Það er vart hægt að tala um Heklu án þess að minnast á Geir. Þau voru gift í yfir 60 ár. Hekla og Geir voru einstaklega glæsilegt par. Ég sé þau fyrir mér í sínu fínasta pússi, bæði með hatt á höfði og það var stíll yfir þeim. Þau virtust alltaf jafn skotin hvort í öðru og upp í hug- ann koma ógleymanlegar setningar eins og þegar Hekla amma sagði við syni mína: „Strákar mínir, þið hefðu átt að sjá hann afa ykkar þegar hann var ungur. Hann var svo flottur.“ Þá sagði afi Geir: „ Þið hefðuð átt að sjá hana ömmu ykkar þegar hún varð Íslandsmeistari í spretthlaupi.“ Það er ljúft að minnast margra góðra stunda frá heimsóknum þeirra til okkar fjölskyldunnar erlendis og ferðalaga og fría með þeim á Íslandi. Síðustu árin átti tengdamóðir mín, fyrrverandi, við heilsubrest að stríða. Þau Geir bjuggu saman á Laugarásveginum eins lengi og stætt var og oft dáðist ég að hve annt Geir var um Heklu og hve vel hann annaðist hana. Hekla lést á hjúkrunarheimilinu Eir þar sem hún dvaldi síðustu 4 árin. Ég vil þakka Heklu fyrir sam- fylgdina og gæsku í garð minnar fjölskyldu og þakka einnig fyrir allar góðu minningarnar. Ég votta Geir, Árna, Gunnu og Möggu samúð mína. Fanney Friðbjörnsdóttir. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 ✝ Kristborg Bene-diktsdóttir fædd- ist 8. september 1930 á Búðum við Fá- skrúðsfjörð. Hún lést á Landspítalanum 17. október 2010. For- eldrar hennar voru Benedikt Sveinsson húsasmíðameistari, f. 24.5. 1904, d. 17.4 1980 og Margrét Guðnadóttir hús- freyja, f. 12.1. 1910, d. 8.6. 1961. Systkini Kristborgar eru: 1) Valur húsasmiðameistari, f. 9.4. 1929, maki Þorbjörg Ólafsdóttir, f. 1.7. 1930, d. 6.2. 2007. 2) Lára sjúkraliði, f. 24.9. 1933. Fyrri maki Jóhannes Kristinsson húsasmíða- meistari, f. 12.8. 1928 (skilin). Síð- ari maki Þórarinn Jóhannsson kennari, f. 21.4. 1929. 3) Áslaug leikskólakennari, f. 7.8. 1942, maki Sigurður Guðmundsson endur- skoðandi, f. 1.2. 1942. Kristborg giftist 30. desember 1950 Kristjáni Oddssyni, fyrrum bankastjóra Verslunarbankans, f. 1.9. 1927. Foreldrar hans voru Oddur Björnsson stýrimaður og bókaútgefandi, f. 7.11. 1898, d. 14.12. 1972, og kona hans Sigríður Kristín Halldórsdóttir, f. 7.1. 1898, 28.1. 1955, d. 5.12. 1997. Þeirra börn eru: a) Tinna, f. 4.8. 1978, maki Óli Þór Atlason, f. 23.1. 1978. b) Orri, f. 11.7. 1984, sambýliskona María Jónasdóttir, f. 10.9. 1985. c) Sunna, f. 17.3. 1988. 4) Már læknir, f. 5.7. 1958. Maki Halla Ásgeirs- dóttir lífeindafræðingur og leir- listamaður, f. 30.6. 1957. Börn þeirra: a) Anna Hrund, f. 26.2. 1981, b) Ásgeir Þór, f. 15.8. 1984, sambýliskona Guðbjörg Jónsdóttir, f. 28.7. 1984. 5) Oddur kerfisfræð- ingur, f. 5.10. 1962, maki Hafdís Sigurðardóttir bókari, f. 5.10. 1961 (skilin). Þeirra börn: a) Ágústa, f. 9.9. 1981, maki Ingi Örn Guðmundsson (skilin). Barn þeirra Guðmundur Örn, f. 26.6. 2004, b) Kristján, f. 18.1. 1989, c) Ívar, f. 11.12. 1990. Kristborg ólst upp á Fáskrúðs- firði fyrstu fimm árin en þá flutti fjölskyldan til Reykjavíkur. Hún útskrifaðist frá Verslunarskóla Ís- lands árið 1949. Stundaði nám við Riisby Husmorskole í Noregi árið 1950. Aðalstarf Kristborgar var að sinna börnum sínum og búi. Fyrstu þrjú hjúskaparárin var heimili þeirra við Laugateig en þá tóku þau þátt í uppbyggingu Smá- íbúðahverfisins í Sogamýri og bjuggu næstu fimmtán árin í Langagerði. Fluttu sig þá um set og byggðu hús við Bjarmaland í Fossvoginum og undu þar hag sín- um í 39 ár þar til þau fluttu í Mið- leitið. Útför Kristborgar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 12. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 15. d. 7.4. 1964. Krist- borg og Kristján eignuðust fimm börn: 1) Þór skrif- stofumaður, f. 21.5. 1951, d. 1.12. 1985. Maki Elínborg Þór- arinsdóttir leikskóla- kennari, f. 4.7. 1954. Börn þeirra eru: a) Anna, f. 4.8. 1974, b) Þórarinn, f. 7.10. 1977, c) Kristborg, f. 7.10. 1977, sambýlis- maður Hlynur Páll Pálsson f. 6.2. 1977. Börn þeirra: Urður, fædd 6.7. 2006 og drengur f. 27.10. 2010. 2) Bene- dikt framkvæmdastjóri, f. 14.3. 1953. Maki Rósa Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur og djákni, f. 14.11. 1955. Börn þeirra eru: a) Kolbrún, f. 19.5. 1978, maki Hauk- ur Agnarsson, f. 21.6. 1977. Þeirra börn eru: Rósa, f. 12.1. 2006, d. 12.1. 2006; Sigurrós, f. 30.5. 2007, og Vilhjálmur, f. 25.5. 2009. b) Kristján, f. 23.4. 1980, maki Guð- rún Guðmannsdóttir, f. 14.1. 1978. Börn hennar; Alexander Zakarías, f .1.1. 1997 og Diljá Jökulrós, f. 23.12. 1998. c) Kristrún, f. 26.7. 1988. 3) Sigríður Kristín, þroska- þjálfi, f. 15.12. 1956. Maki Jökull Sigurðsson tæknifræðingur, f. Elsku amma okkar. Það var svo notalegt að koma til ykkar afa í Bjarmalandið, fá skyr og ömmubrauð í hádeginu, og þegar við komum í kaffi þá fengum við alltaf að velja litinn á litlu göfflunum. Þetta eru fyrstu minningarnar sem koma í huga okkar þegar við hugsum um þig. Við munum öll áramótin sem við vorum saman, næstum öll stórfjölskyldan og þú allt- af í flotta áramótapilsinu þínu. Alltaf sátum við börnin við lítið borð og full- orðna fólkið við stóra borðið, það var rosalega spennandi að verða nógu gamall til að sitja við stóra borðið. Eftir matinn fengum við ístertu sem þú bjóst til og litlu krakkarnir fengu ísblóm, svo var horft á áramótaskaup- ið og síðan fóru allir út að skjóta upp rakettum. Þú áttir svo flotta kjóla sem við frænkurnar og stundum frændurnir, klæddum okkur í og héldum tískusýn- ingu fyrir ykkur. Þegar við komumst í skartið þitt var eins og við hefðum fundið fjársjóð. Þegar við máttum fara inn í herbergið þar sem sauma- vélin var, vorum við komin í drauma- heim, eldgömul fótknúin saumavél, fullt af efni og garni sem þú varst allt- af að dútla við. Gömul föt voru rifin niður og úr þeim voru heklaðar hring- laga mottur. Þetta var sannkallaður ævintýraheimur. Á sumrin varstu alltaf úti á palli eða að vinna í garðinum. Í garðinum var ógrynni af plöntum, blómum og trjám sem þið afi voruð að huga að, en okkur krökkunum fannst mest spennandi að klifra í trjánum og stökkva yfir runn- ana. Ágústa var alltaf svo hrædd við köngulær, en þú skildir það ekki, sagðir þetta meinlaus kvikindi, varst alltaf að halda á þeim og sýna Ágústu það, í von um að hún myndi hætta að vera hrædd. Elsku amma okkar, við erum þakk- lát fyrir að hafa átt þig, minning þín lifir í hjarta okkar. Við kveðjum þig að sinni. Þín barnabörn, Ágústa, Kristján og Ívar. Hún fæddist austur á fjörðum í miðri heimskreppu. Skírð í höfuðið á föðurömmu okkar og var ánægð með nafnið. Kristborg hét hún, kölluð Bíbí. Sumir af yngstu kynslóð fjölskyld- unnar tóku nafnið bókstaflega og mundu ekki alltaf hvort það var Bíbí, eða kannski Lóa? Bíbí var systir mín og jafnvel mamma mín, á árum áður, enda nokkru eldri. Mér og mínum ævinlega góð og hjálpsöm. Þór, elsku dreng- urinn sem við misstum allt of snemma, var fyrsta barn Bíbíar og Kristjáns. Þá var ég tæplega níu ára og kynntist ung barnfóstrun. Sömu- leiðis lærði ég sitt hvað um húshald og eldamennsku hjá systur minni. Hún, lærð frá Riisby húsmæðraskóla í Nor- egi, vissi flest sem að heimilishaldi laut, ekki síst matreiðslu. Vandvirk á alla hluti. Hörð á borðsiðum, reglum og venjum við hin ýmsu tækifæri og smámunasöm gat hún líka verið, enda meyja! Ævinlega glöð á góðri stund. Það er því ekki að undra þó að glæsi- legustu boðin hafi verið haldin í Bjarma-landinu. Bíbí var fróðleiksfús og forvitin í já- kvæðum skilningi þess orðs, um menn og málefni hverskonar. Stund- um blöskraði henni fávísi okkar hinna, sem höfðum ekki tekið eins vel eftir og hún, eða vissum ekki deili á fólki sem henni fannst við ættum að þekkja. Ævinlega fallega klædd og eltist fádæma vel, þrátt fyrir erfið veikindi. Fagurkeri mikill. Þegar kom að útliti og fötum var nostrað við val- ið. Ekki fundust föt úr gerviefni í hennar skáp. Systir mín var stjórnsöm og þann eiginleika sækja konur ættarinnar til Valgerðar, móðurömmu okkar. Hún hafði yndi af að ferðast og fór víða, bæði innan og utan lands. Ég veit hún saknaði þess sárt, síðustu árin, að komast ekki ferða sinna eins og hana lysti. Bíbí mín bjóst ekki við að ná háum aldri – en varð áttræð. Þá held ég henni hafi þótt nóg lifað. Vildi alls ekki halda upp á afmælið, en fór á snyrtistofu og lét dekra við sig – falleg og vel snyrt, á hverju sem gekk. Ókunnugum hefði vart dottið í hug, undir það síðasta, að þar færi dauð- vona kona. En hún stóð ekki ein. Kristján var stoð hennar og stytta og sá til þess að hún kæmist þeirra ferða sem hún gat farið og sinnti flestum þeim erindum sem sinna þurfti. Bíbí lifði hnarreist og kvaddi með reisn, andlega heil til hinstu stundar. Allt hefur sinn tíma og nú er tími syst- ur minnar liðinn. Hún sofnaði inn í haustið að loknu löngu og hlýju sumri. Ég ann systur minni hvíldarinnar, sem hún þráði og óska þess að hún sé nú frjáls í faðmi allra þeirra sem á undan eru gengnir og voru henni svo kærir. Farðu í friði, systir mín. Áslaug. Eins langt aftur og ég man er Bíbí föðursystir mín ljóslifandi í góðum minningum sem ómetanlegt er að rifja upp nú þegar komið er að kveðjustundu. Þá atburði sem ég var of ung til að muna voru foreldrar mínir duglegir að rifja upp og miðla okkur til mikillar ánægju. Ég man yndislegu stundirn- ar í sumarbústaðnum við Álftavatn með stórfjölskyldunni. Sveppasúpuna ljúffengu sem löguð var úr sveppum af landareigninni. Fyrir mér var það alveg ný og mjög framandi viðbót á matseðlinum. En Bíbí hafði nú líka verið í húsmæðraskóla í Noregi og kom með skandinavíska strauma í matargerð inn í fjölskylduna. Ég man glettni og eftirminnileg hlátrasköll, samtölin og samveruna. Ég man Bíbí og Kristján kvöld eitt í Langagerðinu, svo glæsileg og falleg, á leið í veislu. Ég man frænku mína listunnandann, með óbrigðult auga fyrir fallegum hlutum. En fyrst og fremst man ég væntumþykju frænku minnar, um- hyggju hennar og tryggð í minn garð og minnar fjölskyldu. Þegar börnin mín komu í heiminn sýndi hún þeim sama kærleika og áhuga. Hún hafði gaman af að fylgjast með hvað þau höfðu fyrir stafni og hvernig þeim gekk. Þeir sem henni þótti vænt um nutu óskuldbundinnar væntumþykju hennar, alltaf. Það er ekki ólíklegt að æska frænku minnar og þeirra systkina hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Á langri ævi hennar skiptust vissulega á skin og skúrir en Bíbí var ekki mikið fyrir að flíka tilfinningum sínum, hún bar harm sinn í hljóði. Föður mínum var Bíbí trygg og traust systir en hún þekkti bróður sin sennilega manna best. Samband þeirra var byggt á gagnkvæmu trausti og væntumþykju en til hennar gat hann leitað með mál sem hann ræddi ekki endilega við aðra. Móður minni var hún yndisleg mágkona og hin besta vinkona. Þegar börnin voru flogin úr hreiðrinu töluðu þær saman nær daglega. Þær áttu báðar við heilsuleysi að stríða hin síðari ár og sóttu hvatningu og skilning hjá hvor annarri í þeirri stöðu. Ég veit að móð- ur minni þótti innilega vænt um mág- konu sína og mat vináttu hennar mik- ils. Það er mikil gæfa að fá að alast upp umlukin kærleika stórrar fjölskyldu. Bíbí föðursystir mín hefur verið ein af þeim sem hafa umvafið mig væntum- þykju og átt sinn þátt í að móta mig sem einstakling. Ég tel mig lánsama að hafa átt hana að og kveð hana með þakklæti og djúpri virðingu. Elsku Kristján, Benni, Sigga, Malli, Oddur, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn; fyrir hönd fjöl- skyldunnar sendi ég ykkur innileg- ustu samúðarkveðjur og bið að þið finnið huggun og styrk í öllum góðu minningunum um Bíbí. Bergþóra Valsdóttir. Komin er kveðjustund. Bíbí, kær vinkona mín, er látin. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast henni fyrir um 65 árum, þegar við hófum nám í „Verzló“. Þar bundumst við þeim vináttuböndum sem haldist hafa allt til þessa dags. Síðar eftir skóla- göngu urðu samskipti okkar enn meiri, þá höfðum við stofnað okkar eigin fjölskyldur og urðum frum- byggjar í „Smáíbúðahverfinu“. Við áttum margar góðar stundir saman, í mörg ár hittumst við í hverri viku og stunduðum jóga og leikfimi. Við fórum gjarnan á kaffihús eða út að borða við hin ýmsu tækifæri, ferð- uðumst innan lands og utan, alltaf var gaman. Við vorum trúnaðarvinkonur og deildum ýmsu sem ekki var rætt við aðra eða á öðrum vettvangi. Bíbí var alltaf til í spjall, var mannblendin og hafði góða nærveru. Bíbí eignaðist góðan lífsförunaut, hann Kristján, og bjuggu þau sér og börnum sínum notalegt fallegt heimili. Þau hjónin voru miklir listunnendur og bar heim- ili þeirra þess augljós merki. Bíbí sinnti heimili sínu og fjölskyldu af mikilli prýði. Henni féll sjaldan verk úr hendi, var flink handavinnukona og eftir hana liggja ótal fallegir munir, flottar peysur og flíkur sem hún hannaði og prjónaði af smekkvísi. Bíbí átti við mikla vanheilsu að stríða hin síðari ár, en hefur nú fengið langþráða hvíld. Kveð ég hana og þakka henni samfylgdina. Ég á eftir að sakna hennar. Kristjáni, börnum þeirra og öðrum ástvinum votta ég samúð. Ásthildur Torfadóttir. Kristborg Benediktsdóttir Elsku barnið okkar. Allt gekk svo vel, allt var svo fullkomið og fallegt. Þú varst ekki stór en dugleg varst þú. Við horfðum á þig dafna, þyngjast með hverjum deginum. Það var ekki annað að sjá en að þér liði ósköp vel. Það fallegasta sem við for- eldrar þínir höfum nokkru sinni séð er þegar þú hnerraðir. Pínkulítill hnerri og svo yndisleg unaðsstuna sem fylgdi fast á eftir. Reyndar varst þú mjög gjörn á að gefa frá þér slík unaðshljóð sem iðulega fékk okkur til að brosa allan hringinn. Þú svafst Álfrún Emma Guðbjartsdóttir ✝ Álfrún EmmaGuðbjartsdóttir fæddist í Reykjavík 10. október 2010. Hún lést á vökudeild Barnaspítalans 18. október 2010. Útför Álfrúnar Emmu fór fram frá Garðakirkju 28. októ- ber 2010. allan daginn með reglubundnum hléum til að næra þig. Það skipti ekki máli í hvaða fangi þú varst eða hvernig umræður eða tónlist var í bakgrunn- inum. Þú svafst eins og engill. Elsku Álfrún Emma. Þegar þú veiktist og við fórum með þig á bráðamót- töku barnaspítalans, þá óraði okkur ekki fyrir hvaða ömurlega atburðarás væri framundan. Það hvarflaði ekki að okkur að dagar þín- ir væru taldir, svo alltof fáir. Engin orð fá þeim tilfinningum lýst sem foreldrar upplifa eftir fráfall barns- ins þeirra. Sorgin og tómarúmið virðast endalaus. Elsku fallega dóttir okkar, mamma og pabbi sakna þín svo. Elsku litli engillinn okkar sem vakir yfir okkur. Guð blessi þig. Guðbjartur Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.