Morgunblaðið - 12.11.2010, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
Nú kveðjum við
elsku afa okkar. And-
lát hans kom okkur
kannski ekki mikið á óvart en við
hefðum samt svo gjarnan viljað
hafa hann lengur hjá okkur eins og
hann var þegar hann var upp á sitt
besta. Við eigum svo margar dýr-
mætar minningar sem tengjast afa,
allar göngurnar og hestaferðirnar.
Öll skiptin sem hann kom norður
til að hjálpa til, þá fóru oft hamrar
á loft og eitthvað nytsamlegt leit
dagsins ljós. Alltaf máttum við
hjálpa til og fengum þá jafnan
góða tilsögn og hrós fyrir.
Í veikindum ömmu er aðdáun-
arvert að minnast þess hve góður
afi var við hana og duglegur að sjá
um hana. Afi var góðhjartaður og
félagslyndur maður sem hafði
gaman af hvers konar samkomum
og þökkum við fyrir að haldið var
upp á áttræðisafmæli hans með
pompi og prakt. Fljótlega eftir það
fékk afi áfall og við það tók líf hans
skyndilega aðra stefnu. Afi lifði
heilsusamlegu lífi, fór í ræktina og
var duglegur að synda og bjó að
því í veikindum sínum.
Margt í fari afa er til eftir-
breytni og hann er sá maður sem
við munum taka okkur til fyrir-
myndar í lífinu og ávallt minnast
hans í huga og gjörðum.
Elsku afi, við munum alltaf
minnast þín og okkar tíma saman.
Takk fyrir allt.
Árni, Linda og Lára.
Elsku afi, langafi og vinur.
Þegar við lítum til baka koma í
huga okkar ljúfar minningar um
þig. Þú varst góður afi, traustur og
fyrirmynd í gegnum tíðina, afar
skilningsríkur og hafðir alltaf tíma
aflögu þegar var leitað til þín.
Fyrstu minningarnar um þig eru
frá Kópaskeri. Það var þegar ég
var lítil og við bjuggum í sömu
götu. Ég man að þú áttir stórt
karlmannshjól og í minningunni
var það svo stórt að ég gat ómögu-
lega hjólað á því á „eðlilegan“ máta
eða eins og afi minn gerði. Þess
vegna sat ég bara undir stönginni
og gat á einhvern ótrúlegan hátt
hjólað á stóra flotta hjólinu hans
afa. Svo man ég líka eftir skrifstof-
unni þinni í Duggugerðinu, flottu
spilastokkunum í skrifborðsskúff-
unum þínum og öllu því. Líka þeg-
ar þú labbaðir út um allt á höndum
einum saman og hoppaðir jafnvel.
Þegar ég hugsa til baka um þessar
minningar verð ég glöð í hjartanu.
Eftir að við Palli byrjuðum í
Menntaskólanum við Sund kíktum
við í tíma og ótíma í Gnoðarvoginn
og vorum ávallt velkomin til ykkar
ömmu. Það var alltaf svo gott að
koma í heimsókn, við spjölluðum
oft lengi saman og það var alltaf
svo mikil ró og kyrrð yfir þér og
gott að tala við þig. Svo áttum við
Palli síðar heiðurinn af því að gera
ykkur ömmu að langafa og lang-
ömmu í fyrsta sinn. Það var þegar
hann Arnar Snær kom í heiminn
og við komum til að segja ykkur
frá komu prinsins, þá var amma
sko alveg með það á hreinu áður
en við sögðum frá að ég væri ólétt.
Eftir það fluttum við í okkar fyrstu
íbúð í kjallaranum og þá varst þú
alltaf til í að hjálpa pabba við að
reisa veggi, skipta um glugga og
laga hitt og þetta. Við verðum þér
ávallt þakklát fyrir það. Það var
aðdáunarvert hvað þú hugsaðir
alltaf vel um ömmu eftir að hún
veiktist. Þú varst alltaf til staðar
fyrir hana. Svo kom að því að þú
lentir í bílslysinu og veiktist sjálfur
Árni Sigurðsson
✝ Árni Sigurðssonfæddist 10. apríl
1927 á Valþjófs-
stöðum í Núpasveit í
Norður-Þingeyj-
arsýslu. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
Eir 15. október 2010.
Útför Árna var
gerð frá Fossvogs-
kirkju 26. október
2010.
í kjölfarið. Okkur er
það afar minnisstætt
þegar þú lást á
Landspítalanum og
varst svolítið ringlað-
ur þegar öll fjöl-
skyldan stóð í kring-
um rúmið þitt. Upp
úr þurru spurðir þú:
„Palli, hvernig hefur
þú það í vinnunni?“
Þessi setning mun
koma til með að
fylgja Palla um alla
tíð.
En nú ertu farinn
á feðranna fund og við kveðjum þig
með miklum söknuði og trega.
Minning þín mun ávallt lifa í hjört-
um okkar. Takk fyrir það allt sem
þú hefur gefið okkur.
Kveðja
Brynja, Páll Ágúst, Arnar
Snær og Apríl Fjóla.
Elsku besti afi okkar. Mikið eig-
um við eftir að sakna þín. Við vor-
um svo heppnar að fá að hafa þig
hjá okkur öll þessi ár en núna ertu
kominn á betri stað með ömmu þér
við hlið. Allar samverustundirnar í
Gnoðarvogi, Lindarbyggð og sveit-
inni, þar sem þú naust þín ávallt
best, eru minningar sem að eru
okkur dýrmætari en allt. Þú varst
besti afi sem hægt var að biðja um,
vitur og vænn.
Þú varst alltaf með góð ráð og
skemmtilegar sögur að segja frá, á
milli þess sem þú nuddaðir skegg-
rótinni í hálsinn á okkur þangað til
að við sprungum úr hlátri eða þú
kitlaðir okkur niður í gólf. Við
munum aldrei gleyma gæsku þinni,
ástúð og hlýju. Jafnlyndari mann
var erfitt að finna. Eins erfiðar og
við systur vorum stundum á upp-
vaxtarárunum þá varstu aldrei
harðorður við okkur, hélst alltaf
þínu góða geði á meðan við rifumst
og slógumst.
Við erum svo þakklátar fyrir að
hafa getað fagnað áttræðisafmæl-
inu þínu með þér, einstaklega vel
heppnaður og eftirminnilegur við-
burður þar sem vinir og vanda-
menn fengu tækifæri á að fagna
langri og viðburðaríkri ævi þinni
með þér. Við vorum alltaf svo
montnar af því að eiga svona
sprækan og vinsælan afa sem færi
alltaf í ræktina eða í sund, ætti
fullt af vinum og væri virkur með-
limur í samfélagi aldraðra, hvort
sem það var að syngja í kór eða
spila brids. Þannig ætlum við sko
að vera þegar við verðum stórar.
Það var líka svo gaman að Ingunn
Sara hafi fengið að kynnast þér og
læra taflmennsku af þér. Hún var
alltaf svo hrifin af langafa sínum.
Að hafa fengið þau forréttindi að
eiga þig sem afa kenndi okkur
margt og er gott veganesti fyrir
okkur systur út í lífið. Takk fyrir
að hafa alltaf stutt okkur í öllu sem
við höfum tekið okkur fyrir hendur
og takk fyrir að hafa verið þú. Þín
verður sárt saknað.
Mér finnst ég varla heill né hálfur
maður
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að
deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Þínar afastelpur,
Klara, Soffía og Ingunn Sara.
Föstudaginn 15. október lést
vinur minn Árni Sigurðsson. Árna
kynntist ég árið 1974, nýbakaður
tengdasonur, þegar hann var bóndi
í Hjarðarási við Kópasker. Ég sá
strax að þar fór mikill skörungur.
Árni var hreinskiptinn og einstak-
lega þægilegur í umgengni en einu
sinni man ég þó eftir að það hafi
fokið í hann. Þau hjónin Árni og
Agga voru að fara til útlanda þeg-
ar verið var að endurbyggja fjár-
húsin. Bað hann okkur um að
steypa gólfplötuna á meðan. Við
gerðum það – mjög ánægð með
okkur. En Árni var ekki eins
ánægður og sagði: „Hvers konar
hraunlandslag er þetta eiginlega
hjá ykkur, þetta gólf? Það mætti
halda að þið hefðuð gert þetta fyrir
aftan rassgatið á ykkur.“ Hann
þoldi ekki neitt fúsk. Hann var
nefnilega mjög vandvirkur maður.
Eftir að þau hjónin fluttu suður
vorum við mikið saman. Við smíðar
og vorum einnig í bridge-klúbbi
ásamt tveimur góðum norðan-
mönnum. Árni missti Öggu sína ár-
ið 2006. Árið eftir, stuttu eftir átt-
ræðisafmælið hans, lenti hann í
slysi. Náði hann sér aldrei eftir
það, en góða viðmótið var ætíð til
staðar.
Kæri vinur, ég kveð þig með
trega en gleðst jafnframt því nú
ertu kominn aftur til Öggu þinnar.
Samúðarkveðjur sendi ég öllum að-
standendum. Góður maður er
genginn á braut.
Kristján Ásgrímsson.
Kær vinur, Árni Sigurðsson, lést
á hjúkrunarheimilinu Eir 15. októ-
ber 2010, 83ja ára að aldri. Með
söknuði og eftirsjá kveðjum við
góðan skólafélaga frá Laugarvatni,
þar sem við unglingar af öllu land-
inu áttum saman góðar og upp-
byggilegar stundir frá 1945 til
1947. Mér er minnisstætt að bara
úr Norður-Þingeyjarsýslu voru um
10 nemendur, allt saman yndislegir
félagar á aldrinum15-20 ára. Norð-
lendingar komu suður og Sunn-
lendingar fóru norður. Þetta jók á
víðsýni og almenna þekkingu okk-
ar á landinu og fólkinu.
Síðar urðum við Árni bekkjar-
systkini í Menntaskólanum á Ak-
ureyri svo kynni okkar hafa varað
lengi en skólaárin á Laugarvatni
mótuðu sterka samkennd með okk-
ur nemendum þaðan.
Árni var mikill sómamaður, vel
gefinn, söngmaður góður og hvers
manns hugljúfi. Hans rætur voru
norður í Þingeyjarsýslu og í sveit-
ina leitaði hugur hans. Hann fór
því í búnaðarnám á Hvanneyri að
stúdentsprófi loknu og flutti síðan
norður með konu sinni, glæsilegri
stúlku úr Borgarfirði, Ragnheiði
Daníelsdóttur. Þar gerðist hann
bóndi, skólastjóri og mikill félags-
málamaður sem ætíð vildi láta gott
af sér leiða og vann öll sín störf af
trúmennsku og samviskusemi.
Árni og Ragnheiður fluttu til
Reykjavíkur 1991 og þá fengum
við gamlir Laugvetningar fljótt að
njóta vináttu þeirra og samveru-
stunda, í kirkjukaffi, ferðalögum
og dansi. Árni talaði þá oft til okk-
ar á kjarngóðu máli, söng með
okkur og smitaði frá sér gleði og
góðvild. Fyrir tveimur árum lenti
Árni í alvarlegu slysi og bar ekki
sitt barr eftir það. Hann var samt
alltaf sama ljúfmennið og fagnaði
vinum með brosi og hlýjum faðmi.
Ég átti ekki kost á að fylgja
Árna síðasta spölinn en sendi börn-
um hans og fjölskyldu samúðar-
kveðjur.
Ólöf Pálsdóttir.
Ég man hvernig þú
klæddir þig þegar þú
mættir fyrsta daginn
í Verzlunarskólann.
Þú gekkst þvert yfir
stofuna og settist á aftasta bekk
við gluggann. Mér finnst skrítið
hve skýr þessi minning er því ég
man ekkert annað frá þessum
degi. Viku síðar vorum við orðnir
vinir. Við áttum það sammerkt að
láta skólann mæta afgangi og mér
er minnisstætt þegar þú skilaðir af
þér fyrsta lögfræðiprófinu þínu í
Verzlunarskólanum. Þú svaraði
ekki einni spurningu heldur teikn-
aðir mynd á baksíðu prófsins.
Þetta var einföld „Óla prik“-mynd
og þú skrifaðir á spássíuna að
hana ætti að lita. Það var þó að-
eins hægt að lita einn flöt, fyrir
miðri mynd. Ég man þegar kenn-
arinn, indælis kona, varpaði þess-
ari mynd á vegginn og spurði
bekkinn hvað væri að verða um
æsku landsins. Í sömu andrá bætt-
ir þú við að þú ætlaðir að fara í
lögfræði. Það var mikið hlegið.
Mér var hins vegar ekki hlátur í
huga því ég vissi að þér væri al-
vara og eins að þú ættir eftir að
leika þér að hvaða námi sem væri.
Það var alveg sama hvernig þú
hegðaðir þér og grínaðist í fram-
haldsskóla, mér var fullljóst að þú
værir skarpgreindur og einhver
indælasti drengur sem ég hafði
kynnst. Það kom líka í ljós þegar
þú eltir stóra bróður í lögfræðina.
Við héldum áfram að hittast
daglega þegar kom að háskóla-
námi. Mér eru minnisstæðir nær
daglegir fundir okkar á Kaupfélag-
inu á Laugavegi að loknum skóla-
degi þar sem við tefldum yfir
rauðvínsglasi. Við vorum ekki vin-
sælir því þú áttir það til að syngja
þegar þú hugsaðir næsta leik. Þú
gerðir þetta ómeðvitað enda eng-
inn söngvari. Lagavalið var enn-
fremur óskiljanlegt. Slagarar eins
og „What’s love got to do with it“
með Tinu Turner hljómuðu aftur
og aftur og aftur.
Það er ekki hægt að lýsa þér,
Öddi minn, í stuttu máli. Þegar ég
skrifa til þín í hinsta sinn er svo
margt sem kemur upp í hugann og
svo margt sem mig langar til að
segja. Ég hef líka þráast við að
skrifa þessa minningargrein því
það þvingar mig til að horfast í
augu við þá staðreynd að þú sért
farinn.
Í síðasta símtali okkar varstu
glaður í bragði og spurðir mig út í
hjónabandið og lífið og tilveruna
hér ytra. Ég spurði þig að sama
skapi hvernig þú værir í bakinu og
hvernig þér liði. Þú svaraðir að
bragði og án þess að skipta um
tón: „Svona upp og niður.“ Þú
Örn Egill Pálsson
✝ Örn Egill fæddistí Reykjavík 1.
mars 1976. Hann and-
aðist á heimili sínu 14.
október síðastliðinn.
Útför Arnar var
gerð frá Víðistaða-
kirkju 26. október
2010.
forðaðist orðræður
um eigin mál og
barst aldrei tilfinn-
ingar þínar á torg.
Þetta var þinn
stærsti veikleiki því
þú varst umvafinn
yndislegri og stórri
fjölskyldu og góðum
vinum sem öll sem
eitt elskuðu þig og
voru reiðubúin til að
hjálpa.
Elsku vinur, það er
mér þungbært og
sárt að þurfa að
kveðja svo allt of snemma. Þú
varst einstakur samferðamaður,
fyrirmynd mín um margt og
reyndist mér líkt og bróðir. Fáir
hafa mótað mig eins mikið og þú
og þótt þú sért nú farinn þá mun
ég kappkosta að halda minning-
unum á lofti. Það verður auðvelt
því þegar ég rifja upp það sem
stendur upp úr varstu ávallt
nærri.
Foreldrum þínum, Páli og Rósu,
systrum þínum og Victor bróður
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Öddi minn, hvíl í friði.
Sveinn Rúnar Sigurðsson.
Meira: mbl.is/minningar
Æskuvinur minn hann Öddi hef-
ur kvatt þennan heim. Við kynnt-
umst 10–11 ára gamlir. Hann bjó
svo að segja í næstu götu við mig
og leiðir okkar lágu saman í gegn-
um körfuboltann.
Ætli við höfum ekki byrjað á
nánast sama tíma að æfa hjá Ingv-
ari í Haukunum. Við kepptum fullt
af leikjum með okkar flokki fram á
unglingsár og skemmtilegastir
þóttu okkur leikirnir við Njarðvík
og Grindavík, enda voru þau tvö
ásamt okkur í Haukum bestu liðin.
Við vorum þó með aðalskyttuna í
Ödda enda átti hann það til að
smella nokkrum þristum langt fyr-
ir utan þriggja stiga línuna. Sumr-
in voru nýtt á malbikinu við Víð-
istaðaskóla þar sem við spiluðum
einn á einn, oftast upp í 100 og svo
var byrjað uppá nýtt. Þetta var
einfaldlega það sem lífið snerist
um á þessum árum hjá okkur.
Margt annað var brallað líka og
man ég sérstaklega eftir gömlu
ritvélinni sem Öddi var með afnot
af. Þar sátum við og skrifuðum.
Vorum sjálfskipaðir ritstjórar og
ekki vantaði uppá ímyndunaraflið
eða húmorinn.
Árin liðu og sitthvor vinahópur
og framhaldsskóli höguðu því
þannig til að við misstum þráðinn.
En alltaf þegar við rákumst hvor á
annan, hvort sem það var á förn-
um vegi eða þegar við vorum
flokksstjórar ásamt Viktori bróður
þínum, var eins og við hefðum hist
í gær. Það er merki um sanna vin-
áttu og er ég þakklátur fyrir þann
tíma sem við áttum saman sem
strákar. Eftir lifir minning um
góðan dreng og eiga foreldrar og
fjölskylda Ödda mína dýpstu sam-
úð.
Flóki.
Elsku hjartans vin-
ur minn, ég á svo erf-
itt með að trúa því að
þú sért farinn.
Það er svo margt sem ég á eftir
að segja og gera með þér, öll okk-
ar plön og framtíðaráform. Ég
Kjartan Björnsson
✝ Kjartan Björns-son fæddist í
Reykjavík 4. júní
1987. Hann lést af
slysförum í Noregi
30. október 2010.
Útför Kjartans fór
fram frá Grindavík-
urkirkju 11. nóv-
ember 2010.
bara skil þetta ekki,
ég skil ekki af hverju
þú varst tekinn frá
okkur svona fljótt.
Og því miður verður
þeirri spurningu
aldrei svarað.
En ég veit að núna
ertu partur af okkur
öllum sem styrkir
okkur og verndar, og
vonandi veistu
hversu mikið við
söknum þín og elsk-
um. Og vil ég geta
huggað mig við það,
að það mun koma sá tími þegar
leiðir okkar liggja aftur saman.
Ætli það sé bílskúr í himnaríki?
hver veit. Við gátum lokað okkur
þar inni heilu dagana og fíflast,
hlegið, grátið og spekúlerað enda-
laust, og þess sakna ég mest.
Þú varst besti vinur minn, og
mun ég ávallt geyma allar okkar
minningar við hjartastað.
Og langar mig að nota tækifærið
og þakka þér fyrir að hafa alltaf
verið til staðar, og með svörin við
öllu þegar eitthvað bjátaði á. Takk
vinur.
Ekki hafa áhyggjur, við munum
passa Kötu fyrir þig, og verðum
alltaf til staðar fyrir hana.
Elsku Bjössi, Elín og fjölskylda
Þótt svo að við finnum til frá
dýpstu hjartarótum, þá er lífsins
ómögulegt að setja okkur í ykkar
spor.
Hugur okkar er hjá ykkur.
Egill og Eva.