Morgunblaðið - 30.11.2010, Page 1

Morgunblaðið - 30.11.2010, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. N Ó V E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  280. tölublað  98. árgangur  BLANDA AF HJÓLA- OG SÆLKERAFERÐ MYNDIR RAGNARS TIL TÍBETS BÖRNIN BORÐUÐU ÍSINN OG STÁLU SENUNNI BRÁÐNUN JÖKLA 28 ÍSHOKKÍMÓT ÍÞRÓTTIRHJÓLAÐ Á ÍTALÍU 10 Morgunblaðið/Golli Þingmenn Birgir Ármannsson og Kristján Þór Júlíusson alþingismenn.  Meirihluti fjárlaganefndar sam- þykkti í gærkvöldi tillögur um að hækka útgjöld vegna fjáraukalaga þessa árs um 58 milljarða. 33 millj- arðar eru tilkomnir vegna Íbúða- lánasjóðs og 25 milljarðar eru vegna ríkisábyrgða sem eru til- komnar vegna bankanna. Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjár- laganefnd, segir að þessar tillögur hafi verið kynntar á klukku- tímalöngum fundi í fjárlaganefnd og síðan teknar út úr nefndinni. Fyrirhugað er að afgreiða fjár- aukalög á þingfundi í dag. Kristján segir að á fundinum hafi ekkert verið reynt að leiða fram áhrif þess- ara breytinga á afkomu eða fjárhag ríkissjóðs. „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð. Það er ekki eins og við séum að tala um eina eða tvær milljónir.“ egol@mbl.is Fjáraukalög hækka um 58 milljarða vegna lánastofnana Kristján Jónsson kjon@mbl.is Meirihlutinn í Reykjavíkurborg mun leggja fram fjárhagsáætlun á fundi borgarstjórnar í dag, að sögn S. Björns Blöndal, aðstoðarmanns borgarstjóra. Hvorki Björn né Dag- ur B. Eggertsson, formaður borgar- ráðs, vildu skýra frá neinum niður- stöðutölum. Aðrir heimildarmenn Morgunblaðsins segja að ætlunin sé að hækka útsvar úr 13,03% í 13,20%, lögbundið hámark er 13,28%. Einnig verða fasteignagjöld og lóðaleiga hækkuð. Alls er talið að þessar þrjár hækk- anir auki tekjur borgarinnar um 1.000 milljónir króna. Þar að auki verða margvísleg önnur gjöld og álögur hækkuð og nemur sá tekju- auki hundruðum milljóna króna. Þess má geta að borgin á nú 17,1 milljarð í sjóði, peninga og verðbréf, þar af eru að vísu 10 milljarðar í varasjóði vegna skulda Orkuveitunn- ar. Staða hennar hefur batnað að undanförnu og óvíst hvort nokkur þörf verður á þessum varasjóði. Ljóst er að fasteignamat mun lækka vegna þróunar á fasteigna- markaði og myndu því tekjurnar af því dragast nokkuð saman að óbreyttri prósentu. Meirihlutinn set- ur undir þann leka með því að hækka umrædd gjöld. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi rík- isstjórnarinnar verður trygginga- gjald hækkað og einnig mun ríkið taka á sig minna af kostnaðinum við húsaleigubætur. Útgjaldaaukning Reykjavíkurborgar vegna þessara liða verður alls tæpar 900 milljónir. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn munu hafa gagnrýnt að meirihlutinn skyldi ekki reyna af meiri krafti að fá ríkið til að slaka til í þessum efnum við borgina. Útsvar í Reykjavík 13,20%  Borgarstjórnarmeirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar hyggst einnig hækka fasteignaskatta og lóðaleigu og ýmsar aðrar álögur verða líka hækkaðar Mikið lausafé » Reykjavík á 17,1 milljarð króna. Íbúar eru 118.326 og koma því 144.500 kr. á hvern. » Samkvæmt heimildum blaðsins á Akureyri 1,6 millj- arða, Kópavogur 1,5 milljarða og Garðabær 800 milljónir. » Það eru 91 þúsund kr. á Ak- ureyring, 49.500 á Kópavogs- búa og 75.200 á Garðbæing. Morgunblaðið/Golli Úrslit Talning atkvæða í kosning- unum fer fram í Laugardalshöll. Alls eru þessir seðlar liðlega 10 þús- und eða um 13% af öllum atkvæðum sem greidd voru í kosningunum. Ástæður þess að meðhöndla þarf þessa seðla sérstaklega eru nokkr- ar, t.d. koma tölur frambjóðenda tvisvar fyrir, þar er að finna rangar tölur (sem ekki eru til), auðar línur á seðlum eða ekki er skýrt hvaða tölur kjósandi skrifaði niður. Ef tala er röng á atkvæðaseðl- inum eða tvítekin eða ef ein lína á seðlinum er auð skoðast öll atkvæði þar fyrir neðan ógild. Þeir sem tóku Eitt af því sem hefur tafið talningu atkvæða í kosningu til stjórnlaga- þings er að borð sem notuð voru í kjörklefum í Laugardalshöll eru hrufótt, en það hefur leitt til þess að skannar, sem notaðir eru við taln- ingu atkvæða, skynja ekki þær tölur sem eru á sumum atkvæðaseðlum þó að ekkert fari á milli mála hvað stendur á seðlunum. Þetta er þó ekki meginástæðan fyrir því að talningin hefur reynst tímafrek heldur hitt að mjög margir atkvæðaseðlar eru ógildir að hluta. þátt í að undirbúa lögin lögðu til að atkvæðaseðlar af þessu tagi yrðu meðhöndlaðir þannig að hlaupið yrði yfir rangar tölur eða auðar lín- ur og frambjóðendur þar fyrir neð- an yrðu taldir með. Á það féllst Al- þingi ekki. Í dag verður hafist handa við að úthluta sætum á grundvelli talning- ar í kosningunum. Hugsanlega þarf að varpa hlutkesti ef atkvæði á bak við frambjóðendur eru jöfn. Vonast er eftir að hægt verði að birta úrslit kosninganna í dag. »4 Skilja ekki „hrufóttu“ atkvæðin Liðlega 10 þúsund atkvæði í stjórnlagaþingskosningunum eru ógild að hluta Veggjakrotarar láta ekki síst að sér kveða í und- irgöngum enda þola verk þeirra illa dagsljósið. Steinar Bergmann hjá framkvæmdasviði Reykjavíkur vann við þrif í undirgöngunum und- ir Miklubraut við Lönguhlíð í gær en ef að líkum lætur þarf hann fljótlega að snúa aftur. Eilífðarverkefni í undirgöngum Morgunblaðið/Kristinn  Eftir fund fimm ráðherra rík- isstjórnar Íslands með fulltrúum stjórnarandstöðunnar í gærmorgun virðast stjórnvöld engu nær að leysa vanda skuldsettra heimila. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins kynnti Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráðherra enn á ný áform ríkisstjórnarinnar, sem bankar og lífeyrissjóðir hafa ekki samþykkt. Mun forsætisráðherra hafa beðið fundarmenn að halda trúnað um það sem viðmælendur Morg- unblaðsins hafa nefnt „það sem ekkert er“. Fullkomin óvissa ríkir um lyktir mála. agnes@mbl.is »2 Trúnaður um það sem ekkert er? Talsvert meira en endranær var um kvartanir farþega vegna seinkana í flugi á þessu ári, aðallega vegna gossins í Eyjafjallajökli í vor, að sögn Flugmálastjórnar, Neyt- endastofu og Neytendasamtakanna. Íslensku flugfélögin þurfa því að greiða tugi milljóna króna í bætur en dráttur hefur orðið á því að greiða úr ágreiningsmálum. Icelandair hefur þurft að sinna um 1.000 kvörtunum frá ýmsum þjóðlöndum vegna tafa og afbókana í kjölfar gossins. Búið er að afgreiða um 95% málanna og hin verða kláruð fyrir áramót. »16 Bætur vegna tafa af gosi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.