Morgunblaðið - 30.11.2010, Síða 10

Morgunblaðið - 30.11.2010, Síða 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift *Árleg nafnávöxtun frá 15.01.2001 til 31.10.2010. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti. Við öflum fyrir þig 10,1% 100%RÍKISTRYGGING ÁRLEGNAFNÁVÖXTUN* Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 Reykjavík Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ítalía er frábært land fyrirhjólaferðir. Sum okkar íhópnum voru að fara í hjóla-ferð til Ítalíu í þriðja sinn, við höfðum áður hjólað á Sardiníu og Sikiley,“ segir Helga Sigrún Sigurjónsdóttir en hún var í tíu manna hópi sem fór í haust í hjóla- ferð til svæðis sem heitir Pied- mont. „Þetta er alveg æðislegt svæði úti í sveit. Þetta er vínrækt- arhérað sunnan við Torino á Norð- vestur-Ítalíu, fyrir sunnan Alpana en norðan Genúa. Við leigðum stórt hús af íslenskum manni rétt utan við þorpið Bubbio, sem rúmaði okk- ur öll, fimm hjón. Húsið stendur eitt og sér uppi á hárri hæð og um- hverfið var eins og í himnaríki, akr- ar, vínviður og ólífutré svo langt sem augað eygði. Eplatré og app- elsínutré í garðinum. Og sund- laug,“ Hjóluðu 60 km á dag Hún segir að þau tíumenning- arnir sem öll eru búsett á Reykja- víkursvæðinu hafi ekki æft neitt sérstaklega mikið fyrir hjólaferð- ina, en þó skipulögðu hver hjón eina æfingaferð fyrir hópinn áður en farið var í túrinn. „Við hjóluðum til dæmis hlaupaleiðina í Heið- mörkinni sem er 21 kílómetri og einn daginn hjóluðum við á Nesja- velli. En erfiðast var þegar við hjól- uðum gömlu Lyngdalsheiðarleiðina austur fyrir Laugarvatn í hörku mótvindi. Okkur fannst við vera miklir naglar eftir þetta. Eftir fimm æfingaferðir vorum við öll komin í fínt hjólaform og tilbúin til að takast á við sex daga hjólaferð á Ítalíu,“ segir Helga og bætir við að í hópnum séu miklir sælkerar og því var ferðin ekki síður hugsuð til að njóta alls þess besta sem svæðið hafði upp á að bjóða í mat og drykk. „En við gáfum ekkert eftir í hjólakröfunum, við hjóluðum 60 kílómetra á dag, vorum yfirleitt að hjóla frá tíu á morgnana til fjögur á daginn. Þetta voru endalausar hæðir og því heilmikið púl. En ánægjan því meiri að verðlauna sig í mat og drykk.“ Þau leigðu sér hjól hjá Solo- bike sem er fyrirtæki í eigu Joseps, lögreglumanns í fyrrnefndu þorpi, Bubbio. „Hann fer meðal annars með skólakrakka í fræðandi nátt- úruferðir á hjólum og þekkir svæð- ið mjög vel. Fyrsta daginn hjól- uðum við á eigin vegum til að skoða okkur um í nágrenninu og á einum veginum rákumst við á mann á traktor með kerru fulla af vínberj- um og bóndinn bauð okkur heim á bæ. Hann fór með okkur í vínkjall- arann og gaf okkur að smakka alls- konar vín. Við fengum að sjá hvernig vínið er unnið og stóðumst ekki mátið og keyptum nokkrar flöskur, en þar sem við vorum á hjólum þá var vínið keyrt heim í hús til okkar.“ Bóndakona bauð í mat Á degi tvö réðu þau lögreglu- manninn Josep, sem átti hjólaleig- una, til að hjóla með þeim. „Hann sýndi okkur leiðirnar sem voru í boði og þær voru mjög fjölbreyttar. Við hjóluðum ýmist á malbikuðum vegum þar sem bílar keyrðu eða á fáfarnari slóðum, skógarstígum og malarstígum. Við hjóluðum líka á slóðum sem lágu á milli vínakr- anna. Við rákumst á bóndakonu á einum bænum sem vildi endilega Hjólaferð á Ítalíu með sælkeraívafi Fimm hjón fóru saman í hjólaferð til Piedmont á Ítalíu í haust og lögðu mikla áherslu á að gera vel við sig í mat og drykk enda héraðið mikið gnægtarsvæði. Vínbændur buðu þeim heim til sín í smakk og veislur og á einum veitingastaðn- um voru þau í fimm tíma að borða níu rétti sem voru hver öðrum betri. Sæla Helga Sigrún á einum af mörgum skógarstígum sem hjólað var um. Í vínkjallara Þessi vínbóndi kynnti fyrir þeim veigarnar. Skylmingar eru vaxandi íþrótt á Ís- landi og full ástæða til að hvetja fólk á öllum aldri til að kynna sér íþrótt- ina og prófa hvort hún hentar þeim. Á blogginu hennar Þorbjargar Ágústsdóttur skylmingakonu, tobba- sabre.bloggar.is, segir hún frá ferð- um sínum um heiminn, skylmingaæf- ingum, -kennslu og mörgu öðru sem viðkemur skylmingum. Hún segir m.a: „Ef þig langar að prófa skylmingar – ekki hika, heldur hafðu samband! Þetta er snilldaríþrótt! Við tökum einnig á móti hópum (max 20 í einu) ef fyrirtæki hafa áhuga á að prófa. Tvö félög eru starfandi, Skylminga- félag Reykjavíkur og Skylmingadeild FH. Mitt félag er Skylmingafélag Reykjavíkur. Við erum með barna- hópa frá sjö ára aldri og einnig byrj- endatíma fyrir fullorðna auk lands- liðsæfinga.“ Þorbjörg er nýlega búin að verja Ís- landsmeistaratitilinn í sjötta sinn og segir á blogginu: „Það er mikilvægt fyrir mig að verja Íslandsmeistaratit- ilinn og ég legg mig alla fram um að ná því. Samkeppnin hérna heima er alltaf að verða meiri og mjög efnileg- ar stelpur að koma upp. Það er björt framtíð í skylmingum á Íslandi.“ Vefsíðan www./tobbasabre.bloggar.is Morgunblaðið/Golli Skylmingar Ögrandi íþrótt þar sem reynir á snerpu, útsjónarsemi og kraft. Skylmingar eru skemmtilegar Það er aldrei of seint að byrja að stunda hreyfingu og ef það er einhver í fjöl- skyldunni sem ykkur langar til að hvetja til útivistar þá er um að gera að gefa eitthvað í jólagjöf sem kemur þeim aðila af stað. Til dæmis væri hægt að kaupa nokkra tíma í badminton eða skvass fyrir tvo og gefa viðkomandi spaða og láta fylgja með kort þar sem upplýst er að saman eigið þið inni nokkra tíma í skemmtilegu sporti. Einnig væri hægt að bóka fyrir ykkur tvö, tvær eða tvo í lengri eða styttri gönguferð næsta sumar, annaðhvort hér heima eða í útland- inu, nú eða hjólaferð ef það hentar frekar. Það er líka tilvalið að lauma sund- korti með í jólakortið og skrifa þiggjandanum þær ánægjulegu fréttir að þú ætlir með honum í sund einu sinni í viku eða oftar. Endilega... ...gefið heilsubætandi jólagjöf Reuters Eflir vináttu Badminton er gott fyrir bæði kropp og sál.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.