Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 Sudoku Frumstig 7 5 6 4 2 9 7 7 5 1 3 4 7 1 2 4 9 5 6 4 3 1 4 9 2 6 3 4 8 7 9 1 9 7 9 6 3 5 3 9 7 5 3 6 4 1 8 7 5 7 8 4 2 6 5 4 8 1 7 5 3 4 9 7 5 8 1 4 1 9 5 3 9 6 2 1 3 9 8 7 4 5 2 1 6 4 7 2 1 6 8 3 5 9 6 5 1 3 9 2 7 8 4 2 6 3 8 7 9 1 4 5 7 4 5 6 1 3 8 9 2 8 1 9 2 5 4 6 7 3 9 3 7 4 2 1 5 6 8 1 2 4 5 8 6 9 3 7 5 8 6 9 3 7 4 2 1 2 8 6 9 4 3 1 5 7 1 5 9 7 2 6 4 8 3 7 4 3 1 5 8 6 2 9 4 7 5 3 6 2 9 1 8 3 9 2 8 1 4 7 6 5 6 1 8 5 9 7 3 4 2 5 3 7 4 8 1 2 9 6 9 2 1 6 7 5 8 3 4 8 6 4 2 3 9 5 7 1 5 9 3 4 6 1 8 7 2 7 6 2 3 5 8 9 4 1 1 4 8 2 7 9 6 5 3 4 1 6 5 8 2 3 9 7 2 5 9 7 4 3 1 6 8 8 3 7 1 9 6 5 2 4 9 8 4 6 3 7 2 1 5 3 7 1 9 2 5 4 8 6 6 2 5 8 1 4 7 3 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 30. nóvember, 334. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta. (Mk 13, 27.) Víkverji ímyndar sér að erlendirferðamenn, sem til Íslands koma þessa dagana, eða þá Íslend- ingar sem snúa heim á Frón eftir langa fjarveru, eigi erfitt með að sjá við fyrstu sýn að hér hafi orðið bankahrun eða að hér sé einhver kreppa. Jólaverslunin er komin á fullt, glæsivagnar aka enn um götur og jólahlaðborð veitingahúsanna eru vel setin. Ekki er heldur hægt að segja að sé kreppa þegar tugþús- undir miða seljast á jólatónleika með Frostrósum, Bjögga Halldórs eða öðrum listamönnum, þrátt fyrir að miðinn hafi í sumum tilvikum kostað yfir 10 þúsund kall. x x x Víkverji telur þó ljóst að ef hinnerlendi gestur fari að kynna sér málið nánar, og dvelja hér lengur, þá muni hann sjá afleiðingar krepp- unnar betur. Hann gæti t.d. staðið með myndavélina fyrir utan húsnæði Mæðrastyrksnefndar og Fjöl- skylduhjálpar Íslands þegar mat- arúthlutanir fara fram. Hann gæti einnig litið inn á skrifstofu Vinnu- málastofnunar þegar fólk er að sækja um atvinnuleysisbætur, og farið það- an til Umboðsmanns skuldara. Í lok ferðar, á leiðinni heim til baka með flugvélinni, sést síðan endanleg stað- festing á að efnahagur Íslendinga hafi skroppið saman. Saga-Class er ekki lengur þéttsetið og færri eru leiðinni í verslunarferðir og frí til út- landa. Einkaneyslan fer fram hér á landi sem aldrei fyrr og Víkverji fagnar því að landsmenn eigi afgang til að njóta góðrar tónlistar og kræs- inga á aðventunni. Hætt er við að jólasveinninn „Kortaklippir“ fái þó nóg að gera að veislu lokinni. x x x Jafn mikið og Víkverji fagnaði því ádögunum að Randver Þorláks- son hefði snúið til baka í Spaugstof- unni í hlutverki Örvars róna þá voru vonbrigðin mikil við að sjá hvað end- urkoman var skammvinn. Örvar hef- ur ekki sést aftur og Bogi er hálfur maður, í bókstaflegri merkingu, án vinar síns á Arnarhólnum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 frá Svíþjóð, 4 svínakjöt, 7 hænur, 8 ólga, 9 þegar, 11 vítt, 13 æsi, 14 möndullinn, 15 þukl, 17 tarf- ur, 20 aula, 22 varðveitt, 23 þrautir, 24 úldin, 25 skyldmennin. Lóðrétt | 1 drekkur, 2 at- hugasemdum, 3 ögn, 4 skor- dýr, 5 í vafa, 6 lítil tunna, 10 allmikill, 12 líkamshlutum, 13 bókstafur, 15 fallegur, 16 dulið, 18 hindra, 19 kaka, 20 svifdýrið, 21 smáalda. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 göfuglynd, 8 sakni, 9 rolla, 10 náð, 11 marin, 13 Ingvi, 15 hrund, 18 assan, 21 ræð, 22 tudda, 23 arinn, 24 haganlegt. Lóðrétt: 2 öskur, 3 urinn, 4 lærði, 5 nýleg, 6 ósum, 7 kali, 12 inn, 13 nes, 15 hiti, 16 undra, 17 draga, 18 aðall, 19 sting, 20 nánd. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 c6 4. Rc3 dxc4 5. a4 Bf5 6. Re5 e6 7. Bg5 Bb4 8. f3 c5 9. dxc5 Dxd1+ 10. Kxd1 Rbd7 11. Rxd7 0-0-0 12. e4 Hxd7+ 13. Kc2 Bg6 14. c6 bxc6 15. Bxc4 Hhd8 16. Ba6+ Kc7 17. a5 Be7 18. Be3 Kb8 19. Kb3 Re8 20. Hhc1 f5 21. exf5 exf5 22. Hd1 Bf7+ 23. Ka4 Rc7 24. Be2 f4 25. Bf2 Hd2 26. a6 Staðan kom upp á Ólympíumótinu í skák sem fór fram í Manila í Filipps- eyjum árið 1992. Margeir Pétursson hafði svart gegn hollenska kollega sínum í stórmeistarastétt, Gennady Sosonko. 26. … Rb5! hvítum er nú allar bjargir bannaðar. 27. Hab1 Rxc3+ 28. bxc3+ Kc8 og hvítur gafst upp enda liðstap eða mát óumflýj- anlegt. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Vel lesið Norður ♠Á876 ♥62 ♦ÁD74 ♣G42 Vestur Austur ♠94 ♠DG1053 ♥ÁD95 ♥– ♦K53 ♦G109862 ♣K986 ♣53 Suður ♠K2 ♥KG108743 ♦– ♣ÁD107 Suður spilar 4♥ dobluð. Svo er að sjá sem vörnin fái óhjá- kvæmilega fjóra slagi – þrjá á tromp og einn á ♣K. Sú varð líka raunin í flestum leikum Campions Cup. Ekki þó var sem Þjóðverjinn Martin Rehder sat í suður. Við hans borð vakti austur á Tartan 2♠. Rehder stökk í 4♥, sem vestur doblaði með ánægjusvip. Út- spilið var ♠9. Rehder las spilið vel. Hann tók fyrsta slaginn á ♠K heima og þrumaði út ♣D! Vestur drap og spilaði aftur spaða. Rehder notaði innkomuna á ♠Á til að trompa tígul. Tók næst á ♣Á, spilaði laufi á gosann og trompaði aftur tígul. Trompaði síðan ♣10 í borði með smátrompi og stakk tígul heima í þriðja sinn. Þá var sviðið sett fyrir lokaatriðið. Suður átti nú ♥KG108, en vestur ♥ÁD95. Rehder spilaði há- hjarta og tryggði sér tvo slagi í viðbót. 30. nóvember 1916 Goðafoss, annað af tveimur skipum Eimskipafélags Ís- lands, strandaði í hríðarveðri og náttmyrkri við Straumnes, norðan Aðalvíkur á Horn- ströndum. Menn frá Látrum björguðu farþegum og áhöfn, 60 manns. Skipið náðist ekki aftur á flot. Goðafoss hafði komið til landsins hálfu öðru ári áður. 30. nóvember 1943 Listasafn Einars Jónssonar var fyrst húsa í Reykjavík tengt hitaveitu frá Reykjum í Mosfellssveit. Árið 1930 hafði heitt vatn úr Laugardal verið leitt í Austurbæjarskólann og fleiri hús. 30. nóvember 1965 Íslenskir bankar keyptu Skarðsbók á uppboði í Lond- on. Þetta var eina forn- íslenska handritið sem var í einkaeign. Það var síðar af- hent Handritastofnun til varð- veislu. 30. nóvember 2007 Kárahnjúkavirkjun var form- lega tekin í notkun með við- höfn, bæði í Fljótsdalsstöð og Reykjavík. Fyrsta aflvélin hafði verið gangsett 5. nóv- ember. Framkvæmdir hófust vorið 2003. Uppsett afl virkj- unarinnar fullbúinnar er 690 megawött. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Ég hef verið í prófum á afmælinu mínu síðustu 20 árin. Fyrir tíma Facebook var það bara heppni ef einhver mundi yfir höfuð eftir afmælinu mínu,“ segir Þórunn Helga Þórðardóttir lögfræðingur, sem er 26 ára í dag. Þórunn lauk meistaranámi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík í upphafi árs. Vegna prófatíðar hefur hún almennt ekki gert mikið úr afmælisdeginum en eitt sinn tóku þó vinir hennar fram fyrir hendurnar á henni. „Þeg- ar ég bjó í New York í eitt ár þá var haldið stórt, óvænt partí og búið að fylla herbergið mitt af alls konar blöðrum. Það var eiginlega í síðasta skipti sem ég hélt upp á afmælið.“ Hún segir nóvember hafa flogið svo hratt hjá í ár að afmælið og aðventan komi alveg aftan að henni. Hún er því ekkert farin að huga að jólum heldur. „Mér finnst ágætt að vera ekki að stressa mig á því. Jólin í fyrra voru eiginlega þau bestu hingað til, því þá ákvað ég að afþakka allar gjafir en bað fólk að gefa í góðgerð- armál í staðinn og gerði það sama sjálf. Það voru rólegustu jól sem ég hef upplifað.“ Viðhorfið gagnvart afmælinu er álíka rólegt. Í kvöld ætlar hún út að borða og svo er ekki útilokað að eitthvað verði gert í tilefni þess næstu helgi. „Maður á aldrei að segja aldrei.“ una@mbl.is Þórunn Helga Þórðardóttir er 26 ára Fyrsta próflausa afmælið Flóðogfjara 30. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 1.01 3,2 7.14 1,2 13.26 3,4 19.50 1,0 10.43 15.51 Ísafjörður 3.13 1,7 9.17 0,7 15.21 1,9 22.01 0,6 11.18 15.26 Siglufjörður 5.35 1,1 11.26 0,4 17.46 1,1 11.02 15.08 Djúpivogur 4.05 0,8 10.26 1,9 16.40 0,8 23.09 1,9 10.20 15.13 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Ekki rasa um ráð fram og álykta neitt fyrr en þú hefur fengið að heyra sög- una í heild. Það mun margt koma þér á óvart. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert í margbrotnu skapi, sem leyfir þér að njóta skemmtilegustu hugmyndanna. Vinur trúir á það sem hann segir. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú þarft að velta fyrir þér öllum möguleikum sem standa til boða í fjár- málum. Hafðu það í huga. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú þarft að breyta til, ekkert stór- vægilegt, til dæmis að fara aðra leið í og úr vinnu. Það hitnar í kringum þig – er einhver ástfangin/n af þér? (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Alltaf má finna þann flöt á málum að hægt sé að halda upp á þau. Stundum þarf maður að fara eigin leiðir í átt að markinu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Kona í fjölskyldunni leggur að þér að grípa til óvenjulegrar heilsubótar. Almennt er yfirsýn hennar meiri en flestra annarra, sem er ástæða þess að hún nær meiri árangri. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Einhver í fjölskyldunni lætur orð falla sem gætu eyðilagt eða bjargað deginum. Lærðu að skyggnast undir yfirborð þess sem sagt er. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Er það ímyndun eða ertu alltaf að rekast á vissa manneskju? Þetta er of mikil tilviljun til að hafa enga þýðingu. Vertu þolinmóð/ur. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Velgengni veltur á því að rétt manneskja sé skipuð í hvert hlutverk í lífi þínu. Tilfinningar og hugsanir eru í einni bendu og skynsemin og yfirvegunin eftir því. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Geta þín til þess að þefa uppi vandamál er með mesta móti í dag. Frítím- ann áttu ein/n og getur gert það sem þú vilt. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Notaðu persónutöfrana til þess að leysa fjölskylduágreining – vonandi áður en hann blossar upp. Ástæðulaust er að prófa ástina á hverjum degi. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Beindu sköpunarhæfileikum þínum í jákvæðar áttir og þá muntu uppskera hrós annarra. Reyndu að halda aftur af löngun þinni til að kaupa eitthvað sem þú sérð. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.