Morgunblaðið - 30.11.2010, Síða 33

Morgunblaðið - 30.11.2010, Síða 33
BRUCE WILLIS, MORGAN FREEMAN, JOHN MALKOVICH OG HELEN MIRREN ERU STÓRKOSTLEG Í ÞES- SARI ÓTRÚLEGA SKEMMTI- LEGU GRÍN HASARMYND - HOLLYWOOD REPORTER - MOVIELINE - NEW YORK POST SÝND Í ÁLFABAKKA 14.000 gestir SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI ROBERT DOWNEY JR. OG ZACH GALIFIANAKIS EIGA EFTIR AÐ FÁ ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI FRÁ TODD PHILIPS, LEIKSTJÓRA THE HANGOVER SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI „HELDUR ATHYGLI MANNS FRÁ UPPHAFI TIL ENDA” - MORGUNBLAÐIÐ „HELVÍTI HRESSANDI“ - ERPUR EYVINDARSSON  - ANDRI CAPONE -- RÁS 2  - PRESSAN - FRÉTTABLAÐIÐ SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í KRINGLUNNI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA 700 kr. 700 kr. 700 kr. MIÐASALA Á SAMBIO.IS Í BEINNI ÚTSENDINGU FRÁ NATIONAL THEATER 9. DES KL. 19.00 Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMAHARRY POTTER and the Deathly Hallows kl. 5:30 - 8:30 - 10:10 10 GNARR kl. 8 L DUE DATE kl. 8 - 10:20 10 ÆVINTÝRI SAMMA ísl. tal kl. 63D L THE SWITCH kl. 5:50 10 / KRINGLUNNI HARRY POTTER kl. 6 - 9 10 DUE DATE kl. 6 - 8 10 RED kl. 10:10 12 / AKUREYRI SNILLDAR GAMANMYND ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 700 700 kr. Tilboðil 700 kr. Tilboðil MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 Dreifingarrétturinn að erótísku kvikmyndinni The Party at Kitty and Stud’s frá árinu 1970 hefur ver- ið seldur á uppboðsvefnum eBay fyrir 412.000 dollara. Myndin er sú fyrsta sem Hollywood-stjarnan Syl- vester Stallone lék í og fór hann þar með aðalhlutverk, hlutverk Stud. Stud þessi býður vinum sínum í kynlífsteiti í myndinni. Sly Lék í erótískri mynd árið 1970. Ljósblá með Stallone seld Bandaríski leikarinn Stephen Dorff ætlar sér að skrifa handrit að „mjög fyndinni gamanmynd“ og ætlar sjálfur að leika í henni með vini sínum Jack Nicholson. Dorff og Nicholson hafa áður leikið saman í kvikmynd, Blood And Wine frá árinu 1996 og varð þeim vel til vina við tökur á þeirri kvikmynd. Kvik- mynd Dorff verður framleidd af fyrirtæki gamanleikarans Adams Sandler, Happy Madison. Sögusvið kvikmyndarinnar verður Suður- Frakkland. Dorff segist vilja skrifa fleiri handrit í framtíðinni og fram- leiða kvikmyndir, auk þess að leika í þeim. Gaman Dorff er með hand- rit í huga. Dorff skrifar fyrir Nicholson Það kem-ur ekkioft fyrirað mað- ur gefi frá sér ör- væntingaróp við lok bókarlesturs en það átti við um þessa merki- legu bók Willi- ams Boyd, Þrumulostinn, eða Ordinary Thunderstorm eins og hún heitir á frummálinu. Af texta aftan á bók- arkápu mætti halda að hér væri hefðbundinn krimmi á ferð en svo er ekki, þó að sagan eigi margt sameiginlegt með krimmum, Boyd leikur sér að krimmaforminu, mætti segja. Í bókinni segir af loftslagsfræðingnum Adam Kind- red sem staddur er í Lundúnaborg, nýkominn úr atvinnuviðtali. Kind- red sest einn að snæðingi á veit- ingastað í Chelsea og hittir þar ónæmisfræðinginn William Wang. Eftir stutt spjall heldur Wang á brott en gleymir möppu á veit- ingastaðnum. Í möppunni finnur Kindred heimilisfang Wang og ákveður að fara þangað með möpp- una. Þegar á staðinn er komið ligg- ur Wang í blóði sínu, handfangið á hnífi stendur út úr síðu hans og Wang biður Kindred að draga hníf- inn úr sárinu sem hann og gerir. Þar með eru fingraför hans þar komin á morðvopnið og Wang læt- ur lífið. Kindred áttar sig þá á því að morðinginn er úti á svölum og tekur til fótanna. Hann áttar sig á því að hann verði að fara í felur þar sem lögreglan hljóti að telja hann morðingjann. Morðingi Wang vill Kindred feigan og Kindred grípur til þess ráðs að búa á bökkum Temsár, í skjóli trjálundar, eins og útigangsmaður. Hann safnar hári og skeggi og verður eins og hver annar umrenningur og gætir þess að nota ekki greiðslukort eða far- síma svo hægt sé að hafa uppi á honum. Þegar líður á söguna kem- ur í ljós að hann á við ofurefli að etja, valdamikla menn sem vilja hann feigan. Fjöldi persóna kemur við sögu í þessari bók og eru þær ólíkar mjög, af ólíkum stéttum og með mismikið milli eyrnanna. Þannig er fylgst með moldríkum forstjóra lyfjafyrirtækis, vændiskonu, morð- ingjanum kaldrifjaða, kynþokka- fullri lögreglukonu og Ivo nokkrum lávarði að ógleymdum Kindred. Sagan er sögð í fyrstu persónu, út frá hugarheimi hverrar persónu fyrir sig. Þetta gerir Boyd listavel og heldur athygli lesandans bókina í gegn, það er varla hægt að leggja hana frá sér. Spennan kraumar undir niðri en þó er furðulítið um átök í bókinni, utan persónulegra, innri átaka hinna ólíku persóna. Stórborgin gleypir Kindred, hann verður eitt af hinum óþekktu and- litum umrenninga sem reika um göturnar og þeirri spurningu er varpað fram af höfundi hvort ekki sé auðvelt að segja skilið við fortíð sína, verða önnur persóna, má burt það sem gerði mann að tiltekinni manneskju í kerfinu sem þjónaði ákveðnu hlutverki í samfélaginu. Hvað erum við án kennitölunnar, krítarkortsins, farsímans, starfsins, fjölskyldu og vina? Andi Dickens svífur yfir vötnum bæði hvað varð- ar sögusviðið og hið skrautlega persónugallerí. Gallinn við bókina er þó sá að lesandinn er skilinn eft- ir í lausu lofti undir lokin, mörgum spurningum er enn ósvarað. Svörin við þeim verður lesandinn sjálfur að finna. Eins og þruma úr heiðskíru lofti Skáldsaga Þrumulostinn bbbbn Eftir William Boyd. Anna María Hilm- arsdóttir þýddi. Bjartur gefur út. 395 bls. BÆKUR HELGI SNÆR SIGURÐSSON Óvænt Rithöfundurinn William Boyd. Himnarnir opnast, lýsir afþér, myrkrið það hverf-ur úr hjarta mér.“ Svohljóðar fjórða erindi opnunarlags hljómplötunnar Hátíð- in heilsar og lýsir það nýjustu afurð Frostrósa einstaklega vel. Himn- arnir opnast svo sannarlega þegar guð- dómlegar raddir sep- tettsins óma og fara þær létt með að þurrka út allar áhyggjur hlustandans. Hljómdiskurinn samanstendur af lif- andi upptöku frá stór-jólatónleikum Frostrósa í fyrra og fylgir honum mynddiskur, sem er guðs gjöf fyrir ólánsamt fólk eins og mig sem ekki komst á herlegheitin í fyrra. Það er enginn arfi í þessu blómstrandi vetr- ar rósabeði: Jólalögin eru vel valin og þykir mér einstaklega ánægju- legt að þau skuli öll með vera á okk- ar ylhýra ástkæra móðurmáli, fjöl- breytnin er mikil, sérstaklega þar sem kynjaskiptingin er ákaflega jöfn hjá rósunum í ár, kórarnir gefa manni gæsahúð og undirspilið er undursamlegt. Hulstur diskanna er mjög sparilegt og er rúsínan í pylsu- endanum gylltur bæklingur sem hef- ur að geyma alla söngtextana. Það ætti enginn að eiga í vandræðum með að syngja með og komast í jóla- skap (og það kemur ekki að sök þó maður nái ekki upp á efstu tónana sem virðast stundum úr öðrum heimi). Það er ekki langt síðan ég fékk Hátíðin heilsar í hendurnar en samt sem áður hefur platan verið í spilun hjá mér á leiðinni í vinnuna, í vinnunni og heima fyrir (hvort sem það er við ritgerðarskrif, afslöppun eða tiltekt). Hann á hreinlega við undir öllum kringumstæðum á jóla- tímanum, svo ljúfur er hann. Samkvæmt ítalskri hefð hrópa óp- erugestir bravo eftir vel heppnaðar sýningar og það ætla ég svo sann- arlega að gera aðstandendum plöt- unnar til heiðurs: Bravo! Enginn arfi í fallegu rósabeðinu Geisla- og mynddiskur Frostrósir – Hátíðin heilsar bbbbn Morgunblaðið/Eggert Jólalegt Frá lokatónleikum Frostrósa í fyrra í Laugardalshöll, jólasnjór fellur yfir söngvara. HUGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.