Morgunblaðið - 30.11.2010, Síða 36

Morgunblaðið - 30.11.2010, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 334. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218 1. Lést í umferðarslysi 2. Nemendur hafðir fyrir rangri sök 3. Gunnar stígur til hliðar 4. Helga Sigríður í aðgerð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Árlegir serenöðutónleikar Blásara- kvintetts Reykjavíkur og félaga, Kvöldlokkur á jólaföstu, verða haldnir í Fríkirkjunni í kvöld kl. 20. Verður á þeim flutt Gran Partita, serenaða Mozarts fyrir 13 spilara K. 361. Morgunblaðið/Golli Gran Partita Mozarts flutt í Fríkirkjunni  Sænsku kvik- myndirnar I livets vår, eftir Paul Gabani frá árinu 1912, og Kärleken segrar, eftir Georg af Klercker frá árinu 1916, verða sýndar í kvöld og 4. des- ember kl. 20, í Bæjarbíói, Hafnarfirði, á vegum Kvikmyndasafns Íslands. Frekari upplýsingar um myndirnar má finna á kvikmyndasafn.is. Sænskar kvikmyndir frá 1912 og 1916  Pólýfónía, ný breiðskífa hljómsveit- arinnar Apparat Organ Quartet, kemur út 9. desember nk. en síðasta breið- skífa hljómsveitarinnar kom út fyrir allnokkru, eða átta árum. Söng- urinn á plötunni er að mestu í höndum talgervla og sungið á nokkrum tungu- málum, m.a. jap- önsku, þýsku og íslensku. Talgervlasöngur á plötu Apparats Á miðvikudag Vestlæg átt, 5-13 m/s og dálítil súld eða rigning á vestanverðu landinu, en annars skýjað með köflum. Hiti 1 til 6 stig en vægt frost inn til landsins austan til. Á fimmtudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri en dálítil él norðan til þegar líður á daginn. Kólnandi veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðlæg átt austan til og skýjað með köflum eða létt- skýjað. Hiti 0 til 6 stig, en vægt frost inn til landsins fyrir austan. VEÐUR Barcelona sýndi allar sínar bestu hliðar þegar liðið vann 5:0-sigur á erkifjend- unum í Real Madrid á Camp Nou í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Fyrsti „El Clásico“ knatt- spyrnustjórans José Mour- inho snerist því upp í mar- tröð. Barcelona komst þar með upp fyrir Real á topp deildarinnar en aðeins mun- ar tveimur stigum á lið- unum. »1 Fimm stjörnu sýning Barcelona „Við spiluðum í ískaldri höll í Minsk enda var 10 stiga frost í Hvíta-Rúss- landi, en við höfum sem betur fer æft í kaldri höll hjá okkur síðustu vikuna,“ sagði Björgvin Páll Gúst- avsson, landsliðsmarkvörður í hand- knattleik, sem var hetja Kadetten í sigri á Dinamo Minsk í Meistaradeild Evrópu um helgina. Þar með á Kad- etten góða von um að komast áfram í 16 liða úr- slit. »3 Björgvin fann sig vel í kuldanum í Minsk Grindvíkingar vippuðu sér upp í 2. sæti Iceland Express-deildarinnar í körfuknattleik með sigri á KR, 87:77, í stórleik gærkvöldsins. ÍR náði í sinn annan sigur á leiktíðinni með því að sigra Hamar í Seljaskóla 89:84. Njarðvíkingar hafa byrjað illa í haust en þeir hristu af sér slenið og sigruðu Hauka, 80:67, í leik sem var spenn- andi lengst af. Grindavík fór upp í 2. sætið með sigri á KR ÍÞRÓTTIR Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hildur Ósk Ragnarsdóttir er eina ís- lenska konan sem leikur enskt rugby eða ruðning í deildinni í Danmörku, en hún fagnaði meistaratitli með Ex- iles í Kaupmannahöfn ekki alls fyrir löngu og fékk framfaraverðlaun liðs- ins að loknu tímabilinu. Um 30 lið leika í karladeildinni en sex lið eru í kvennadeildinni. Exiles var stofnað 1968 og er eina al- þjóðlega liðið í deildinni. Hildur Ósk segir að þrátt fyrir langa sögu og hefð fyrir kvennakeppninni hafi fyrst almennilega verið lögð áhersla á deildina fyrir nokkrum árum. 26 stelpur hafi leikið fyrir Exiles á tíma- bilinu og ekkert annað lið sé með eins fjölmennan hóp. „Við höfum verið duglegar við að taka inn skipti- nema frá Bandaríkjunum sem hafa spilað íþróttina í háskóladeildinni vestra auk þess sem gamlir leik- menn, sem eru á ferð í Danmörku, hafa fengið að spreyta sig,“ segir hún. Út í nám Hildur Ósk hefur búið í Kaup- mannahöfn í níu ár. Hún hóf þar nám í stjórnun og ferðamálafræði, en gerði hlé á náminu þegar hún eign- aðist dæturnar tvær sem hún á með eiginmanninum Viktori Gunnlaugs- syni, sem er húsgagnasmiður. Dæt- urnar eru tveggja og fimm ára og mamman komin á fullt í námið á ný. Ekki stóð til að fara aftur að æfa íþróttir en Hildur Ósk segist hafa látið undan miklum þrýstingi. „Það var búið að reyna að tala mig til í heilt ár áður en ég lét tilleiðast. Ég hélt að þetta væri allt öðruvísi íþrótt en ég lá kylliflöt fyrir henni á fyrstu æfingu.“ Hún bætir við að sam- veran með öðrum stelp- um sé skemmtilegust og ekki skemmi fyrir að fá keppnis- andann yfir sig aftur. Mikið álag Stelpurnar æfa tvisvar til þrisvar í viku, tvo tíma í senn, fyrir utan sér- æfingar. „Þetta er meira álag en í fótboltanum,“ segir Hildur Ósk, sem byrjaði að æfa fyrir ári. Þá segist hún ekki hafa vitað hvað hún væri að fara út í en nú sé hún reynslunni ríkari. Ruðningurinn er leikinn án allra hlífa og því er mikið um pústra. Hildur Ósk var framherji í fótbolta en í ruðningnum tekur hún við bolt- anum í sókninni og byrjar leikinn. Er nokkurs konar leikstjórnandi. „Sókn- irnar byrja hjá mér og næst á dag- skrá er að gera betur en í ár og verja titilinn að ári.“ Gull í fyrstu tilraun í ruðningi  Hildur Ósk Danmerkurmeist- ari á fyrsta ári Morgunblaðið/Eggert Gull Hildur Ósk Ragnarsdóttir fagnaði meistaratitli með Exiles og fékk framfaraverðlaun liðsins. Hildur Ósk Ragnarsdóttir er úr Kópavogi og lék fótbolta með Breiðabliki þar til hún hætti, þegar hún var að verða 17 ára. „Þá byrjaði ég í menntaskóla og fór að einbeita mér að öðru,“ rifjar hún upp. Á meðal liðsfélaga hennar voru til dæmis Ásthildur Helga- dóttir, Katrín Jónsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og Olga Færseth, þekktir leikmenn, sem gerðu garðinn frægan með Blikum og landsliðinu. „Ég var í gullaldarliðinu með öllum þessum stjörnum sem íslenskur kvennafót- bolti hefur alið af sér,“ segir hún og bætir við að þrátt fyrir það hafi hún ekki haft áhuga á að halda áfram. Ruðningurinn minni samt á gamla tíma. „Maður er auðvitað oft í mar- blettum og skrámum en það eru fræði á bak við hverja hreyfingu og þetta er mun flóknara en fótbolt- inn,“ segir hún. Lék með bestu Blikum Í FÓTBOLTANUM Í KÓPAVOGI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.