Morgunblaðið - 30.11.2010, Side 11
DAGLEGT LÍF 11Hreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010
Fyrir norðan Piedmont eru Alp-
arnir eða vötnin og fyrir sunnan
er Liguria, sjórinn og ströndin.
Þarna eru ekki margir ferða-
menn en gestir eru í mikilli ná-
lægð við ítalska heimamenn í
sínu daglega lífi í sveitinni og
litlu þorpunum.
Frægast er svæðið fyrir vínin
Barolo og Barbaresco, og rauð-
vín.
Frægar eru „tartufo bianco“
eða hvítu trufflurnar (truffle-
sveppir) en það eru mjög verð-
mætir sveppir sem vaxa niðri í
jörðinni og sjást því ekki. Að-
eins er hægt að finna þá með
sérstaklega þjálfuðum hundum.
Þarna er líka hægt að fara í
gönguferðir á milli vínbænda, fá
að skoða og smakka.
Gefin eru út kort með göngu-
leiðum milli búgarðanna.
Mikil ná-
lægð við
heimamenn
SVÆÐIÐ PIEDMONT
Á NORÐVESTUR-ÍTALÍU
Hress Hópurinn á fögrum stað þar sem staldrað var við. F.v Helga, Kristín Þóra, Jón Júlíus, Ása, Einar, Sigrún, Rúnar, Ágúst, Konni og Rósa.
elda fyrir okkur heima hjá sér,
gegn gjaldi að sjálfsögðu, og við
þáðum það með þökkum. Það var
dásamleg máltíð og frábært að
koma inn á ítalskt sveitaheimili.“
Lífrænt vín og orkídeur
Þessi dagur með Josep reynd-
ist svo vel, að þau réðu hann til að
hjóla með þeim hina dagana líka.
„Hann hjólaði með okkur um alla
sveit og við fórum nýja leið á hverj-
um degi. Hann vissi hvar bestu
matsölustaðirnir voru en þetta er
mikið gnægtarsvæði og við fengum
að smakka allskonar góðgæti sem
er búið til í héraðinu, til dæmis
guðdómlega geitaosta.“
Josep fór með þau á búgarðinn
Forteto Della Luja hjá bóndanum
Giovanni, en hann er með vottun
frá WWF. „Þessi bóndi er með líf-
rænt ræktað vín og orkídeur. Sama
ættin hefur búið þarna í mörg
hundruð ár og aðferðirnar hafa
ekkert breyst við búskapinn, þeir
eru með hesta en ekki vélar, nota
einvörðungu lífrænan áburð og svo
framvegis. Hann tekur á móti fólki
og kennir gestum sínum allt um
vínið, jörðina og orkídeurnar. Við
fengum líka að borða hjá honum og
þetta var stórkostlegur dagur.“
Sigldu meðfram ströndinni
Helga Sigrún segir að hver
sælan hafi rekið aðra í matnum. „Á
einum stað fengum við níu rétti og
við vorum í fimm tíma að borða. Á
Ítalíu verður fólk að upplifa þetta
tvennt, að fara á ítalskan mat-
sölustað þar sem það tekur fimm
tíma að borða ótal rétti, og lifa það
af, og líka upplifa ítalska vegakerf-
ið, en þar ríkir ákveðið kæruleysi
og er villugjarnt.“ Helga Sigrún
segir þetta hafa verið mjög góða
blöndu af hjólaferð og sælkeraferð.
En einn daginn tóku þau hjólafrí og
keyrðu niður að strönd. „Þá vorum
við bara að slæpast og sigldum
meðal annars meðfram ströndinni
og horfðum upp í bændabýlin sem
nánast hanga í klettahlíðunum,
sigldum svo inn í lítið þorp og
gengum þar um.“
Skipuleggur ferðir til Ítalíu
Helga Sigrún sá um að skipu-
leggja ferðina en hún er alvön slíku
því hún á og rekur fyrirtæki sem
heitir Ítalíuferðir. „Undanfarin
fimm ár hef ég verið í samstarfi við
ferðaskrifstofuna Kailas í Mílanó
en hún sérhæfir sig í ferðum sem
eru tengdar náttúrunni. Kailas
koma hingað með Ítali og keyra um
landið á Land Roverum sem við
leigjum þeim. Þetta eru ýmist
göngu- eða hjólaferðir og með í för
eru jarðfræðingar sem fræða um
Ísland en ég er hópstjórinn,“ segir
Helga Sigrún sem í samráði við vini
sína hjá Kailas skipuleggur göngu-
og hjólaferðir fyrir Íslendinga sem
vilja fara til Ítalíu.
Viðgerð Leiðsögumaðurinn og löggan Josep stóð sig mjög vel.
www.italiuferdir.com
www.Kailas.it
www.solobikemtb.it
www.fortetodellaluja.it (Bónda-
bær með lífræna ræktun á víni).
www.ladogliola.it (Bændagisting).
www.ilgiardinettoristorante.it
(Veitingahúsið þar sem þau borð-
uðu 9 rétti).
www.frankino.it (Heimsins bestu
pizzur: Da Frankino í Loazzolo).
Næsta laugardag 4. des stendur
Skíðafélag Akureyrar fyrir Ofurgöngu
2010, skíðagöngukeppni þar sem
markmiðið er að ganga sem flesta
kílómetra. Startað verður kl. 10 með
hópstarti en markinu lokað klukkan
15. Keppendur ljúka þeim hring sem
þeir eru byrjaðir á. Keppendum er
frjálst að stoppa eins oft og þeim
hentar eða skipta göngunni upp í
eins marga hluta og hverjum og ein-
um hentar. Keppt verður í kvenna- og
karlaflokki 16 ára og eldri.
Skráning og upplýsingar:
ganga@internet.is
Skíðaganga á Akureyri
Morgunblaðið/Ómar
Garpur Skíðaganga er frábær íþrótt.
Ofurganga
næstu helgi
Ný hlaupasería Atlantsolíu og FH
hefst 21. janúar. Vegalengd í boði er 5
km og er hlaupið meðfram strand-
lengju Hafnarfjarðar í átt að Sundhöll
Hafnarfjarðar við Herjólfsgötu. Leiðin
sem er hlaupin er flöt og ákjósanleg
til bætingar. Hún verður mæld ná-
kvæmlega. Hlaupin eru þrjú og fara
fram síðasta fimmtudag í hverjum
mánuði og hefjast kl. 19:00 fyrir utan
höfuðstöðvar Atlantsolíu að Lóns-
braut í Hafnarfirði.
1. Hlaup 20. janúar 2011
2. Hlaup 24. febrúar 2011
3. Hlaup 24. mars 2011
Ekki eru veitt verðlaun fyrir hvert
hlaup heldur samanlagðan árangur.
Hlaupasería Atlantsolíu og FH
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sprettur Gott að hlaupa á vetrum.
Hlaupið í hverj-
um mánuði
Þau voru heldur betur kát Bryndís Muller
13 ára og Kjartan Jónsson 17 ára þegar
blaðamaður heyrði í þeim í gær þar sem
þau voru nýlent á Keflavíkuflugvelli, en þau
tóku þátt í Norðurlandameistaramóti ung-
menna í klifri um helgina og náðu bæði
bronsverðlaunum. Bryndís keppti í aldurs-
flokknum 12-13 ára en Kjartan í aldurs-
flokknum 16-17 ára. Þau eru bæði úr Klif-
urfélagi Reykjavíkur og voru einu íslensku
keppendurnir á mótinu.
„Ástæðan fyrir því að ég fór að æfa klifur
er sú að vinkona mín dró mig með sér í klif-
ur fyrir fjórum árum og ég varð ástfangin
af þessu sporti og hef verið að æfa síðan.
Ég æfi fimm sinnum í viku í tvo til þrjá
tíma í senn. Ég tók þátt í Norðurlandamóti
í leiðsluklifri fyrir tveimur árum þar sem ég
lenti í öðru sæti. Í leiðsluklifri erum við
tengd við línu og klifrum hátt, alveg upp í
þrjátíu metra, en í grjótglímu eða „boulder“
erum við ekki með neina línu heldur er
dýna fyrir neðan og við klifrum ekki eins
hátt, aðeins þrjá til fjóra metra og þannig
var það á mótinu núna um helgina,“ segir
Kjartan og bætir við að leiðsluklifur reyni
meira á úthald á meðan grjótglíman reyni á
sprengikraftinn.
Gaman að vera með og
vinna til verðlauna
„Ég byrjaði að æfa klifur fyrir tveimur
árum og æfi þrisvar til fjórum sinnum í
viku. Það var rosalega gaman að taka þátt í
þessu móti og ég kynntist fullt af krökkum
og frábært að fá bronsverðlaunin,“ segir
Bryndís og bætir við að hún ætli að halda
ótrauð áfram að æfa klifur.
Norðurlandameistaramótið fór fram í
Solna Klatterklubb í Stokkhólmi við frábær-
ar aðstæður þar sem 123 ungmenni frá Ís-
landi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finn-
landi kepptu og var þetta fjölmennasta
Norðurlandamótið til þessa. khk@mbl.is
Bæði með brons
Ánægð Kjartan og Bryndís með bikarana. Góð Bryndís klifraði fimlega á mótinu.
Frábær árangur á Norðurlandamóti í klifri