Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 ✝ Carl J. Brandfæddist í Regina, Saskatchewan í Kan- ada 25. ágúst 1918. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. nóv- ember 2010. For- eldrar Carls voru Thor Jensen Brand, f. 27.5. 1888, d. 11.4. 1986, og Elísabet J. Brand, f. 16.5. 1894, d. 18.9. 1981. Systir Carls er Svava J. Brand, f. 7.3. 1920. Carl giftist hinn 3.12. 1944 Hlín Eiríksdóttur, f. 20.1. 1916 í Winnipeg, Kanada, d. 29.6. 2003. Dætur Carls og Hlínar eru: Elísabet Margrét Brand, f. 30.12. 1945, kennari og leið- sögumaður,Val- gerður Kristín Brand, f. 18.6. 1947, d. 5.10. 2008, einkaritari, Bergljót Björk Brand, f. 28.4. 1953, við- skiptafræðingur og sagnfræðingur. Barnabörn Carls og Hlínar eru níu og barnabarnabörnin eru 14 talsins. Útför Carls fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 30. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Carl Brand er látinn. „The old general“ er allur. Hann var sérstak- ur maður með ákveðnar skoðanir. Hann var ekki allra. Óhætt er að segja að pabbi hafi verið Kanadamaður í húð og hár. Hann leit aldrei á sig sem Íslending og sá alltaf eftir að hafa ílengst hér. Það var greinilegt alla tíð að hann saknaði heimahaganna vestra. Menntun sína hafði hann fengið í Kanada þar sem hann lagði stund á efnafræði. Hann var mikill tungu- málamaður og auk móðurmálsins, ensku, lærði hann latínu, frönsku og þýsku. Pabbi hafði komið hingað til lands sem ungur maður á stríðsárunum. Hann vann fyrir ameríska herinn þar sem hann lærði að meðhöndla byssur og reyndist afburðamaður á því sviði. Síðan vann hann fyrir her- inn á Keflavíkurvelli þar sem hann var verslunarstjóri hjá PX-inu. Eftir það var hann starfmannastjóri Ísal til ársins 1973 en síðasta starf hans var fulltrúi hjá endurhæfingarráði. Carl var laghentur maður og á sinni ævi byggði hann tvö einbýlis- hús fyrir fjölskylduna. Annars vegar Björk við Engjaveg sem var stað- sett þar sem grasagarður Reykja- víkurborgar er í dag. Við systurnar fæddumst allar í Björk. Síðan árið 1956 byggðu þau hús sem þau nefndu Hraunborg og var við Álfta- nesveg. Þar útbjuggu pabbi og mamma af mikilli natni matjurta- garð, gróðurhús og yndislegan blómagarð með rennandi vatni gegnum klettana í hrauninu. Þetta var dásamlegur unaðsreitur sem þau fengu verðlaun fyrir á sínum tíma. Þegar hann fór á eftirlaun tók við annar kafli. Hann eyddi miklum tíma í lestur og las alla mannkyns- söguna frá fornöld til dagsins í dag, þetta voru fræðibækur og ekki fljót- lesnar fyrir venjulegt fólk en hann fór létt með lesturinn og vildi rök- ræða innihaldið í kjölfarið. Eftir lát móður okkar árið 2003 var pabbi einmana og týndur maður. Flutningurinn frá Hraunborg árið 2006 reyndist honum erfiður. Þar voru minningarnar flestar og kær- astar. Það sem braut í honum hjart- að í seinni tíð var lát systur okkar Völu, haustið 2008. Það sem stendur upp úr þegar pabba er minnst er afburðagreindur og sterkur maður með mikinn lífs- vilja, dugnað og þrek. Hann var al- ger töffari. Það var svo sárt að sjá gamla hershöfðingjann missa heils- una og tapa sjálfstæðinu. Hann hafði ekið bílnum sínum vandræða- laust þar til hann fór á spítala síðast- liðið vor og þess má geta að hann lenti aldrei í tjóni, enda frábær öku- maður. Fyrir okkur sem næst hon- um standa var tregafullt að sjá mann með hans stolt og dugnað enda á stofnun þar sem hann dvaldi í heila 7 mánuði. Á þessum tíma missti hann lífsviljann, gleðina, von- ina og stoltið. Að lokum óskaði hann þess bara að fá að fara. Allir sem önnuðust hann bæði á Landakoti og Hrafnistu í Hafnar- firði vissu að þarna fór óvenjulegur maður með óvenjulega og að mörgu leyti erfiða fortíð. Allt var þetta frá- bært starfsólk sem ég vil sérstak- lega þakka umönnunina fyrir hönd okkar allra. Elsku pabbi minn, hvíl þú í friði. Þín dóttir, Bergljót Björk Brand. Meira: mbl.is/minningar Kveðjustundir geta verið erfiðar, jafnvel óbærilegar. Í þessu sam- hengi ber þó að líta til þess hvað kveðjustundir geta gefið af sér. Nú er til að mynda tækifæri til að njóta allra þeirra góðu minninga sem ég á um afa minn, Carl Brand. Hvað hef ég lært af honum? Þetta er það sem maður ætti að líta til þó svo sorgin geri manni stundum erfitt um vik. Afi var fæddur fyrir rúmum 92 árum. Hann fæddist í Kanada 1918. Það er ótrúlega merkilegt að hafa umgengist mann sem var fæddur fyrir svo óralöngu. Magnað að geta rætt við gangandi sögubók, ef svo má segja. Afi var ekki alltaf auðveldur í um- gengni, síður en svo. Hinn sári sann- leikur fékk sannarlega að líta dags- ins ljós þegar afi var annars vegar. Ef mann svíður stundum undan sannleikanum þá var afi sannarlega maður sannleikans. En þá má mað- ur heldur ekki gleyma að vinur er sá er til vamms segir. Því leit ég ávallt á afa sem vin minn. Við gátum rætt erfiða hluti sem og skemmtilega hluti. Hann var maður sem ég gat treyst fullkomlega. Hann var ómyrkur í máli en málaði þó aldrei skrattann á vegginn að óþörfu. Við afi áttum í sameiningu all- mörg áhugamál. Þar má m.a. nefna bíla, flugvélar og sögu. Reyndar var svo margt sem við áttum sameig- inlegt að ekki er hægt að gera því öllu góð skil hér. En fátt kunni afi jafnvel að meta og vel bónaðan bíl, gott aksturslag eða góða lendingu á lítilli rellu. Þessir litlu hlutir glöddu hjörtu okkar. Án orða. Orð voru óþörf. Í sameiningu syrgðum við látna ástvini. Í sameiningu glöddumst við. Afi sá sjálfan sig í syni mínum, Óðni. Hann áttaði sig vel á þessum litla kút. Sagði mér að sýna honum þolinmæði og útskýrði fyrir mér hvað þetta litla ómálga barn væri að hugsa og á hverju það hefði áhuga. Þetta þótti mér afskaplega merki- legt. Hvernig vissi hann hvað ávöxt- ur minn væri að hugsa? Hann sagði að hann sæi sjálfan sig í þessu barni. Þessi litli kútur væri lifandi eftir- mynd hans sjálfs. Enda væru á milli þeirra 90 ár og 10 dagar. Afi minn, hvíl í friði. Njót ávaxta erfiðis þíns og við höfum það hug- fast að á hverjum teningi eru alla vega nokkrar hliðar. Þín Malín Brand. Carl J. Brand Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur Bækur Ævisaga Árna Þórarinssonar 1-6 ib. mk., Skotveiðar í íslenskri náttúru, Grágás 1883, Íslensk bygging Guðjón Samúelsson, Austantórur 1-3, Deildartungu- ætt 1-2, Kvosin, Litli Skýrnig kápueintök 16., 18., 19., 22., 23. og 24. árg. Upplýsingar í síma 898 9475. Spádómar ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI – Spámiðill Spái í spil og kristalskúlu Heilunartímar Fyrirbænir Algjör trúnaður Sími 618 3525 www.engill.is Dýrahald Hundagallerí auglýsir Bjóðum taxfría smáhunda fram að jólum. Lögleg hundaræktun. Visa og Euro. Sími 5668417. Gisting Þú átt það skilið að slappa af fyrir jólin! Allar helgar langar í vetur í Minniborgum. Þú færð 3 nætur á verði tveggja. Fyrirtækjahópar, óvissu-hópar, ættarmót. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. www.minniborgir.is Gisting á góðum stað. Sumarhús Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Bókhald C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-, eftirlits- og rannsóknarvinnu alls- konar. Hafið samband í síma 893 7733. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Mercedes Benz E 220 CDI dísel Avandgarde Sk. 09.2005. Sjálfskiptur, topplúga rafmagn í rúðum og sætum. Einn með öllu. Ekinn aðeins 42 þús km. Uppl. Í síma 544 4333 og 820 1070. Bílaþjónusta Hjólbarðar Útsala á 13“ og 14“ dekkjum. Kaldasel ehf., Hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16 b, Kópavogur, s. 5444333. 40 feta notaðir gámar til sölu Einnig einn 20 feta geymslugámur með hurðum á hliðinni. Kaldasel ehf. Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur, s. 544 4333 og 820 1070. Byssur Haglaskot. Ný sending. Rjúpna-, sjófugla- og gæsaskot. Gott verð, frábær gæði. Sportvörugerðin, s. 660-8383. www.sportveidi.is. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Elsku, elsku yndis- lega Soffía amma mín. Svo margar minningar hafa vaknað undanfarna daga. Allar svo góðar og mér verður svo hlýtt í hjartanu að hugsa til þeirra. Þú varst alltaf svo ótrúlega góð við okkur barnabörnin þín og svo dugleg að gera skemmtilega hluti með okkur. Það var endalaust spennandi að fá að Soffía Sigurðardóttir ✝ Soffía Sigurð-ardóttir frá Kúf- hól í Austur- Landeyjum fæddist 8. júní 1932. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Kópavogi 15. nóvember sl. Soffía var jarð- sungin frá Háteigs- kirkju 24. nóvember 2010. gista hjá þér, þá átti maður alltaf von á góðum og skemmti- legum stundum. Þú varst alltaf til í að spila, fara í „fela hlut“, eða jafnvel í feluleik. Það var bara alltaf hægt að finna upp á einhverju skemmti- legu með þér og þú varst alltaf til í að vera með. Sundferðirnar okkar allar í Laugar- dalslaugina eru mér mjög minnisstæðar, þar fengum við okkur alltaf kleinu- hring í kaffiteríunni sem var þar eft- ir sundið. Það var ómissandi hluti af sundferðunum. Allar Kolaportsferð- irnar okkar, mér þykir vænt um þær, og fjöruferðirnar í Nauthóls- víkina með Soffíu Karen eru mér líka minnisstæðar. Ég gæti haldið enda- laust áfram. Frá 2007-2008 fengum við Einar Anton svo að búa hjá þér í Gullsmár- anum. Mikið þakka ég fyrir það. Þessi tími var mér lærdómsríkur og þú gafst mér ýmis góð ráð sem ég er alltaf að nýta mér, bæði hvað varðar heimilið og uppeldið. Elsku amma mín, þú varst algjör fjölskyldukona, vildir alltaf allt fyrir okkur börnin gera og þolinmæðin þín var algjör gagnvart okkur. Ég veit það að sá kostur var þér í blóð borinn vegna þess að þegar við mæðginin bjugg- um hjá þér þá talaðir þú oftar en ekki um það hvað þolinmæðin væri mik- ilvæg. Uppeldisráðin þín voru svo góð og rétt. Með mikið þakklæti í hjartanu fyr- ir allan tímann sem ég átti með þér og allar góðu og yndislegu stundirn- ar sem þú gafst mér, kveð ég þig að sinni, elsku hjartans amma mín. Þú varst og ert stór partur af mínu lífi. Þín Sigdís. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn 25. nóvember. Spilað var á 13 borð- um. Meðalskor: 312 stig. Árangur N/S: Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 379 Elías Einarss. – Höskuldur Jónsson 372 Magnús Oddss. – Oliver Kristófersson 356 Björn Árnas. – Magnús Halldórsson 341 Árangur A/V: Stefán Finnbogas. – Hólmfríður Árnad. 380 Magnús Jónss. – Gunnar Jónsson 359 Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgason 331 Bergur Ingimundars. – Axel Láruss. 325 Tvímenningskeppni spiluð mánu- daginn 22. nóvember. Spilað var á 10 borðum. Meðalskor: 216 stig. Árangur N/S: Friðrik Jónss. – Tómas Sigurjónss. 268 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 262 Haukur Harðars. – Ágúst Helgason 247 Ólafur Gíslas. – Guðm. Sigurjónss. 243 Árangur A/V: Hrólfur Guðmss. – Björn E. Péturss. 240 Helgi Hallgrímss. – Ægir Ferdinandss. 234 Einar Einarsson – Eggert Þórhallsson 230 Hulda Mogensen – Guðbjörn Axelss. 226 Reykjavíkurmót í tvímenningi Reykjavíkurmót í tvímenningi fór fram sl. laugardag og tóku 12 pör þátt í mótinu. Reykjavíkurmeistarar í tvímenningi 2010 eru Ísak Örn Sig- urðsson og Helgi Sigurðsson. Lokastaðan Ísak Örn Sigurðsson – Helgi Sigurðss. 248 Gísli Þórarinsson – Þórður Sigurðsson 241 Hrólfur Hjaltason – Oddur Hjaltason 240 Góð þátttaka í minning- armótinu í Gullsmára Minningarmót um Guðmund Páls- son, fv. formann félagsins, hófst fimmtudaginn 25. nóvember. Spilað var á 15 borðum. Úrslit í N/S: Haukur Guðbjartss. – Jón Jóhannss. 350 Sigtryggur Ellertss. – Tómas Sigurðss. 312 Guðrún Gestsd. – Lilja Kristjánsd. 307 A/V: Ármann J. Láruss. – Sævar Magnúss. 361 Ásgrímur Aðalsteinss. – Birgir Ísleifss. 337 Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 315 Díana Kristj. – Ari Þórðarson 308 Mótinu verður fram haldið á mánudag. Flúðabrids Lokið er hjá spilavinum uppsveita keppni í hausttvímenningi. Lokastaðan: Ari Einarsson 179 Knútur Jóhannsson 173 Karl Gunnlaugsson 169 Hreinn Ragnarsson 167 Guðmundur Böðvarsson 163 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.