Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 10

Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 10
PRUFUTÍMINN María Ólafsdóttir maria@mbl.is Það er nokkurn veginn vís-indalega sannað að fólkmeð tíu þumalputta geturekki föndrað. Ég er þar á meðal og mínar helstu minningar úr föndurstundum í grunnskóla eru tengdar við klístraða límputta og eitthvað sem átti að vera jóla- sveinn eða snjókorn en breyttist í torkennilegt krumpuverk. Það var því nokkur áskorun fyrir mig að skella mér á handverkskaffi í Gerðubergi þar sem búa átti til jóladjásn. Svo mikil áskorun að ég ákvað að taka með mér sálfræði- menntaða vinkonu mína til að vera mér til halds og trausts. Enda kom í ljós að það átti eftir að reynast vel og hún hvatti mig með ráðum og dáðum þegar ég var við að falla í botnlausa örvæntingu og uppgjöf. Í spor rithöfunda Á kaffihúsinu í Gerðubergi voru samankomnar um 30 konur á öllum aldri. Kennarinn, mynd- listamaðurinn Kristín Arngríms- dóttir, hóf kvöldið á því að segja hópnum dálítið frá klippimynda- listinni. Sagði hún okkur meðal annars að rithöfundurinn góði HC Andersen hefði búið til klippi- myndir. Næst sýndi Kristín hópn- um þær klippimyndir sem hún hefur búið til. Þá byrjaði ég aðeins að svitna yfir fagurlega gerðum ballettmeyjum, stjörnum og jóla- skrauti sem Kristín sagði ekkert svo flókið að búa til. Enda þyrfti þetta ekkert að vera fullkomið. Mér sýndist nú samt að ég myndi eiga fullt í fangi með þetta og við vinkonurnar horfðum á hvor aðra með dálitlum áhyggjusvip. Loks sýndi Kristín hópnum fallega myndskreyttar barnabækur með klippimyndum og þá var mér allri lokið. Ég myndi bjóða mig fram til að skrifa í næstu bók en ekki koma nálægt skærunum. Klaufast og brasast Svo bara hófst ballið og var mælt með því við þá sem ekki voru lengra komnir að byrja á að búa til jólastjörnu. Eftir að hafa bisast með skærin þannig að ljós- myndarinn fór að hlæja að mér var kallað eftir aðstoð Kristínar. Hún sýndi okkur sem á borðinu sátum hvernig við ættum að búa til úr hvítum pappír sex litla pappírsvafninga sem síðan yrðu heftaðir saman. Kristín er fim með skærin og var fljót að klippa og sýna á meðan ég sniglaðist áfram. Það var mjög gott hvað hún var yfirveguð yfir þessu öllu saman. Það gerði ekkert til þó eitthvað mistækist, það færi bara í ruslið og svo væri byrjað aftur. „Maður gerir það sem manni sýnist þegar maður ræður sjálf- ur!“ sagði Kristín þar sem hún leit á fyrsta pappírsvafninginn minn sem eitthvað hafði mistekist. Svo hvatti hún mig til að halda bara áfram svona. Þetta myndi örugglega getið komið vel út svona líka. Þannig að ég hélt áfram að brjóta blöð í þríhyrning, klippa og líma eins og Kristín hafði lagt fyrir. Glimmer út um allt Þetta fór smám saman að ganga aðeins betur hjá mér. Í fyrsta lagi sat ég hér á hand- Klippt, límt og klístrað Á skemmtilegu handverkskaffi reyndi blaða- maður fyrir sér í klippimyndalist. Lesendur geta hér dæmt um árangurinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Listaverk Bara ef maður gæti nú búið til svona einn daginn eins og kennarinn! Kennsla Blaðamaður fylgist ábúðarfullur með leiðbeiningum frá kennaranum. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Vefverslunin Alltislenskt.is var opnuð nýverið. Þær Guðrún Sigríður Sæ- mundsen og Guðný Ósk Sigurgeirs- dóttir standa að baki síðunni en markmiðið með henni er að markaðs- setja og selja íslenska hönnun og framleiðslu hérlendis og erlendis. Vefsíðan er í eigu GG íslenskt sf. og er afrakstur 2ja ára hugmyndavinnu. „Íslensk hönnun og framleiðsla er afar áhugaverð og hefur verið mikil gróska á því sviði síðustu ár. Oftar en ekki sækja hönnuðir innblástur í ís- lenska náttúru og veðurfar og gjarn- an eru íslensk gæðahráefni notuð í framleiðslunni. Markmiðið með síðunni er að neyt- andinn geti fundið íslenska hönnun og framleiðslu á einum stað og á sama tíma fengið upplýsingar um þá sem framleiða og hanna vörurnar. Neytandinn á að geta keypt íslenska hönnun og framleiðslu hvar sem hann er staddur í heiminum. Markmiðið er einnig að efla áhuga erlendra ferðamanna á íslenskri hönnun og framleiðslu og gera það eitt af kostum þess að heimsækja Ís- land,“ segir á síðunni. Vefverslunin er einföld í notkun og aðgengileg. Sjón er sögu ríkari. Vefsíðan www.alltislenskt.is Morgunblaðið/Kristinn Lopapeysur Allskonar íslensk hönnun er í boði á vefsíðunni. Ný íslensk vefverslun Svanhildur Eiríksdóttir svei@simnet.is Börnum á Suðurnesjum verður í dag, laugardag, boðið í Adrews Theater á Ásbrú til að aðstoða við að finna Andrés sem stendur utangátta í kvæðinu um jólasveinana. Dagskráin hefst kl. 15.00 og eru allir velkomnir í boði ýmissa fyrirtækja á svæðinu. Dagskránni lýkur á því að tendra stóra, norska jólatréð utan við húsið. „Það hafa verið ævintýraleg við- brögð við þessar hugmynd okkar,“ sagði Hjálmar Árnason, fram- kvæmdastjóri hjá Keili, eins af að- standendum barnaskemmtunarinnar. „Við fórum af stað með það að leið- arljósi að safna fé í Velferðarsjóð Suðurnesja. Allir voru tilbúnir að vera með og ég man ekki eftir jafn mikilli samkennd um samhjálp.“ Hugmynd aðstandenda er skemmtilegur orðaleikur með heiti bíóhúss fyrrum Varnarliðsmanna, Andrews, og margir þeirra hafa sennilega verið jafn utangátta í ís- lensku samfélagi og Andrés í Jóla- sveinar einn og átta. „Börnunum til aðstoðar við leitina að Andrési verð- ur alls konar lið, bæði þekkt og óþekkt og sumum má ekki segja frá. Í leitarhópnum verða jólasveinar, Pollapönkarar, Konni og Rebbi og ýmsir óvæntir gestir. Um leið og börnin koma í hús munu skrítnar ver- ur taka á móti þeim en svo byrjar leit- in að Andrési. Það er hugsanlegt að tröllin hafi stolið Andrési utangátta.“ Fyrirtækin sem bjóða börnunum eru: Keilir, Kadeco, Víkurfréttir, Keflavíkurkirkja, Geysir bílaleiga, Nesfiskur, Samkaup, Sparisjóðurinn, Landbankinn, ÍAV þjónusta, Bónus, 10-11, Vífilfell og svo nokkur sem ekki vilja láta nafns síns getið. Barnaskemmtun í Andrews Theater á Ásbrú Morgunblaðið/Golli Jólasveinar Leitað verður að Andrési sem stendur utangáttar. Leitin að Andrési utangátta ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 52 23 6 11 /1 0 Gönguskór á jólatilboði 20% afsláttur HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.