Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 FRÉTTASKÝRING Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ekki kemur annað til greina en að langveik börn njóti áfram heima- þjónustu. Þetta segir Guðbjartur Hannesson, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra. Sjúkratrygg- ingar Íslands, SÍ, leggja til að samningi við Heilsueflingarmiðstöð- ina, sem veitir heimaþjónustu fyrir langveik börn, verði sagt upp um áramótin í sparnaðarskyni. Þjón- ustan verði þess í stað veitt af Landspítala og Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins. „Við munum í öllum okkar að- gerðum gæta hagsmuna barnanna. Heilbrigðisráðuneytið ákveður hvernig staðið er að heilbrigð- isþjónustu í landinu, en ekki Sjúkratryggingar Íslands,“ segir Guðbjartur. Óheppileg fjölmiðlaumfjöllun Guðbjartur segir að óheppilegt sé að málið hafi fengið svo mikla um- fjöllun í fjölmiðlum áður en það hefur fengið afgreiðslu ráðuneyt- isins, en segist hafa fullan skilning á líðan foreldra langveikra barna og að þetta skapi óvissu hjá þeim. Heimaþjónusta við langveik börn er ekki lögbundin, því hægt er að sinna þeim á sjúkrastofnunum. Guðbjartur segir það engu máli skipta í þessu samhengi. „Mark- miðið er að veita þjónustu heima og leyfa fólki að búa í sínu eðlilega umhverfi.“ Hann segir að hafa beri í huga að heimahjúkrun sé miklu ódýrari kostur en sjúkrahúsvist. „Ég sé enga hagræðingu í þessum tillögum.“ Bára Sigurjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Heilsuefling- armiðstöðvarinnar, segir að þessi afstaða ráðherra sé afar ánægju- leg. „Það kemur skýrt fram í bréfinu frá Sjúkratrygg- ingum að það eigi að segja upp samningnum. Ráðherra þarf að gefa skýr skilaboð um að þessi aðgerð verði stoppuð. Mér finnst ábyrgðarlaust gagnvart foreldrum barnanna að tilkynna þessa uppsögn á samningnum, án þess að hafa gengið almennilega frá þessu. Foreldrar eru í miklu upp- námi vegna þessa.“ Endurnýjun rétt fyrir uppsögn Bára fékk að vita af hugsanlegri uppsögn samningsins í bréfi frá SÍ, dagsettu 30. nóvember. Fimm dög- um fyrr var samningurinn hins veg- ar endurnýjaður að frumkvæði SÍ. „Ekkert í þeim samskiptum gaf til kynna að honum yrði sagt upp nokkrum dögum síðar,“ segir Bára. Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, segir að með tillögunni sé verið að leggja fram útfærslu til þess að sparnað- aráform fjárlagafrumvarpsins geti gengið eftir og að ekki hafi verið farið of geyst af stað. „Ráðuneytið ákveður að spara eigi um 27% í heimaþjónustu. Við tökum að okkur að útfæra þennan sparnað þannig að hann hafi sem minnsta röskun í för með sér fyrir skjólstæðingana,“ segir Steingrímur Ari. Jón Hilmar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri kvenna- og barna- sviðs Landspítalans, segir að þar sé ekki veitt heimahjúkrun. Hann seg- ir að heilbrigðisyfirvöld hafi ekki rætt við spítalann vegna aukinna verkefna vegna hugsanlegrar upp- sagnar samningsins. Undir þetta tók Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, í samtali við Morgunblaðið í fyrra- dag. Sér ekki sparnað í tillögum SÍ  Samningi um heimahjúkrun sagt upp 5 dögum eftir endurnýjun  Heilbrigðisráðherra: „Heilbrigð- isráðuneytið ákveður hvernig staðið er að heilbrigðisþjónustu í landinu, ekki Sjúkratryggingar Íslands“ Mynd: Heilsueflingarmiðstöðin Börn Foreldrar langveikra barna eru afar uggandi um framtíð heimaþjónustu. Ekkert liggur fyrir í þessum efnum. Hilmar Sævarsson er faðir Viktoríu, sem lést í maí síðast- liðnum, 5½ árs. Viktoría var með Turner-syndrome, sem er litningagalli, og naut heimahjúkrunar. „Ég sé ekki fyrir mér hvernig hefði verið hægt að hugsa um Vikt- oríu á annan hátt,“ segir Hilmar. „Langveik börn eru oft í nokkurs konar millibilsástandi, fylgjast þarf vel með þeim og til dæmis gefa þeim súrefni og annað sem foreldrarnir geta ekki gert. Heimahjúkrun skipt- ir því öllu máli. Mikið álag er á fjölskyldum veikra barna, sem eykst til muna ef þarf að vera með ann- an fótinn á spítala.“ MIKIÐ ÁLAG Á FJÖLSKYLDUM LANGVEIKRA BARNA Alþjóðadagur fatlaðra er 3. desem- ber ár hvert og er haldinn hátíðleg- ur um allan heim. Í tilefni dagsins veittu Landssamtökin Þroskahjálp Múrbrjótinn í 12. sinn og Hvatning- arverðlaun Öryrkjabandalags Ís- lands voru veitt í fjórða sinn. Æfingastöðin við Háaleitisbraut og dr. Kristín Björnsdóttir fötl- unarfræðingur fengu Múrbrjótinn að þessu sinni, en hann er veittur þeim sem brjóta niður múra. ÖBÍ heiðraði Hörpu Dís Harð- ardóttur í flokki einstaklinga, Reykjadal í flokki fyrirtækja og stofnana og Margréti Dagmar Er- icsdóttur í flokki umfjöllunar og kynninga. Morgunblaðið/Kristinn Hvatningarverðlaun ÖBÍ Verðlaunahafar hafa stuðlað að einu samfélagi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Múrbrjótar Guðbjartur Hannesson ráðherra afhenti viðurkenningarnar. Verðlaunuð á al- þjóðadegi fatlaðra Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Tenerife Þú bókar tilboðið á www.heimsferdir.is eða hjá ferðaráðgjöfum okkar í síma 595 1000. Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði á þessu sértilboði. Verð getur hækkað án fyrirvara. Heimsferðir bjóða nú áskrif- endum Morgunblaðisins síðustu sætin til Tenerife þann 4. janúar á ótrúlegu sértilboði auk spennandi 2ja vikna golfferðar á La Gomera og Tenerife. Ekki missa af þessum ferðum! 4. jan. í 14 nætur frá 78.540 kr.* frá 99.940 kr.með öllu inniföldu í 14 nætur14 nætur Ath. verð getur hækkað án fyrirvara! Alm. verð Áskr. verð frá Þú sparar Atlantida *** 4 í smáhýsi m/1 svefnherbergi - 4. aðili barn 125.940 78.540 47.400 2 í smáhýsi m/1 svefnherbergi 144.880 96.680 48.200 Vime Callao Garden *** 4 í íbúð m/1 svefnherbergi, allt innifalið - 3. og 4. aðili barn 160.140 99.940 60.200 2 í íbúð m/1 svefnherbergi, “allt innifalið” 177.180 119.880 57.300 Adonis Isla Bonita **** 2 í herbergi, allt innifalið - verð pr. mann 194.480 139.800 54.680 Bouganville **** 2 í herbergi með hálfu fæði - verð pr. mann 200.500 144.900 55.600 Hotel Las Dalias **** 2 í herbergi allt innifalið - verð pr. mann 227.480 169.580 57.900 Innifalið í verði er flug, skattar, gisting, fæði þar sem við á (eftir því sem valið er) og íslensk fararstjórn. Fjölskyldan sparar allt að 240.800 kr. 2ja vikna golfferð á eyjunum La Gomera og Tenerife* 4.-11. janúar á La Gomera og 11.-18. janúar á Tenerife. Verð aðeins 335.000 kr. á mann miðað við tvíbýli. Beint morgunflug með Icelandair * Innifalið í golfferð er: Flug, flugvallarskattar, flutningur golfsetta, rútur og bátar á milli eyja, gisting á **** hótelum með hálfu fæði og öruggri fararstjórn. Ótakmörkuðu golfi í viku á La Gomera og fjórir golfhringum á Tenerife. Foreldrar Hilmar Þór Sævarsson og Guðrún Elvira Guðmundsdóttir, foreldrar Viktoríu. Heimahjúkrun skiptir öllu máli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.