Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 49
DAGBÓK 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ ER EKKERT VANDRÆÐALEGT AÐ SJÁST MEÐ MÉR! HAUS- POKINN LÝGUR EKKI! ÉG GET ÞETTA EKKI LEYFÐU MÉR AÐ SKOÐA SIPPU- BANDIÐ ÉG GERI RÁÐ FYRIR AÐ MAMMA ÞÍN HAFI KEYPT ÞETTA? JÁ HÚN KEYPTI ÞAÐ ALDREI GRUNAÐI MIG AÐ ÞETTA VÆRI SVONA FLÓKIÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ TALA VIÐ SÉRFRÆÐING OG FÁ HANN TIL AÐ SÉRHANNA FYRIR ÞIG SIPPUBAND SEM HENTAR ÞÉR AF HVERJU ÆTLARÐU AÐ TAKA SVONA MIKIÐ AF VOPNUM MEÐ ÞÉR Á FRIÐARVIÐRÆÐUR? ÞAÐ ER EINFÖLD ÁSTÆÐA FYRIR ÞVÍ MÉR VAR EKKI BOÐIÐ! HVERNIG ER ÞAÐ, MALAR VÉLKÖTTURINN ALVEG EINS OG VENJULEGIR KETTIR? AUÐVITAÐ, MALAÐU FYRIR HANN VÉLKISI FYRIR- GEFÐU, MAMMA HEFUR STILLT HANN Á „SILENT” Í HVERT SKIPTI SEM ÉG SEGI MANNINUM MÍNUM AÐ ÉG HAFI ÁHYGGJUR ÞÁ SEGIR HANN MÉR AÐ ÞAÐ SÉ AF ÁSTÆÐULAUSU FRAMVEGIS ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ KOMA EINS FRAM VIÐ HANN! VERÐUR HANN ÞÁ EKKI PIRRAÐUR? JÚ, EF ÞAÐ VIRKAR! ANNAR MORGUNN Í BORGINNI.. ÆTLARÐU AÐ LIGGJA Í RÚMINU Í DAGI? MIG DREYMDI SVO SKRÍTINN DRAUM ÉG VAR EINHLEYPUR OG BJÓ ENN ÞÁ HJÁ MAY FRÆNKU EN NÚNA ERTU GIFTUR, SVO DRÍFÐU ÞIG Á FÆTUR JÁ, ÞAÐ ER RÉTT! VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA ÞÁ ER PETER AFTUR KOMINN Í NÚTÍMANN OG GIFTUR MARY JANE EN BÍÐIÐ BARA ÞANGAÐ TIL WOLVERINE MÆTIR Á SVÆÐIÐ! Lagt í stæði fatlaðra Föstudaginn 25. nóv- ember síðastliðinn, kl. 15.10 var ég ný- sest inn í bíl er stóð á stæði fatlaðra, vel merktu fötluðum, fyrir framan Bónus á Fiskislóð 2. Þá renn- ur upp að hlið mér á bláum reit dökkur Toyota-bíll og mikil var undrun mín er út úr bílnum steig par á besta aldri, vel á sig komið, kvikt í fasi og hreyfingum. Forvitni mín var vakin. Var virkilega fullfrískt fólk að haga sér svona? Ég skoðaði bílinn, jú bláa merki fatlaðra var við framrúðuna en enginn fatlaður í bílnum en í afturrúðu bílsins var stórt merki, Bylgjan. Nú rak forvitnin mig inn í versl- unina til að fullvissa mig um að ég hefði séð rétt. Ó jú, skötuhjúin voru í óða- önn að fylla kerru og virtustu hin kátustu. Svo var borgað, vel troðið í gula poka, tölt að bílnum og öllu skutlað inn, kerrunni skilað í anddyrið, hoppað upp í bílinn. Parið sælt og ánægt með samvisku hreina, ef þau annars vita hvað samviska er og hafa glaðst yfir að þau gátu sparað nokkur spor inn og út úr versluninni með því að níðast á fötluðu fólki. Mikil var reisn þessa fólks. Borgari. Ást er… … að leika ykkur ekki að tilfinningum hvort annars. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Hinn kunni enski málfræðingurog orðabókarhöfundur dr. Samuel Johnson minnist tvisvar í verkum sínum á Ísland. Hann hreykti sér af því við ævisöguritara sinn, James Boswell, að hann kynni heilan kafla í Íslandsbók Níelsar Horrebows utanbókar. Það var að vonum. 72. kafli bókarinnar heitir „Um slöngur á Íslandi“. Hljóðar hann svo: „Slöngur eru alls ekki til á Íslandi.“ Ekki hefur Johnson hrifist af lýs- ingunni á Íslandi, því að hann sagði árið 1784: „Þótt Dyflinn sé miklu verri staður en Lundúnir, er hann ekki eins slæmur og Ísland.“ Hvað sem þessu líður hafa margir Íslendingar tekið undir það, sem dr. Johnson sagði við annað tækifæri, að maðurinn hafi ekkert fundið upp sem veitti jafnmikla hamingju og góð krá. Veitingaþjónn á krá í Kaup- mannahöfn, sem Íslendingar vöndu komur sínar á í lok nítjándu aldar, skipti þeim til hægðarauka í tvo hópa, Briemere og Bløndalare. Sagði hann: „Briemerne, de er gode betalere, men dårlige sangere. Bløndalerne, de er gode sangere, men dårlige betalere.“ Briemarnir greiða vel, en syngja illa. Blöndæl- irnir syngja vel, en greiða illa. Hins vegar lá við, að illa færi fyrir vöskum íslenskum sjómanni, Stefáni Pálssyni skipstjóra, í Grimsby á út- mánuðum 1913. Þjóraði hann þar á öldurhúsum kvöld eitt og gerðist alldrukkinn, uns að því kom að vísa átti honum á braut. Lét Stefán sér það ekki lynda og var hann slíkur maður að burðum að sex fíleflda lög- regluþjóna þurfti loks til að yf- irbuga hann. Skrifuðu blöð stað- arins um hinn „íslenska Herkúles“. Þegar Stefán kom fyrir rétt, mælti dómarinn við hann hin fleygu orð: „Þér eruð sterkir, Íslendingur. En gleymið því aldrei, að skoska viskíið er sterkara.“ Gerði hann Stefáni að greiða nokkra sekt. Eftir heimsstyrjöldina síðari vöndu Íslendingar í Lundúnum komur sínar á Harrington Pub þar í borg. Þegar nálgaðist lokunartíma, kallaði gestgjafinn jafnan upp hátt og snjallt: „Frúr mínar og herrar, og Íslendingar líka, við erum að loka!“ Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Á erlendum krám Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum. Hann hafði verið að horfa á sjónvarpið og heyrt Hönnu Birnu gagnrýna Besta flokkinn fyrir að hækka álögur á fjögurra manna fjölskyldu um 100 þús. kr. á næsta ári. Og borg- arstjórinn leit á hana með galopin augun og hárgreiðsluna og spurði: „Hver á þá að borga það?“ Þegar illa liggur á karlinum sönglar hann gjarna stemmu allsherj- argoðans og kveður sterkt að inn- ríminu: Austan garrinn ýfir sæ og það svarrar mikinn. Margur er gnarr í mínum bæ, mörg eru narra strikin. Ég reyndi að róa karlinn, fór að tala um Skólavörðuholtið og spurði hvernig kerlingin hefði það. Þá leit hann á mig snöggt og sagði: Litlar eru bölvabætur borin von ég fái úr þessu ef kerling ekki kemst á fætur kæsta skötu á Þorláksmessu. Og var þotinn upp Barónsstíg- inn. Þurfti upp á Landspítala að láta Þórð líta á hjartað í sér. Ég fékk gott bréf frá Sigmari Þór Sveinbjarnarsyni, sem ég þakka. Þar rifjar hann upp sögu úr safni Árna úr Eyjum. Sá lands- kunni hagleiks- og listamaður Baldvin Björnsson gullsmiður hafði lengi stundað iðn sína í Vestmannaeyjum en fluttist til Reykjavíkur. Fáum árum síðar fór hann snögga ferð til Eyja. Nokkr- ir vina hans héldu honum hóf og varð þar gleðskapur mikill. Þegar veislan stóð sem hæst reis Sig- urbjörn Sveinsson rithöfundur og skáld á fætur og mælti af munni fram: Þegar fríðan flösku stút faðma kátir bragnar, Baldvin stingur alla út --- Laut skáldið nú höfði og virtist komið í þrot, settist og sagði um leið: „Amen.“ Ráku menn þá upp hlátur og þótti skáldinu illa aftur farið að geta ekki lokið vísunni. Reis þá Sigurbjörn þá á fætur og segir: „Herrar mínir, mér er nær að halda að þið hafið ekki skilið mig, en síðasta hendingin er þann- ig: Amen. – Skáldið þagnar.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Margur er gnarr í mínum bæ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.