Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 25
Aðalræðisskrifstofa Lýðveldisins Póllands
Aðalræðismannsskrifstofa Lýðveldisins Póllands í Reykjavík tilkynnir hér með
að dómarar Chopins tónlistarkeppninnar:
Alina Dubik,
Krystyna Cortes,
Atli Heimir Sveinsson,
Ewa Tosik-Warszawiak,
Andrzej Kleina,
tóku ákvörðun um að sigurvegararnir í viðkomandi greinum eru:
Grein A – einleikur á píanó:
I sæti – Egill Sigurðarson (Nýi tónlistarskólinn)
II sæti deilist á tvö:
Alda Rut Garðarsdóttir (Tónlistarskólinn í Reykjavík)
og Mikołaj Frach (Tónlistarskóla Ísafjarðar)
Grein B – hljóðfæraleikur með píanóundirleik
I sæti - dúett Eva Hauksdóttir (Kammerklúbburinn, Suzukitónlistarskólinn í
Reykjavík ) – fiðla
II sæti – dúett Nína Jónsdóttir (Kammerklúbburinn, Tónlistarskólinn í Reykja-
vík ) – fiðla
og Anton Sigmarsson (Kammerklúbburinn, Tónlistarskóli FÍH ) - píanó
Grein C – söngur
I sæti - Kristján Ingi Jóhannesson (Söngskóli Sigurðar Demetz)
II sæti – Lilja Margrét Riedel (Söngskóli Sigurðar Demetz)
Dómarar tóku einnig ákvörðun að veita sérverðlaun
Lilju Cardew (Tónlistarskólinn í Reykjavík)
fyrir sérstaka tónlistargáfu og glögga túlkun á verkum Frideriks Chopin.
Öllum sigurvegurunum óskum við til hamingju!
Tónleikar allra sigurvegara verða þann
17. desember 2010 klukkan 19.00 í Salurinn (Kópavogi). Frítt inn.
Velkomin!
Aðalstyrkjandi keppninnar er :
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Tugir manna hafa látið lífið af völd-
um fimbulfrosts og fannfergis í Mið-
Evrópu á síðustu dögum og mikil
snjókoma hefur raskað samgöngum
víða í Norður-Evrópu. Spáð er
áframhaldandi frosti í norðanverðri
álfunni um helgina.
Samkvæmt opinberum tölum,
sem birtar voru í gær, höfðu 45
manns dáið af völdum vetrarveðurs-
ins í Mið-Evrópu í vikunni. Flest
dauðsfallanna voru í Póllandi þar
sem um 30 manns hafa frosið í hel,
þar af 22 á síðustu tveimur dögum.
Allt að 33 stiga frost hefur verið í
borgum Póllands síðustu daga.
Langflestir þeirra sem dóu voru
heimilislausir, að sögn pólsku lög-
reglunnar. Flestir þeirra voru karl-
menn á aldrinum 35-60 ára.
Algengt er að heimilislaust fólk
deyi úr kulda í Póllandi. Til að
mynda frusu hátt í 300 Pólverjar í
hel á árinu 2009, þar af 119 í jan-
úarmánuði.
Snjókoma og ísing hefur einnig
raskað flug- og lestasamgöngum
víða í Evrópu og loka þurfti nokkr-
um flugvöllum í Bretlandi. Gatwick-
flugvöllur í London var opnaður í
gær eftir að hafa verið lokaður í tvo
daga.
Kalla þurfti út hermenn til að að-
stoða við að losa bíla sem festust í
snjósköflum á vegum í Danmörku.
Miklar rigningar hafa valdið
miklum usla á Balkanskaga og þús-
undir manna hafa þurft að flýja
heimkynni sín í Albaníu, Bosníu,
Serbíu og Svartfjallalandi. Um
7.000 manns hafa verið flutt frá
flóðasvæðunum í Albaníu. Þúsundir
húsa hafa skemmst í flóðunum og
þjóðvegir milli höfuðborgarinnar,
Tirana, og norðurhluta landsins
hafa lokast.
Frost og fannfergi veldur víða usla í Evrópu
Reuters
Fastir Vegfarendur ganga framhjá bílum sem hafa verið fastir í snjó í tvo daga á þjóðvegi í norðanverðu Englandi.
Bjarga þurfti um 200 manns úr bílunum eftir mikla snjókomu fyrr í vikunni.
Tugir manna hafa dáið
úr kulda í Mið-Evrópu
Reuters
Snjóbreiða Þjóðverji í búningi
Darth Vader, persónu í kvikmynd-
inni „Stjörnustríð“, bregður á leik í
fönn við Brandenborgarhliðið í
Berlín.
Mike Babick, 69 ára Bandaríkja-
maður, hefur lagt mikið á sig til
að skreyta hús sitt fyrir jólin og
skreytingarnar eru orðnar svo vin-
sælar að mörgum nágrönnum
hans þykir nóg um og hafa kvart-
að til yfirvalda.
„Þetta er risastór jólagjöf til
allra – frá mér,“ segir Babick sem
vinnur sleitulaust í mánuð við að
setja upp jólaljós og meira en þús-
und styttur og myndir á húsið í
einu úthverfa Kansasborgar.
Um 30 nágrannar hans hafa þó
afþakkað þessa jólagjöf og kvartað
undan henni við lögregluna. Þeir
segja að jólahúsið sé orðið alltof
vinsælt, enda bendir talning lög-
reglunnar á bílum á götunni til
þess að um 250.000 manns skoði
húsið fyrir hver jól. Lögreglan
greip til þess ráðs að gera götuna
að einstefnugötu og setja upp
skilti til merkis um að bannað
væri að leggja bílum á götunni.
Það dugði þó ekki og mörgum bíl-
um er lagt á bílastæðum nágrann-
anna.
Jólahúsið
þykir orðið
of vinsælt
Umdeilt Jólahús Babicks í Kansas.