Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Viðfangsefni þessarar nýjuskáldsögu Braga Ólafs-sonar eru mörg en ígrunninn er það þó sköp- un listamanna sem fjallað er um. Munurinn er bara sá að á meðan sögupersónum Braga tekst varla að ljúka nokkru verki, þá eru tök Braga sjálfs á efninu meist- araleg og enginn laus þráður skil- inn eftir. Þessi maka- lausa bók er í mörgum lögum; þau færast sí- fellt sundur og saman en allar tengingar eru vandlega úthugs- aðar og snjallar, og brölt persón- anna um síður bókarinnar er jafn hlægilegt og þær eru aumk- unarverðar. Sagan hefst á frásögn um Dúks- kotsmorðið árið 1913 en þeir at- burðir vísa til atvika sem gerast löngu síðar í Handritinu … Slíkar vísanir liggja þvers og kruss um þessa sögu. Aðalpersónur bókarinnar eru kvikmyndagerðarmennirnir Örn Featherby og Jón Magnússon og er þeim fylgt í ferð til Hull, þar sem Erni hefur óvænt tæmst arf- ur; nær 200 pör af mokkasíum. Þeir félagar eru á sama tíma að leggja drög að kvikmyndahandrit- inu sem getið er um í titli bók- arinnar – en handrit og bækur komu líka við sögu í síðustu skáld- sögu Braga, Sendiherranum; að- alpersóna hennar er sonur Jóns þessa Magnússonar og við fréttum meira af honum hér. Veitingastaðurinn Naustið leik- ur lykilhlutverk í bókinni (hann stóð nánast þar sem Dúkskot var áður), bæði í skáldsögunni og handriti kvikmyndagerðarmann- anna; þar hittast menn og hverfa. Félagarnir sigla til Hull með flutningaskipi sem virðist staðsett í sögunni til að flytja þá fram og til baka. Þar ytra kynnast þeir ættingjum Arnar og gerist margt óvænt á því ferðalagi. Frásögnin er öll hin farsakenndasta en um leið er textinn grafalvarlegur í ír- óníu sinni, það er misskilningur á misskilning ofan, við kynnumst klósettferðum og timburmönnum – lesandinn glepst sífellt til að trúa frásögninni, enda eru karakt- erar hennar furðu trúverðugir, þar til honum er kippt niður á jörðinni og gert ljóst að þetta er allt saman skáldskapur. Aukapersónurnar eru hver ann- arri eftirminnilegri, hlægilegar vissulega, en gegna mikilvægu hlutverki hvort sem það eru tón- skáldið, unga ástkonan, drukkna frænkan, fjárfestirinn eða keilu- meistarinn. Eitt frásagnarlagið er handrit kvikmyndagerðarmannanna, sem lesið er um leið og það verður til, og tekur jafn óðum breytingum með upplifunum höfundanna. Og enn eitt lagið til er síðan hins meinta frásagnarhöfundar, Jennýjar Alexsonar, fyrrverandi mágkonu annars kvikmyndagerð- armannsins – og spennusagnahöf- undar í leynum. Hvernig sú góða kona, sem glímir við sín hjóna- bandsvandamál, getur vitað það sem hún greinir okkur frá, af sigl- ingu suður til Englands og við- burðum í kringum uppgjör dán- arbús þar, er engin leið að útskýra – en allt er þetta efni frábærlega saumað saman og þess vegna gengur fléttan upp. Sagan og við- burðirnir eru nefnilega með svo miklum ólíkindum að þetta gæti allt hafa gerst – í sögu … Þeir sem þekkja til fyrri skáld- sagna Braga kannast við stíl- brögðin, sérstakan frásagnarhátt- inn og einkennandi tóninn sem lifnar jafnt í ljóðum Braga sem sögum. Þessi tónn nýtur sín hér sem aldrei fyrr, hikið og óvissan, núningurinn og misskilningurinn sem sífellt kemur upp í samtölum, augað fyrir smáatriðum í lýsingum og sviðsetningum sem gera heim- inn svo ljóslifandi. Síðan bætist við að aldrei hefur Braga tekist jafn vel upp við byggingu sagna sinna og hér. Hvernig skipt er milli sögusviða og atburðir undirbyggðir með fín- legu neti vísana, er afskaplega vel gert. Þessi bók með langa nafnið er án efa hápunkturinn á ferli sagna- skáldsins Braga Ólafssonar; meist- aralega skrifuð og stórskemmtileg skáldsaga. Það verður forvitnilegt að sjá hvert Bragi tekur lesendur sína næst; sagt er að vegferð okkar með ljóðskáldinu Sturlu Jóni og kvikmyndagerðarmönnunum Erni og Jóni sé ekki lokið. Sem betur fer. Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson bbbbb Eftir Braga Ólafsson Mál og menning 2010. 464 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON SKÁLDSAGA Meistaralega skrifuð saga Morgunblaðið/Einar Falur Bragi Ólafsson Hér nýtur sérstakur tónn hans sín sem aldrei fyrr. Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið - sýningum lýkur í vor) Lau 4/12 kl. 16:00 U örfáar sýn.ar eftir áramót Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið HETJA eftir Kára Viðarsson (SÖGULOFTIÐ- fjögurra stjörnu leiksýning) Fim 27/1 kl. 17:00 kitlar hláturtaugarnar MELCHIOR - TÓNLEIKAR (Hvíti salur) Fös 10/12 kl. 20:30 fiskisúputilboð Uppáhald jólasveinanna (Hvíta sal og skála) Sun 5/12 kl. 12:00 Sun 12/12 kl. 12:00 Brúðuheimar í Borgarnesi 530 5000 | hildur@bruduheimar.is GILITRUTT Lau 4/12 kl. 14:00 U Lau 11/12 aukas. kl. 17:00 Ö Lau 18/12 aukas. kl. 17:00 Ö Sun 9/1 kl. 14:00 næst síðasta sýn.arhelgi Sun 16/1 kl. 14:00 síðasta sýn.arhelgi Pönnukakan hennar Grýlu Sun 5/12 kl. 14:00 Ö Sun 12/12 kl. 14:00 Sun 19/12 kl. 14:00 Þetta er lífið 5629700 | opidut@gmail.com Þetta er lífið...og om lidt er kaffen klar. Sun 5/12 kl. 20:00 Ö síðustu sýn.ar fyrir jól Lau 22/1 kl. 20:00 Fös 28/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 FIMM STJÖRNU KABARETT með Charlotte Bøving. Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Gegnum holt og hæðir (Rýmið) Lau 4/12 kl. 13:00 5. sýn. Lau 4/12 kl. 15:00 6. sýn Lau 11/12 kl. 13:00 7.sýn Aðventusýning Jesús litli (Hamraborg) Lau 15/1 kl. 16:00 1,sýn Sun 16/1 kl. 20:00 4. sýn Mið 19/1 kl. 21:00 6. sýn. Lau 15/1 kl. 20:00 2.sýn Þri 18/1 kl. 21:00 5. sýn. Fim 20/1 kl. 19:00 7. sýn. Sun 16/1 kl. 16:00 3. sýn Mið 19/1 kl. 19:00 Aukas Fim 20/1 kl. 21:00 8.sýn 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Ofviðrið (Stóra sviðið) Mið 29/12 kl. 20:00 frums Fim 13/1 kl. 20:00 6.k Mið 26/1 kl. 20:00 Sun 2/1 kl. 20:00 2.k Þri 18/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 8.k Lau 8/1 kl. 20:00 3.k Mið 19/1 kl. 20:00 Sun 6/2 kl. 20:00 9.k Sun 9/1 kl. 20:00 4.k Fös 21/1 kl. 20:00 7.k Fim 10/2 kl. 20:00 10.k Mið 12/1 kl. 20:00 5.k Þri 25/1 kl. 20:00 Ástir, átök og leiftrandi húmor Fólkið í kjallaranum (Nýja svið) Sun 5/12 kl. 20:00 24.k Fös 10/12 kl. 19:00 27.k Sun 12/12 kl. 20:00 Mið 8/12 kl. 20:00 25.k Fös 10/12 kl. 22:00 Fim 16/12 kl. 20:00 lokas Fim 9/12 kl. 20:00 26.k Lau 11/12 kl. 19:00 Verðlaunasaga Auðar Jónsdóttur Fjölskyldan (Stóra svið) Lau 4/12 kl. 19:00 8.k Fim 30/12 kl. 19:00 Lau 15/1 kl. 19:00 Lau 18/12 kl. 19:00 9.k Fös 7/1 kl. 19:00 Sun 23/1 kl. 19:00 "Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is Jesús litli (Litla svið) Lau 4/12 kl. 19:00 12.k Fös 10/12 kl. 19:00 aukas Lau 18/12 kl. 21:00 Lau 4/12 kl. 21:00 13.k Lau 11/12 kl. 19:00 aukas Mið 29/12 kl. 19:00 aukas Þri 7/12 kl. 20:00 Sun 12/12 kl. 20:00 16.k Fim 30/12 kl. 19:00 Mið 8/12 kl. 20:00 14.k Fim 16/12 kl. 20:00 Fim 9/12 kl. 20:00 15.k Lau 18/12 kl. 19:00 Sýning 7/12 kl 20 verður túlkuð á táknmáli Jesús litli - leikferð (Hof - Hamraborg) Lau 15/1 kl. 16:00 Sun 16/1 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 21:00 Lau 15/1 kl. 20:00 Þri 18/1 kl. 21:00 Fim 20/1 kl. 19:00 Sun 16/1 kl. 16:00 Mið 19/1 kl. 19:00 Fim 20/1 kl. 21:00 Sýnt í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í samstarfi við LA Faust (Stóra svið) Fim 6/1 kl. 20:00 Sun 16/1 kl. 20:00 Fös 14/1 kl. 22:00 Fim 20/1 kl. 20:00 Aukasýningar á Íslandi vegna fjölda áskorana Horn á höfði (Litla svið) Sun 12/12 kl. 14:00 lokas Gríman 2010: Barnasýning ársins - síðasta sýning! Fólkið í Kjallaranum - síðustu sýningar ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 4/12 kl. 11:00 Lau 11/12 kl. 11:00 Lau 18/12 kl. 11:00 Lau 4/12 kl. 13:00 Lau 11/12 kl. 13:00 Lau 18/12 kl. 13:00 Lau 4/12 kl. 14:30 Lau 11/12 kl. 14:30 Lau 18/12 kl. 14:30 Sun 5/12 kl. 11:00 Sun 12/12 kl. 11:00 Sun 19/12 kl. 11:00 Sun 5/12 kl. 13:00 Sun 12/12 kl. 13:00 Sun 19/12 kl. 13:00 Sun 5/12 kl. 14:30 Sun 12/12 kl. 14:30 Sun 19/12 kl. 14:30 Allt uppselt - ósóttar pantanir seldar daginn fyrir sýningu! Gerpla (Stóra sviðið) Fim 6/1 kl. 20:00 Fim 20/1 kl. 20:00 Mið 12/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 Missið ekki af þessari frábæru sýningu! Sýningar í janúar komnar í sölu Fíasól (Kúlan) Sun 5/12 kl. 13:00 Sun 19/12 kl. 13:00 Fim 30/12 kl. 16:00 Sun 5/12 kl. 15:00 Sun 19/12 kl. 15:00 Sun 2/1 kl. 13:00 Sun 12/12 kl. 13:00 Þri 28/12 kl. 16:00 Sun 2/1 kl. 15:00 Sun 12/12 kl. 15:00 Mið 29/12 kl. 16:00 Sýningar um jólin komnar í sölu! Hænuungarnir (Kassinn) Lau 4/12 kl. 20:00 Fös 10/12 kl. 20:00 Aukas. 5 stjörnur Fbl. 5 stjörnur Mbl. Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Fös 10/12 kl. 19:00 Aukas. Fim 30/12 kl. 19:00 Sun 16/1 kl. 19:00 Lau 11/12 kl. 19:00 Aukas. Fös 7/1 kl. 19:00 Lau 22/1 kl. 19:00 Sun 12/12 kl. 19:00 Aukas. Lau 15/1 kl. 19:00 Sun 23/1 kl. 19:00 Nýjar sýningar komnar í sölu!Ath! Sýningarnar hefjast kl. 19:00 Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Lau 4/12 kl. 20:00 Sun 5/12 kl. 20:00 Síð. sýn. Bráðfyndið og snargeggjað verk! Síðustu sýningar! Lér konungur (Stóra sviðið) Sun 26/12 kl. 20:00 Frumsýn Lau 8/1 kl. 20:00 4.sýn. Fös 14/1 kl. 20:00 7.sýn. Þri 28/12 kl. 20:00 2.sýn. Sun 9/1 kl. 20:00 5.sýn. Fös 21/1 kl. 20:00 8.sýn. Mið 29/12 kl. 20:00 3.sýn. Fim 13/1 kl. 20:00 6.sýn. Leikstjóri Benedict Andrews, einn fremsti leikstjóri í heimi! Kandíland (Kassinn) Fim 30/12 kl. 20:00 Frums. Fim 6/1 kl. 20:00 Lau 8/1 kl. 20:00 Mið 5/1 kl. 20:00 Fös 7/1 kl. 20:00 Höfundar; Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan Nýtt leikverk eftir Jón Atla Miðasalan er opin virka daga frákl.13-15 Sími: 527 2100 www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík Tom Waits Tribute Mojito 3.DES MIÐNÆTUR SÝNING! 23:30 3.DES 4.DES 4.DES Vesturport & Rás 2 kynna The Bad Livers & The Broken heart Band AUKATÓNLEIKAR KL. 23:30 kl. 20 kl. 22:30 Jónas Sig. Jólarósir Tónleikar Snuðru og Tuðru 5.DES 7.DES Augastein –Á senunni Ævintýrið um 12.DES kl. 14 OG 16 NÆSTA VIKA: MIÐNÆTURSÝNING 10.DES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.