Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 04.12.2010, Blaðsíða 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 www.laugarasbio.is − bara lúxus Komdu í ferðalag og upplifðu ævintýri Narníu eins og þú hefur aldrei séð áður í stórkostlegri þrívídd! Tilboð þurfa að berast til Þýska sendiráðsins, Laufásvegi 31, í lokuðu umslagi. Uppl. í Þýska sendiráðinu í síma 530 1100 eða mail: info@reykjavik.diplo.de Ekinn 14 þ.km, sjálfskiptur, vetrardekk, bluetooth, leðursæti o.s.frv. ÓSKAÐ er tilboða sem er að lágmarki. 7.990.000 kr. st.gr. Lokað verður fyrir tilboð kl. 12.00 föstudaginn 10.12.10. Sendiráðsbíll til sölu BMW 525 D x-Drive árg. 2009 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Í tilefni af því að það eru 25 ár liðin síðan Reynir Pét- ur gekk hringinn í kringum landið til styrktar Sól- heimum tóku María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamað- ur og Guðmundur Bergkvist (Beggi) kvikmyndatökumaður upp heimild- armynd um manninn. Í ár eiga Sól- heimar 80 ára afmæli þannig að Maríu fannst tækifærið komið til að gera þessa mynd sem hana hafði lengi langað til að gera. „Reynir á brýnt erindi við þjóðina, hann er svo glaður og með svo fallega sýn á lífið. Mér fannst tilvalið að gera þetta núna út af ástandinu,“ segir María. Tímamótaganga „Gangan markaði tímamót í sögu fatlaðra hér á Ís- landi. Honum tókst að vinna hug og hjörtu allrar þjóðarinnar. Á sínum tíma gekk hann 50 kílómetra á dag í heilan mánuð. Hann varð svo vinsæll að það voru 14.000 manns sem tóku á móti honum þegar hann kom til Reykjavíkur í göngunni á sínum tíma. Ég á greinilegar minningar frá þessum tíma og var ég þó aðeins smástelpa þegar þetta var. Þegar ég talaði við hann um að gera þessa mynd komu bara gullmolar upp úr honum, hann talar í svo fallegu líkingamáli. Ég spurði hann til dæmis hvaða þýðingu þetta hafði fyrir fatlaða. Hann sagði að þeir hefðu verið eins og selir sem hefðu verið undir ísnum og enginn séð. Svo komu þau allt í einu upp úr vökinni. Hann er skarpgreindur á mörgum sviðum, hann er með yfirburða þekkingu á stærðfræði og margt þess háttar. Þetta er skemmti- legasta verkefni sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Hann er svo jákvæður og með svo mikla útgeislun að maður hrífst með honum. Í dag vinnur hann í gróð- urhúsinu á Sólheimum og vinnur á við tíu menn. Hann er svo vel á sig kominn líkamlega að hann gæti auð- veldlega gengið hringinn aftur,“ segir María. Fallegt ástarsamband Mikið af sjónvarpsefni er til á RÚV frá því að Reynir gekk hringinn og notast María við það. Mynd- in er byggð þannig upp að blandað er saman göng- unni hans og síðan viðtölum við hann á Sólheimum í dag. Öll tónlistin í myndinni er samin af Reyni Pétri sjálfum. Hann samdi laglínurnar og raular þær en María lét síðan útsetja lögin með píanói. Aðspurð hvers vegna Maríu hafi þótt ástæða til að gera mynd- ina núna, svarar hún: „Ég hef rekið mig á það að þeir sem eru aðeins yngri en ég vita ekkert hver hann er. Hann er mjög vel þekktur hjá þeim sem eldri eru. En myndin þjónar þeim líka því fjallað er um Reyni og líf hans í dag með Hanný Maríu en þau búa saman á Sól- heimum og lifa í mjög fallegu sambandi. Ég held að fólk geti lært af honum og tekið sér hann til fyr- irmyndar. Ég held að hann geti virkað eins og víta- mínsprauta á suma,“ segir María. María hefur unnið sem fréttamaður á sjónvarpinu í fimm og hálft ár. Þetta er ekki fyrsta heimild- armyndin sem hún gerir því hún og Beggi gerðu sam- an mynd um börn í Kambódíu sem vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum. „Mér finnst mjög gaman að vera með hliðarverkefni meðfram fréttamennskunni. Það er svo mikill hraði í fréttamennskunni að maður fær mikið út úr nostrinu og dútlinu við heimildarmynda- gerðina. Við Beggi vinnum vel saman, hann er eins og bróðir minn. Við erum búin að eyða meiri tíma saman heldur en með mökum okkar undanfarna mánuði. Nú ætlum við að hvíla okkur en okkur verður farið að klæja eftir smátíma. Ég er alveg viss um að þá rjúk- um við í eitthvert annað verkefni,“ segir María. Myndin var forsýnd á fimmtudaginn í Bíó Paradís en verður sýnd í sjónvarpinu annað kvöld, sunnudags- kvöld. Tímamótaganga í sögu fatlaðra  25 ár liðin síðan Reynir Pétur gekk hringinn í kringum landið  Heimildarmynd um Reyni Pétur á RÚV á sunnudagskvöldið Morgunblaðið/Eggert Fögnuður Lífsgleðin fór eðlilega upp úr öllu valdi er perluvinirnir Reynir Pétur og Ómar Ragnarsson mættust. Gleði Edda Björgvins ásamt Ágústi og Bjarna Gabríel. Kátína Göngugarpar allra kynslóða létu sig ekki vanta. María Sigrún Hilmarsdóttir Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart- ansson var staddur í Svíþjóð að ganga frá leikmynd við gjörnings- verk sitt „Chamber Play“, eða „Stofudrama“, þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans í gær. Verkið verð- ur flutt á stóra sviði þjóðleikhúss Svía, Dramaten, í Stokkhólmi í kvöld kl. 19.30. Gjörningurinn tekur fjórar klukkustundir og verður textinn í honum síendurtekinn í þann tíma. „Þetta er í rauninni eins og portrett af leikhúsi inni í leikhúsi,“ segir Ragnar um verkið. „Það er rosaleg- ur, dramatískur þungi í þessu leik- húsi. Þetta hefur alltaf verið fyrir mér, úr leikarafjölskyldu, svolítið heillandi hús, talað um Dramaaaaten (Ragnar ber nafnið fram með ýktum, sænskum framburði), þetta er drama-screenið bara,“ segir Ragnar en meðal þeirra listamanna sem starfað hafa í leikhúsinu eru Ingmar Bergman og August Strindberg. Sýningin á verki Ragnars er á veg- um Bonniers-listasafnsins, hluti af sýningaröðinni Scene Shifts en í henni vinna myndlistarmenn víða að úr heiminum að verkum sem hafa tengingu við leikhús. Nokkur góð rifrildi Í verki Ragnars leika tveir leik- arar, karl og kona, „þungir, flottir, sænskir leikarar“, eins og hann lýsir því. Rikard Lekander fer með karl- hlutverkið en ónefnd leikkona mun hlaupa í skarðið fyrir Thérèse Brunnander sem forfallaðist. Ragn- ar segir gjörninginn „hjartaskerandi uppgjör“ karls og konu, textann hafi eiginkona hans, Ásdís Sif Gunn- arsdóttir, samið upp úr „nokkrum góðum rifrildum“ þeirra hjóna. Per- sónuleg samskipti þeirra séu því orðin að „ofboðslegri, dramatískri klisju“ á stóra sviðinu í Dramaten. Gullfallegri leikhúsklisju. „Þetta er algjört myndlistarverk, mynd af leikhúsi inni í leikhúsi.“ Leikhús listamanna Að öðru leikhústengdu. Ragnar er einn stofnenda Leikhúss lista- manna, hóps sem myndlistarmenn- irnir Snorri Ásmundsson, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ingibjörg Magna- dóttir og kvikmyndagerðarmað- urinn Ragnar Bragason skipa auk Ragnars. Hópurinn ætlar að bjóða upp á listrænar uppákomur einu sinni í mánuði í Þjóðleikhúskjall- aranum á næsta ári. „Við viljum kalla þetta Leikhús listamanna því við viljum brjóta upp hvað fyr- irbærið gjörningur sé. Þetta er í rauninni svona soirée-kvöld, kannski flytur einhver leikrit eða fyrirlestur um Wagner,“ segir Ragnar. Það komi ekki í ljós fyrr en að viðburð- inum komi. Morgunblaðið/Golli Leikhús Ragnar Kjartansson á sýningu sinni í Hafnarborg í upphafi árs. Nú er hann staddur í Svíþjóð, gjörningur hans sýndur í Dramaten í kvöld. Portrett af leikhúsi  Ragnar Kjartansson setur á svið stofudrama í þjóðleikhúsi Svía
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.