Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 48
48 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
3 2 1 6
5 3 6
9 7
6 4 9
7 5
4 7 3 2
5 2 9
2 9
1 6
4 3 7 9
4 1
9
4 8
9 3 1
7 6
8 1 4
6 5 9 3
1 7
8 4 7 2
2 3 5
4
6 9 1 2
2 5 7
4 8
5 7
9 4 3 8
6 7 9 8 3 2 4 1 5
1 2 4 9 6 5 7 3 8
3 8 5 7 4 1 2 9 6
4 5 8 3 1 6 9 7 2
2 3 7 4 5 9 8 6 1
9 1 6 2 8 7 3 5 4
5 9 3 1 2 4 6 8 7
7 6 2 5 9 8 1 4 3
8 4 1 6 7 3 5 2 9
1 5 3 4 2 6 7 8 9
7 2 8 5 9 1 4 3 6
4 9 6 8 7 3 2 5 1
9 7 4 3 6 8 5 1 2
8 1 2 9 5 7 6 4 3
3 6 5 1 4 2 8 9 7
2 4 1 7 3 5 9 6 8
5 8 7 6 1 9 3 2 4
6 3 9 2 8 4 1 7 5
7 5 2 9 4 3 6 1 8
9 8 4 1 5 6 3 7 2
3 6 1 8 7 2 9 4 5
8 9 5 6 1 4 2 3 7
1 2 3 7 9 5 8 6 4
6 4 7 2 3 8 5 9 1
2 1 9 5 6 7 4 8 3
4 7 8 3 2 9 1 5 6
5 3 6 4 8 1 7 2 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 4. desember,
338. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir
mér í kenningu, hegðun, ásetningi,
trú, langlyndi, kærleika, þolgæði.
(Tím. 3, 10.)
Víkverji tekur yfirleitt bensín áOrkunni. En um daginn átti
hann, hálf-bensínlaus, leið fram hjá
sjálfsafgreiðslustöð N1 í Mjóddinni.
Á stóru skilti við stöðina var verð á
lítra gefið upp og þótti Víverja
óvenjulegt að sjá að það var það
sama og á Orkustöðvunum. Hann
ákvað því að taka bensín á N1, í
þetta eina sinn.
x x x
En þegar hann var byrjaður aðdæla kom í ljós að verðið á dæl-
unni sjálfri og stóra skiltinu var ekki
það sama. Tveimur krónum munaði
á lítraverðinu. Þetta þótti Víkverja
frekar slappt og hringdi í þjón-
ustusíma sem gefinn var upp. Sá
sem svaraði í símann vissi ekki af
þessu ósamræmi en sagði skýr-
inguna þá að verðið hefði hækkað
um morguninn og augljóslega
gleymst að breyta verðinu á skiltinu.
Hann sagðist ekkert geta gert í
þessu fyrr en á mánudag og ætlaði
þá að hringja til baka.
x x x
Víkverji er kannski smámuna-samur því hefði hann fengið
bensíntankinn fylltan á því verði
sem gefið var upp á skiltinu hefði
hann sparað tæpar 80 krónur.
Fannst honum að N1 hefði átt að
bæta honum þetta og beið eftir sím-
talinu. En það kom aldrei og Vík-
verji hefur ekki farið á N1 síðan.
Víkverji er ekki mikið jólabarn.
Hann vill helst skreyta á Þorláks-
messu, eins og hann ólst upp við, og
taka skrautið niður á þrettándanum
og er þá yfirleitt feginn að geta
pakkað niður jólunum. Eins hefur
honum fundist jólalögin byrja að
hljóma of snemma og að allir hlytu
að vera orðnir hundleiðir á þeim á
aðfangadag.
x x x
Kunningi Víkverja benti honumþó á að alla hina mánuði ársins
hljómuðu líka stöðugt sömu lögin,
bara ekki jólalög heldur þessi „vin-
sælustu“ eins og sagt er. Það er
nokkuð til í því. Síbyljan er stundum
algjör og yfirþyrmandi. víkverji@m-
bl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 haugur, 4 inn-
afbrots, 7 missa marks, 8
vagga, 9 fljót að læra, 11
mjög, 13 röska, 14 lýkur, 15
ástand, 17 gáleysi, 20 rán-
fugl, 22 tölum, 23 fróð, 24
bunustokkur, 25 bik.
Lóðrétt | 1 hlykkur, 2 skilja
eftir, 3 straumkastið, 4 ytra
snið, 5 lestaropið, 6 valda
tjóni, 10 flanaðir, 12 rándýr,
13 afgirt hólf, 15 dimmir, 16
dauðyflið, 18 næða, 19 áma,
20 brauka, 21 slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ósnjallur, 8 skatt, 9 gengi, 10 agn, 11 aftur, 13 torga,
15 katta, 18 ámæli, 21 nöf, 22 ærleg, 23 aftra, 24 rifrildið.
Lóðrétt: 2 slakt, 3 Jótar, 4 lygnt, 5 Unnur, 6 assa, 7 eira, 12 urt,
14 orm, 15 klær, 16 taldi, 17 angar, 18 áfall, 19 æstri, 20 iðan.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4. g3
d5 5. cxd5 Rxd5 6. Bg2 Rc7 7. d3 e5
8. Rd2 Bd7 9. 0-0 Be7 10. Rc4 0-0
11. a4 b6 12. Bd2 Hb8 13. f4 exf4 14.
Bxf4 Hc8 15. a5 Re6 16. Bd2 Hb8
17. axb6 axb6 18. Rd5 b5 19. Ra5
Rxa5 20. Bxa5 De8 21. Bc3 Rd4 22.
e3 Rc6 23. Dh5 b4
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem haldið var í Gausdal í Noregi
árið 1995. Íslenski stórmeistarinn
Margeir Pétursson hafði hvítt gegn
enska skákmanninum John Emms
en sá varð síðar stórmeistari. 24.
Bf6!! h6 25. Be4 Be6 26. Hf4 Hd8
svartur hefði orðið mát eftir 26. …
Bxd5 27. Dxh6!! gxh6 28. Hg4#. 27.
Bxe7 Bxd5 28. Bxd8 og svartur
gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gölturinn Hamman.
Norður
♠2
♥G632
♦KG1073
♣Á85
Vestur Austur
♠KG4 ♠3
♥Á7 ♥KD954
♦ÁD8 ♦652
♣G10743 ♣KD92
Suður
♠ÁD1098765
♥108
♦94
♣6
Suður spilar 4♠ doblaða.
Allir geta tekið níu slagi í þremur
gröndum þegar tíu slagir standa á borð-
inu – meira að segja Hérinn fær stund-
um átta. En það er aðeins á færi sannra
galta að vinna óvinnandi spil.
Einhvern veginn þannig hljóðar
heimspeki Galtarins grimma, hins ofur-
snjalla, en ófyrirleitna stjörnuspilara í
dýragarði Mollos. Áhorfendur Bridge-
base á dögunum töldu víst að Gölturinn
hefði tekið sér bólfestu í líkama Bob
Hammans. Tilefnið var spilið að ofan úr
sveitakeppni öldunga í Orlando.
Vestur hafði sýnt varnarstyrkinn
með smellidobli á 4♠. Hann kom út með
♥Á, tók svo á ♦Á og spilaði meiri tígli.
Hamman drap á ♦K, trompaði tígul og
spilaði spaðafimmu (!) að heiman –
fjarki, tvistur og þristur. Svo kom ♠Á,
lauf á ás og hjarta hent í frítígul. Tíu
slagir.
4. desember 1954
Kvikmyndin Salka Valka, sem
gerð var eftir sögu Halldórs
Laxness, var frumsýnd í Aust-
urbæjarbíói og Nýja bíói í
Reykjavík.
4. desember 1971
Eldur kom upp í veitingahús-
inu Glaumbæ við Fríkirkjuveg
í Reykjavík. „Brunnu allir inn-
viðir efri hæðarinnar en vist-
arverur á neðri hæð skemmd-
ust mikið af vatni og reyk,“
sagði í Þjóðviljanum. Þetta
hafði verið einn vinsælasti
skemmtistaðurinn í heilan
áratug. Húsið var síðar gert
upp og hýsir nú Listasafn Ís-
lands.
4. desember 1980
Hagkaup hóf sölu á nýjum
bókum með 10% afslætti, í
andstöðu við bóksala. Tíu dög-
um síðar náðist samkomulag
við bókaútgefendur um tíma-
bundna sölu, án afsláttar.
4. desember 1981
Stytta af heilagri Barböru var
afhjúpuð á messudegi hennar í
kapellu í Kapelluhrauni við
Straumsvík. Lítið stein-
líkneski af Barböru fannst í
kapellunni árið 1950.
4. desember 1993
Ingólfstorg í Reykjavík var
formlega opnað eftir end-
urbætur á gatnamótum Aust-
urstrætis og Aðalstrætis.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Ég verð með fjölskylduboð fyrir nánustu fjöl-
skyldumeðlimi um daginn og síðan held ég konu-
boð í kvöld fyrir vinkonur mínar og frænkur, um
40 konur, um það bil ein kona fyrir hvert ár. Það
var afskaplega erfitt að velja þar sem ég á svo
stóra fjölskyldu,“ segir Ingibjörg Reynisdóttir,
leikkona og rithöfundur, sem fagnar fertugs-
afmæli sínu í dag. „Ætli ég geymi ekki stærri
veislu til fimmtugsafmælisins og síðan er svo stutt
síðan ég gifti mig og hélt 230 manna veislu. Þetta
var viku eftir hrunið 2008 og öllum þótti voða gott
að komast þá í partí, fá sér í tána og gleyma öllum
leiðindunum,“ segir Ingibjörg en eiginmaður hennar er Óskar Gunn-
arsson byggingatæknifræðingur. Saman eiga þau sjö ára son og hún á
17 ára dóttur, Lovísu Rós, sem skrifaði með henni bókina „Strákarnir
með strípurnar“ árið 2007. Árið eftir skrifaði Ingibjörg söguna „Rót-
leysi, rokk og rómantík“ en á þessum bókum er kvikmyndin Órói
byggð sem nýverið var frumsýnd við góðar viðtökur. Var Ingibjörg
annar handritshöfunda en núna er hún m.a. með bók í smíðum um
Gísla á Uppsölum. Eftir áramót gæti svo farið að hún stigi á leiksvið
að nýju eftir smáhlé frá þeirri listagyðju. bjb@mbl.is
Ingibjörg Reynisdóttir leikkona 40 ára
Heldur konuboð í kvöld
Flóðogfjara
4. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.59 4,0 11.17 0,6 17.18 3,7 23.29 0,5 10.54 15.43
Ísafjörður 0.48 0,4 7.03 2,3 13.26 0,4 19.13 2,1 11.32 15.15
Siglufjörður 2.53 0,3 9.09 1,3 15.24 0,1 21.52 1,2 11.16 14.57
Djúpivogur 2.07 2,3 8.26 0,5 14.25 2,0 20.27 0,5 10.31 15.05
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Lífið blasir við þér og þú ert með bros
á vör. Kom brandari makans við auman blett?
Í stað þess að bregðast ósjálfrátt við skaltu
hugsa málið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarft að sýna sérstaka þolinmæði í
samskiptum við vini og vandamenn. Sam-
vinna ætti að skila góðum árangri.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Horfðu í spegilinn til að átta þig á
hvað er það fyrsta sem fólk hugsar þegar það
sér þig. Drífðu þig út, vertu með á nótunum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það getur eitt og annað komið upp á
yfirborðið þegar menn ræða málin af fullum
þunga. Lítið ekki til annarra um forystu mála.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þetta er dagur athafna svo þá er bara
að ríða á vaðið og fara sínar eigin leiðir. Ekki
gera ráð fyrir því að þú vitir hvað einhver
annar vill.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er nauðsynlegt að þekkja allar
hliðar mála áður en þú lætur til skarar skríða.
Haltu því besta, hentu afganginum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Tjáðu skoðanir þínar umbúðalaust og
láttu engan velkjast í vafa um, hvað þér finnst
um menn og málefni. Gott líf byggist ekki
bara á vinnu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Fólk heldur að þú sért að bjóða
fyrir þess hönd en sannleikurinn er sá að þú
ræður ferðinni. Skoðaðu ástamálin niður í
kjölinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú laðar hugsanlega að þér
áhrifamikla manneskju í dag. Gakktu hægt
um gleðinnar dyr.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Lokaðu þig ekki af frá umheim-
inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Ný
persóna í umhverfi þínu mun snúa heimi þín-
um á hvolf.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú vinnur með fólki sem er ósam-
mála vegna fordóma sinna og leyndra fyr-
irætlana. Láttu það eftir þér að skemmta þér
og borða góðan mat í góðra vina hópi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þig vantar félaga til þess að fram-
kvæma það sem þig dreymir um. Mundu að
það er í góðu lagi að setja sjálfa/n í fyrsta
sætið - alltaf.
Stjörnuspá
María
Ólafsdóttir
verður
fimmtug á
morgun, 5.
desember.
Af því til-
efni býður
hún vinum
og vanda-
mönnum í kaffi. Allir vel-
komnir.
50 ára Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is