Morgunblaðið - 06.12.2010, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.12.2010, Qupperneq 2
Í tengslum við hvatningarátakið hafa bankar boðið svokölluð framkvæmdalán, sem hafa num- ið allt að tveimur milljónum til allt að fimm ára. Skv. upplýs- ingum frá Íslandsbanka hafa ver- ið veitt um 300 lán vegna fram- kvæmda frá því að byrjað var að veita þau í sumar. Hjá Lands- bankanum hafa slík lán numið 100 milljónum króna á árinu. Í fæstum tilvikum hafa menn sótt um hámarksupphæð lánanna, heldur hlaupa þau oftast á nokk- ur hundruð þúsundum króna. Nokkuð hagstæð kjör eru á lánunum, ef marka má heimasíð- ur bankanna (Íslandsbanka og Arion). Um er að ræða óverð- tryggða vexti sem eru töluvert lægri en kjörvextir skv. vaxta- töflu bankanna, gjarnan um 4%. Þá eru engin lántökugjöld á lán- unum. omfr@mbl.is 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Gildir í desember Seljavegi 2 101 Reykjavík Sími 511 3340 Fax 511 3341 www.reyap.is FRÉTTASKÝRING Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Ákveðið hefur verið að framlengja átaksverkefnið „Allir vinna“ út næsta ár. Átakinu átti að ljúka um áramótin en það miðar að því að hvetja fólk til að ráðast í framkvæmdir heima við. Mikil viðbrögð hafa verið við átakinu og þurfti ríkisskattstjóri m.a. að fjölga starfsmönnum við afgreiðslu umsókna um endurgreiðslu á virðis- aukaskatti, vegna þess hve mikið þeim fjölgaði í kjölfar átaksins. Átakið felur í sér 100% endur- greiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við framkvæmdir heima við og í bústaðnum auk allt að 300 þúsund króna frádráttar á tekjuskatti fyrir hjón og sambýlisfólk. Að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskatts- stjóra hefur orðið gríðarleg aukning í umsóknum um endurgreiðslu á virð- isaukaskatti vegna átaksins. „Við höfum þurft að taka mannafla annars staðar frá til að tryggja að það verði ekki mikil bið. Þetta virðist því hafa lánast og komið hjólunum í gang.“ Hann segir mikinn kost að átakið dragi úr svartri vinnu. „Það er mikið takmark í sjálfu sér því svört vinna vill gjarnan fara saman með undanskoti á bótum. Þetta er því tvö- faldur ávinningur fyrir samfélagið.“ Fjöldi umsókna það sem af er ári liggur ekki fyrir en samkvæmt frétt í Samiðnarblaðinu voru þær orðnar 6.500 í lok október og má ætla að þær séu komnar vel yfir 8.000 í dag. Skúli segir upphæðirnar allt frá nokkrum þúsundum og upp í hundr- uð þúsunda en tekjuskattsfrádrátt- ur sem leiðir af endurgreiðslu virð- isaukaskattsins sé einnig mikill hvati. Sá frádráttur kemur sjálfvirkt á skattframtal næsta árs en starfs- menn ríkisskattstjóra sjá um þá hlið mála. „Það er skilyrði í lögunum að allar umsóknir fyrir þetta ár berist fyrir 1. febrúar. Umsóknir sem koma eftir það verða ekki teknar til greina.“ Erfitt að fá iðnaðarmenn Orri Hauksson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, tekur undir að átakið hafi heppnast vel. „Menn hafa klárlega fundið fyrir því að vinnan hafi glæðst hjá þeim,“ segir hann og játar því að borið hafi á því að erfitt sé orðið að fá iðnaðar- menn, þrátt fyrir atvinnuleysi meðal þeirra. „Það eru svolitlir blettaskall- ar í framboði af sérhæfðu vinnuafli og t.d. vantar rennismiði, vélamenn og fagmenn í ýmsum málmgrein- um.“ Eins konar jafnvægi sé nú komið í flestum greinanna sem átak- ið beinist að, þó að það sé ekki algilt. „Það er svolítið landshlutaskipt en stærsti hluti atvinnulausra er þeir sem ekki hafa menntun, þ.e. ófaglærðir í byggingageiran- um.“ Fjármálaráðherra hef- ur lagt fram frumvarp um framlengingu átaksins út næsta ár sem er nú til meðferðar hjá efnahags- og skattanefnd Alþingis. Aukin vinna hjá iðnaðarmönnum  Fjöldi fær endurgreiðslu vsk. vegna framkvæmda heima við Morgunblaðið/G. Rúnar Málað Verkefnið Allir vinna hefur glætt framkvæmdagleði landsmanna og þannig aukið atvinnu iðnaðarmanna. Flestar tölvureiknaðar spár gera ráð fyrir því að í stórum dráttum haldist einkenni veðurkaflans, sem hófst 21. nóvember sl., næstu tvær vikur hið skemmsta. Þetta kemur fram í bloggi Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings á mbl.is. Hann bendir á að fyr- irstöðuhæð hafi ríkt í grennd við landið allt frá sunnudeginum 21. nóvember. Þá hafi líka orðið straum- hvörf í meginhringrás loftsins við N- Atlantshaf, sem aftur hafi haft djúp- stæð áhrif á veðrið í Evrópu. Einar segir að erfitt sé að benda á eitthvað eitt sem skýri þessa breyt- ingu sem varð. „Í stuttu máli hefur ríkt hér neikvæður fasi hinnar svo- kölluðu Norður-Atlantshafssveiflu (NAO)“, skrifar hann. Jákvæður fasi NAO verður þegar lægðagangur er frá austri til vesturs yfir Atlants- hafið og braut lægðanna nærri Ís- landi eða skammt sunnan við land. Jafnframt er háþrýstisvæði staðsett vestur af Portúgal, nærri Azoreyj- um. Yfir meginland Evrópu berst þá milt og úrkomusamt loft, en á sama tíma er kalt á Vestur-Grænlandi. Þegar þrýstimunur á milli Íslands og Azoreyja er minni, jafnvel hærri þrýstingur við Ísland, ríkir neikvæð- ur fasi NAO. Lægðabrautin færist til suðurs inn yfir Miðjarðarhaf og N- Afríku. Milt verður við V-Grænland, en heimskautaloft streymir úr norðri og austri yfir Norður- og Vestur-Evrópu. Einar segir jafn- framt að þegar fasi NAO er áber- andi neikvæður verði ríkjandi vind- áttir frá SV til N, í stað hinnar algengu austlægu átta, úrkomulítið og stundum sérlega þurrt, loftþrýst- ingur sé hærri en í meðallagi, hæg- viðri tíð og lítið um storma. Þá sé ýmist frekar kalt eða mjög milt. Staðsetning fyrirstöðuhæðar sem oftast er undirliggjandi fyrir langa kafla með neikvæðum NAO stýri því hvort loftið sé suðlægt eða norðlægt að uppruna. Einar segir að gangi spár eftir verði að fara suður til Afr- íku til að finna svipað hitastig og hér á landi, en áfram verði kalt á meg- inlandi Evrópu. Svipaður hiti hér og í Afríku  Fyrirstöðuhæðir og áfram gott veður Morgunblaðið/Ernir Blíða Áfram er spáð góðu veðri í Reykjavík og víðar næstu daga. Tófu hefur talsvert orðið vart í efri byggðum Kópavogs á síðustu mán- uðum. Á föstudagsmorgun skaut Hreimur Garðarsson meindýraeyðir hvíta tófu skammt sunnan við Linda- kirkju. Síðustu tólf mánuði hefur hann skotið 15 dýr í landi Kópavogs og mörg þeirra í byggðinni. Hann segir tófu hafa fjölgað í Bláfjöllum og Heiðmörk. Hún leiti síðan niður í byggð þegar harðna fari ofar í land- inu. Mest sé um hana á og við golf- völl Kópavogs og Garðabæjar og í Smalaholti, Hnoðraholti og Rjúpna- hæð. Hann segist ekki hafa fundið greni í landi Kópavogs, en hafi séð og frétt af mörgum dýrum síðustu vikur sem séu í ætisleit á fyrr- nefndum slóðum. Tófan sæki í mýs og fugla og það annað sem býðst í þessum bæjarferðum. Bæði sé um hvíta og mórauða lágfótu að ræða. Ein sé sérstaklega kræf og hún víli ekki fyrir sér að fara á milli svæða í dagsbirtu. Enn hafi hann ekki náð að fella hana. Hreimur segist fara með mikilli gát og reyni helst að fella dýrin þegar svartamyrkur sé og helst vont veður. Þá séu minnstar líkur á að fólk sé á ferð. Hjón sem búa í upphæðum Kópa- vogs urðu vör við hvíta lágfótu sem skokkaði yfir veginn inn í hverfið tvo morgna í síðustu viku. Heilbrigð- iseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópa- vogssvæðis, sem sinnir Garðabæ og Álftanesi að auki, hafa borist 5-10 til- kynningar um tófur í byggð árlega síðustu ár. aij@mbl.is Hefur fellt 15 tófur í landi Kópavogs á 12 mánuðum Morgunblaðið/Jónas Í ætisleit Við golfvöll GKG hefur orðið vart við tófu undanfarið.  Skaut hvítan ref á föstudag Hagstæð vaxtakjör FRAMKVÆMDALÁN BANKA Hálfur lítri af Kristal plús kom í góð- ar þarfir úti á sjó í Látraröst við Bjargtanga á laugardag þegar hann var notaður til að slökkva eld sem kom upp í línubátnum Lágey ÞH-265. Þorkell Magnússon, skipstjóri á Lágey, segir eldinn hafa komið upp eftir að dropi af sjó komst í ádrep- ann á vélinni með þeim afleiðingum að það leiddi saman. „Það kom þarna reykur og svolítill eldur sem við náðum strax að slökkva og not- uðum til þess hálfan lítra af Kristal plús. Þeir hlógu mikið að því karl- arnir hérna að það hefði ekki þurft meira til.“ Nokkur viðbúnaður var vegna at- viksins og var björgunarskipið Vörð- ur kallað út til móts við Lágey. „Við höfðum samband við Landhelg- isgæsluna því það drapst á vélinni og við vildum ekki að okkur ræki upp í Látrabjargið.“ Þorkell kom bátnum þó strax aftur í gang og fór hann fyr- ir eigin vélarafli inn á Patreksfjörð. Skemmdirnar reyndust minni- háttar að þessu sinni og var lokið við viðgerð á honum í gær. Fór því bet- ur nú en í mars sl. þegar Lágey strandaði á Skjálfanda en hún var á heimleið eftir allsherjar viðgerð í Sandgerði vegna þess, þegar atvikið varð á laugardag. ben@mbl.is Slökktu eld á sjó með ½ lítra af Kristal plús

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.