Morgunblaðið - 06.12.2010, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
Heimsferðir bjóða tvær helgarferðir til Búdapest í beinu flugi í vor, tíunda árið í röð.
Vorið er einstakur tími til að heimsækja borgina, borgin einstaklega falleg og iðandi
af lífi. Búdapest stendur á einstökum stað við Dóná og er vafalítið ein af helstu bor-
garperlum Evrópu. Borgin skartar stórfenglegum byggingum, listaverkum og
sögulegum minjum.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Búdapest
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Spennandi kynnisferðir í boði - Frábært verð
Kr. 69.900 - Flugsæti báðar leiðir með sköttum, fargjald A. Netverð á mann.
Kr. 89.980 - Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Mercure Duna eða Hotel Tulip Inn,
21. apríl í 4 nætur með morgunverði
Beint flug
21. apríl - 4 nætur
28. apríl - 4 nætur uppseld
Tryggðu þér sæti strax!
Í vor
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
ingibjorgrosa@mbl.is
Jólaverslun þetta árið tók víðast hvar við sér
um helgina, fyrstu helgina í desember, að
venju. Hjá Office 1 í Smáralind segir starfsfólk
að jólaverslunin sé greinilega byrjuð því mun
fleira fólk hafi verið í verslunarmiðstöðinni um
helgina en fyrri helgar og mikið að gera í versl-
uninni.
„Helgin er búin að vera mjög fín, við vorum
með tilboð á Löngum laugardegi og það var röð
fyrir utan þegar við opnuðum. Svo var bara full
búð allan daginn,“ segir Dögg Hjaltalín, versl-
unarstjóri í bókabúð Máls og menningar á
Laugaveginum. Hún segir miklu fleira fólk hafa
verið á ferli í góða veðrinu á laugardag en aðra
laugardaga.
Þó segir Erla Vilhjálmsdóttir, eigandi Tékk
kristals í Kringlunni, að þótt fólki sé farið að
fjölga í Kringlunni hafi hún ekki merkt stóran
kipp í versluninni um helgina. „Íslendingar
geyma jú hlutina oft fram á síðasta dag.“ Erla
segist þó taka eftir því að fólk gæti þess aug-
ljóslega að eyða ekki um efni fram og kaupi eitt-
hvað sem það hefur örugglega ráð á.
Kaupendur sýna skynsemi
Sömu sögu hefur Guðrún Jóhannesdóttir,
framkvæmdastjóri Kokku, að segja. „Það var
svo gott veður og góð stemning. Verslunin róast
alltaf fyrir mánaðamót, þannig hefur það bara
verið síðustu tvö árin. Nóvember var mjög góð-
ur þar til allra síðustu dagana en svo er búið að
vera vitlaust að gera frá 1. desember. Laug-
ardagurinn var mjög góður hjá okkur, m.a.s.
aðeins betri en sami laugardagur fyrir ári. Ég
heyrði á fleiri verslunareigendum í kringum
mig að það hafi verið fín verslun hjá þeim líka,“
segir Guðrún og segist ekki hafa yfir neinu að
kvarta.
„Auðvitað er ekki árið 2007 en vill einhver
hafa 2007? Ég vil ekkert fá það aftur, ég vil bara
hafa normal ástand og ekki bera verslunina
saman við óeðlilegt ástand sem var hér í ein-
hverri bólu. Ef við berum verslunina bara sam-
an við meðalár, frá t.d. 2003 til 2005, þá er
ástandið núna bara gott. Mér finnst öll þessi
umræða svolítið á villigötum og kúrfan er bara
nokkuð eðlileg. Ef við tökum út þessi tvö ár,
2006 og 2007 er verslunin bara í eðlilegri þróun.
Við eigum að hætta að einblína á tvö afbrigðileg
ár,“ segir Guðrún og bætir við að fólk sýni
greinilega meiri skynsemi við innkaupin en í
„bólunni“.
„Fólk er að kaupa eitthvað sem nýtist vel,
það þarf ekki að eignast tólf manna matarstell á
einum degi, það á að njóta þess að eignast stell-
ið smám saman, það er miklu skemmtilegra.“
Byrja á jólafötunum
Gunnlaugur Bjarki Snædal, rekstrarstjóri
hjá NTC, segist hafa tekið eftir auknum
straumi fólks í verslunarmiðstöðvarnar um
helgina, en NTC rekur verslanir í Kringlunni
og Smáralind, auk Laugavegar.
„Það er byrjuð mikil traffík í verslunarmið-
stöðvunum en hún dreifist kannski misjafnt eft-
ir verslunum því það eru ákveðin innkaup sem
fólk gerir snemma í desember, eins og t.d. að
kaupa jólafötin. Þetta eru þannig tímar að mað-
ur veit ekki alveg á hverju maður á von en það
var líf og fjör í Kringlunni um helgina og fólk er
að versla svolítið. Fólk er mikið að skoða og
vega og meta hvar það fær mest fyrir pening-
inn,“ segir Gunnlaugur Bjarki.
Jólaverslunin hafin fyrir alvöru
Morgunblaðið/Eggert
Kringlan Flestir eru byrjaðir að kaupa jólagjafirnar, sumir kannski búnir nú þegar en allmargir eru enn að skoða og velta fyrir sér úrvalinu.
Viðskiptavinir eyða góðum tíma í að skoða áður en þeir ákveða að kaupa Verslunareigendur
sáttir og finnst ástandið „eðlilegt“ Mikil stemning á Laugaveginum í blíðviðri um helgina
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Jólaverslun fór yfirleitt rólega af
stað en kaupmenn reiknuðu með að
verslunin tæki góðan kipp um þessa
helgi og mikið yrði að gera. Það
kom líka á daginn, annir voru víð-
ast hvar og kaupmenn létu yfirleitt
vel af versluninni. Enda ekki seinna
vænna því aðeins eru átján dagar
til jóla.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segir að tvær greinar
hafi farið verst út úr hruninu; versl-
un og byggingastarfsemi. Í flestum
greinum hafi verslun minnkað frá
hruninu haustið 2008 og haldist það
í hendur við minnkandi kaupmátt.
Dagvaran haldið
sér ótrúlega vel
Hann segir að besti mæli-
kvarðinn á verslunina sé mán-
aðarleg mæling sem Rann-
sóknasetur verslunarinnar við
Háskólann á Bifröst gerir í hverj-
um mánuði. Helstu flokkarnir í
þessari mælingu eru dagvara, skór,
áfengi, fatnaður, húsgögn og raf-
tæki. „Allir þessir flokkar hafa dal-
að frá hruninu, en þó hefur dag-
varan haldið sér ótrúlega vel,“ segir
Andrés.
„Sala á húsgögnum og raftækj-
um hrapaði og var niður á við mán-
uð eftir mánuð. Í raftækjunum átti
þetta jafnt við um stór tæki og
smá, flatskjái jafnt sem rafmagns-
rakvélar. Síðasta mæling í raftækj-
unum var hins vegar upp á við, sem
er mjög jákvætt.“
Andrés segir ljóst að umsvif
margra fyrirtækja hafi minnkað
með fækkun starfsfólks. Fækkun
þeirra megi lesa úr tölum Credit-
info um gjaldþrot fyrirtækja.
Þróunin snerist rækilega
við árið 2008
Spá Rannsóknaseturs versl-
unarinnar er sú að velta í smá-
söluverslun í nóvember og desem-
ber verði um 59,8 milljarðar kr. án
virðisaukaskatts. Ætla má að versl-
un vegna jólanna, þ.e. velta umfram
meðaltal annarra mánaða ársins,
verði tæplega 12,5 milljarðar kr.
fyrir þessi jól. Þannig má ætla að
hver Íslendingur verji að meðaltali
39.500 kr. til innkaupa sem rekja
má til árstímans, segir í samantekt
rannsóknasetursins um jólaversl-
unina.
Á fyrri hluta áratugarins var
hvert metið slegið af öðru í aukinni
jólaverslun. Þessi þróun snerist
rækilega við árið 2008 þegar versl-
un fyrir jólin dróst saman 18,3% að
raunvirði og í fyrra hélt samdrátt-
urinn áfram og minnkaði enn um
4% frá árinu áður.
Nú er spá Rannsóknasetur
verslunarinnar að jólaverslunin
verði svipuð að raunvirði og hún
var fyrir síðustu jól. Jafnframt að
velta aukist um 4% að nafnvirði
vegna hækkunar verðlags.Þessi spá
byggist á þróun veltu í smá-
söluverslun það sem af er þessa árs
miðað við árið á undan og er í sam-
ræmi við þróun greiðslukortaveltu,
væntingar stjórnenda í verslun og
fleiri þátta.
Kippur í jólaversluninni um
helgina eftir rólega byrjun
Áætlað að jólaverslun verði svipuð að raunvirði og í fyrra
Árleg velta í milljónum króna
á breytilegu verðlagi í nóv. og des. í smásölu frá árinu 2001
70.000
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010*
*Spá um veltu. Heimild: Hagstofa Íslands. Spá fyrir 2010 er gerð af Rannsóknarsetri verslunarinnar
Á Akureyri er jólaverslunin hafin
líka en byrjar þó nokkuð rólega,
enda lengja kaupmenn ekki af-
greiðslutíma fyrr en síðar í mán-
uðinum. „Það er búin að vera góð
tíð hjá okkur og það hefur mikið að
segja á þessum tíma, að fólk sem
kemur lengra að komist til okkar,
svo þessi fyrsta helgi fór bara vel
af stað,“ segir Ragnar Sverrisson,
formaður kaupmannafélagsins á
Akureyri. „Það er snjór, frost og
stilla en góð færð og það er stóra
málið. Helgin lofaði mjög góðu og
kaupmenn eru bara ánægðir með
hvernig verslunin fer af stað. Þetta
var dálítið eftir bókinni en fjörið
byrjar ekki fyrir alvöru fyrr en um
næstu helgi. Þá hefja verslanir
sunnudagsopnun og frá og með 17.
desember verða flestar verslanir
opnar til klukkan 22 öll kvöld.“
Fjörið byrjar um næstu helgi
KAUPMENN Á AKUREYRI BJARTSÝNIR