Morgunblaðið - 06.12.2010, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
Minnum á teiknisamkeppni
Skólamjólkurdagsins
fyrir 4. bekkinga
Hægt er að skila inn myndum fram að jólafríi
til Mjólkursamsölunnar, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar á www.ms.is
Mjólk er
góð!
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hefðbundinn jólaundirbúningur fer
fyrir ofan garð og neðan hjá tæplega
30 Íslendingum sem eru á vegum Ís-
taks á Jamaíka. Sautján þeirra eru í
stjórnunarstöðum við byggingu
nítján húsa þjónustuklasa fyrir ferða-
menn við höfnina í Falmouth á norð-
urströnd landsins. Sumir eru með
fjölskyldur sínar með sér og fjögur ís-
lensk börn ganga í alþjóðlegan skóla
á staðnum.
Veðrið er ólíkt því sem gerist hér
og hitinn um og yfir 30 stig hvern dag
eins og venjulega í desember. Of mik-
ið er að segja að jólin setji ekki svip á
líf Íslendinganna því sumir þeirra eru
á heimleið yfir hátíðirnar og aðrir
eiga von á skyldmennum yfir jól og
áramót.
Um helgina buðu Ístak og Pihl &
Søn upp á jólahlaðborð fyrir íslenska
og danska starfsmenn fyrirtækjanna
á Jamaíka. Öllum hópnum var boðið á
hótel í Negril sem er vinsæll ferða-
mannastaður á vesturströnd Jamaíka
og státar af lengstu strönd eyj-
arinnar. Þar er margvísleg afþreying
í boði og m.a. hægt að horfa á sólina
sökkva í sæinn. Þar átti að fara fram
maraþonhlaup um helgina, sem ein-
hverjir úr hópnum ætluðu að taka
þátt í en flestir létu duga að hlaupa
eða rölta 10 kílómetra.
Betri helmingar starfsmanna Ís-
taks hafa síðan skipulagt jólaboð fyrir
hópinn milli jóla og nýárs. Það verður
á útiveitingastað í nágrenninu og ekki
líklegt að hangikjöt verði á borðum.
Húsin minna á tíma
bresku nýlenduherranna
Brynjar Brjánsson, verkfræð-
ingur, er staðarstjóri Ístaks í Falmo-
uth en þar er fyrirtækið að byggja
nítján byggingar í 19. aldar stíl fyrir
skipafélagið Royal Caribbean, sem
meðal annars rekur nokkur af
stærstu skemmtiferðaskipum í heimi.
Nokkur húsanna eru þó í raun aðeins
skýli enda aðstæður ólíkar því sem
gerist á Íslandi.
„Húsin eiga að minna á þann
tíma þegar Bretar voru hér nýlendu-
herrar og fluttu út mikið af sykri og
rommi sem þrælarnir unnu fyrir þá,“
segir Brynjar. „Húsin eru að klárast
hvert af öðru og þau fyrstu verða tek-
in í notkun þegar ný höfn í Falmouth
verður tekin í notkun. Hún er byggð
af Pihl & Søn fyrir yfirvöld hér á Ja-
maíka. Fyrstu skipin leggjast að
bryggju þar fljótlega á nýju ári, en
við reiknum með að ljúka fram-
kvæmdum í apríl eða maí í vor.“
Auk Íslendinganna sautján
starfa nokkrir Danir hjá Ístaki á Ja-
maíka og um 250 innfæddir. Mikið at-
vinnuleysi er á Jamaíka og ganga
heimamenn fyrir með störf. Ákveðinn
tími fór í að þjálfa þessa starfsmenn,
enda eru þau vinnubrögð og verkfæri
sem notuð eru við framkvæmdirnar
mörgum þeirra framandi. Falmouth
er miðja vegu á milli stærstu ferð-
mannabæjanna á norðurströndinni,
Montego Bay og Ocho Rios, og búa
flestir Íslendinganna í útjaðri Mon-
tego Bay. Fyrstu starfsmenn Ístaks
komu til Jamaíka haustið 2009 en
framkvæmdir hófust síðan í mars á
þessu ári.
„Það er sól og blíða hér í dag
eins og flesta daga og ég viðurkenni
að það er skrýtið að huga að jólaund-
irbúningi við þessar aðstæður. Hér er
í rauninni ekkert sem minnir á þau jól
sem við erum vön, en það verða jól
hjá okkur líka, það er ábyggilegt,“
segir Brynjar.
Undirbúa jól í 30 stiga hita
Tæplega 30
manns á vegum
Ístaks á Jamaíka
Ljósmynd/Axel Viðar Hilmarsson
Ístak Framkvæmdir við byggingarnar eru mislangt komnar, en þær fyrstu verða fljótlega teknar í notkun. Þarna
verður fjöldi verslana og veitingastaða og önnur þjónusta sem tengist farþegum skemmtiferðaskipa.
Sumar og sól Nokkrir yfirmanna Ístaks á Jamaíka léttklæddir í hitanum, frá vinstri Kasper Braa verkfræðingur,
Ingimar Ragnarsson verkfræðingur, Árni Geir Sveinsson tæknifræðingur og Friðrik Friðriksson verkstjóri.
Nemendur Háskóla Íslands þurfa
nú að framvísa stúdentakorti í
lestrarrýmum skólans til að halda
lesplássi í rým-
unum. Prófa-
tíminn er nú í
hámarki og
þétt setinn
bekkurinn við
lesborðin af
þeim sökum.
„Lesrýmin
eru núna yf-
irfull og þetta
er gert til að
takmarka að-
gang nemenda
annarra skóla
að þeim,“ segir
Jens Fjalar
Skaptason, for-
maður Stúd-
entaráðs. „Það hefur verið töluverð
aðsókn menntaskólanema að okkar
lesrýmum, sem margir hafa ekki les-
aðstöðu í sínum eigin skólum.“
Í tölvupósti sem sendur var til
stúdenta á föstudag kemur fram að
frá og með þeim degi muni umsjón-
armenn Háskólans ganga á milli les-
rýma og óska eftir því að sjá stúd-
entakort. Geti nemendur ekki
framvísað korti HÍ verði þeir beðnir
að víkja.
Sýni náms-
kort eða
víki ella
Mikil ásókn í lesrými
Háskóla Íslands
Lesið Prófum lýkur
17. desember.
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
ingibjorgrosa@mbl.is
Ragnar Victor Gunnarsson, yfir-
læknir við Heilbrigðisstofnun Suð-
urlands og stjórnarmeðlimur í
Læknafélagi Íslands, ritar grein í
nýjasta hefti Læknablaðsins, þar
sem hann lýsir yfir miklum áhyggj-
um af læknaskorti. Nefnir hann að
ljóst sé að einhverjum fjölda lækna
verði sagt upp á landsvísu og á ann-
að hundrað lækna hafi þegar flust af
landi brott í kjölfar efnahagshruns-
ins. Þá skili ungir sérfræðingar sér
ekki aftur til landsins að loknu námi
erlendis og í áætlunum stjórnvalda
sé ekki gert ráð fyrir að styrkja
síminnkandi stétt heimilislækna
með beinum hætti.
Viðvarandi fækkun heimilislækna
geti orðið grafalvarlegt mál og því
sé þörf á að
fjölga námslækn-
um í heimilis-
lækningum, en
slíkt skili sér þó
ekki nærri strax
inn í þjónustuna.
Ekki bjart
framundan
„Heimilislækn-
um hefur farið
fækkandi síðustu ár og fer hratt
fækkandi. Þá er mjög hár meðaldur
í þessari stétt og stefna nokkuð
margir heimilislæknar að því að
fara snemma á eftirlaun,“ segir
Ragnar. „Svo hefur verið viðvarandi
skortur á heimilislæknum á lands-
byggðinni svo að nokkuð víða eru
stöður mannaðar læknum sem eru
menntaðir á öðrum sviðum en eru
ekki sérfræðingar í heimilislækn-
ingum. Þannig að það er ekki mjög
bjart framundan, a.m.k. næstu tíu
árin. Það er skortur í gangi fyrir og
svo hefur t.d. verið þjarmað að sjálf-
stætt starfandi heimilislæknum hér
á höfuðborgarsvæðinu.“ Ragnar
segir æskilegt að yfirvöld leiti sam-
starfs við Félag íslenskra heimilis-
lækna til að ráða bót á vandamálinu.
„Ég hef áhyggjur af því að niður-
skurðurinn muni með óbeinum
hætti hafa slæm áhrif á heilsugæslu
í landinu og vona að ráðamenn hugsi
sinn gang og nú þegar samið verður
um nýja kjarasamninga fari fram
faglegar viðræður, en ekki verði ein-
göngu rætt um prósentur og launa-
flokka. Það myndi hjálpa læknum
talsvert ef viðræðurnar færu fram á
þeim nótum og hlustað yrði á raddir
lækna.“
Fækkun heimilislækna
grafalvarlegt vandamál
Þarf að hlusta á raddir lækna í komandi samningaviðræðum
Ragnar Victor
Gunnarsson.
Á þriðja tímanum í fyrrinótt var til-
kynnt til lögreglu að sést hefði til
manns sem væri með byssu á
skemmtistað í miðborginni. Þegar
lögregla kom á vettvang var mað-
urinn á bak og burt. Vitni gátu gefið
góða lýsingu á manninum og um
klukkustund síðar handtók lögregla
hann inni á skemmtistað.
Í ljós kom að hann var með hlað-
inn riffil meðferðis sem og nokkurt
magn skotfæra. Einnig fannst á
manninum nokkurt magn fíkniefna
sem ætla má að hann hafi ætlað að
selja, segir í frétt frá lögreglunni.
Að sögn lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu ógnaði maðurinn
engum með vopninu. Búist var við að
honum yrði sleppt að lokinni yf-
irheyrslu í gærkvöldi.
Með riffil og
skotfæri á
skemmtistað