Morgunblaðið - 06.12.2010, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta kom nú þannig til aðég á svo gríðarlega mikiðefni á spólum sem hefursafnast upp í gegnum ár-
in og mér fannst leiðinlegt að allt
þetta efni væri í hillum hjá mér og
enginn fengi að njóta þess,“ segir
Magnús Hlynur Hreiðarsson sem
nýlega gaf út mynddisk með 85
brotum úr sunnlenskum sjón-
varpsfréttum hans.
„Þetta eru ekki nákvæmlega
kópíeraðar fréttir frá mér sem
hafa birst, ég nota ekki endilega
sama bút úr viðtalinu og ég notaði
í fréttinni þegar hún kom í sjón-
varpinu,“ segir Magnús Hlynur og
bætir við að það sé sannarlega
markaður fyrir svona mynddisk
Taminn krummi,
vindverkir, tvíhöfða
lamb og margt fleira
Sjónvarpsfréttamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson gaf nýlega út mynddisk
með 85 brotum úr sunnlenskum sjónvarpsfréttum. Magnús Hlynur segir að
ástæðan fyrir því að á mynddiskinum eru aðallega svokallaðar furðufréttir, sé sú
að hann sé mest fyrir slíkt efni sjálfur.
Í vinnunni Magnús Hlynur tekur viðtal við forseta Íslands Ólaf Ragnar Grímsson.
Kossaflens Björn
bóndi í Úthlíð kyssir
söngkonuna Þuríði
Sigurðardóttur í
Tungnaréttum en á
diskinum er rétt-
arsöngurinn mynd-
aður.
Hláturinn lengir lífið og góðir brand-
arar létta lund. Við megum ekki
gleyma að hlæja svolítið þó að mik-
ið sé að gera hjá okkur og ætti
heimsókn inn á vefsíðuna Brand-
arar.is að geta glatt einhverja. Þar
er að finna brandara af öllum gerð-
um og eru þeir flokkaðir niður eftir
viðfangsefni t.d. Um stjórna-
málamenn, um konur, um ungdóm-
inn og svo framvegis. Þarna eru
margir góðir brandara, meðal ann-
ars þessi:
Kristján var aðframkominn í eyði-
mörkinni þegar álfkona birtist og
veitti honum þrjár óskir. Fyrst ósk-
aði hann sér þess að vera kominn
heim, og – púff – hann var kominn
heim! Svo óskaði hann sér Ferrari-
sportbíls og samstundis stóð bíllinn
fyrir framan húsið! Loks óskaði
hann sér að hann yrði ómót-
stæðilegur í augum kvenna,… og þá
breyttist hann í … súkkulaði.
Þennan brandara má líka lesa á
síðunni:
Ljóskan hringdi í kærastann í
miklu uppnámi. Þú verður að koma
strax, ég var að kaupa púsl og ég
kem ekki einu einasta púsli á sinn
stað!“ „Nú“ svaraði kærastinn,
„Hvaða mynd er á púslinu?“ „Þetta
er bara mynd af venjulegum hana,“
svaraði ljóskan. Þegar kærastinn
mætti á svæðið sagði hann: „Eigum
við ekki bara að fá okkur smákaffi
og svo getum við sett kornfleksið
aftur í pakkann?“
Vefsíðan www.brandarar.is
Reuters
Hlátur og gleði Góður brandari getur fengið marga til að skella uppúr.
Hláturinn lengir lífið
Það er fátt skemmtilegra en að fá
litla aðstoðarmenn í eldhúsið, hvort
sem þeir gera meira gagn eða ógagn.
Börnum finnst mjög gaman að fá að
taka þátt í eldamennskunni og því er
um að gera að gera eitthvað barn-
vænt með þeim. Nýlega kom út bókin
Þú getur eldað! sem er uppskriftabók
fyrir börn og byrjendur. Í bókinni eru
einfaldar uppskriftir að allskonar
réttum og er öllum aðferðum lýst á
skýran og einfaldan hátt í myndum
og máli. Höfundur bókarinnar er
Annabel Karmel sem hefur skrifað
mikið um næringu og mataræði
barna. Nanna Rögnvaldsdóttir þýddi
bókina.
Endilega …
… eldið með
börnunum
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Jólauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 6. desember,
kl. 18 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
KarlKvaran
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd í dag mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Boðið verður upp á léttar veitingar: Jólablanda frá Vífilfelli · Konfekt frá Góu-Lindu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bræðralag Guinness bræður
hittast á hverjum föstudegi
og fá sér einn úr krana.
Fyrsti sopinn Þeir
sömu og fengu
fyrsta Guinnesinn
fyrir fimmtán árum
fengu hann aftur
núna, í sömu röð.