Morgunblaðið - 06.12.2010, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
FRÉTTASKÝRING
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar, sem
kynnt var á flokksstjórnarfundi flokksins á laug-
ardag, eru engir einstaklingar nefndir á nafn. Ás-
geir Beinteinsson, einn höfunda skýrslunnar, segir í
samtali við Morgunblaðið að sú leið hafi verið
ákveðin snemma í ferlinu. „Við lítum svo á að flokk-
urinn beri ábyrgð á því sem gert er og ekki gert og
beri ábyrgð á einstaklingum innan hans. Verkefni
okkar var að benda á galla í kerfinu, sem einstak-
lingar starfa innan. Það er svo á ábyrgð stofnana
innan flokksins að draga menn til ábyrgðar ef
ástæða er talin til. Það gat ekki orðið verkefni okkar
sem unnum skýrsluna,“ segir Ásgeir.
Í skýrslunni eru tiltekin nokkur atriði, sem
nefndarmönnum þykir rétt að Samfylkingin taki til
skoðunar, en engin sérstök dæmi eru nefnd um mis-
tök eða afglöp hjá flokknum eða einstökum flokks-
mönnum, ef frá er skilið stjórnarsamstarfið við
Sjálfstæðisflokkinn.
Hvað varðar ábyrgð einstakra stjórnmálamanna
segir Ásgeir að fólk velti henni eðlilega fyrir sér.
Nefndin beindi hinsvegar athygli sinni að flokknum
sem heild og sameiginlegri ábyrgð hans. Þess
vegna varða tillögur hennar starfshætti og reglur
flokksins en ekki einstaka flokksmenn.
Þegar Alþingi greiddi atkvæði um hvort draga
ætti Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra,
fyrir landsdóm greiddu níu þingmenn Samfylking-
ar atkvæði með ákæru á Geir. Fjórir þeirra greiddu
svo atkvæði gegn ákærum á hendur Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur.
Styrkjum fylgja hagsmunatengsl
Í skýrslunni er fjallað um fjárstyrki til stjórn-
málamanna frá fyrirtækjum og segir Ásgeir að
nefndin hafi verið sammála um að slíkum styrkjum
fylgi óhjákvæmilega hagsmunatengsl, sem geti orð-
ið óeðlileg. Hvað varðar einstaka styrki frá fyrir-
tækjum eins og Baugi Group segir hann að ekki hafi
verið fjallað um einstök tilvik í þessu efni, frekar en
hvað varðar ábyrgð einstaklinga, af sömu ástæðu.
Verkefni nefndarinnar hafi verið að skoða kerfið
innan flokksins og utan, en ekki einstök tilvik. Það
sé flokksforystunnar að taka á einstökum tilvikum
ef þau koma upp.
Er þetta ekki í fyrsta sinn sem styrkir til fram-
bjóðenda í prófkjörum Samfylkingarinnar eru
gagnrýndir, en fyrr í haust flutti Mörður Árnason
ræðu, þar sem hann sagði að koma þyrfti fram
hvaðan „tugmilljónir“ komu, sem Össur Skarphéð-
insson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vörðu í leið-
togabaráttunni árið 2005.
Í skýrslunni segir að Samfylkingin hafi gert al-
varleg mistök með því að leyfa málum að þróast í
það horf að kostnaðarsöm kosningabarátta sé for-
senda þess að ná sæti ofarlega á framboðslista, seg-
ir í skýrslu umbótanefndar flokksins. Setja þurfi
þröngar reglur sem koma í veg fyrir að flokkurinn
vinni gegn sjálfum sér. Í skýrslunni segir að styrkir
fyrirtækja til flokksins, eða einstaklinga innan
hans, dragi úr trúverðugleika flokksins vegna
þeirra hagsmunatengsla „sem eru óhjákvæmilegur
fylgifiskur slíkra styrkja“.
„Af tillögunum tel ég líklega mikilvægast að fara
fyrst í að styrkja tengsl milli flokksforystunnar og
grasrótarinnar. Eins og við bendum á í skýrslunni
er sú gagnrýni áberandi meðal almennra flokks-
manna að forystan sé ekki í tengslum við þá. Starf
aðildarfélaga hafi lítil áhrif á stefnumörkun og for-
ystan fylgi samþykktum stofnana flokksins ekki
eftir. Þetta þarf að laga og ef það á að gerast þurfa
bæði almennir flokksmenn og forystufólk að taka
höndum saman um það.“
Ekki náðist í neitt af forystufólki Samfylking-
arinnar við vinnslu þessarar fréttar.
Ekki tekið á einstaklingum
Umbótanefnd Samfylkingar leggur til að settar verði harðari reglur um fjár-
styrki Ýmislegt sagt aðfinnsluvert í flokknum en engir einstaklingar nefndir
Morgunblaðið/Eggert
Mistök Samfylkingin bað íslensku þjóðina afsökunar á mistökum í aðdraganda hrunsins, m.a. á því að
hafa ekki tekið nægilegt mark á viðvörunarorðum um veika stöðu bankakerfisins.
Afsökunarbeiðni
» Á fundinum á laugardag var samþykkt
ályktun þar sem íslenska þjóðin er beðin af-
sökunar á mistökum flokksins í aðdraganda
hrunsins.
» Meðal þess sem flokkurinn telur hafa
misfarist er að hafa ekki tekið nægilegt
mark á viðvörunarorðum um veika stöðu
bankakerfisins.
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Tilgangurinn með yfirlýsingum utan-
ríkisráðuneytisins Íslands sumarið
2007 um að rannsaka hvort flugvélar
með föngum bandarísku leyniþjón-
ustunnar, CIA, hefðu millilent á Ís-
landi var fyrst og fremst að slá á
gagnrýni á íslensk stjórnvöld og þá
sérstaklega að afvopna Steingrím J.
Sigfússon, formann Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs.
Þetta kemur samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins fram í einu af
leyniskjölum bandaríska sendiráðs-
ins, sem lekið var til uppljóstrunar-
vefsins WikiLeaks.
„Æfing í gagnsæi“
Í skjalinu er vitnað til samtals við
tvo starfsmenn utanríkisráðuneytis-
ins. Segir að þeir hafi reynt að draga
úr mikilvægi rannsóknarinnar og
lýstu þeir henni sem „„æfingu í
gagnsæi“ og tilraun til að taka málið
frá stjórnarandstöðunni“.
Annar íslensku embættismann-
anna sagði að yfirlýsingin „hefði að
mestu verið til innanlandsneyslu og
tilraun til að „vængstífa“ Sigfusson,
formann VG, áður en hann gæti bak-
að ráðherranum frekari vandræði“.
Í skjali bandaríska sendiráðsins,
sem er merkt „trúnaður“ og dagsett
13. júlí 2007 er einnig rakið samtal
sendiráðsstarfsmanns við þriðja emb-
ættismann utanríkisráðuneytisins,
sem vildi beina athygli Bandaríkja-
manna sérstaklega að orðalagi í
fréttatilkynningu um væntanlega
rannsókn. Þar væri talað um „skoð-
un“ en ekki „rannsókn“ og það undir-
strikaði að utanríkisráðuneytið hefði
hvorki áætlanir um né vald til að láta
fram fara formlega rannsókn í laga-
legum skilningi.
Því var á sínum tíma haldið fram að
Atlantshafsbandalagið hefði í kjölfar
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11.
september 2001 heimilað fangaflug
og starfsemi leynifangelsa, en banda-
lagið neitaði að svo væri.
Sumarið 2007 skilaði sérstakur
skýrslugjafi Evrópuráðsins, Dick
Marty, annarri skýrslu sinni um
leynifangelsi og ólöglegt fangaflug
bandarísku leyniþjónustunnar, CIA,
um lofthelgi Evrópuráðsríkja. Þar
komu fram fullyrðingar um leynisam-
komulag NATO.
Flugvélar með flugnúmer, sem
grunur lék á að hefðu verið notaðar til
fangaflugs, lentu á Íslandi. Í lok júní
var tilkynnt að með hliðsjón af
skýrslu Martys ætti að fara fram
„nánari skoðun“ á lendingum ákveð-
inna flugvéla í Reykjavík og Keflavík.
Haustið 2007 sagði Ingibjörg Sólrún
að síðast hefði verið vitað til þess að
slík vél hefði lent í Reykjavík þá í júlí.
Engin niðurstaða
Við sama tækifæri sagði Ingibjörg
Sólrún: „Það er staðfastur vilji okkar
að standa við skuldbindingar á sviði
mannréttinda. Það er mjög alvarlegt
ef flutningur hefur verið á föngum til
pyntinga um íslensk lofthelgi því það
samræmist ekki alþjóðalögum og
skuldbindingum Íslands. Pyntingar
eru mjög alvarlegur glæpur og eru
skilyrðislaust bannaðar samkvæmt
alþjóðalögum.“
Niðurstaða starfshópsins var sú að
þessar vélar hefðu farið um íslenska
lofthelgi og lent á Íslandi, en engin
leið væri að sannreyna hvort um ólög-
lega fangaflutninga hefði verið að
ræða í þessum tilfellum.
Vildu „vængstýfa“ Steingrím
Fullvissuðu Bandaríkjamenn um að yfirlýsing um athugun á fangaflugi væri fyrir innanlandsneyslu
og ætlað að taka málið frá stjórnarandstöðunni Talað um „skoðun“ en ekki „rannsókn“ á málinu
Í Reykjavík Flugvél sem nefnd var í
tengslum við fangaflugið.
„Við höfum ekkert annað í höndunum, sem bendir til að
Kínverjar hafi sýnt okkur áhuga en þessi WikiLeaks skjöl,
en þau eru okkur nægileg ástæða til að fara þess á leit
við viðeigandi yfirvöld að þau kanni hvort ástæða er til
að rannska þetta betur,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar. „Að því sögðu erum við alls
ekki að saka kínversk yfirvöld um að njósna um okkur.“
Í hættumati Bandaríkjamanna frá því í desember fyrir
ári er sérstaklega minnst á þrjár þjóðir, Kínverja, Rússa
og Frakka. Í skýrslu vinnuhóps sendiráðsins um gagn-
njósnir Kínverjar og Rússar einkunnina „alvarleg ógn“ (á ensku CRITICAL
threat) og Frakkar „mikil ógn“ (á ensku HIGH threat). Ekki er útskýrt í
hverju hættan af Frökkum sé fólgin.
Í skýrslunni segir samkvæmt heimildum Morgunblaðsins að grunur leiki
á að Kínverjar stundi iðnnjósnir á Íslandi og noti til þess bæði njósnara og
tæknibúnað.
Í öðru skjali frá því í febrúar 2009 segir að talið sé að Kínverjar stundi
„iðnnjósnir á sviði erfðagreiningar og læknisrannsókna á Íslandi“.
Skoðað verði hvort Kínverjar
stundi njósnir á Íslandi
BANDARÍKJAMENN MÁTU MESTA HÆTTU AF KÍNVERJUM OG
RÚSSUM, NÆSTMESTA AF FRÖKKUM
Kári
Stefánsson
Útlit er fyrir að
einhverjar teg-
undir af jólabjór
muni fljótlega
seljast upp, að
sögn Sigrúnar
Óskar Sigurð-
ardóttur, aðstoð-
arforstjóra
ÁTVR. Hún hafði
ekki nákvæmar tölur á hraðbergi
þegar Morgunblaðið ræddi við
hana í gær, en sagði að sumar teg-
undir væru við það að klárast.
„Við pöntum inn eins mikið af
jólabjór og við getum, en fram-
leiðslan er ekki í öllum tilvikum
nægilega mikil,“ segir hún. Í fyrra
seldist jólabjór fyrr en reiknað var
með.
Fyrstu þrjá daga desember-
mánaðar í ár var sala á jólabjór um
130 prósentum meiri en á sama
tímabili í fyrra. Þá seldust 32.776
flöskur og dósir af jólabjór, en á
fyrstu þremur dögum desember í
ár seldust 74.853 flöskur og dósir af
jólabjór. bjarni@mbl.is
Hætta á
að bjórinn
seljist upp
Mikil söluaukning
á jólabjór hjá ÁTVR
„Dreifing á fiski er í lamasessi,
einkum á sjófrystum flökum sem
eiga að fara t.d. á Fish’n Chips-
staðina, en þetta er misjafnt eftir
svæðum,“ segir Gústaf Baldvins-
son, framkvæmdastjóri IceFresh
Seafood í England.
„Það festist fiskur frá okkur á
Gatwick en við höfum annars slopp-
ið tiltölulega vel. Þetta kemur þó
mest niður á eftirspurninni. Á þess-
um árstíma er venjulega góð sala á
Fish’n Chips-stöðunum, þegar fólk
er að gera jólainnkaupin, en nú
kemst fólk lítið um og er fast heima
hjá sér svo salan á fiskinum er ekki
eins góð og vant er í desember.“
Veður truflar
sölu á fiski
Morgunblaðið/Sverrir