Morgunblaðið - 06.12.2010, Side 14
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Langmesti hlutinn, eða a.m.k.
helmingurinn af fraktstarfsemi
flugfélagsins er til Grænlands sem
er mjög ört vaxandi markaður,“
segir Vigfús Vigfússon, deildarstjóri
fraktdeildar Flugfélags Íslands.
Auk Grænlandsflugsins sinnir fé-
lagið flugfrakt til Færeyja í sam-
starfi við Atlantic Airways og að
sjálfsögðu sendingum á áfangastaði
innanlands. „Flóran af því sem við
flytjum er allt frá brauðum, sam-
lokum og dagblöðum, yfir í blóm,
grænmeti og varahluti. Í raun er
þetta allt milli himins og jarðar.“
Stóla á flugið
Blaðamaður spyr Vigfús hvort
Grænlendingarnir fái ekki allt sitt
frá Danmörku. „Auðvitað fá þeir
mikið af sínum vörum eftir flutn-
ingaleiðum þaðan, en stóran hluta
verður að flytja flugleiðis. Við flytj-
um vörur á áfangastaði eins og Ang-
massalik, Kulusuk og Scoresbysund
þar sem siglingaleiðir byrja oft að
lokast strax í nóvember, og haldast
lokaðar fram í júní,“ segir hann en
að auki er flogið til Nuuk, Iluliisat
og Narsarsuaq.
Grænlenski markaðurinn verður
æ mikilvægari í öllum rekstri flug-
félagsins og til viðbótar við tölu-
verða eftirspurn eftir fraktsending-
um er t.d. nú svo komið að
Flugfélag Íslands flýgur á fleiri
áfangastaði á Grænlandi en á Ís-
landi, þó flugtíðnin sé vitaskuld mun
meiri innanlands. „Af þessum fimm
áfangastöðum okkar á Grænlandi
eru fjórir í heilsársflugi,“ bætir Vig-
fús við.
Vaxandi fraktflutningar til
frænda okkar í vestri endurspegla
m.a. það aukna fjör sem virðist vera
að færast í grænlenskt atvinnulíf og
býst Vigfús við að verkefni á sviðum
námavinnslu og olíuleitar muni kalla
á enn frekari flutninga á frakt og
farþegum.
Héldu litla kaupstefnu
Til að undirbúa jarðveginn efndi
flugfélagið, í samstarfi við Íslands-
stofu, til kaupstefnu sem haldin var
í Nuuk fyrir skömmu. „Það er alveg
ljóst að tækifærin eru til staðar.
Samtals fóru 21 fyrirtæki og 40
manns með okkur út til að kynna
sína vöru og þjónustu. Þetta voru
arkitektar og verkfræðistofur,
tölvufyrirtæki, vélatæknifyrirtæki,
seljendur sjávarútvegsvöru og mat-
vælaframleiðendur,“ segir Vigfús og
bætir við að íslensk
framleiðslufyrirtæki njóti sannar-
lega þegar góðs af fraktflutningun-
um til Grænlands enda mikið af ís-
lenskri vöru í sendingunum.
„En það er eiginlega sláandi hvað
við erum enn ókunnug þessum ná-
grönnum okkar og úr því verður að
bæta. Þankagangurinn hjá þeim er
svolítið sérstakur og ólíkur okkar,
en það er gaman að kynnast Græn-
lendingum og þeir eru góðir heim að
sækja.“
Morgunblaðið/Golli
Björg í bú „Við flytjum vörur á áfangastaði eins og Angmassalik, Kulusuk og Scoresbysund þar sem siglingaleiðir
byrja oft að lokast strax í nóvember,“ segir Vigfús um þörf Grænlandsmarkaðar fyrir vörusendingar frá Íslandi.
Grænland orðið stór
partur af veltunni
Helmingur flugfraktar hjá Flugfélagi Íslands er til Græn-
lands Flogið á fleiri áfangastaði á Grænlandi en á Íslandi
Vaxandi umsvif á Grænlandi koma sér ekki síst vel fyrir Flugfélagið í ljósi
áhrifa kreppunnar. Vigús nefnir t.d. að öll þjónusta við Grænland sé verð-
lögð í dönskum krónum svo sveiflur á verði til neytenda hafa ekki verið
þær sömu og innanlands þar sem gengið hefur veikst og rekstrarkostn-
aður snarhækkað um leið. „Innanlandsmarkaðurinn hefur verið í miklum
doða, a.m.k. hvað snýr að fragtflugi. Framkvæmdir eins og á Kára-
hnjúkum og í Reyðarfirði kölluðu á mikla flutninga bæði á fólki og vörum
en nú er ekkert að gerast,“ segir hann.
Farþegaflugið innanlands segir Vigfús að standi ágætlega, þó vissu-
lega hafi þurft að straumlínulaga reksturinn. Flug segir hann að sé í dag
mjög góður kostur. „Í einu dagblaðinu var það reiknað út um daginn að
ódýrara er fyrir einstakling að fljúga en aka innanlands. Flugið er nefni-
lega alls ekki svo óhagstætt.“
Doði á innanlandsmarkaði
UPPGANGUR Á GRÆNLANDI
Liðin tíð Stórframkvæmdir kölluðu á tíðari og meiri flutninga á fólki og vörum.
Flugfélag Íslands segir Vigfús vera
að styrkja sig í sessi á hraðflutn-
ingamarkaði. Hann segir að innan-
lands standi félagið þegar vel að vígi
og bjóði jafnvel í sumum tilvikum
betra verð en landflutningafyr-
irtækin. „Það er útbreiddur misskiln-
ingur að flugfraktin sé dýr. Svo er
alls ekki og verðið kemur oftast
skemmtilega á óvart,“ segir hann en
á öllum áfangastöðum hefur félagið
samstarfsaðila sem geta tryggt að
varan sé sótt til viðskiptavinarins og
afhent upp að dyrum hjá viðtakanda.
Á þessu ári hefur flugfélagið verið
að styrkja sig enn betur í sessi á
hraðflutningamarkaði með sam-
starfi við Jetpak. „Um er að ræða
fyrirtæki sem er skandinavískt að
uppruna og leggur áherslu á Norð-
urlandamarkaðinn og veitir svokall-
aða „door-to-door“-þjónustu,“ segir
hann. „Einn stærsti kosturinn við
samstarfið er að Jetpak hefur byggt
upp mjög aðgengilegt og skilvirkt
bókunarkerfi sem virkar ekki ósvip-
að og netsölukerfi flugleitarvélanna
sem Íslendingar þekkja. Við-
skiptavinurinn leitar að hagkvæm-
ustu flutningaleiðinni og bókar
sendinguna rétt eins og hann væri
að kaupa sér flugmiða. Hver pakki er
ein sending og ekki um það að ræða
að flutningsaðilinn sé að safna í
safnsendingar sem svo þarf að
senda á stað B, stað C og eftir öðr-
um krókaleiðum á áfangastað. Hver
sending er rekjanleg og hagræðið
mikið fyrir bæði seljanda og kaup-
anda.“
Orðin hluti af alþjóðlegu
hraðsendinganeti
Munið að
slökkva á
kertunum
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Eftir að kertalogi
hefur verið slökktur
getur ennþá leynst
glóð í kveiknum.Góð
regla er aðvæta kerta-
kveikinn með vatni
þegar slökkt er á kerti
til að ekki leynist glóð.