Morgunblaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010 FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þrátt fyrir staðfestan grun um að írönsk stjórnvöld hafi stutt hryðju- verkamenn til árása í grannríkinu Írak frá innrás bandamanna í mars 2003 lítur stjórnin í Bagdad svo á að Sádi-Arabía sé stærsta hindrunin í veginum fyrir uppbyggingu Íraks. Þetta kemur fram í skeyti Christ- opher Hill, sendiherra Bandaríkjanna í Bagdad, til Bandaríkjastjórnar í september í fyrra en það hefur nú ver- ið birt á vef WikiLeaks. Vilja veg sjíta sem minnstan Hill bendir á að Sádi-Arabar, sem langflestir eru súnnítar, óttist að sú staðreynd að meirihluti Íraka séu sjít- ar – þ.e. af hinni megingrein ísl- amstrúar – muni „óhjákvæmilega auka svæðisbundin áhrif Írana“. Hann vísar svo til þess mats íraskra tengiliða að markmið Sádi-Arabíu, og flestra arabaríkja þar sem súnnítar eru í meirihluta, sé að „þynna út yf- irráð sjíta og stuðla að myndun veikr- ar og sundraðrar ríkisstjórnar í Írak“. Fjallað er um málið á vef Guardian með þeim orðum að skeytið gangi þvert á þá viðteknu skoðun að Íranar séu stærsta hindrunin í veg uppbygg- ingar Íraks. Þá renni það stoðum undir fullyrðingar um að Sádi-Arabía sé hinn „sanni óvinur“ vesturlanda í hryðjuverkastríðinu svonefnda. Þá kemur fram í skeytum Wiki- Leaks að hátt settur fulltrúi í tyrk- neska utanríkisráðuneytinu hafi full- yrt að sádi-arabísk stjórnvöld hafi ausið fé í stjórnmálaflokka í Írak til að vinna gegn auknum áhrifum sjíta. Á sama tíma reyni Íranar að gera Írak að óstöðugu ríki sem sé háð þeim, þvert á hagsmuni Bandaríkjanna. Fjármagna hryðjuverkamenn Sádi-Arabía kemur einnig við sögu í umfjöllun New York Times um til- raunir Bandaríkjastjórnar til að skrúfa fyrir fjárflæði til vígahópa og hryðjuverkasamtaka. Vísar blaðið til skeytis sem Hillary Clinton, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sendi í desember í fyrra þar sem hún full- yrðir að fjárhagslegir bakhjarlar í Sádi-Arabíu séu mikilvægasta upp- spretta fjármagns fyrir hryðjuverka- samtök úr röðum súnníta. Þar af sé milljónum dala safnað árlega í tengslum við Hajj og Ramadan, tvær af helstu trúarhátíðum múslíma. Sádi-Arabar kunna lítt að meta uppljóstranir WikiLeaks og segir Turki bin Faisal, prins og fv. yfirmað- ur leyniþjónustunnar í Sádi-Arabíu, í samtali við þýska vikuritið Der Spiegel, sem birt er í heild sinni í dag, að lek- inn hafi skaðað sam- skiptin við Bandarík- in. Vegna lekans muni Sádi-Arabar héðan í frá veigra sér við að tala frjálslega þegar fulltrú- ar Bandaríkjastjórnar eru annars vegar. Traust- ið hafi beðið hnekki. Sádi-Arabía stærsta hindrunin  Írösk stjórnvöld telja olíuveldið meiri ógn en Íransstjórn við endurreisn Íraks Reuters Höfuðborg Konungsturninn í Riyadh í Sádi-Arabíu gnæfir yfir umhverfið. Katíu Zatulíveter, 25 ára gamalli aðstoðarkonu breska þingmannsins Mike Hancock, þingmanns Frjáls- lyndra demókrata, verður vísað úr Bretlandi vegna gruns um að hún hafi miðlað upplýsingum til rúss- nesku leyniþjónustunnar. Málið er litið alvarlegum augum í breska stjórnkerfinu, enda á Han- cock sæti í varnarmálanefnd breska þingsins og hefur því að- gang að mikilvægum upplýsingum. Mikið hefur verið fjallað um mál- ið í breskum fjölmiðlum og kom fram á vef Daily Telegraph að Han- cock hefði nýverið lagt fram fyr- irspurn um kjarnorkumál og fram- tíðarsýn breskra stjórnvalda á notkun kjarnavopna, þar sem fram- tíð Trident-kafbáta kom við sögu. Gagnrýndi NATO Þá er horft til þess að Zatulíveter hafi einnig starfað fyrir hugveitu sem sérhæfir sig í varnarmálum og skrifað gagnrýnar greinar um framgöngu Atlantshafsbandalags- ins, NATO. Um leið hafi hún varið stefnu Rússa í varnarmálum, svo sem í átökunum í Georgíu 2008. Hancock vísar því á bug að Zatu- líveter sé njósnari sem sigli undir fölsku flaggi og segir málið í hönd- um lögfræðinga sem muni freista þess að fá úrskurðinum hnekkt. Málið er honum afar erfitt en Zatulíveter var í starfsþjálfun hjá honum áður en hún varð aðstoðar- maður hans fyrir tveimur árum. Grunuð um njósnir fyrir Rússa  Hægri hönd þing- manns vísað úr landi Mike Hancock Katía Zatulíveter Hún rauf vetrarkyrrðina þessi gamla lest þar sem hún fór á milli bæjanna Pickering og Gros- mon á Norður-Englandi um helgina. Pickering skipar merkan sess í lestarsögu Bretlands en á milli bæjarins og nágrannabæj- arins Whitby voru lagðir lestarteinar, í því skyni að styrkja atvinnulíf á svæðinu. Kom sjálfur George Stephenson, einn af frumkvöðlum gufu- aflsins, að framkvæmdinni. Áhugamenn um lestarsamgöngur í Bretlandi hafa haldið þessa arfleið í heiðri með fjárhags- legum stuðningi og sjálfboðavinnu. Ferðamenn sækja í lestarferðirnar og fá þann- ig tilfinningu fyrir því hvernig gufuaflið breytti 19. öldinni og tengdi saman bæi og borgir. Reuters Gufubólstrar í breskri sveit Yfirmaður írönsku kjarnorku- áætlunarinnar, Ali Akbar Sa- lehi, skýrði frá því í gær að Ír- anar hefðu í fyrsta sinn unnið úranduft úr úrani sem fengið var innan landamæranna. Reynist það rétt hafa Íranar náð mikilvægum áfanga í gerð kjarnorkueldsneytis úr inn- lendu úrani sem aftur kann að nýtast við gerð kjarnavopna. Tímasetningin er engin til- viljun því að í dag hefjast viðræður í Genf á milli Írana og fimm fastaríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, auk Þýskalands, um sáttaleið vegna kjarnorkuáætlunar Íransstjórnar. Salehi var kokhraustur og sagði áfangann þýða að Íranar hefðu sterkari samningsstöðu en áður, enda hefðu vesturveldin reynt að koma í veg fyrir innflutning á úrandufti til landsins. Leggjast gegn hugmyndum um úranbanka Í aðdraganda viðræðnanna í Genf lögðu fulltrúar Bandaríkjastjórnar fram þá hugmynd að komið yrði á fót einskonar banka fyrir auðgað úran sem þjóðir heims gætu nýtt til orkuvinnslu úr kjarnorku, án þess þó að ráða yfir nauðsyn- legri tækni til að augða úran, að því er fram kom á vef Los Angeles Times. Var þar haft eftir írönskum kjarneðlisfræðingi, sem óskaði nafn- leyndar, að Íransstjórn leitaði að fleiri úrannám- um innan landamæranna. Úranhringnum væri nú lokað. Íransstjórn færist skrefi nær því að geta smíðað kjarnavopn  Geta sótt úranduft í úran úr innlendum námum  Viðræður að hefjast í Genf Mahmoud Ahmadinejad Eldfimt » Fram kemur á vef öryggisráðs SÞ að Yu- kiya Amano, formaður Alþjóðakjarnorku- stofnunarinnar (IAEA), hafi ítrekað nú fyrir helgi að Írönum hefði ekki tekist að færa sönnur á að kjarnorkuáætlun þeirra þjónaði friðsamlegum tilgangi. » Þá hefðu Íranar ekki sýnt samstarfsvilja vegna eftirlits með áætluninni. » Kjarnorkuáætlunin hafi verið áhyggjuefni frá árinu 2003 þegar í ljós kom að unnið hafi verið að henni með leynd í tvo áratugi. Kína er orðið annað mesta efna- hagsveldi heims, á undan Japan og Þýskalandi, og er því eðlilega horft til þess hver er líklegur til að taka við af Hu Jintao forseta. Sá sem líklegastur þykir til að fara fyrir þessu fjölmennasta ríki jarðar heitir Xi Jinping og er – ef marka má upplýsingar á vef Wiki- Leaks – langt frá því að vera mað- ur mikilla persónutöfra. Þannig kemur fram á vef Der Spiegel að Xi sé maður aga og formfestu. Flest bendi til að hann sé lítt gefinn fyrir sopann og ást- arævintýri framhjá hjónabandi, líkt og margir hátt settir fulltrúar kommúnistaflokksins. Þá finnist konum hann leiðin- legur og óspennandi. Der Spiegel segir fátt benda til að Xi verði umbótamaður eins og Mikhaíl Gorbatsjov. Xi sé ekki mikill lýðræðissinni og líti svo á að völdin séu best komin í höndum fámennrar elítu í kínverska kommún- istaflokknum. Þykir lítill kvennaljómi NÆSTI FORSETI KÍNA? Xi Jinping Hillary Clinton Abdullah konungur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.