Morgunblaðið - 06.12.2010, Side 17

Morgunblaðið - 06.12.2010, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010 Jól Jóladagskrá Þjóðminjasafnsins hófst í gær og héldu Grýla, Leppalúði og jólakötturinn börnunum við efnið, en jólasveinarnir koma daglega í safnið frá og með 12. desember. Eggert Maður að nafni Matthew Elderfield yf- irgaf þægilegt starfi og hlýjuna á Bermúda til að taka að sér írska fjármálaeftirlitið síð- astliðið haust. Síðan þá hefur hann séð eitt og annað. Gífurlegur efna- hagsvandi Írlands og annarra Evrópuríkja hefur ekki farið fram hjá neinum þótt umfjöllun um málið hafi ekki verið jafnmikil á Íslandi og tilefni er til. Í viðtali við Wall Street Journal lýsir Elderfield því hvernig vandi Írlands kemur honum fyrir sjónir. Hann bendir á að hið litla land Írland hafi breyst ótrúlega hratt og óvænt í fjármálamiðstöð þar sem bankarnir uxu með ógn- arhraða en að það hafi svo reynst blekking. Hann telur að á Írlandi kunni slæmir stjórnarhættir fyr- irtækja að hafa ágerst vegna þess hversu viðskiptaheimurinn var lítill og samanþjappaður. Frelsið Írland nýtti sér rækilega það frelsi sem Evrópureglur veittu í fjármálum og alþjóðlegum banka- rekstri rétt eins og fleiri. Þegar írska fasteignabólan sprakk lentu írsku bankarnir í verulegum vand- ræðum en þá námu skuldbindingar þeirra margfaldri landsframleiðslu. Hafði þó enginn þeirra verið einka- væddur, ekki frekar en Glitnir, Kaupþing eða Straumur. Ekki að- eins hafði erlent fjármagn streymt til landsins heldur lögðu írsku bank- arnir líka í útrás. Allt hvíldi þetta nú á írska ríkinu að und- anskildum einum af stærstu bönkum lands- ins, National Irish Bank, en sá hafði sjálf- ur verið gleyptur af áköfum erlendum út- rásarbanka árið 2004 og breytt í útibú. Kröf- ur á hann hvíldu því á þeim sem höfðu yf- irtekið bankann. Það voru Íslandsvinirnir í Danske Bank (þessir sem sáu allt fyrir). Forstjóri Danske Bank sagði nýverið að ef danska ríkið hefði ekki dælt peningum inn í danska banka og aðrar þarlendar fjármálastofnanir, haustið 2008, hefðu þær hrunið. Líka Danske Bank. Hvað er smáríki? Írar hugleiða nú hvers vegna hlutirnir hafi farið svona illilega úr- skeiðis. Þeir velta því fyrir sér hvort það sé vegna þess að þjóðin sé svo lítil (ekki nema rúmlega 6 milljónir) og kunningjasamfélagið hafi leitt af sér samtryggingu og kross- eignatengsl o.s.frv. Svo er það póli- tíkin, jú og gjaldmiðillinn, evran. Aðrir benda þó á að vandamálin séu í eðli sínu þau sömu og í stærsta efnahagsveldi heims, Bandaríkj- unum. Stóru bankarnir þar í landi voru til dæmis talsvert meira skuld- settir (lántaka m.v. eignir) en ís- lensku og írsku bankarnir. Kross- eignatengslin voru slík í Bandaríkjunum að þegar einum stórum banka var leyft að fara í þrot þurfti stjarnfræðilega há neyðarlán frá ríkinu til þess að koma í veg fyr- ir að hann tæki alla hina með sér í fallinu. Tiltölulega lítill hópur fólks við nokkrar stuttar götur syðst á Manhattan-eyju myndar samfélag klíkuskapar og samtryggingar sem hefur áhrif á efnahagsstöðu stór- veldis. Staða Írlands Írar hafa þegar dælt gríðarháum upphæðum í að halda bönkunum sínum á floti, atvinnuleysi var þegar komið í 14% (hið mesta í 16 ár) áður en nýjasta krísan hófst, eignaverð hefur hrunið og laun hafa lækkað mikið. Nú hafa Írar látið undan þrýst- ingi um að taka risalán á háum vöxt- um frá ESB og AGS til að bjarga bönkunum aftur (stundum kallað efnahagsaðstoð í íslenskum fjöl- miðlum). Upphæðin nemur 85 millj- örðum evra (13.500 ma.kr.) á 5,8% vöxtum og getur farið í 120 millj- arða. Reyndar kom á daginn þegar gengið var frá samningum að Írar fá ekki nema 67 milljarða hjá ESB og AGS en eiga að taka 17 milljarða úr eigin lífeyrissjóðum. Á sama tíma eru þeir að hefja mikið og erfitt þjóðarátak til að reyna að bjarga fjárhag ríkisins. Átakið á að standa til 2014 og verður reynt að ná inn 5 milljörðum evra með skattahækk- unum og 10 milljörðum með gríðar umfangsmiklum niðurskurði sem felst m.a. í því að 25.000 opinberir starfsmenn missa vinnuna. Almenn- ingur mótmælir í örvæntingu og margir hyggjast flytja til Ástralíu og annarra landa í atvinnuleit. 15 milljarðar með blóðugum nið- urskurði og skattahækkunum á 4 árum á sama tíma og menn taka 85 milljarða að láni á 5,8% ársvöxtum. Það sér það hver maður að þetta gengur ekki upp. Ísland Íslensk stjórnvöld, í hruninu og aðdraganda þess, hafa sætt mikilli gagnrýni og að mörgu leyti rétti- lega. Hins vegar ber að lofa það sem vel var gert við erfiðar aðstæður og það var reyndar ekki lítið. Hér var hætt við að nota peninga almenn- ings til að viðhalda bönkunum þegar menn gerðu sér grein fyrir umfangi vandans. Stærsti bankinn, Kaup- þing, fékk neyðarlán gegn því að leggja fram traust veð en lífsvon hans hvarf með aðgerðum breskra stjórnvalda (þótt bankar sem sömu stjórnvöld björguðu á sama tíma hafi svo reynst enn veikari). Með neyðarlögunum sem þáver- andi ríkisstjórn og Framsókn af- greiddu með hraði var gripið til rót- tækra aðgerða til að verja íslenska ríkið í neyð. Þær aðgerðir kölluðu á heiftúðug viðbrögð kröfuhafa, en hvernig hefði farið án þeirra? Það má líka spyrja hvernig hefði farið ef Íslendingar hefðu verið látnir taka mörg hundruð, jafnvel þúsundir, milljarða króna að láni til að dæla inn í bankana eins og Írar nú? Loks má spyrja hvernig núverandi stjórn- völd, þau sem byggja tilveru sína á gagnrýni á fyrri valdhafa, hefðu brugðist við, við þessar aðstæður? Hefðu stjórnvöld sem bugta sig stöðugt og beygja fyrir kröfuhöfum og alþjóðastofnunum þorað að setja neyðarlögin? Með þeim voru eignir varðar en hins vegar gleymdist að huga að skuldunum. Raunar var til- tölulega einfalt að draga úr skuld- unum eftir að búið var að verja eign- irnar. Þannig var það verk að verja ís- lenskan almenning fyrir áhrifunum af falli einkabankanna ekki nema hálfklárað. Hvers vegna? Í stað þess að klára verkið og nýta hina miklu kosti sem Ísland hafði í stöðunni hafa valdhafarnir litið fyrst og fremst á hrunið sem tækifæri til að innleiða öfgakennda og órökrétta pólitíska stefnu. Á sama tíma hefur fólk sem hefur aldrei talið það nógu merkilegt að vera Íslendingur reynt að upphefja sjálft sig og afstöðu sína með því að túlka hrunið sem skipbrot íslensks samfélags og Íslendinga sem þjóðar. Það telur sig hafa fengið sönnun þess að Íslendingar séu spilltir aul- ar; allir nema það sjálft, sjálfskipuðu gáfumennirnir og utangarðsmenn- irnir. Þrot bankakerfisins hér og ann- ars staðar var afleiðing af sama falska fjármálakerfinu. Það varð ekki vegna íslensku stjórnarskrár- innar, umræðuhefðar þingsins, smæðar samfélagsins eða sölu rík- isfyrirtækja. En ef við viljum leysa efnahagsvandann verðum við að gera okkur grein fyrir raunveruleg- um orsökum hans. Hætti menn að líta á hrunið fyrst og fremst sem réttlætingu fyrir pólitískum öfgum blasir við að við Íslendingar höfum meiri og betri tækifæri en flestar aðrar þjóðir ef við þorum að nýta þau. »Hefðu stjórnvöld, sem bugta sig stöð- ugt og beygja fyrir kröfuhöfum og al- þjóðastofnunum, þorað að setja neyðarlögin? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er alþingismaður og for- maður Framsóknarflokksins. Þjóðin er ekki sek Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.