Morgunblaðið - 06.12.2010, Síða 22

Morgunblaðið - 06.12.2010, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010 ✝ Erlingur Þrá-inn Jóhannsson fæddist í Reykjavík 10.10. 1944. Hann lést á líknardeild Landspítalans 27.11. 2010. Foreldrar hans voru hjónin Hrefna Jensen, f. 4.6. 1915 á Eskifirði, d. 5.1. 1994, og Jóhann Kristján Líndal Sig- urðsson, f. 20.6. 1914 í Reykjavík, fórst með togar- anum Júlí 8.2. 1959. Systkini Er- lings eru Benedikt Ragnar, f. 27.3. 1943, Guðrún Margrét, f. 14.3. 1947, og Baldur Ingvi, f. 30.5. 1954. Hálfsystkini í föðurætt eru Sigríður, f. 15.3. 1940, d. 4.4. 2007, og Haraldur, f. 22.11. 1942. Erlingur ólst upp í Reykjavík, fyrst á Laugavegi og síðan á Bú- staðavegi. Hann lauk kenn- araprófi frá Kennaraskóla Ís- lands 1965. Kenndi við Melaskólann veturinn 1965-1966. Forstöðumaður Sundlaugar Vest- urbæjar frá 1965 til 1981. Fór þá að vinna á skrifstofu íþróttafull- trúa Reykjavíkur, síðar Íþrótta- og tómstundaráðs, sem íþrótta- fulltrúi þar til hann lét af störfum áramótin 2004-2005. Erlingur æfði sund og keppti sem unglingur fyrir KR og síðar í sundknattleik. Formaður sund- deildarinnar og þjálfari frá 1964 til 1978. Frá 1980 og þar til hann lést þjálfaði hann sund hjá ÍFR, þó með hléum. Landsliðsþjálfari var hann til 1992. Sat í stjórn Íþróttasambands fatlaðra frá 1996-2008. Einnig sat hann í ýms- um ráðum og nefndum. Erlingur hlaut fjölmargar viðurkenningar og þakklæti fyrir störf sín í þágu íþróttarinnar. Útför Erlings fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 6. desember 2010, kl. 13. Erlingur kvænt- ist hinn 23.10. 1965 Hrafnhildi Há- mundardóttur, f. 15.1. 1945. For- eldrar hennar voru Guðrún Hinriks- dóttir, f. 14.11. 1917 á Kálfs- stöðum, Hjaltadal, d. 13.10. 2009, og Hámundur Jón- asson, f. 18.10. 1904 á Sílalæk, Aðaldal, d. 3.5. 1980. Systk- ini hennar eru Kol- brún, f. 20.6. 1946, og Gunnar, f. 28.7. 1952. Börn þeirra: 1) Jó- hann, f. 8.7. 1962, kvæntur Lise Tarkiainen, f. 19.11. 1964, eru þau búsett í Danmörku. 2) Dreng- ur, fæddur 27.3. 1967, dáinn 29.3. 1967. Fyrir rúmum 50 árum kynntust Hrafnhildur, systir okkar, og Er- lingur, eða Elli eins og hann var ávallt kallaður. Hann var fljótlega kynntur fyrir fjölskyldunni og varð það upphafið að áratuga traustri vin- áttu sem aldrei féll blettur á. Fjöldi minninga um ánægjulegar samverustundir streymir fram. Oft hefur verið hlegið að skemmtilegum atvikum úr tjaldútilegum hér áður fyrr. Bílar þeirra Höbbu biluðu oftar en ekki og lá Elli þá ýmist undir þeim eða á haus ofan í skottinu að gera við. Einum þeirra varð t.d. að leggja í brekku, svo hægt væri að koma honum í gang í næsta skipti. Á ýmsu gekk. Margar minningar um ánægjuleg- ar samverustundir á Snæfellsnesinu. Fyrst á Kleifárvöllum og síðan í sumarbústaðnum þeirra, Sytru. Þar féll Ella aldrei verk úr hendi. Minn- ingar um okkur sitjandi á veröndinni í veðurblíðunni, Elli að bardúsa við húsið eða landið. Stinga upp holur til að setja niður græðlinga, kartöflur eða græða upp mela og bera svo skít á allt saman. Hann dyttaði að bú- staðnum, stækkaði hann, naut þess að fara í gönguferðir um landareign- ina og í veiðiferðir. Útivera og áhugi á gróðurrækt var þeirra beggja hjartans mál. Plönturnar, sem fyrst voru settar niður og enginn hafði trú á að yxu, eru í dag hávaxin tré, sem bera vott um þá þolinmæði, natni og umhyggju sem bæði áttu nóg af. Elli var einstaklega greiðvikinn. Ef eitthvað þurfti að gera við heima hjá okkur eða verið var að flytja í nýja íbúð hafði Elli alltaf nægan tíma til að leggja hönd á plóg, enda lék allt í höndunum á honum. Ef upp komu vandamál var það áskorun að sigrast á þeim. Að gefast upp var ekki til í hans orðabók. Það kom best í ljós í veikindunum sl. tvö ár. Alltaf var horft fram á við. Markmið sett og þegar þeim var náð voru ný sett. Slíkur var baráttuviljinn. Með þess- um orðum viljum við kveðja yndis- legan mág, svila og frábæran vin. Flytjum honum okkar bestu þakkir fyrir að hafa komið inn í líf okkar og gert okkur ríkari á lífsleiðinni. Við sendum fjölskyldunni, Höbbu, Jó- hanni og Lise, systkinum Ella og fjölskyldum þeirra, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Gunnar Örn Hámundarson, Kolbrún Hámundardóttir og Jón Guðnason. Það var fagur dagur í Hafnarfirði laugardaginn 27. nóvember síðast- liðinn, frost, sól og stilla. Fólk var byrjið að undirbúa komu jóla þegar Gunni frændi hringdi þeirra erinda, að láta mig vita að Erlingur Þráinn Jóhannsson væri allur, en hann var eiginmaður hennar Höbbu frænku og hálfgerður fóstri minn til nokk- urra ára, er þau hjón slógu yfir mig skjólshúsi, þegar ég var við nám í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Fyrstu alvöru kynni mín af Erlingi, Höbbu og Jóhanni syni þeirra voru trúlega 1975 þegar ég heimsótti höf- uðborgina og aðstoðaði þau að flytja af Bústaðaveginum upp í Engjasel. Seinna, eða árið 1979, flutti ég í kjall- arann hjá þeim og var strax tekið sem einum af fjölskyldunni. Þessi ár sem ég dvaldi hjá þeim voru skemmtileg og þroskandi á all- an hátt, enda voru þau hjónin vel að sér um flesta hluti og höfðu unun af að spjalla um lífið, tilveruna en þó sérstaklega náttúruna. Það var einstaklega gaman að fara með þeim vestur að Kleifárvöllum og Svarfhóli, en í þeim jörðum eiga þau hlut. Þar sást best hvað Erlingur var vel að sér í öllu því sem laut að nátt- úru landsins, þó ég sveitamaðurinn gæti aðeins leiðrétt hann um litar- hátt sauðkinda. Í landi Svarfshóls byggði Erlingur svo sumarhús sem nefnt var Sytra, kennt við lækjarsytru er sytrar þar skammt hjá. Þarna var Erlingur í essinu sínu því hann hafði mikið gaman af smíðum og sérstaklega að finna lausn á erfiðum viðfangsefnum því hann var óragur að fást við hina erfiðustu og flóknustu hluti. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Um fáa veit ég sem þessi staðhæf- ing úr Hávamálum passar betur við því að vissulega var Erlingur farsæll í einkalífi og starfi, en það sem í mín- um huga skarar fram úr var hans mikla brautryðjandastarf og elja í sundþjálfun fatlaðra allt til síðustu stundar, en þar náði Erlingur ein- stökum árangri með sitt sundfólk, sem vann meðal annars til ótal verð- launa á heimsmeistara- og ólympíu- leikum fatlaðra. Þó að gagnkvæmar heimsóknir hafi orðið stopulli eftir því sem árin liðu, þá var alltaf fyrir hendi djúp vinátta fjölskyldna okkar í milli. Elsku Habba, Jóhann og Líse, við Ragnheiður erum ævinlega þakklát fyrir þær góðu stundir sem við átt- um saman með ykkur Erlingi. Bjarni F. Sveinsson og fjölskylda. Mig langar með nokkrum orðum að minnast Ella frænda sem lést eft- ir hetjulega baráttu við illvígan sjúk- dóm. Margar góðar minningar á ég um Ella og tengjast þær flestar sveit- inni. Margar ferðir fór ég með for- eldrum mínum vestur á Snæfellsnes, minningar um veiði í læknum, ferðir á traktornum og göngutúrar upp að Valafossi eru mér minnisstæðir. Margoft var fjölskyldan saman í Klettahlíð og veiðiferðin sem ég fór með Ella upp á Búrfell er mér of- arlega í huga. Ég minnist Ella sem hörkudug- legs og kraftmikils manns sem alltaf var að og vildi allt fyrir alla gera. Öll við færum, elsku vinur, ástar þökk á kveðjustund. Gleði veitir grátnu hjarta. guðleg von um eftirfund. Drottinn Jesú, sólin sanna, sigrað hefur dauða og gröf. Að hafa átt þig ætíð verður, okkur dýrmæt lífsins gjöf. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Elli, hvíldu í friði. Þinn guðsonur, Ægir Hrafn. Elli frændi er dáinn, þó vitað væri að hverju stefndi þá er erfitt að sætta sig við að hetjulegri baráttu hans sé nú lokið. Hann sýndi það og sannaði í veikindum sínum að hann var mikill keppnismaður. Margar skemmtilegar minningar eigum við fjölskyldan um Ella í gegnum árin. Allar ferðirnar á Snæfellsnesið þar sem farið var á Kleifárvelli þar sem margt skemmtilegt var brallað og síðar í bústaðinn sem hann og Habba byggðu sér. Þar naut Elli sín vel, hann var handlaginn og þurfti ávallt að hafa eitthvað fyrir stafni og ber Sytra og umhverfi Sytru þess glöggt merki, yndislegur staður til að vera á. Elli var mjög barngóður og minn- ast börnin okkar hans fyrir það. Síð- astliðið sumar heimsóttum við fjöl- skyldan þau hjónin á Sytru. Ekki leið á löngu þar til traktorinn var ræstur og sáum við á eftir Ella og Sveini Óla fara hring um svæðið á traktornum og vakti það mikla lukku hjá okkar syni. Okkur eru minnis- stæð nokkur jólaboðin í fjölskyld- unni þar sem það gerðist að Elli mætti aðeins seinna en aðrir, og ástæðan var ætíð sú að hann ákvað að fá sér göngutúr frá Engjaselinu út á Lynghaga. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Elsku Habba, Jóhann og Lise, missir ykkar og okkar ættingjanna er mikill, góður maður er fallinn frá. Guðni, Anna Katrín og börn. Í dag kveðjum við fjölskyldan Ella, mann sem skilur eftir sig ótelj- andi góðar minningar, minningar um atorku, hjálpsemi og góð- mennsku. Það er erfitt að staðsetja fyrstu minningar mínar um hann Ella, en ég man þegar ég dvaldi hjá þeim á Bústaðaveginum og þau voru að byggja heimilið sitt í Engjaseli, Elli alltaf með hamarinn á lofti að vinna meðan við Jóhann þvældumst fyrir og minnisstæðir voru tímarnir við kvöldkaffið, eitthvað sem maður var ekki vanur nema hjá Höbbu og Ella. Seinna meir þegar maður varð eldri þá var alltaf hægt að leita til hans eftir hjálp, hvort sem það var til að kenna manni að flísaleggja, dúk- leggja eða til að fá nudd og teygjur fyrir auma vöðva. Ófáar helgarnar áttum við saman að Kleifarvöllum, lengst af í gamla bóndabýlinu þar sem kvöldin fóru flest öll í spilamennsku fyrir okkur börnin en á daginn þá fann hann Elli sér alltaf eitthvað að gera úti við og ekki þótti okkur krökkunum leiðin- legt að hjálpa til þegar Elli var að vinna á traktornum og sitja í kerr- unni þegar hann sótti efni. Nýjasta afrekið hans er sumarbústaðurinn þeirra Höbbu, honum þótti ekki leið- inlegt að hafa komið honum upp með góðra manna hjálp og þar gat hann líka endalaust fundið sér eitthvað að gera. Það er ekki langt síðan þeim hjónunum var boðið að koma í sum- arbústað foreldra minna til að slappa af og hvíla sig en þegar Elli kvaddi, eftir helgardvöl, var búið að hefla undan öllum hurðum og laga þær. Jón Gunnar á eftir að sakna þín, hann hefur oft talað um hversu gam- an er að koma til ykkar að Sytru og auðvitað besta minning hans var þegar þú bauðst honum að keyra traktorinn. Okkur finnst svo sárt að þurfa að kveðja mann sem maður hefur alltaf horft upp til og getað leitað til, mann sem okkur fannst hreystin uppmál- uð en við huggum okkur við það að nú ert þú kominn á stað þar sem við vitum að þér líður vel. Habba, Jóhann og Lise, megi guð vera með ykkur og styrkja. Guðmundur Arnar, Gerða, Arna Rán, Jón Gunnar. Mín fyrstu kynni af Erlingi voru þegar ég fór að æfa sund hjá KR í Vesturbæjarlauginni, þá 10 ára gömul. Hann sá um þjálfun yngstu krakkanna ásamt því að vera byrj- aður að þjálfa fatlaða, en stundum komu sundmenn frá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík (ÍFR) og syntu með okkur í Vesturbænum. Eftir að ég komst á unglingsár og Erlingur ekki lengur hluti af þjálf- arateymi KR lét hann sér samt annt um okkur og var umhugað að okkur liði vel. Eitt af fjölmörgu sem hann gerði og kemur upp í minningum mínum er þegar hann skipulagði æfingaferð til Hafnar í Hornafirði, þar sem við gistum fyrstu nóttina í tjöldum í Skaftafelli og um morguninn dró hann alla í langa gönguferð, fyrst upp að Svartfossi og svo inn í Bæj- arstaðaskóg. Þegar kom að fyrsta nýárssundmóti fatlaðra barna vant- aði tímaverði á mótið og þá hóaði Er- lingur í okkur í Sunddeild KR og enn í dag er þetta mót árlegur viðburður hjá mér, síðar sem dómari og þjálf- ari. Undir leiðsögn Erlings hóf ég minn þjálfaraferil í sundi, fyrst hjá ÍFR og síðar með landsliði Íþrótta- sambands fatlaðra (ÍF). Fyrst var það afleysing meðan ólympíumót fatlaðra fór fram í Seoul 1988 og ári síðar fékk hann mig til að leysa sig af hjá ÍFR. Ég samþykkti að prófa fram að áramótum, þau áramót urðu ansi mörg og er ég enn að. Sundþjálfunin leiddi til þess að ég hef lokið námi frá Íþróttakennara- skólanum á Laugarvatni. Það var ávallt hægt að leita ráða hjá Erlingi og margar samræður átti ég við hann á Fríkirkjuveginum þar sem hann starfaði hjá ÍTR. Ávallt fór maður út með fullt af nýjum hug- myndum og jákvætt viðhorf. Sumir hafa meiri áhrif á mann í lífinu en aðrir. Erlingi get ég þakkað að hafa áhugamál mitt að ævistarfi, án Er- lings hefði ég ekki t.a.m. ferðast um hálfan hnöttinn og séð ótal margar sundlaugar og kynnst öllu því frá- bæra fólki sem tengdist Erlingi og sundíþróttinni. Erlings verður sárt saknað á sundlaugarbakkanum. Ég votta fjöl- skyldu hans mína innilegustu samúð. Megi guð blessa minningu Er- lings. Kristín Guðmundsdóttir. Einn kosturinn við að eiga ein- stakt barn er að maður kynnist ein- stöku fólki eins og Erlingi Jóhanns- syni, fólki sem fórnar öllu til að starfa með og í þágu fatlaðra. Snáðinn minn byrjaði að æfa sund hjá ÍFR fimm ára gamall og þau níu ár sem síðan eru liðin var Erlingur stór þáttur í lífi hans. Eftir því sem árin liðu og æfingunum fjölgaði jókst tíminn sem þeir eyddu saman og ekki er hægt að hugsa sér betri áhrifavald á börnin manns en Er- ling. „Marinó! Teygðu úr handleggn- um.“ Með djúpri, hljómmikilli rödd sem barst alla leið niður á laugar- botninn stjórnaði hann æfingum af festu, en þó svo mikilli næmni og blíðu. Með fullkominni virðingu fyrir verkefninu og unga íþróttafólkinu var Erlingur vakinn og sofinn yfir skjólstæðingum sínum. Gleðin skein út úr andliti hans þegar hann sá ung- ana sína ná settum takmörkum, enda átti hann stóran þátt í árangr- inum. Það var okkur öllum, krökkunum jafnt sem foreldrum, mikið áfall þeg- ar Erlingur veiktist fyrir um tveim- ur árum og ljóst var hvert leiðin lá. En hann hélt sínu striki ótrauður og missti aðeins úr æfingar þegar veik- indin komu í veg fyrir að hann væri rólfær. Síðustu æfingu sinni stjórn- aði Erlingur þriðjudaginn 16. nóv- ember og tveimur dögum síðar var hann kominn á líknardeildina. Hann lést síðan laugardaginn 27. nóvem- Erlingur Þráinn Jóhannsson HINSTA KVEÐJA Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Hrafnhildi, Jóhanni og Lise sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Sundhópur ÍFR Laugardal, Alex, Anna, Benjamín, Bjarndís, Björn, Emil, Eyþór, Guðmundur, Halldór, Hjört- ur, Hrafnkell, Jónatan, Kar- en, Marinó, Matthildur, Mic- hel, Sonja, Thelma og Vignir. Jón Þorgeir, Tomás og for- eldrar. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur. MAGNÚS ÖRN RAGNARSSON endurskoðandi, lést að kvöldi 2. desember í Odense, Danmörku. Minningarathöfn um hann verður 15. des. í Fella- og Hólakirkju klukkan 15.00. Pia Kousgaard, Selma K. Magnúsdóttir, Alex K. Magnússon, Ragnar Svafarsson, Stella Magnúsdóttir, Svafar Ragnarsson, Svava M. B. Ásgeirsdóttir, Gunnar Már Ragnarsson, Hrafnhildur H. K. Friðriksdóttir, Stefán Ragnarsson, Árný Lára Karvelsdóttir, Hans Erik Kousgaard, Magda Kousgaard.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.