Morgunblaðið - 06.12.2010, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.12.2010, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010 ber á meðan krakkarnir hans kepptu á Íslandsmótinu í 25 metra laug. Þar settu þeir 12 Íslandsmet og unnu fjölda verðlauna. Þessir ungu sund- kappar munu halda minningu Er- lings á lofti um ókomin ár með afrek- um sínum og í gegnum þá lifir hann áfram. Hrafnhildi, Jóhanni og Lise sendi ég samúðarkveðjur og þakka um leið fyrir örlæti þeirra á Erlingi í gegn- um árin. Adolf Erlingsson. Bresturinn er ekki svo hár eða þeirrar gerðar að það hrikti í skýja- kljúfum og peningarnir klingja áfram í Wallarstræti. En fyrir okkur þeim sem þekktu Erling er bresturinn bæði hár og mikill er hann hverfur á braut og sprekið, það var af bestu gerð. Baráttunni er lokið og hvílík bar- átta enda maðurinn og skapið þann- ig að er hann hafði spurnir af and- stæðingi þessum sem nú skyldi kljást við og engu eirir né hlífir, þá var tekin sú afstaða í mótspyrnu að nú skyldi heimsmet slegið í vörn og andófi. Ekki hef ég talið dagana og veit hvort það hefur tekist en minnsta kosti nálægt því fór hann enda mað- urinn slíkur bæði að andlegu og lík- amlegu atgervi. Hann var birtingarmynd þess manns sem maður hugsar sér í stafni víkingaskips, fremstur í flokki jafn- ingja, hugdjarfur og hreinn, tilbúinn til atlögu hvenær sem er og þótt það þyrfti að synda á milli víka þá veit ég að hann og lið hans hefðu létt með farið. En bíddu við er þetta rétt lýsing á manninum og staðsetningin þar sem ég set hann, í stafn víkingaskips reiðubúinn til að höggva mann og annan? Æi nei, ætli ég þurfi ekki að- eins að hugsa betur og jafnvel færa hann til í skipinu, úr stafni og það aftur á öftustu þóftu. Ekki vegna þess að hugdirfsku, kapp eða atgervi vantaði nei, en til þess að vera í stafni var hann hald- inn eiginleika sem ekki gekk upp, maðurinn mátti ekkert aumt sjá, hann hefði verið vís til þess að stökkva í land til þess að liðsinna þeim veikasta í liði andstæðinganna, hjálpa honum til að rísa á fætur og rækta honum þá eiginleika sem hann bjó yfir. Þarna er maðurinn Erlingur Jó- hannsson, þetta er lýsingin á honum, þannig verður honum frekar lýst manninum sem gerði það að ævi- starfi og hugsjón að styðja þá sem veikari eru fyrir, styrkja þá og þjálfa, skapa þeim líf og hugsjón, hugsjón um jafnrétti og bræðralag allra manna. Ekki ætla ég að skrifa um ævi- störf Erlings, það verða örugglega aðrir sem þar um fjalla, heldur vil ég ásamt fjölskyldu minni allri þakka fyrir vináttu sem staðið hefur í ára- tugi milli fjölskyldna okkar, sam- vinnuna fyrir vestan milli Sytru og Minni-Brekku, gamla tíma á Kleif- árvöllum, Svarfhól í jógastöðinni, bras við hross og fleira, vináttu sem aldrei hefur borið skugga á. Og við biðjum góðan Guð að hughreysta fjölskyldu hans alla, þá sérstaklega Hrafnhildi, Jóhann og Lísu. En eitt er víst eins og það er himinn yfir okkur öllum og það er að Erlingur á góða heimferð. Far þú vel okkar góði gamli vinur. Viggó, Benóný, Egill, Sigurður, Arnar Þór og fjölskyldur. Kveðja frá Íþróttasambandi fatlaðra Í dag kveðjum við öðlingsmanninn Erling Þ. Jóhannsson, fyrrum íþróttafulltrúa Reykjavíkur og landsliðsþjálfara Íþróttasambands fatlaðra í sundi til margra ára. Að- komu hans að málefnum fatlaðra má rekja allt aftur til ársins 1978 en hann var einn af frumkvöðlum íþrótta fatlaðra hér á landi. Það var svo árið 1996 sem hann gekk til liðs við stjórn ÍF og sat í stjórn sam- bandsins allt til ársins 2009. Erling- ur var mótsstjóri á Nýárssundmóti fatlaðra barna og unglinga frá upp- hafi árið 1984 til 2010. Hann þjálfaði ótalda afreksmenn í sundi um árabil og trúlega var árangur íslenskra sundmanna á Ólympíumótunum í Seoul 1988, Barcelona 1992 og Atl- anta 1996 hápunktar hans farsæla starfs fyrir Íþróttasamband fatl- aðra. Hann var alla tíð vakinn og sof- inn yfir velferð sinna skjólstæðinga, jafnt í keppni sem utan, einstaklega minnugur og ráðagóður og því næst- um hægt að fletta upp í honum ef vantaði upplýsingar. Erlingur var framsýnn og réttsýnn og fólk hlust- aði á það sem hann hafði fram að færa. Það er mikill sjónarsviptir að manni eins og Erlingi Þ. Jóhanns- syni, hans verður sárt saknað. Erlingur var gæfumaður í sínu einkalífi og naut ómælds stuðnings eiginkonu sinnar Hrafnhildar í öllum sínum störfum fyrir íþróttir fatlaðra. Þau hjónin áttu sinn sælureit vestur í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, þar sem þau nutu þess að rækta og byggja upp af útsjónarsemi og smekkvísi en þar höfðu þau ráðlagt að dvelja saman löngum stundum við starfslok. Mennirnir áætla en guð ræður. Að leiðarlokum vil ég, fyrir hönd Íþróttasambands fatlaðra, þakka Erlingi Þ. Jóhannssyni áralanga samfylgd og hans óeigingjarna og fórnfúsa starf og sendi eiginkonu hans Hrafnhildi Hámundardóttur, einkasyninum Jóhanni og Lise konu hans, hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Erlings Þ. Jó- hannssonar. Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður. Við Erlingur höfum átt samleið í yfir 10 ár, því þegar ég byrjaði að æfa sund var hann minn aðalþjálfari í mörg ár. Fyrstu árin áttum við ekki alltaf skap saman og hallaði þar frekar á mig en hann. Vorum við ekki alltaf með sömu áherslurnar á sundæfingum og ég ekki alltaf mjög samstarfsfús, en þegar á leið áttum við mjög gott samband. Með Erlingi fór ég í mína fyrstu keppnisferð til útlanda og varð það að árlegum viðburði að fara saman á sundmót til Malmö, Jóhann, sonur Erlings, kom oftast og var með okk- ur og hjálpaði til við mótshaldið og hélt uppi stemningunni hjá hópnum. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa átt Erling að sem þjálfara og fé- laga, eftir að ég fór að æfa í öðru fé- lagi hittumst við reglulega á bakk- anum og ræddum um gang mála hjá mér, stuðningur hans og hvatning í minn garð hefur verið mér mikils virði. Það verður skrítið að sjá ekki Er- ling á bakkanum í framtíðinni, en ég er viss um að andi hans mun svífa yf- ir klórvötnum. Ég minnist Erlings með vinsemd og virðingu. Ég vil votta nánum að- standendum samúð mína. Guðmundur Hákon Hermannsson. Ég vissi, að til þessa ræki, þurfa að setjast niður og skrifa þessar lín- ur. Það er engu betra, undirbúning- ur að þessari kveðjustund var nokk- uð langur en undirbúningurinn var auðvitað til einskis. Erlingur var sérstakur maður, ljúfmenni, kurteis, fastur fyrir, heil- steyptur og það sem Íslendingar segja um þá sem eru til fyrirmyndar í öllu dagfari, drengur góður. Er- lingur tranaði sér ekki fram til við- urkenninga, heldur benti hann á aðra, sem honum fannst til frömunar fallnir, þannig var hann einatt, vak- inn og sofinn í að greiða allra götu sem hann best kunni. Erlingur var flottur á velli, snar í hreyfingum þegar þess var þörf en annars hæglátur og góðlátur. Er- lingur naut virðingar og vináttu, bæði í starfi sem áhugamálum. Ég kynntist honum í gegnum starfið hjá Reykjavíkurborg og inn- an Reglunnar, á báðum þeim stöðum var hann til fyrirmyndar, líkt og í óeigingjörnu starfi sínu fyrir fatlaða. Það er sama við hvern maður tal- ar, allir ljúka upp einum munni um hans mannkosti. Við sem störfum að íþróttamálum á vegum ÍTR þekkjum hvað gott var að leita til hans þegar hann var íþróttafulltrúi Reykjavíkurborgar, leysti úr öllu því sem leysanlegt var og studdi allt sitt fólk til góðra verka. Þetta þakka samferðamenn honum nú á kveðjustund. Vinskapur manna, sem kynnast á miðjum aldri, verður öðruvísi en hjá þeim sem eru æskuvinir, öðruvísi en ekkert síðri. Slíkt er happ og ber að þakka. Við áttum sameiginleg áhugamál, allt frá Reglunni til ræktunar lands og lýðs, umræður okkar um þau efni eru mér afar ljúfar minningar. Ræktunarstarfið uppi í bústað og smíðin þar voru Erlingi kært um- ræðuefni, áhuginn á handverki og virðing fyrir vel unnu verki var enn eitt kennimerki hans. Minning um þolgæði og áhuga manns, sem gaf af sér eftir langan vinnudag til að ung- menni gætu náð framförum, þrátt fyrir fötlun, hvort sem væri á líkama eða sál, er björt og lýsir upp dimmu sorgarinnar. Hann var þar sem besti garðyrkjumaður, studdi það sem stuðning þurfti og herti það sem þess þurfti með. Leiðsögn hans í sundíþróttinni hefur lokið upp fyrir mörgum iðk- andanum og aðstandendum þeirra veröld, sem virtist algerlega lokuð. Erlingur sagði mér það væri meira um vert, að upplifa ánægju þeirra, þegar þau hömpuðu viðurkenningu eða náðu árangri, en viðurkenning- arhjal umhverfisins í hans garð. Aðrir munu segja frá ætt hans og fjölskyldu. Það skein ætíð afar skært frá honum, að fjölskyldan var honum kærust og umhyggja um velferð hennar var honum efst í huga. Barátta manna við það sem virðist vera óumflýjanlegt segir mikið um manninn, sú barátta Erlings sýnir hugrakkan, heilsteyptan mann, sem óttaðist ekkert fyrir sína parta en undirbjó í leyndum, það sem koma varð. Ég bið honum góðrar ferðar á þeim brautum sem hann nú hefur hafið göngu á. Megi hinn hæsti höf- uðsmiður skipa honum til sætis á verðskulduðum stað hvíldarinnar. Bjarni Kjartansson. Kveðja frá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík. Það voru mikil sorgartíðindi þegar við fréttum að Erlingur Jóhannsson, sundþjálfari hjá ÍFR, væri látinn. Hann hafði barist við illvígan sjúk- dóm undanfarin tvö ár sem sigraði hann að lokum. Erlingur hóf sundþjálfun hjá ÍFR árið 1978 og hefur starfað sem sund- þjálfari hjá félaginu nær óslitið síð- an. Á sinni löngu starfsævi sem þjálfari hjá ÍFR lagði hann grunninn að frábærum árangri fatlaðra sund- manna. Iðkendur undir hans stjórn settu hundruð Íslandsmeta og settu fjölmörg Evrópu-, heims- og ólymp- íumet. Enginn íslenskur þjálfari hef- ur stýrt og stjórnað jafn glæsilegum og sterkum hópi einstaklinga og Er- lingur gerði. Hann byggði upp sund- starf fatlaðra á Íslandi og sá árangur sem fatlaðir sundmenn náðu á mót- um erlendis er undraverður. Einn mikilvægasti þáttur í starf- inu hans var að undirbúa sundfólkið til að takast á við lífið eftir að sund- þjálfun þeirra lauk. Sjálfsöryggi ein- staklinganna jókst og hindrunum var ýtt til hliðar. Undanfarin ár hefur Erlingur ver- ið að þjálfa upp nýja kynslóð sund- manna sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Síðasta æfing Erlings með þess- um hópi var 16. nóvember sl. Hann lést þann 27. nóvember en þá stóð yfir Íslandsmót fatlaðra í 25 m laug. Á því móti setti sundhópur Erlings ellefu Íslandsmet. Fyrir hönd ÍFR þakka ég Erlingi samfylgdina í gegnum árin og votta aðstandendum hans mína innileg- ustu samúð. Júlíus Arnarsson, formaður ÍFR. Kveðja frá sunddeild KR Það var mörgum brugðið þegar fréttist af andláti Erlings eftir erfið veikindi um nokkurn tíma. Erlingur ólst upp innan sund- deildar KR og var tryggur KR-ingur allan sinn starfsferil. Eftir glæstan sundferil hjá KR hóf Erlingur æfingar í sundknattleik og keppti með KR um árabil. Hann þótti harður og snöggur sundmaður sem kom sér vel í greininni. Erling- ur gegndi formennsku í sunddeild KR 1964-1978. Samhliða formennskustarfinu og þátttöku í sundknattleik fékk Er- lingur áhuga á þjálfun hjá sunddeild KR, sem hann stundaði af miklum áhuga um árabil. Erlingur var forstöðumaður Vest- urbæjarlaugar og yfirþjálfari sund- deildar KR á tímabilinu 1964-1980 þar sem hann vann mikið og gott starf. Erlingi var umhugað um að gera umhverfi ungra sundmanna sem best, þannig að sem flestir gætu tek- ið þátt í sundmótum og hefðu ánægju af. Erlingur bjó yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu á sviði sund- íþróttarinnar, var góður leiðbeinandi fyrir unga sem eldri sundþjálfara. Sem íþróttafulltrúi Reykjavíkur bjó Erlingur yfir mikilli reynslu í flestu því er sneri að uppbyggingu og rekstri íþróttamannvirkja og miðlaði reynslu sinni óspart til ann- arra. Við fráfall Erlings hefur íslenska sundhreyfingin misst ötulan tals- mann, mann sem var annt um stöðu hreyfingarinnar og vildi framgang hennar sem mestan. Erlingur hélt ávallt góðum tengslum við KR og var alla tíð óspar á að veita KR-ing- um góð ráð. Hann var einn reynslu- mesti yfirdómari landsins í sundi. Sunddeild KR þakkar Erlingi framlag hans til deildarinnar til margra ára og sendir Hrafnhildi og fjölskyldu þeirra hjóna innilegar samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Jóhannes Benediktsson. Vertu alltaf hress í huga hvað sem kann að mæta þér. Lát ei sorg né böl þig buga. Baggi margra þungur er. Treystu því, að þér á herðar þyngri byrði’ ei varpað er en þú hefir afl að bera. Orka blundar næg í þér. Þerrðu kinnar þess er grætur þvoðu kaun hins særða manns Sendu inn í sérhvert hjarta, sólargeisla kærleikans. Vertu sanngjarn, vertu mildur, vægðu þeim sem mót þér braut. Bið þinn Guð um hreinna hjarta hjálp í lífsins vanda’ og þraut. (Erla skáldkona.) Innilegustu samúðarkveðjur sendum við Hrafnhildi, Jóhanni og Lise. Margrét, Ingvar Geir, Hafdís og Björn. Það er erfitt að sætta sig við það að illvígur sjúkdómur hafi haft betur í keppni þeirri sem þú hefur háð undanfarin ár. Þú sem varst manna sterkastur og stæltastur meðal jafn- ingja og við sundstubbarnir þínir í sundlaug Vesturbæjar ætluðum allir að verða eins og þú. Það erfið stund að sitja hér og reyna að flokka hvers ég ætti helst að minnast og setja á blað, allar voru stundirnar svo góðar. Þar má nefna allar æfingarnar sem þú stóðst yfir okkur og hvattir okkur áfram, ferða- lögin í Þórsmörk með KR-liðinu eða þær stundir sem við áttum saman sem keppendur í póló og síðar báðir sem þjálfarar, alltaf gafst þú góð ráð sem taka mátti mark á því þú varst ekki mikið fyrir að segja hlutina öðruvísi en þeir voru. Ég minnist þín sem frábærs vinar sem í raun „ól mig að hluta til upp“ og skóp líf mitt til þeirrar áttar sem það síðan tók, þ.e. að gera sund- íþróttina að lífsstarfi. Því alla tíð hef ég þakkað og glaðst yfir því þegar þú Erlingur (eða Elli eins og við kölluðum þig alla tíð) kallaðir til mín þar sem ég var að busla í Vesturbæjarlauginni sem 11 ára gutti og sagðir: „Þú stráksi, þú syndir ágætlega, viltu ekki prófa að koma á sundæfingu hjá okkur hér í KR“? Þarna er Ella rétt lýst því hann var ævinlega að byggja upp sundliðið sitt og bjó til sterkasta sundlið KR-inga fyrr og síðar. Undir hans stjórn vorum við fjöl- margir landsliðsmenn, karlar sem konur auk ólympíufara. Elli var einn af þessum þjálfurum sem borin var mikil virðing fyrir því hann var fastur fyrir en sanngjarn og því mátti treysta öllum hans ráð- um. Hann var ekki mikið fyrir að vera í sviðsljósinu og berja sér á brjóst, frekar vildi hann bara láta verkin tala. Kemur í hug eftirfarandi vísubrot: Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. (Sr. Sigurbjörn Einarsson) Elli sneri sér að þjálfun fatlaðra sundmanna seinni árin og að sjálf- sögðu með sama krafti og hann hafði þjálfað ófatlaða áður. Hann breytti fötluðum einstaklingum í afreks- menn á alþjóðamælikvarða, þekkt- ust meðal jafninga er Kristín Rós Hákonardóttir. Allan þann tíma sem Elli háði bar- áttu sína við krabbameinið varð maður ekki mikið var við það því hann bar það ekki á borð fyrir aðra og kvartaði aldrei. Hann stóð vakt- ina á bakkanum allt fram að því að hann var lagður inn fyrir um tveim- ur vikum. Kæri Elli, ég veit að ég tala fyrir munn allra okkar fjölmörgu KR- inga sem þú þjálfaðir og eyddir tíma með á árum áður þegar ég segi takk fyrir allt og allt. Við höfum mikið misst en við höf- um mikils að minnast. Elsku Hrafnhildur, Jóhann og fjölskyldan öll, við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minning okkar um Erling verður með okkur alltaf. Hafþór og Sigríður. Vinarkveðja. Hve gæfan var hliðholl þeim börnum sem bar á þinn veg Hve blessað er líf þar sem gjöfin er óendanleg Hve hverfull er heimur sem missir sinn mætasta son Hve minning er dýrmæt sem skapað fær vinunum von / Hve gleðin er rík, þá barn eykur þrek sitt og þor Hve þrautseig er trúin á framtíðar meistaraspor Hve sárt er að sakna þá ljósið er logandi slökkt Hve lýsir upp minningin skær, þegar virðist allt dökkt Hvíl í friði vinur, þitt lífsins starf var stórkostlegt. Innilegar samúðarkveðjur til fjöl- skyldunnar. Anna K. Vilhjálmsdóttir. Látinn er langt um aldur fram Er- lingur Jóhannsson. Við kynntumst honum fyrst þegar Erlingur varð forstöðumaður Sundlaugar Vestur- bæjar, sem hann stýrði svo af rögg- semi. Hann var harðskeyttur ef á þurfti að halda við ólátabelgi. Síðar sá hann um þrekþjálfun, en þá vor- um við í mfl. KR í körfuknattleik. Þjálfun hans var mjög markviss og bjuggum við og félagar okkar að hans þjálfun í mörg ár á eftir. Okkur er minnisstætt hvernig hann fléttaði inn jógaæfingar og góða slökun í lok hverrar æfingar, þannig að við juk- um þrekið mikið á stuttum tíma. Erlingur var sannur KR-ingur og vann mikið og fórnfúst starf fyrir fé- lagið, sem er einstakt og þakkarvert. Erlingur var frábær sundþjálfari og starf hans og árangur með fatlaða einstaklinga var eftirtektarverður. Hans fólk vann m.a. til margra verð- launa á alþjóðavettvangi, þökk sé Erlingi. Með þessum fáu orðum viljum við þakka fyrir að hafa notið hans þjálf- unar og kynnst slíkum afburða- manni, sem Erlingur var, en minn- ing um góðan dreng lifir. Hilmar Viktorsson og Sófus Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.