Morgunblaðið - 06.12.2010, Side 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HÉR ERU NOKKRAR
REGLUR SEM ÉG VIL AÐ
ÞÚ FYLGIR Í DAG
ÞÉR ER BANNAÐ AÐ
GELTA, SLEFA, HLAUPA
EÐA MÁSA
MEÐ ÖÐRUM
ORÐUM, Í DAG ERTU
KÖTTUR!
MAURAR
ERU ÁHUGA-
VERÐIR
ÞEIR ERU
STANSLAUST Á
FERÐINNI
EN SÚ ORKA! ÉG VÆRI
HRÆÐILEGUR
MAUR
STÖÐ-
VAÐU!
VINUR
EÐA
ÓVINUR?!
HVER FER
ÞAR?
SAUÐUR
GETURÐU VERIÐ! EF
ÉG VÆRI ÓVINUR
ÞINN HELDURÐU AÐ
ÉG MYNDI SEGJA
ÞÉR ÞAÐ?
GÓÐUR
PUNKTUR!
HEYRÐU,
VÉLKÖTTURINN
VAR AÐ DRAGA
EITTHVAÐ
DAUTT INN
TIL ÞÍN!
EKKI HAFA
ÁHYGGJUR, KETTIR ERU
ALLTAF AÐ KOMA MEÐ
EITTHVAÐ DAUTT HEIM.
ER ÞAÐ MÚS EÐA
LÍTILL FUGL?
NEI,
ÞAÐ ER RAF-
MAGNSLAUS
SMÁBÍLL!?
ÉG ÆTLA AÐ SÝNA
HONUM HVERNIG MÉR LÍÐUR
ÞEGAR HANN GERIR LÍTIÐ ÚR
VANDAMÁLUM MÍNUM
EN SÁ DAGUR,
LÍTUR ÚT FYRIR AÐ
VIÐ GÆTUM ÞURFT AÐ
SEGJA UPP FÓLKI
HVAÐ
MEÐ ÞAÐ?
ÞAÐ ER
FREKAR SMÁVÆGI-
LEGT Í SAMANBURÐI
VIÐ GRÓÐURHÚSA-
ÁHRIFIN!
HMMM...
ÞAÐ ER
GÓÐUR
PUNKTUR
HVAÐ?
JONAH
JAMESON ER
AÐ TALA ILLA
UM MIG Í
BLAÐINU, EINS
OG VENJU-
LEGA
OG NÚNA
ER HANN LÍKA
KOMINN MEÐ
SJÓNVARPSÞÁTT!
ÞETTA
VAR SKRÍTINN
DRAUMUR. ÉG
VAR EINHLEYPUR
OG BJÓ ENN ÞÁ
HJÁ MAY
FRÆNKU
EKKI
HAFA
ÁHYGGJUR.
HVAÐ DREYMDI
ÞIG ANNARS?
VARSTU
VONSVIKINN
ÞEGAR ÞÚ
VAKNAÐIR?
KOMDU
HINGAÐ, ÉG SKAL
SÍNA ÞÉR HVERSU
VONSVIKINN!
Varðhundar
kerfisins
Langþráður draumur
vinstrimanna rættist
eftir síðustu kosn-
ingar. Mynduð var
hrein, tær vinstri-
stjórn. Nú skyldi al-
þýða þessa lands leidd
til valda, kerfið skyldi
skorið upp og kjör al-
þýðunnar, öryrkja og
aldraðra bætt, áhersla
lögð á jöfn tækifæri
allra til menntunar og
staðinn yrði sérstakur
vörður um heilsu-
gæsluna. Fólk skyldi
leitt til öndvegis, bankar og aðrar
fjármálastofnanir skyldu þurfa að
bukta sig og beygja fyrir þegnum
þessa lands. Ekki væri inni í mynd-
inni að íslenskar fjölskyldur þyrftu
að greiða skuldir óráðsíumanna, Ice-
save yrði aldrei greitt af íslenskum
fjölskyldum. Hvað fór úrskeiðis?
Þessi draumur vinstrimannsins hef-
ur breyst í mjög slæma martröð. Nú
er svo komið að hrunið var barna-
leikur á við það sem á eftir hefur
komið. Steingrímur Joð berst fyrir
hagsmunum Breta og Hollendinga í
Icesave-málinu, og ætlar að senda
reikninginn á íslenskar fjölskyldur.
Ég hélt að þær þyrftu á einhverju
öðru að halda um þessar mundir en
bakreikningi óráðsíumanna. Það er
líka ljóst að fjármálastofnanir lands-
ins eru þessum þreytta ráðherra
hugstæðari en venjulegt heiðarlegt,
fjölskyldufólk sem þarf að heyja sína
baráttu við þessar stofnanir eitt síns
liðs og hróp þess um hjálp er eins og
að hrópa í miðri eyðimörkinni eftir
vatni. Enginn skilningur, engin
hjálp.
Hinn stjórnarflokkurinn, Sam-
fylkingin, er upptekinn af sínum
innri hneykslismálum, eins og að
enn sitja ráðherrar í ríkisstjórninni
sem voru í hrunstjórninni, meira að
segja forsætisráðherrann sjálfur.
Þvílík hneisa. Enda
eru vinnubrögðin eftir
því, Samfylkingin er
varðhundur Evrópu-
sambandsins og gerir
allt sem hún getur til
að hneppa Íslendinga í
fátæktargildru Evr-
ópu. Og það á sama
tíma og formaður Evr-
ópusambandsins ótt-
ast að sambandið sé að
liðast í sundur sem það
mun eflaust gera á
endanum. Það er lífs-
spursmál fyrir okkur
Íslendinga að losna við
þessa duglausu rík-
isstjórn áður en við
sökkvum dýpra. Ég vara við þeim
hræðsluáróðri sem stjórnvöld hafa
beitt að það sé ekki til neitt betra til
að taka við. Það sem mun gerast er
að það mun spretta upp fjöldahreyf-
ing venjulegs fólks, námsmanna,
aldraðra, öryrkja og hinna vinnandi
manna. Það er fólkið sem verður að
axla ábyrgð og taka völdin til sín.
Það er svo komið að það er skamm-
aryrði að vera vinstrimaður, svo
maður tali nú ekki um ósköpin að
vera bendlaður við jafnaðarmenn.
Þessi hugtök eru ónýt með öllu og
gjörbreyta þarf hugsunarhætti fólks
í þessum efnum. Sú stjórn sem nú
situr er mesta íhaldsstjórn sem hér
hefur setið. Þessarar ríkisstjórnar
verður seint saknað, hennar verður
minnst sem stjórnar hafta, biðraða
eftir mat, eignamissis heiðarlegs
fjölskyldufólks, hruns heilsugæsl-
unnar og menntakerfisins og lang-
tíma atvinnuleysis. Nú þurfum við
að sameinast um að reka óværuna út
úr Alþingishúsinu, og sameinast um
að byggja upp afl fólksins. Það eina
sem þarf er fólk eins og þig fyrir fólk
eins og mig. Allir á Austurvöll.
Ómar Sigurðsson
skipstjóri.
Ást er…
… frábær leið til að
byrja daginn.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, upp-
lestur kl. 12.15, útskurður og myndlist
kl. 13, samsöngur kl. 14.
Árskógar 4 | Handav., smíði og útsk. kl.
9, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
bænastund og umræða kl. 9.30, söngur
kl. 10.30, leikfimi kl. 11, upplestur kl. 14.
Félag eldri borgara í Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 10.45,
gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Jóka
kl. 9.30, brids kl. 13.
Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9,
bingó kl. 13.30, stafganga kl. 16.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía, gler-
og postulín kl. 9.30, lomber kl. 13, ca-
nasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17, skapandi
skrif kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
lín og ganga kl. 10, handavinna, fé-
lagsvist og brids kl. 13. Afmælis og að-
ventufagnaður 8. des kl. 14. Nemendur
Snælandsskóla og leikskólanum Sól-
hvörfum syngja. Níels Árni Lund les úr
bók sinni.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30. Frá hádegi er spilasal-
ur opinn, kóræfing kl. 15. Svavar Knútur
trúbador skemmtir 8. des. kl. 11.
Furugerði 1, félagsstarf | Möguleik-
húsið sýnir „Aðventa“ eftir Gunnar
Gunnarsson í nýja salnum kl. 14. Veit-
ingar á vægu verði eftir sýninguna.
Furugerði 1, félagsstarf | Söngfélagið
Góðir grannar syngur kl. 20 í salnum.
Háteigskirkja | Félagsvist kl. 13.
Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga frá Hauka-
húsi kl. 10, kór kl. 10.30, glerbræðsla og
trésk. kl. 13, félagsvist og botsía kl.
13.30, vatnsleikf. í Ásvallalaug kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30
og 10.30, vinnustofa kl. 9, brids kl. 13.
Hæðargarður 31 | Bútasaumssýning og
myndlistarsýning Erlu Þorleifsdóttur.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum kl. 11.30. Uppl. í s. 554-2780.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Egils-
höll kl. 10. Botsía Eirborgum kl. 13.30 og
sjúkraleikfimi kl. 14.30. Sundleikfimi á
morgun kl. 9.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band, morgunstund, botsía, upplestur,
handa, stóladans.
Karlinn á Laugaveginum sagðisthafa séð Vísnahornið á föstu-
daginn og haft gaman af Par-
ísarvísunum. Hann var rétt nýkom-
inn ofan af Skólavörðuholtinu:
Við planlögðum smáferð til Parísar
en prímadonnan sitt svar ísar
Ég sagði við kellu:
„Enga kellingarvellu.
Nú kemurðu með mér til Parísar!“
Í Hlymrek, limrubók Jóhanns
Hannessonar, er einnig limra frá
París:
Það er auðmannaútborg við París
þar sem ódæma nýstárleg spa rís:
þar er sundlaug sem er
eins og ólgandi hver
og önnur með svellþykkum skarís.
Og þar koma fyrir aðrar borgir:
Það er furðulegt ástand í Ankara.
Þar er allt fullt með vestfirska
sankara.
Þeir kaupa upp allt
sem er yfirleitt falt
jafnvel antíka gólfteppabankara.
Það er vont að fá fréttir í Varsjá.
Að vísu sést Moskva í fjarsjá,
en þar hafa ekki enn
fundist heilvita menn
sem hægt er að leita sér svars hjá.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af borgum og limrum