Morgunblaðið - 06.12.2010, Side 31

Morgunblaðið - 06.12.2010, Side 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010 Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 8 og 10:10Sýnd kl. 8 og 10:10 EINN BESTI SPENNUTRYLLIR ÁRSINS... SEM GEFUR FYRRI MYNDINNI EKKERT EFTIR! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! HVERSU LANGTMYNDIR ÞÚ GANGA FYRIR ÞÁ SEM ÞÚ ELSKAR? ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND HHH Sýnd kl. 8 og 10:30 Sýnd kl. 6 Hann leitar Hefnda Þeirra sem sviku Hann frábær Hasarmynd! -bara lúxus Sími 553 2075 www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is 5% Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ FASTER kl. 8 - 10 PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 8 - 10 THE NEXT THREE DAYS KL. 5.45 JACKASS 3D KL. 5.45 16 16 12 12 Nánar á Miði.is FASTER kl. 5.50 - 8 - 10.10 FASTER LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10 PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 5.50 - 8 - 10.10 THE NEXT THREE DAYS KL. 8 - 10.40 NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 3.50 - 6 JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 ARTHÚR 3 KL. 3.40 ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 KL. 3.50 AULINN ÉG 3D ÍSL. TAL KL. 3.50 16 16 16 12 L 12 L L L FASTER kl. 8 - 10.10 AGORA KL. 9 NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6 DRAUMURINN UM VEGINN KL. 6 SKYLINE ÓTEXTAÐ KL. 8 - 10.10 UNSTOPPABLE KL. 10.10 EASY A KL. 6 YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8 16 14 L L 12 L 12 L HÁSKÓLABÍÓ ÍSL. TALÍSL. TAL EPÍSK STÓRMYND EFTIR LEIKSTJÓRA THE OTHERS FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ ÍSLENSKU TALI Hann leitar hefnda þeirra sem sviku hann. Frábær hasarmynd! "MYND SEM HITTIR Í MARK!" -H.H, MBL Nýjasta kvikmynd Romans Polanski, The Ghost Writer, hlaut sex verðlaun á Evrópsku kvikmyndaverðlaunahá- tíðinni sem veitt voru í Tallin í kvöld. Myndin var valin besta kvikmyndin, Polanski var valinn leikstjóri ársins, Ewan McGregor leikari ársins. Handrit Robert Harris og Roman Polanski var valið besta handritið og Alexandre Desplat fékk verðlaun fyr- ir tónlistina í myndinni og Albrecht Konrad fyrir leikmyndina. Sylvie Testud var valin leikkona ársins fyrir hlutverk sitt í kvikmynd- inni Lourdes. En leikarinn Bruno Ganz var heiðraður fyrir störf sín í þágu evrópskrar kvikmyndagerðar á hátíðinni í Tallin í Eistlandi í kvöld. Að mati þeirra sem tóku þátt í að velja mynd ársins, það er val fólksins, var Mr. Nobody besta mynd ársins í Evrópu en handrit myndarinnar er eftir Jaco Van Dormael sem einnig leikstýrði henni. Polanski var ekki viðstaddur hátíð- ina í kvöld en hálft ár er síðan honum var sleppt úr stofufangelsi í Sviss eft- ir að hann slapp naumlega frá fram- sali til Bandaríkjanna vegna áratu- gagamals máls tengds kynferðisofbeldi. Hann þakkaði hins vegar fyrir heiðurinn í beinni útsendingu gegn- um netið á hátíðinni og þakkaði um leið félögum sínum sem komu að gerð myndarinnar. Stjórnvöld í Eistlandi höfði hins vegar greint frá því fyrir hátíðina að Polanski yrði ekki framseldur til Bandaríkjanna ef hann myndi mæta þar sem samkvæmt eistneskum lög- um er kynferðisofbeldismálið fyrnt. Reuters Sæll Polanski gerir það gott í starfi þó að persónulega lífið sé í tómu rugli. Draugaritarinn sigursæll  Polanski sópaði upp verðlaunum á Evrópsku kvikmyndaverðlaunahátíðinni Faster er hefndartryllir íanda Death Wish-myndaCharles Bronson og bæðiítalskra og bandarískra vestra, sem voru margir hverjir á svipuðum nótum áður en þá dagaði uppi í kvikmyndalandslaginu. Hetj- an er einnig kunnugleg úr áþekkum myndum, hinn þögli hefndarengill með dauðann einan meðreið- arsveina. En Johnson er enginn Eastwood, kemst ekki einu sinni með tærnar þar sem Bronson hafði hælana. Sem mörkuðu þó ekki djúp spor í kvikmyndasöguna. Að hætti Walters Hill í Driver, bera persónurnar engin nöfn aðeins starfsheiti. Johnson-karakterinn er jafnvel kallaður Driver, þar sem hann hafði gerst ökumaður und- ankomubíls í bankaráni með bróður sínum áratug áður en myndin hefst. Bankaránið fór í vaskinn, einhver hafði sagt til ræningjanna og leitt þá í gildru og myrt. Kúla í gegnum höfuðið hafði ekki drepið Driver, hann náð sér að mestu og er að sleppa úr fangelsi eftir 10 ára af- plánun í upphafsatriðinu og er al- mennt álitinn dauður utan múr- anna. Hann hefur ráðið krimma til að hafa uppi á öllum þeim sem komu við sögu ránsins og eru hugs- anlegir svikarar og hefur hefnd- araðgerðir með því að fá listann og verður skrásetjarinn fyrsta fórn- arlambið. Síðan er sagan í járnum tuga ef ekki hundraða, einkum B-mynda; fyrirsjáanleg, flöt og ófrumleg. Thornton leikur Lögguna – Cop, sem er ekki öll þar sem hún er séð undir sínu tuskulega útliti. Cop kemst á spor Drivers en það gerir líka hálfóður leigumorðingi, Killer (Jackson-Cohen). Þessi þrjú sudda- menni þeysast síðan um vesturríkin, hvert á hælum annars og hlaða upp blóði drifnum fórnarlömbum. Sagan tekur smávægilegt hlið- arskref undir lokin þegar fer að þrengjast um bölvald Drivers, en það er þá þegar farið að liggja í loftinu. Að öðru leyti er atburðarásin eins einföld og hugsast getur. Johnson (The Rock), hefur fráhrindandi nærveru í burð- arhlutverkinu, ræður engan veginn við að tjá „The Man With No Name“, Kletturinn er illskárri í barna- og fjölskyldumyndum en sem forhertur manndrápari. Það gustar þó örlítið af þessu hrikalega steratrölli, en ekki nóg til þess að bera uppi myndina. Thornton er heillum horfinn líkt og aðrir sem koma við þessa kunnuglegu sögu, helst að sjá tilþrif hjá Guginol í hlutverki lögreglukonu og sam- starfsmanns Thorntons og þá má greina smávegis púls hjá Jackson- Cohenm, sem fær eina forvitnilega hlutverkið. Faster er hröð, mikið um dráp og hraðakstur og gleður sjálfsagt unga drengi og fornbílaunnendur, sem fá m.a. að sjá til burða upptjúnaðra Chevya og Pontiaca. Því miður eru þeir mun reffilegri en undarlega samansettur leikhópurinn. Smárabíó, Háskólabíó, Laug- arásbíó, Borgarbíó Akureyri Faster bbmnn Leikstjóri: George Tillman Jr . Aðalleik- arar: Dwayne Johnson, Billy Bob Thorn- ton, Oliver Jackson-Cohen, Carla Gug- ino, Maggie Grace, Moon Bloodgood, Tom Berenger. Bandarísk. 98 mín. 2010. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYNDIR Kaldur kall? „Johnson (The Rock), hefur fráhrindandi nærveru...“ Steratröll í hefndarhug

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.