Morgunblaðið - 06.12.2010, Page 36
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 340. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Vopnaður riffli á skemmtistað
2. Jólahúsið þykir orðið of vinsælt
3. Rýma þurfti unglingasamkvæmi
4. Tévez brjálaður út í Mancini
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ellen Kristjánsdóttir hefur nýlega
lokið upptökum á geisladiski í sam-
starfi við gítarleikarann góðkunna
Pétur Hallgrímsson. Diskurinn heitir
Let me be there og verður kynntur á
Rósenberg á morgun.
Útgáfutónleikar Ell-
enar Kristjánsdóttur
Réttindastofa
Forlagsins hefur
gengið frá samn-
ingum um útgáfu
á skáldsögu Krist-
ínar Steinsdóttur,
Ljósu, við hið
virta þýska út-
gáfufyrirtæki C.H.
Beck sem hyggst
gefa bókina út í Þýskalandi, Sviss og
Austurríki. Beck hefur starfað í
Þýskalandi í næstum 250 ár, ætíð í
eigu sömu fjölskyldu.
Skáldsagan Ljósa
seld til Þýskalands
Skákfélag Vinjar og Hrókurinn
halda jólamót í Vin, Hverfisgötu 47,
í dag. Mótið hefst klukkan 13.15.
Borgarstjóri Reykvík-
inga, Jón Gnarr,
setur mótið og
mun svo leika
fyrsta leikinn.
Efstu keppendur fá
glænýjar, volgar og
ilmandi jólabækur
frá bókaútgáfunni
Sögum að laun-
um.
Jólaskákmót Vinjar
og Hróksins
Á þriðjudag Norðan 5-10 með éljum eða snjókomu, en bjart að mestu sunnanlands.
Lægir víðast hvar síðdegis. Frost 0 til 8 stig.
Á miðvikudag Hæglætisveður, bjart með köflum og 0 til 10 stiga frost, en þykknar upp
við vesturströndina og hlýnar þar.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 5-10 m/s austanlands og svolítil él, en annars hægari
norðlæg eða breytileg átt. Úrkomulaust að kalla og yfirleitt léttskýjað sunnan heiða.
VEÐUR
Njarðvíkingar gerðu sér
lítið fyrir og lögðu
ríkjandi bikarmeistara
Snæfells í 16 liða úrslit-
um bikarkeppni karla í
körfuknattleik í gær-
kvöld á heimavelli Snæ-
fells í Stykkishólmi. KR-
ingar unnu sannfærandi
sigur á Hamarsmönnum
á heimavelli og Tinda-
stóll gerði góða ferð til
Keflavíkur og lagði
heimamenn. »3
Njarðvík sló út
bikarmeistarana
Franski miðjumaðurinn Samir Nasri
sá til þess að Arsenal skaust í topp-
sæti ensku úrvals-
deildarinnar í
knattspyrnu. Hann
skoraði bæði mörk
liðsins í sigrinum á
Fulham á sama
tíma og Chelsea
gerði jafntefli
við Ever-
ton.
»7
Arsenal skaust í topp-
sætið á Englandi
Það sáust glæsileg tilþrif í Egilshöll-
inni í Grafarvogi í gær þegar Íslands-
mótið í listdansi á skautum var hald-
ið. Nadja Margrét Jamchi varð
Íslandsmeistari í unglingaflokki og í
stúlknaflokki varð Heiðbjört Arney
Höskuldsdóttir hlutskörpust en
stúlkurnar sem kepptu á Íslands-
mótinu hafa greinilega náð góðum
tökum á íþróttinni. »2
Nadia og Heiðbjört
Íslandsmeistarar
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Solveig Lára Kjærnested, lands-
liðskona í handknattleik, mun hafa
í nógu að snúast næstu dagana.
Solveig er einn af sextán leik-
mönnum íslenska kvennalandsliðs-
ins í handknattleik sem er komið til
Danmerkur en Ísland er á meðal
þátttökuþjóða á Evrópumeist-
aramótinu sem hefst í Noregi og
Danmörku á morgun.
Solveig ól dóttur í mars síðast-
liðnum en hún og eiginmaður
hennar, Jóhann Ingi Jóhannsson,
fóru með til Danmerkur í fyrradag.
Jóhann og dóttirin búa hjá vina-
fólki þeirra Solveigar og Jóhanns
Inga skammt frá hótelinu þar sem
íslenska landsliðið heldur til meðan
á mótinu stendur.
„Ég hef rætt við Júlíus þjálfara
um að ég fái rýmri tíma en aðrir
leikmenn til að umgangast fjöl-
skyldu mína á meðan mótið stend-
ur yfir og hann hefur sýnt mér
mikinn skilning. Við notuðum tæki-
færið á dögunum þegar ég fór út
með landsliðinu í æfingaferð til
Noregs til að venja stúlkuna af
brjósti. Það hefur gengið vel og
ætti ekki að verða vandamál. En sú
stutta virðist hafa eitthvað fyrst við
móður sína fyrir að vera svona
lengi að heiman en nú má hún ekki
sjá af mér,“ sagði Solveig Lára við
Morgunblaðið.
Solveig Lára er 25 ára gömul og
leikur í stöðu hornamanns. Hún lék
sinn fyrsta landsleik gegn Fær-
eyingum fyrir fimm árum. Hún hóf
feril sinn með ÍR en í 3. flokki gekk
hún í raðir Stjörnunnar og hefur
leikið með Garðabæjarliðinu síðan
utan eins tímabils þegar hún spilaði
með Weibern í þýsku 2. deildinni.
Solveig og stöllur hennar í ís-
lenska landsliðinu hefja leik á Evr-
ópumótinu á morgun þegar Ísland
mætir Króatíu.
12 síðna aukablað um EM
Í tilefni af þátttöku Íslands á
Evrópumótinu fylgir Morgun-
blaðinu í dag 12 síðna aukablað um
Evrópumótið þar sem leikmenn Ís-
lands eru kynntir. Viðtöl eru við
landsliðsþjálfarann og ýmsa spek-
inga og rifjað er upp þegar
kvennalandsliðið hampaði
Norðurlandameistaratitlinum árið
1964.
Morgunblaðið/Ernir
Klár í slaginn Solveig Lára Kjærnested landsliðskona, Jóhann Ingi Jóhannsson og dóttirin Katrín Ásta.
Solveig með dótturina og
manninn með sér á EM
Allri vinnunni verður dembt á karlinn, segir Solveig Lára
„Það er sól og blíða hér í dag eins og
flesta daga og ég viðurkenni að það
er skrýtið að huga að jólaundirbún-
ingi við þessar aðstæður. Hér er í
rauninni ekkert sem minnir á þau jól
sem við erum vön, en það verða jól
hjá okkur líka, það er ábyggilegt,“
segir Brynjar Brjánsson, stað-
arstjóri Ístaks í Falmouth á Ja-
maíka.
Þar er staddur tæplega 30 manna
hópur á vegum fyrirtækisins og er
verkefnið að reisa 19 byggingar fyrir
Royal Caribbean-skipafélagið. Í
dsember er hitinn flesta daga um og
yfir 30 stig. »6
Ljósmynd/Axel Viðar Hilmarsson
Þorsti Ketill Guðmundsson svalar
þorstanum í hitanum á Jamaíka.
Það verða
líka jól
hjá okkur
Byggja fyrir Royal
Caribbean á Jamaíka