Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ
03.01.2011
Ekki á þessi pistill að vera í predikunartón, enda
myndi slíkt kallast að grýta steinum úr glerhúsi
þar sem undirrituð hefur meðal annars verið í
gegnum tíðina dyggur styrktaraðili líkamsrækt-
arstöðva um hver mánaðamót án þess þó að
reka þar inn nefið.
Það er hinsvegar morgunljóst að hreyfing er
holl og góð öllum sem hana stunda, það er ekki
ný uppgötvun. Einhverra hluta vegna vefst það
þó fyrir okkur mörgum að koma reglulegri
hreyfingu inn í dagsskipulagið.
Best væri ef til væru skotheldar afsakanir
fyrir hreyfingarleysinu en sú er ekki raunin.
Hreyfing er nefnilega ekki bara skokk á hlaupa-
bretti í sal líkamsræktarstöðva þó að vissulega
hugnist það mörgum. Það er hægt að
stunda herþjálfun, fara í dans og jóga
og stunda klifur. Boðið er upp á þá
þjónustu að auðvelda fólki líkams-
rækt heima við fyrir þá sem ekki sjá
sér fært að stunda hana að heiman.
Um allt þetta og meira til er fjallað í blaðinu.
Útgáfutíminn er ekki tilviljun, byrj-
un árs markar upphaf að breytt-
um lífsháttum hjá mörgum,
áskorunin felst aðallega í því að
þrauka lengur en út jan-
úarmánuð!
Áfram við!
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Birta Björnsdóttir
birta@mbl.is
Blaðamenn
Birta Björnsdóttir
birta@mbl.is
Sigurður Bogi
Sævarsson
sbs@mbl.is
Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Jón Agnar Ólason
jon.olason@gmail.com
Auglýsingar
Katrín Theodórsdóttir
kata@mbl.is
Forsíðumyndina tók Golli.
Prentun
Landsprent ehf.
LifunHeilsa
26
Auður Ingibjörg Kon-
ráðsdóttir er heilsu-
kokkur og sælkeri.
4
Boot camp er fyrir alla, lofar fram-
kvæmdastjóri og þjálfari hjá Boot
Camp við Suðurlandsbraut.
25
D-vítamín er nauðsynlegt
og það má meðal annars fá
úr lýsi og feitum fiski.
18
Að klifra upp veggi er góð skemmtun.
Það vita þeir sem stunda Klifurhúsið.
6
Kjartan Már Kjartansson
setti sér markmið og hljóp
maraþon síðastliðið sumar.
24
Hollur og næringarríkur
matur er á boðstólum á
veitingastaðnum HaPP.