Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 21
Þ egar við vorum að vinna að lokaritgerðinni vorum við báðar barnshafandi og áttum erfitt með að finna líkams- rækt við hæfi,“ segir Guðrún Lovísa Ólafsdóttir hjá Fullfrísk. „Okkur fannst mjög misvísandi skilaboð um hvaða líkamsrækt mætti stunda á meðgöngu og ákváðum að kanna málið.“ Þær stöllur byrjuðu að kenna með- gönguleikfimina í janúar 2007 í hús- næði Hreyfingar en fluttu svo í hús- næði Bootcamp í maí 2007. Í upphafi var aðeins boðið upp á eitt námskeið í meðgönguleikfimi en fljótlega kom í ljós að eftirspurnin var mikil og var þá bætt við öðru námskeiði. Einnig kom í ljós að verðandi mæður höfðu áhuga á að koma aftur eftir fæðingu til þess að koma sér í form og þá með börnin með sér. „Til að byrja með mættu þær með börnin áfram í meðgöngutímana en fyrsta mömmunámskeið var svo sett á fót í október 2007,“ segir Guðrún Lovísa. „Meðgöngunámskeiðin og mömmunámskeiðin eru að mestu leyti byggð upp eins því eftir að kon- ur eru búnar að eiga gilda sömu atriði og á meðan þær eru þungaðar, en á mömmunámskeiðunum eru þó gerð- ar meiri þolæfingar heldur en á með- göngunámskeiðum. Það tekur líkam- ann tíma að jafna sig eftir fæðinguna. Mikil áhersla er líka lögð á að konan fái sem mest út úr tímanum en hafi á sama tíma svigrúm til þess að sinna barninu, hvort sem er að gefa því að drekka eða sinna því á annan hátt.“ Ávinningurinn mikill En hversu mikilvæg er hreyfing á meðgöngu? „Rannsóknir hafa sýnt að barns- hafandi konur sem eru heilsuhraust- ar eiga að geta stundað líkamsrækt í a.m.k. 30 mínútur á dag, flesta ef ekki alla daga vikunnar, eins og ráðlagt er fyrir konur sem ekki eru barnshaf- andi,“ segir Guðrún Lovísa. Hún seg- ir ávinninginn meðal annars geta ver- ið aukið þol og styrk, minni þyngdaraukningu, lægri tíðni stoð- kerfisverkja og lægri tíðni þvagleka svo fátt eitt sé nefnt. Á heimasíðunni má finna nánari upplýsingar um næstu námskeið. birta@mbl.is www.fullfrisk.is Fullfrískar Dagmar Heiða og Guðrún Lovísa standa fyrir námskeiðum fyrir nýbakaðar og verðandi mæður. Fullfrískar á meðgöngu Þær Dagmar Heiða Reynisdóttir og Guðrún Lovísa Ólafsdóttir útskrifuðust úr hjúkr- unarfræði við Háskóla Íslands árið 2004 og skrifuðu lokaritgerð sína um líkamsrækt á meðgöngu. Í kjölfarið stofnuðu þær Fullfrísk, þar sem boðið er upp á hreyfingu fyrir ófrísk- ar konur og nýbakaðar mæður. MORGUNBLAÐIÐ | 21 Byrjaðu gott ár með góðum bókum Væntanleg 8. janúar Betri lífstíll bætt skipulag Nýtt ár nýir möguleikar salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík Salka / M EL Fyrirtækið Raven Design selur heilsukodda sem stuðlar að réttri svefnstöðu. Koddinn veitir alhliða stuðning sín hvorum megin og undir höfuðið líka. Stuðningur er færanlegur, hægt er að víkka og þrengja að vild. Efnið í koddanum er þrýstijöfnunarefni sem nefnist Me- mory foam og var fyrst framleitt af NASA í Bandaríkjunum. Koddinn er einkar góður til ferðalaga og fylgir hverjum kodda handhægur ferðapoki. Heilsukoddinn Keilir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.