Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ
A
f boot camp fer hálft í hvoru
það orð að þar sé á ferðinni
líkamsþjálfun sem hæfir
hermönnum og því varla á
færi Péturs og Páls að gangast undir
þá eldraun ógrátandi. Slagorð á borð
við „Engar afsakanir – engin upp-
gjöf“ eru væntanlega ekki endilega
til þess fallnar að róa taugarnar hjá
óreyndum. En slíkar áhyggjur eru
mestan part óþarfar, eins og blaða-
maður komst að í spjalli við Arnald
Birgi Konráðsson, sem iðulega er
kallaður Birgir, en hann er fram-
kvæmdastjóri og jafnframt þjálfari
hjá Boot Camp við Suðurlandsbraut.
Er boot camp fyrir alla?
Í ljósi þess að boot camp hefur
sumpart á sér ímynd strangrar og
óvæginnar herþjálfunar liggur beint
við að spyrja Birgi strax að því fyrir
hverja þjálfunin sé – hermannaþjálf-
un getur varla hentað þorra fólks,
eða hvað?
„Boot camp er svo sannarlega fyr-
ir alla,“ segir Birgir og leggur
áherslu á orð sín.
„Vissulega er þjálfunin hjá okkur
krefjandi en um leið og við reynum á
þol líkamans er þess vitaskuld gætt
að ganga ekki of langt. Þess vegna
leggjum við áherslu á að kynnast
fólki sem kemur til okkar í þjálfun.
Hver og einn fer í þrekpróf og fitu-
mælingu svo þjálfararnir átti sig á
því hvað hentar viðkomandi, því eng-
ir tveir eru eins. Fyrir þá sem eru
alls óvanir líkamsþjálfun, þá sem eru
orðnir 20 til 30 kílóum of þungir eða
jafnvel þá sem eru að stíga upp úr
veikindum, þá er svokallað Græn-
jaxlanámskeið. Það byggist á sömu
hugmyndafræði, sömu æfingum og
sömu áhöldum, prógrammið er skal-
að niður til að það hæfi hverjum og
einum.“
Að taka af skarið og
sigrast á hindrunum
Birgir bendir á að það að byrja í
boot camp sé eins og hvert annað til-
felli þar sem taka þarf af skarið og
taka ákvörðun um eitthvað – í því
felist ákveðinn sigur.
„Við gerum okkar besta til að
styðja við fólkið í hópnum í fram-
haldinu. Hjá okkur eru þrír til fjórir
þjálfarar á hverri æfingu, þannig að
það er einn þjálfari á hverja tíu til
tólf eintaklinga á æfingunni. Þetta
gefur kost á persónulegri nálgun við
þjálfunina, næstum eins og að hafa
einkaþjálfara.“
Það hljómar gott og blessað, en
hvað með sögurnar sem ganga um
heragann á æfingunum?
„Vissulega er ákveðinn agi til
staðar en þess er gætt að hann sé
með jákvæðum formerkjum því agi
sem brýtur niður er gagnslaus í lík-
amsþjálfun. Með því að virkja sjálfs-
aga hjá hverjum og einum nær þjálf-
arinn að fara lengra með
þátttakendur en annars því hver ein-
asti þátttakandi getur meira en hann
heldur. Í æfingunum felst áskorun,
við getum kallað það hindrun, sem
einfaldlega þarf að sigrast á. Þetta
er ekki flóknara en svo.“
Birgir nefnir ennfremur að hin
einfalda hugmyndafræði fylgi fólk-
inu á námskeiðunum jafnan eftir æf-
ingar og út fyrir veggi stöðvarinnar.
„Fólk skilur hugsunina ekki eftir
hjá okkur heldur heimfærir hana á
verkefnin sem það stendur frammi
fyrir í dagsins önn. Að takast á
hendur áskorun sem felur í sér að
yfirstíga einhverja skilgreinda
hindrun. Við höfum heyrt mörg
dæmi þessa frá fólki sem er að æfa
hjá okkur. Eitt nærtækt er um konu
sem lét af því verða að stofna fyr-
irtæki sem hún hafði gengið með í
maganum lengi. Hún hafði samband
og þakkaði það einfaldlega þjálf-
uninni að hún tók af skarið og lét
hlutina gerast. Þegar þú sérð hvers
þú ert megnugur á æfingu hjá okk-
ur, sem oft er talsvert meira en þú
hafðir trú á, þá eru þér oftar en ekki
allir vegir færir í daglega lífinu.“
Til að tryggja að stemningin detti
ekki niður milli æfinga sjá þjálfarar
Boot Camp til þess að enginn
„gleymi“ að mæta á æfingu. Ef vika
líður án þess að þú mætir færðu
tölvupóst til áminningar um að mál
sé komið til að mæta.
„Flestir halda sér þó vakandi því
það er svolítið metnaðarmál hjá
þátttakendum að mæta nógu reglu-
lega til að sleppa við áminningu. Þá
búum við til matarprógramm fyrir
þá sem æfa hjá okkur svo árang-
urinn sem næst á staðnum fari ekki í
súginn þegar að matmálstíma kem-
ur. Einnig getur fólk skilað inn mat-
ardagbók þar sem það skráir allt
sem það borðar, til að fá leiðbein-
ingar og ráðleggingar um mataræði,
en það er hverjum og einum í sjálfs-
vald sett. Mest er um vert að temja
þátttakendum okkar rétt hugarfar.
Flest vitum við mætavel hvað er
hollt og gott fyrir okkur að borða en
það er ekki þar með sagt að við hlýð-
um því. Með því að tendra áð-
urnefndan sjálfsaga næst árangur á
þessu sviði líka.“
Lykillinn felst í fjölbreytni
Að sögn Birgis felst lykillinn að
árangri þátttakenda í boot camp í
fjölbreytileikanum sem æfingarnar
bjóða upp á. Það virkar svolítið mót-
sagnakennt þegar litið er inn í sal
æfingahúsnæðisins við Suðurlands-
braut þar sem einfaldleikinn ríkir.
Hér er að finna ketilbjöllur en ekki
stafræn æfingatæki með tölvuskjá.
Birgir brosir við þessa ábendingu og
bendir í framhaldinu á stóran, auðan
gólfflöt í salnum.
„Stundum förum við ekki einu
sinni út af gólfinu. Það má gera ótal
áhrifaríkar æfingar með líkamanum
einum saman. En við leggjum höf-
uðáherslu á fjölbreytni í æfingum
því einsleitni í líkamsþjálfun skilar
litlum árangri. Líkaminn lærir á
endurtekninguna sem felst í þess
háttar æfingaprógrammi og
brennslan minnkar fyrir bragðið.
Með því að breyta sífellt til og koma
líkamsstarfseminni á óvart næst
ekki bara hámarksárangur heldur
eru æfingarnar miklu skemmtilegri
til þátttöku. Þess vegna blöndum við
saman æfingum hér inni, útiæf-
ingum af ýmsu tagi, við hlaupum og
förum jafnvel í sund.“
Fyrir einstaklinga og
fyrirtæki um allt land
Það er einmitt þessi fjölbreytni
sem gerir þjálfurum Boot Camp
meðal annars kleift að sníða þjálf-
unina að allra hæfi, að sögn Birgis.
„Eins og ég nefndi áðan er hug-
myndafræðin alltaf sú sama og æf-
ingarnar byggjast á sama grunn-
inum gegnumsneitt. Þó markhópur
okkar sé á bilinu 18-45 ára þá erum
við líka með áðurnefndan Græn-
jaxlahóp fyrir þá sem þurfa að fara
sér hægar í upphafi, við erum með
unglingahóp fyrir 12-15 ára og svo
er sér prógramm fyrir þá sem eru
komnir í toppform, svonefndur
Elítuhópur. Við þá einstaklinga er
stutt með meira krefjandi æfingum,
nýjum áskorunum og nýjum mark-
miðum. Við gætum þess að hafa nóg
um að vera, hvar á leiðinni sem við-
komandi er staddur í þjálfuninni.“
Einnig nefnir Birgir að Boot
Camp bjóði upp á svokallaða fyr-
irtækjaþjálfun.
„Þá fara þjálfarar og stjórna æf-
ingu hjá hópi fólks af tilteknum
vinnustað. Sumir hafa til þess að-
stöðu í eigin húsnæði, aðrir leigja
einfaldlega aðstöðu til að hýsa æf-
ingarnar. Margar af æfingunum
okkar ganga út á samvinnu og sam-
eiginlegt átak, og hér er komið kjör-
ið tækifæri til að brjóta upp daginn
án þess að hópurinn sundrist. Þetta
þjappar starfsfólkinu saman og
styrkir móralinn, auk þess sem
kappið og krafturinn skilar sér í
framhaldinu inn á vinnustaðinn þeg-
ar kemur að því að fást við verkefnin
á hverjum stað. Við finnum fyrir sí-
auknum áhuga hvarvetna á landinu
og nú er svo komið að Boot Camp
rekur stöðvar undir eigin merki í
Keflavík, Akranesi, Akureyri,
Stykkishólmi, Hellu og Hvolsvelli,
Selfossi og Hveragerði. Viðtökurnar
sem við höfum fengið svo víða um
land eru í raun staðfesting á því að
boot camp býður upp á líkams-
þjálfun við allra hæfi,“ segir Birgir
að lokum.
jon.olason@gmail.com
Að geta meira en maður heldur
Undanfarin ár hefur svonefnd boot camp-þjálfun notið
vaxandi vinsælda hjá þeim sem vilja koma sér í form. En í
hverju felst sérstaða Boot Camp?
Morgunblaðið/Eggert
Boot camp
„Vissulega er
ákveðinn agi til
staðar en þess
er gætt að hann
sé með jákvæð-
um formerkjum
því agi sem brýt-
ur niður er
gagnslaus í lík-
amsþjálfun.“
Þjálfun „Boot
camp er svo sann-
arlega fyrir alla,“
segir Birgir Kon-
ráðsson.
Skipulegðu nýtt ferðaár
með Útivist
Ferðaáætlun Útivistar
er á utivist.is
Laugavegi 178, sími 562 1000, www.utivist.is