Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ I ðkendunum fjölgar jafnt og þétt. Í dag æfa um fimm hundruð manns klifur að stað- aldri og fer fjölgandi, þá ekki síst stelpunum sem leggja þetta sport fyrir sig,“ segir Stefanía Ragnheiður Ragnarsdóttir, rekstr- arstjóri Klifurhússins við Skútu- vog í Reykjavík. Þar hefur verið komið upp fyrirtaksgóðri aðstöðu fyrir þá sem vilja spreyta sig í klifri við hinar ýmsu aðstæður. Dæmigerður grjótglímuveggur Sífellt fleiri stunda klettaklifur utanhúss og ný klifursvæði finnast á hverju sumri. Því er af nógu að taka fyrir íslenska klifrara sem hafa tekið nýrri og sífellt betri að- stöðu fagnandi. Klifurhúsið var opnað árið 2002 og er þar til að mynda dæmigerð- ur grjótglímuveggur sem er mikið notaður til æfinga. Klifurfélag Reykjavíkur rekur Klifurhúsið og koma iðkendur, að sögn Stefaníu, ýmist sjálfir eða með hinum ýmsu hópum. Þá hefur klifurveggjum verið komið upp á nokkrum stöð- um öðrum á landinu, til dæmis í Skagafirði, á Patreksfirði og Þórs- höfn. „Þetta er íþrótt sem allir geta stundað. Hver finnur sér vegg við hæfi og getur hagað æfingum sín- um eftir því,“ segir Stefanía og bætir við að nokkuð sé um að til æfinga komi til dæmis ungliðar úr björgunarsveitunum sem vilji vera í sem bestri þjálfun til að aðstoða fólk úr prísund í þrítugum hamri. Flestir stundi klifur þó sem dægradvöl. Þar má til dæmis nefna þau Bryndísi Muller og Kjartan Jónsson sem nýlega tóku þátt í Norðurlandamótinu í klifri og náðu þau bronssætum í sínum flokki. Ögrun, þol og teygjur „Sumir eru að koma hingað til æfinga kannski þrisvar til fimm sinnum í viku. þetta er annars mjög góð alhliða líkamsrækt. Að lesa sig upp kletta kallar á tals- verða ögun; bæði er þetta spenn- andi og einnig þarf fólk að æfa þol og teygjur,“ segir Stefanía sem hefur tekið þátt í starfi Klif- urfélags Reykjavíkur sl. fimm ár. Farið til æfinga meðal annars á Spáni, í Sviss og eins hér heima – þar sem besta og skemmtilegasta aðstaðan er talin vera á Hnappa- völlum í Öræfasveit. Einnig vann hún Íslandsmeistaratitilinn í klettaklifri sextán ára og eldri þar sem keppendur príluðu upp hæstu hamra og höfðu úr tuttugu mis- munandi leiðum að velja. sbs@mbl.is www.klifurhusid. www.klifur.is Morgunblaðið/Eggert Príl Námskeiðin í klifurhúsinu eru vinsæl og sótt krökkum sem sýna frábæra tilburði, meira að segja svo Lilli klifurmús í Dýrunum í Hálsaskógi mætti vera fullsæmdur af. Hver finnur sér vegg við hæfi Um 500 manns stunda æfingar í Klifurhúsinu. Íþrótt fyrir alla að lesa sig upp þrítugan hamarinn. Unnið til verðlauna. Klifrari Iðkendum fjölgar, segir Stefanía Ragnarsdóttir í Klifurhúsinu. Hópur Klifur æfir meðal annars fólk í nýliðaþjálfun björgunarsveita. Fimi Klifur er góð alhliða líkamsrækt enda reynir á þol þegar fólk les sig upp veggi með handafli sínu einu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.