Morgunblaðið - 03.01.2011, Page 6

Morgunblaðið - 03.01.2011, Page 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ urmaraþoninu og byrjaði æfingar fljótlega eftir að heim kom,“ segir Kjartan. Þrjátíu kílómetrar Við æfingar fylgdi Kjartan mark- vissri áætlun með því að hlaupa allt upp í 30 kílómetra þrjá daga vik- unnar en stundaði þess á milli göng- ur, sund, golf eða aðra hreyfingu. „Ég fann að þetta gerði mér afar gott og þolið jókst jafnt og þétt. Jafnframt varð ég léttari á mér og fór á tímabili vel niður fyrir kjör- þyngdina,“ segir Kjartan sem hljóp að jafnaði um 130 kílómetra í mán- uði. Var því í góðum málum þegar kom að Reykjavíkurmaraþoninu í ágústlok í fyrra. Stefndi þar á að hlaupa 42 km á undir fjórum klukku- stundum sem tókst þó ekki. Í mark náði Kjartan á 4:40 klst. Síðdegið var minn tími „Umgangspest sem ég náði gerði líklega útslagið með að ég náði ekki þeim tímamörkum sem ég setti mér. Samt munaði ekki miklu,“ segir Kjartan. „Ég var kominn í form eftir stífar æfingar. Fyrst prófaði ég að fara út að hlaupa snemma morguns og á kvöldin sem hvorugt virkaði en síðdegið eftir vinnu reyndist minn tími, tíminn milli klukkan fimm og sjö á daginn. Fór gjarnan Sandgerð- ishringinn sem svo er kallaður hér í Keflavík; út í Garð og í Sandgerði og þaðan um Miðnesheiði hingað heim. Þetta eru 25 kílómetrar sem var al- veg passleg lengd. Stundum út í Hafnir eða suður á Reykjanes en hina leiðina miklu oftar. Að vísu setti það mig stundum út af laginu að vera á hlaupum á þeim tíma dags þegar margir stóðu heima á svölum við útigrillið. Sá ilmur vakti stundum með mér einhverjar freistingar sem mér tókst þó að standast. Að sjálf- sögðu,“ segir Kjartan Már sem á þessu ári ætlar að hlaupa hálft maraþon og miða æfingar sínar við það – en taka svo heilt maraþon aft- ur eftir fimm ár eða svo. sbs@mbl.is S jálfsagi og sterkur vilji skipta öllu vilji þeir sem stunda hlaup ná árangri. Sampil líkama og sálar er sterkt og sjálfur reyndi ég, þegar leið að keppnisdegi, að líkaminn taldi þetta ómögulegt. Sendi mér skilaboð um að hlaupið væri ókleifur múr svo ég lagðist í rúmið í fjóra daga með umgangspest. Ég komst þó fljótt á strik aftur og náði að hlaupa heilt maraþon eins og að var stefnt,“ segir Kjartan Már Kjart- ansson í Keflavík. Sprunginn eftir mánuð Kjartan er tæplega fimmtugur að aldri og hafði í tímans rás stundað almenningsíþróttir af ýmsum toga. Synti, gekk, fór á skíði og fleira slíkt en stundaði aldrei keppni. „Ég var líka einn af þessum sem keyptu sér stundum árskort í líkamsræktarstöð en var sprunginn á limminu eftir mánuð,“ segir Kjart- an sem árið 2008 fann að nú væri breytinga þörf. Byrjaði þá að hlaupa og hafði aðeins stundað æfingar um skemmri tíma þegar Bryndís Kjart- ansdóttir, jógakennari og þjálfari í Keflavík, stoppaði hann á förnum vegi. Kvaðst allt vilja fyrir hann gera – og útbjó áætlun sem gerði æf- ingar mun markvissari en ella hefði orðið. „Guðjón, sonur minn, sem býr í Reykjavík er á fullu í hlaupum og við höfum svolítið fylgst að í þessu. Hann tók í fyrra þátt í New York- maraþoninu sem jafnan er haldið fyrsta laugardaginn í nóvember. Ég fór með honum vestur til Bandaríkj- anna í fyrra og fannst gaman að upp- lifa umgjörð og einstaka stemningu þessa fjölmenna almenningshlaups. Ákvað því að taka þátt í Reykjavík- Úr einkasafni. Líkaminn taldi þetta ómögulegt Keflvíkingurinn Kjartan Már Kjartansson æfir hlaup af kappi. Maraþonmaður og hleypur eftir áætlun. Sandgerðishringurinn virkaði vel. Kynslóðir Kjartan Már og afastrákurinn Kristófer Orri Grétarsson að loknu maraþoninu síðastliðið sumar. Feðgar Hlaupagikkirnir Kjartan Már og Guðjón sonur hans. Árbæjarþrek • Fylkishöll • Fylkisvegur 6 • Selásbraut 98 Sími: 567-6471 • Visa- og MasterCard léttgreiðslur www.threk.is / threk@threk.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.