Morgunblaðið - 03.01.2011, Síða 14
E
kki er nóg með að hundar
séu yndislegir félagar heldur
er búið að sýna fram á með
vísindalegum hætti hversu
góð áhrif hundahald getur haft á
okkur mannfólkið.
Samkvæmt grein í tímaritiu Brit-
ish Journal of Health Psychology er
fólk sem heldur gæludýr almennt
hraustara en gengur og gerist. Að
eiga hund hefur síðan meiri jákvæð
áhrif en að eiga kött.
Þannig mælast eigendur hunda
að jafnaði með lægri blóðþrýsting
og kolesterólmagn og þeir virðst
sjaldnar kenna bæði minniháttar og
meiriháttar heilsukvilla.
Hreyfing og gleði
Ekki hefur tekist að benda á með
fullri vissu nákvæmlega hvað hund-
arnir gera til að stuðla að þessum
áhrifum. Sennilegasta kenningin er
þó sú að það að eiga hund leiði til
aukinnar hreyfingar, enda þarf að
fara reglulega í labbitúra með flest-
um hundum. Hundahaldið getur
líka aukið líkurnar á því að mynda
félagsleg tengsl við annað fólk sem
gerir andlegu heilsunni gott. Nær-
vera hundsins og ástúð kann síðan
að bægja frá streitu, sem einmitt
hefur annars neikvæð heilsuáhrif.“
Fyrir marga er hundur oft hvat-
inn sem þarf til að fara út að hreyfa
sig. Sumir láta það stöðva sig að
þeim leiðist t.d. að fara í göngutúra
einir síns liðs, og er hundurinn þá
ekki aðeins göngufélagi heldur get-
ur hann beinlínis veitt jákvæðan
þrýsting þegar hann lærir að biðja
um að fara út að labba.
Auðvitað á fólk ekki að fá sér
hund eingöngu heilsunnar vegna.
Að bjóða hundi inn á heimilið er
stórt skref sem ekki á að taka nema
að vandlega athuguðu máli og af
réttum ástæðum. En ef rétt er að
öllu staðið getur hundur breytt lífi
eigandans mjög til hins betra.
Fjölda hunda í heimilisleit má finna
á vef Dýrahjálpar Íslands, dyra-
hjalp.is
ai@mbl.is
Viltu bæta heilsuna?
Fáðu þér þá hund
Lægri blóðþrýstingur, bætt geðheilsa og minna um veikindi
Morgunblaðið/Eggert
Sprettur Hundum þykir gaman að hreyfa sig og tekst oft að smita eig-
andann af áhugamálinu svo báðir njóta góðs af.
S
kvassið er spennandi íþrótt
og reynir verulega á útsjón-
arsemi og hugsun iðkenda.
Það er því ekki að ástæðu-
lausu að hún hafi stundum verið
nefnd skák á hlaupum,“ segir Arnór
Jón Þorvarðarson hjá Skvassfélagi
Reykjavíkur.
Skvass í sólarhring
Föstudaginn 14. janúar næstkom-
andi efnir Skvassfélag Reykjavíkur
til sólarhringslangrar skvassveislu til
styrktar góðu málefni, sem kynnt
verður fljótlega.
Keppnin hefst umræddan dag
klukkan 16 í húsakynnum Vegg-
sports á Stórhöfða 17 í Reykjavík og
lýkur á sama tíma næsta dag.
Altis, sem er með Íslandsumboð
Polar púsl- og brennslumæla, hefur
lánað Skvassfélaginu átta púlsmæla
og verða tveir mælar fyrir hvern
skvasssal. Allir þeir sem spila þurfa
að bera púlsmæli og eftir átökin verð-
ur brennsla hvers og eins skráð. Bak-
hjarlar þessa viðburðar styrkja síðan
málefnið sem valið veður um krónu-
tölu jafna heildartölu brenndra hita-
eininga yfir daginn. Stefnt er að því
að brenna að minnsta kosti 100 þús-
und kaloríum.
Iðkendum fjölgar
„Hundruð Íslendinga stunda
skvass, fólk sem er mætir í æfingar
þá tvisvar til þrisvar í viku. Iðk-
endum fjölgar jafnt og þétt,“ segir
Arnór sem hefur stundað skvass í um
það bil tíu ár. Segist líka það vel, enda
höfði einstaklingsíþróttir til sín – og
þá sérstaklega skvassið sem krefjist
útsjónarsemi og snerpu af iðkendum.
sbs@mbl.is
Maraþon í skák á hlaupum
Morgunblaðið/Golli
Sveifla Skvass er íþrótt sem krefst þess að iðkendur séu útsjónarsamir. Í
hröðum leik er list halda vel að halda á boltanum og spöðunum
Hundruð stunda skvass,
íþrótt sem krefst útsjón-
arsemi af iðkendum. Mara-
þonmót í uppsiglingu.
14 | MORGUNBLAÐIÐ
!"
# $%&'
V
innuvernd var stofnuð um
mitt ár 2006, en stofnendur
fyrirtækisins höfðu starfað
á þessum vettvangi í fjölda-
mörg ár,“ segir Guðbjörg Helga
Birgisdóttir, hjúkrunar- og lýð-
heilsufræðingur hjá Vinnuvernd.
„Vinnuvernd sérhæfir sig á sviði
vinnuverndar, heilsuverndar og
heilsueflingar í fyrirtækjum, stofn-
unum og sveitarfélögum. Starfsem-
in beinist að stjórnendum, starfs-
mönnum og vinnuumhverfinu.“
Hjá Vinnuvernd starfa sér-
fræðilæknar, hjúkrunarfræðingar,
sjúkraþjálfari, vinnuvistfræðingur,
lýðheilsufræðingur og sálfræðingar.
„Fjölmörg fyrirtæki njóta þjónust-
unnar og hefur þeim fjölgað jafnt og
þétt, sem er ánægjuleg þróun í því
árferði sem nú ríkir. Við merkjum
aukið álag á starfsfólk almennt og
það getur haft slæmar afleiðingar á
andlega- og líkamlega heilsu og því
þurfa stjórnendur nú að vera sér-
staklega vakandi fyrir sínu fólki,“
segir Guðbjörg.
„Jákvætt er að stjórnendur í dag
eru meðvitaðir um mikilvægi þess
að efla mannauðinn því oftar en ekki
skilar sú vinna sér í betri afkomu
fyrirtækisins og ánægðara starfs-
fólki.“
Fjölbreytt þjónusta
„Þjónustan er margvísleg, í byrj-
un er oftast gerður samningur við
fyrirtækin um ákveðna þjónustu,
sem getur falið í sér
trúnaðarlæknisþjónustu eða fjar-
vistarskráningu. Vinnuvernd rekur
einnig Heilbrigðisþjónustuver þar
sem hjúkrunarfræðingar veita
starfsmönnum ráðgjöf um heilsufar
og lífsstíl í gegnum síma, auk þess
að bjóða upp á læknisfræðilega að-
stoð ef þess er þörf. Mánaðarlega
eru sendir út Heilsupóstar til fastra
viðskiptavina með það fyrir augum
að efla heilbrigði og auka vitund
starfsmanna um heilsu almennt, en
þeir innihalda fræðslu og umfjöllun
um heilsutengd málefni og vinnu-
umhverfi,“ segir Guðbjörg.
„Fyrir utan þessa föstu þjónustu
stendur stórum sem smáum fyr-
irtækjum til boða að kaupa stök
verkefni. Við bjóðum upp á úttektir
á vinnuaðstæðum, gerð áhættumats,
vinnuvistfræðilega ráðgjöf og bólu-
setningar fyrir ferðamenn. Þá eru
heilsufarsmælingar eða heilsufars-
eftirlit vinsæl þjónusta, en auk þess
aðstoðum við fyrirtæki við að skipu-
leggja heilsueflingu til langs tíma.
Algengt er að fyrirtæki kaupi
skyndihjálpanámskeið og á haustin
er farið í fyrirtæki og starfsfólki
boðið upp á bólusetningu gegn ár-
legri inflúensu og hefur sú þjónusta
mælst vel fyrir. Hjá Vinnuvernd
hefur fókusinn líka verið á andlega
þætti en í samstarfi við sálfræðinga
er boðið upp á álags- og streitu-
stjórnun, viðtalsmeðferðir, áætlun
gegn einelti á vinnustöðum og
áfallahjálp.“
Aukin afköst
„Tilgangurinn með þjónustunni
er að auka starfsánægju og árang-
ur, bæta öryggi og efla vellíðan og
heilbrigði starfsmanna. Heilsuefling
er góð fjárfesting sem skilar ávinn-
ingi til starfsmanna, jafnt sem
vinnustaðarins sjálfs,“ segir Guð-
björg.
„Við merkjum tvímælalaust ár-
angur af okkar starfi, ávinningur er
meðal annars fólginn í minni kostn-
aði vegna veikinda, fjarvista og
slysa, sem leiðir af sér minni starfs-
mannaveltu og aukin afköst starfs-
manna. Við greinum jákvæðara við-
horf stjórnenda og starfsmanna,
aukna ánægju og meiri vellíðan.
Segja má að starfsfólkið verði virk-
ari þátttakendur en áður og algengt
er að sjá hugarfarsbreytingu hjá
einstaklingum og jafnvel öllum
vinnustaðnum. Starfsfólkið verður
meðvitaðara um eigin heilsu og
vinnuumhvefi sitt.“
birta@mbl.is
Heilsuefling er
góð fjárfesting
Tilgangurinn með þjónustu
Vinnuverndar er að auka
starfsánægju og árangur,
bæta öryggi og efla vellíð-
an og heilbrigði starfs-
manna á vinnustöðum,
segir Guðbjörg Helga Birg-
isdóttir, hjúkrunar- og lýð-
heilsufræðingur.
Morgunblaðið/Ernir
Vinnuvernd Guðbjörg Helga Birgisdóttir og Hrefna Húgósdóttir starfa
hjá Vinnuvernd þar sem boðið er uppá fjölbreytta þjónustu.