Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 11

Skátablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 11
að kanna skaflinn. Reyndist liolt undir þar sem Bósi krafsaði. Þótti víst aö snjórinn hefði bráðnað þar af líkamshita kinda, sem lægju undir fönninni. Var þá tekið til ó- spiiltra málanna að grafa. Ég dró ekki af mér, fremur en aðrir, þó að smár væri. Þarna fundust ellefu kindur í hóp. Tvær af þeim, sem yztar lágu, vöru dauðar, en hinar allar lifandi. Mjög vorii þær þrekaðar af liungri og illri aðbúð. Höfðu ])ær étið ull hver af annarri, og bletturinn sem þær lágu á, var nagaður niður í mold. Þrjár- þeirra gátu ekki staðið, þegar þær voru teknar upp úr gröfinni. Meðal þeirra var veturgamla ærin mín. Klaufirnar höfðu dottið af einum fætinum á henni, auk þess sem hún var þrekuð af hungri og vosbúð. —- Tíu af kindum þessum voru frá Innsta- dal, en önnur sú dauða frá hæsta bæ. Kindunum var draslað heim og hlynnt að þeim eftir föngum. Ég fékk volga mjólk handa ánni minni hjá mömmu. Hún drakk mjólkina með góðri lyst, og hrestist brátt svo, að hún gat glefsað i töðuhár, sem henni var gefið. Ekki stóð hún upp fyr en eftir eina tvo daga.Þá fór hún að brölta um á.þremur fótum, en tyllti ekki í klauflausa fótinn. Höfðum við bundið um hann , til þess að verja kvikuna fyrir óhreinindum. Fyrst vorum við smeikir um, að lóga yrði ánni, vegna klaufamissisins. En brátt fóru nýjar klaufir að myndast. Greri hún þannig smátt og smátt, og hresstist um leið, og varð loks heil heilsu, er fram kom á vet- urinn. Var henni nafn gefið og nefnd Fönn. Þótti það sannnefni, þó að ekki væri hún fannhvít á ullarlit. Við Fönn urðum iniklir og góðir vinir, í öllu þessu umstangi. Ég hjúkraði henni eftir föngum, og gaf henni margan bitann. Hún varð mjög hænd að mér, kom undir eins til mín, er ég kom inn í húsið, og gætti að, hvort ég hefði ekki eitthvert góð- gæti meðferðis. Komst hún brátt að því, að ég bar slíkt í vösunum, og leitaði í þeim, ef ég tók ekki bitann upp undir eins. Þá þótti henni ósköp gott að láta mig klóra sér á bak við eyrun og á bringunni. — Ekki skipti liún sér af öðru heimafólki en mér, enda sýndu ekki aðrir henni sérstaka blíðu. Vorið eftir eignaðist Fönn mín lamb og hélt sig með það um sumarið í heiðar- brekkunni i grennd við bæinn. Við hitt- umst þá alltaf annað veifið. Ég kallaði á hana með nafni, ef ég sá til hennar. Kom hún þá jafnan hlaupandi til min, og hristi höfuðið, er hún nálgaðist mig. Lagðist ég þá oftast niður i lyngið, og hún hjá mér, og ég klóraði henni og strauk. Lambið varð ósköp gæft líka, og lá oftast hjá okkur. Svo liðu tímar, þar til ég varð fjórtán ára gamall, og var fermdur. Vinátta okkar Fannar var alltaf söm. Að lokinni fermingunni fór ég að heim- an, alllangt burtu. Kom ég ekki heim i nærri tvö ár, nema snöggva ferð að sum- arlagi, og sá þá ekki Fönn. Svo var það á útmánuðum anjian vetur- inn, sem ég var að heiman, að stjúpi minn veiktist hastarlega, og varð að flytja hann í sjúkrahús i næsta kaupstað. Var ég þá kallaður heim til þess að vinna að gegn- ingum og öðrum bústörfum. Þegar ég kom heim, hafði Dóri í Miðdal, bernskuvinur minn og leikbróðir, verið þar hálfsmánaðartíma og hirt féð. Varð fagna- fúndur, er við hittumst, og þurftum við margs að spyrja hver annan. Eitt hið fyrsta, sem ég spurði hann, var hvernig Fönn minni liði. Hann þekkti hana og vissi, hvað mér þótti vænt um hana. „Fönn er frísk og í góðum hoIdum“, sagði liann. „En hún er svo stygg og mannfælin, að ég hef aldrei getað fengið hana til þess að þiggja bita. Hún hefur verið svona, sið- an þú fórst“. Ég fór með Dóra út til þess að hýsa féð um kvöldið. Þegar ég sá Fönn mína á holt- inu sunnan við túnið, kallaði ég til hennar með nafni, eins og ég hafði verið vanur að gera. Hún leit þegar upp, horfði á mig um stund, og tók svo á rás til mín á harða stökki. Skammt frá mér nam hún staðar og liorfði á mig aftur, hljóp svo til mín, þefaði af mér og flaðraði svo upp um mig eins og glaður hundur. Elti hún mig svo og veik ekki frá mér, fyrr en ég lokaði hana inni í ærhúsinu. — Daginn eftir elti hún mig lieim að bæ og inn í baðstofu. Þangað hafði hún aldrei komið fyr. Það leyndi sér ekki, að hún þekkti mig, eftir hérumbil tveggja ára skilnað, og ætl- aði ekki að sleppa mér frá sér aftur. DRENGJAJÓL 11

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.