Skátablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 16
Fréttir úr skátalífinu.
30 ára afmælis Skátahreyfingarinnar á
fslandi minnst.
Mánudaginn 2. nóv. s.l. var haldið sam-
sæti, í Oddfello-whöllinni í Reykjavík, til
minningar um 30 ára starf skátafélaganna
á íslandi. Mikill fjöldi eldri og yngri skáta
sat hófið.
Björgvin Þorbjörnsson, félagsforingi Skáta-
félags Reykjavíkur stjórnaði hófinu. Ræður
fluttu: skátahöfðingi dr. Helgi Tómasson,
Leifur Guðmundsson, Ása Friðriksdó’ttir,
Helgi S. Jónsson og Jónas B. Jónsson.
Einsöng sungu: Guðmundur Jónsson og
Kristján Guðlaugsson, en Einar Markússon
lék einleik á píanó. Þá afhenti skátahöfðingi
1. flokki, 1. sveit, 2. deildar Skátafélags
Reykjavíkur verðlaun fyrir sérprófasam-
keppni árið 1941. Hafði flokkurinn lokið
24 sérprófum á árinu 1941. Flokksforinginn
var Sigurgeir Guðjónsson, sveitarforinginn
Ástvaldur Stefánsson en deildarforingi Páll
H. Pálsson.
Störf Skátafél. Húsavíkur veturinn 1941-1942.
Vetrarstörfin hófust um miðjan október.
Síðan hafa fundir verið mjög reglulega,
flokksæfingar einu sinni í viku, og sveita-
fundir hálfsmánaðarlega. í félaginu er/ ein
sveit, og í henni eru 3 flokkar. Alls eru í
félaginu 26 drengir. Um miðjan nóvember
kom hingað hr. Jón Oddgeir Jónsson og
hafði námskeið í Hjálp i viðlögum. Tóku
þar þátt í allir skátarnir. Þá var sendur
fulltrúi á námskeið það, sem B.Í.S. hélt
fyrir skáta víðsvegar af landinu. Var sú
för kostuð af Bandalaginu að öllu leyti.
Fyrir skömmu hafa kven- og drengjaskátam-
ir, ákveðið skátabyggingu. Er búið að gera
uppdráttinn, og kaupa skúr, sem úr má
fá mikinn efnivið. Er mikill áhugi ríkjandi
meðal skátanna, um þetta mál. Sýna þorps-
búar mikinn skilning á málinu og hafa á
fám dögum gefið um kr. 500.00. Auk þess
munu drengirnir róa á sjó, leggja aflann
inn og verja peningunum til skálans. Er
ákveðið að vinna að byggingunrii í sumar
og vera búið að koma húsinu upp fyrir
veturinn. Þá er búið að festa kaup á efni
i búninga, og saumakona fengin til þess
að sníða þá, en saumaðir verða þeir hjá
skátunum hverjum og einum. Nú standa æf-
ingar yfir, fyrir hina venjulegu samkomu
á sumardaginn fyrsta.
Með skátakveðju
Stefán Sörenssoii.
Aths. Ofanritað barzt eltki fyrr en sið-
asta Skátablaðið var fullprentað og birtist
því nú ásamt nýjum fregnum af sumarstarf-
inu.
Frá Húsavík.
Starf skátafélaganna í Húsavík í sumar
hefur einkum verið fólgið í því, að koma
upp skátaskála suður i Aðaldalshrauni, ca.
15 km. frá Húsavik. Er sá staður mjög fag-
ur, og sérstaklega vel fallinn til allrar
skátastarfsemi.
Áhugi fyrir þessari byggingu er mjög
mikill og hafa margir skátarnir unnið mik-
ið við skálann í fristundum. Er hann nú
orðinn fokheldur og verður ekki unnið
meira við hann í sumar. En næsta sumar er
ákveðið að ljúka verkinu. Stærð skálans er
ca. 7x5 m. Verður í honum stór stofa, eld-
hús og forstofa. Auk þess verður i honuin
svefnloft. Bygging þessi verður alldýr, en
við erum bjartsýnir um það að geta klof-
ið kostnaðinn. Hafa skátarnir verið ötulir
að safna fé með ýmsu móti, t. d. samkom-
um, merkjasölu, frjálsum samskotum o. fl.
Og nú síðast hefur verið ákveðið að stofna
til happdrættis.
Nokkrar útilegur hafa verið farnar í
sumar,
Sept. 1942.
Skátablaðið óskar Skátafélagi Húsavíkur
til hamingju með skálann og þann dugnað
og áhuga, sem lýsir sér í öllu starfi þeirra.
Er gott til þess að vita, að skátar vinni af
slikum þrótti og einlægni.
J. S.
•_
16
DRENGJAJÓL