Skátablaðið - 01.12.1942, Síða 26
Bókband ...................... 2
Heimilisiðnaður .............. 1
Túlkur ....................... 1
Alls 75
Ylfingur:
Sárfætlingapróf ................. 14
1. stjarna ..................... 14
2. stjarna ..................... 10
Alls 38
Sérpróf:
Húsræsting ...................... 7
Útilegur ........................ 1
Sund ............................ 1
Alls 9
Göngumerki:
70 km........................ 1
50 km........................ 18
Alls 19
Alls voru nemendur 47, en þar af sex,
sem ekki dvöldu allan timann. Af þeim
voru 14 ylfingar en 33 skátar. í síðari töl-
unni eru meðtaldir þeir, sem tóku nýliða
próf fyrir austan.
Sunnudaginn 12. júlí var skátamessa í
Úlfljótsvatnskirkju. Biskup íslands, herra
Sigurgeir Sigurðsson, kom austur og mess-
aði. Var kirkjan fullskipuð skátum. 18
drengir unnu skfftalieit sitt í kirkjunni.
Kvöldvökur:
Vegna veðurfars hér á landi og eldsneyt-
isskorts, er sjaldan þægilegt að hafa varð-
elda úti, enda aldrei eins skemmtilegt um
sumartímann, þegar bjart er.Það var því
tekinn sá kostur að hafa varðeld inni, eld-
lausan, og var sú samkoma kölluð kvöld-
vaka. Þær fóru fram með Iíku sniði og
varðeldar.
Þessar kvöldvökur voru oftast tvisvar í
viku. Nokkrir drengir sáu oftast um kvöld-
vökurnar og mynduðu félag og hét það
Rauðkollur. Skiptust þeir á um að stjórna
kvöldvökunum og fórst það yfirleitt vel úr
hendi. Nokkrum sinnum höfðuni við þó
varðelda, annaðhvort úti eða inni í stóra
tjaldinu og stjórnaði Páll Gíslason þeim.
Ég vil svo enda þessa skýrslu með því að
þakka foreldrum drengjanna, skátum og vel-
unnurum skátastarfsins, er heimsóttu olck-
ur austur og veittu okkur stuðning og styrk
á einn eða annan hátt. Sömuleiðis á Bif-
reiða-stöð íslands þakkir skilið fyrir lip-
urð og hjálpsemi við flutning, bæði á fólki
og vörum.
Jónas B. Jónsson.
Orengjabák
Drengir, sem vaxa, eftir Aðalstein Sig-
mundsson.
Aðalsteinn Sigmundson sendir nú frá sér
drengjabók, sem hlýtur að heilla alla drengi,
sem lesa hana. Þetta eru 17 sögur, sumar
frumsamdar en aðrar þýddar. Sögurnar eru
með snilldarbrag. Hver og ein saga ber í
sér ákveðið markmið. Þarna eru á ferðinni
drengir, sem vaxa. Hver saga lýsir dreng
eða drengjum, sem lenda í ýmsum þrautum
eða ber vanda að höndum, og þeir leysa úr
viðfangsefnunum á hugnæman hátt. Þeir
vaxa á því, hvernig þeir koma fram og
starfa. En auk þess er frásögn Aðalsteins
svo ljós og heillandi, að hver drengur, sem
les bókina, hlýtur að vaxa á því að lesa
hana. Aðalpersóna hverrar sögu verður
vinur lesandans, sem hann dáist að. Málið
á bókinni er ágætt. Hér er bók, sem allir
skátar þurfa að lesa.
Jón Signrðsson.
26
DRENGJAJÓL