Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 29

Skátablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 29
5. Vita hvað gera skal við helztu gas- slysum (bruni, köfnun). 6. Binda meS bindum um olnboga, upphandlegg, öxl, eyra, hné, læri, mjöðm. 7. Lýsa meðferð á aðskotahlutum í auga og eyra. 8. Lýsa meðferð á sting í brjósti og kviðarholi. 9. Lýsa hvernig flytja má særðan mann. 4) Kunna morse-stafrófið skrifað. 5) Þekkja öll merki á landabréfum her- foringjaráðsins, 1:250,000. Geta krotað upp landabréf af minnst 5 ferkm. stóru svæði í nánd við heim- kynni sín. (Sýna réttta lcompásátt á korti án þess að nota kompás). Þekkja 32 kompásáttir). 6) Kunna stuttsplæs og gera fyrir enda. 7) Matreiðsla: Matbúa á prímus 2 af eftirfarandi 8 réttum, t. d.: 1. Hafragraut. 2. Ávaxtagraut (úr þurrk. ávöxtum). 3. Soðnar kartöflur. 4. Soðið kjöt. 5. Steikt kjöt. 6. Soðinn fisk, nýjan. 7. Steiktan fisk. 8. Soðinn saltfisk. Gera áætlun um hvað þarf af mat í vikulokaferð skátaflokks. 8) Ferðalög: Hafa tekið þátt í minnst 5 útilegum í tjaldi. Kunna að velja tjaldstað og tjalda. 9) Athygli: Geta lýst manni eftir að hafa horft á hann í % mínútu. 10) Hafa stjórnað flokksfundi. Frá skátafélaginu Faxi, Vestmannaeyjum. 22. febrúar 1943 verður þetta merka skátafélag 5 ára. Mun þessa afmælis rækilega minnst í næsta blaði. Flokkur sveitarforingja. í sumar stofnuðu áhugasamir sveitarfor- ingjar skátasveitanna í 2. og 4. deild Skáta- félags Reykjavikur með sér flokk. Flokkinn nefna þeir Næturgala. Sóttu þeir um leyfi bandalagsstjórnar- innar til þess að fá að bera einkennismerki flokksins á skátabúningnum. Merkið er venjulegt rautt flokksmerki með tveimur grænum deplum (sveitarforingjamerkjum). í sumar hafa foringjar flokksins lært und- ir 1. flokks prófið og hafa farið í úli- legur, þar sem æfð hafa verið hin ýmsu atriði fyrsta flokks prófsins. Flokksforingi flokksins er Eiríkur Jónas- son, en meðlimir flokksins eru 5. Nýstofnað skátafélag Skátafélag var stofnað á Patreksfirði i sumar, 22. júní, og hlaut það nafnið Sam- herjar. Stofnendur voru 7 þrettán ára drengir, sem starfa undir forustu Jónasar Magnús- sonar skólastjóra. Félagið sótti þegar um inngöngu í B.Í.S. 1 sumar hafa þeir allir lært undir og tek- ið nýliðapróf. Við stofnunina aðstoðaði félagsforingi skátafélagsins Stafnverjar, Sandgerði, Valdi- mar Össurarson skólastjóri. Skátablaðið býður þetta unga félag vel- komið í B.I.S. og árnar því allra heilla í framtíðinni. Skátablaðinu hafa horizt tvö fjölrituð blöð, bæði frá Völsungum, Laugarnesskóla. Annað er innanfélagsblað og heitir And- vari, en hitt er flokksblaðið Örninn. Andvari er fjölritaður á stensilfjölritara en Örninn' er skrifaður (hektogiaferaður). Ritstjórar eru Pétur Pálsson og Hallgrimur Lúðvígsson. Rausnarleg gjöf til B.Í.S. Heildverzlunin Edda H/f, Reykjavík, sendi B.Í.S. kr. 500.00 að gjöf á 30 ára af- mæli íslenzkra skáta þann 2. nóv. s.l. Bandalagið þakkar þessa rausnarlegu gjöf. DRENGJAJÓL 29

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.