Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 10
Ferðbúnir á verkfallsvakt. Frá vinstri: Hjördís Alda Hjartardóttir, póstafgreiðslumaður,
Jón Helgason, yfirdeildarstjóri, sem aldrei lááliðisínu, þegar manna þurfti verkfallsvörslu,
Birgir Jakobsson, fulltrúi og Þorsteinn Kristjánsson, fulltrúi.
okkur enn nær sultarmörkum ef ekk-
ert hefði verið að gert, og í samningn-
um fengust ýmsar lagfæringar, sem
eru varanlegar og verður ekki átaka-
laust kippt til baka.
STÆRSTI ÁVINNINGUR-
INN FÉLAGSLEG EFLING
OG SAMSTAÐA
Og stærsti ávinningur þessa verk-
falls er félagslegur: stéttarvitund
vaknaði af dvala, við fundum til
samtakamáttarins, við, hvert og eitt,
vorum hluti stærri heildar, sem beitti
samstilltu átaki. Við unnum saman,
hvar sem við vorum á landinu, fólk
ólíkra starfsgreina, með ólík viðhorf,
kynntist persónulega, bast vináttu-
böndum, fékk skilning á aðstöðu og
þörfum hvers annars.
Ég held að hafi einhver áður efast
um gildi BSRB - samtaka opinberra
starfsmanna, þá hljóti sá hinn sami að
hafa sannfærst um það að verkfalli
loknu, að nú þurfi fremur en nokkru
sinni fyrr að efla það og styrkja, og
þar þurfi hver og einn innan þess
vébanda að leggja skerf af mörkum.
TVENNT, SEM EKKI
MÁ GLEYMAST
í þeirri úttekt, sem ég hef áður
minnst á má tvennt ekki gleymast,
þ.e. útgáfumál og verkfallssjóður.
Það var tilfinnanlegt í haust hversu
mjög BSRB skorti málgagn. Ásgarð-
ur, svo góður sem hann er í sínu
formi, gat ekki fullnægt þörf um
upplýsingastreymi. Og eftir að verk-
fall hófst og áður en BSRB-tíðindi
fóru að koma út var eins og þögn og
þoka yfir öllu. Útgáfa þeirra ger-
breytti öllu og varð ómetanlegt afl í
verkfallinu. Þessvegna hljóta útgáfu-
mál að verða meðal þess, sem nauð-
synlegt telst í undirbúningsáætlun fyr-
ir næstu átakalotu.
Verkfallssjóður var félítill í upphafi
verkfalls, en efldist nokkuðmeð fram-
lögum frá innlendum og erlendum
stuðningsaðilum. Þökk sé þeim. Það
reyndi á það nú hvert gildi verkfalls-
sjóður hefur þegar til langvarandi
átaka kemur. Og nú þarf enginn að
halda að á næsta þingi BSRB fari
langur tími í þjark og deilur um það
hvort verkfallssjóður skuli fá sín
framlög, eða hvort fella eigi þau
niður, eins og skeði á síðasta þingi.
Nú er spurningin sú hvernig aflað
verði fjár í verkfallssjóðinn, og sýnist
10 PÓSTMANNABLAÐIÐ
mér að helst sé til ráðs að leggja
aukaskatt á alla félaga BSRB til að ná
sjóðnum upp á sem skemmstum tíma.
Þetta sýnist eflaust hörð tillaga, en
hitt blasir við að án öflugs verkfalls-
sjóðs stöndum við í upphafi verkfalls
eins og sá, sem engan bakhjarl hefur,
ekkert til að styðjast við, ekkert til að
treysta á. Framlag í verkfallssjóð er
kannske hvorki „TROMP" eða
„ÁBÓT“ hvað vexti snertir, en örugg-
lega gott iðgjald af tryggingu, sem
allir óska þó að aldrei þurfi að koma
til greiðslu.
HÆTTUM AÐ HLAUPA
Á BANDINU
Þegar litið er til baka, lengra svið
en 1984 spannar, og kjarabaráttan
skoðuð úr fjarska, þá sýnist manni
áberandi hvað áfangasigrarnir eru
smáir og skammvinnir. Launþega-
hreyfingin stendur í stað í besta falli
stuttan tíma, en togast svo til baka.
Þetta er eins og að hlaupa eftir
færibandi á hreyfingu. Ef beitt er afli
og tekinn sprettur ávinnast nokkrir
metrar, sé slakað á örlítið ber bandið
mann fljótt langt til baka.
Þetta undirstrikar hina stöðugu bar-
áttu milli þeirra, sem selja vinnuafl
sitt og hinna, sem ráða yfir eða eiga
atvinnutækin og kaupa vinnuaflið.
Hversu átökin verða hörð fer eftir
ýmsum ástæðum, en í grundvallar-
atriðum er enn í fullu gildi kenningin
um stéttarbaráttuna, um skiptingu
auðs og arðs, og aðferðirnar, sem
beitt er gegn þeim, sem ekkert eiga
annað en afl huga og handa að selja.
Þetta ættum við félagar í BSRB að
hafa í huga. Samstaðan í verkfallinu í
október 1984 var dýrmæt reynsla,
sem við verðum að draga mikinn
lærdóm af. Við megum vera stolt af
samtökum okkar og forystumönnum,
sem leiddu þetta annað verkfall í sögu
samtakanna með reisn og sæmd og
það var reynt til þrautar að ná sem
bestum árangri.
Og minnug samstöðunnar held ég
að holt sé að rifja upp gamla og góða
kjörorðið, sem er enn og alltaf í fullu
gildi: Sameinaðir stöndum vér —
sundraðir föllum vér!
Megi það verða okkur öllum
hugstætt.
Innilegar þakkir færi ég starfsfólki
Pósts og síma fyrir fallega gjöf og
góðar óskir í tilefni af fimmtugsafmæli
mínu 26. janúar sl.
Jón Ármann Jakobsson
skólastjóri