Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 16

Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 16
nefndu leiða; símvirkjanám, símrit- aranám, ritsímaritaranám, línu- mannsnám og póstafgreiðslumanns- nám. Þar að auki eru haldin nám- skeið fyrir póstafgreiðslumenn I (þ.e. fyrir bréfbera, sorteringsfólk og póst- bílstjóra) og landpósta. Einnig eru haldin framhaldsnámskeið fyrir fyrr- nefndar námsleiðir. Segja má að nú séu til námsleiðir fyrir flestar starfs- greinar hjá stofnuninni. Auk þess hafa verið og eru haldin ýmis önnur fagleg námskeið á vegum skólans fyrir ýmsa starfshópa. Á þessu má sjá að starfsemi skólans er orðin um- fangsmikil og á síðasta ári stunduðu 248 nemar nám við skólann. Það lætur nærri að vera 11% af starfs- mönnum stofnunarinnar. Stunda- kennarar voru 60 og kennslustundir urðu alls 5300. í dag verða afhent 197 prófskírteini. BETRI OG HÆFARI STARFSMENN Hafa verður í huga, að skólinn er fyrst og fremst settur á stofn til að mennta starfsmenn stofnunarinnar hvern á sínu sviði, þanmg að þeir verði betri og hæfari starfsmenn og þess verðir að fá betri laun og skili þá þeim árangri sem nám þeirra var stofnað til. Einnig er það mikilvægt fyrir starfsmann að hafa staðgóða þekkingu um þá stofnun, sem hann vinnur við, að vita tilgang starfsins til þess að hafa ánægju af því og veita viðskitpavinum lipra og góða þjón- ustu. FJÖLDI ÚTSKRIFAÐRA í dag verða afhent prófskírteini til eftirtalinna hópa: 1 póstafgreiðslu- maður 1,18 póstafgreiðslumenn II, 16 yfirpóstafgreiðslumenn, 32 skrifstofu- menn, 49 talsímaverðir, 12 ritsímarit- arar, 21 línumenn, 15 símasmiðir, 21 símvirkjar, og 12símvirkjameistarar. Alls eru þetta 197 skírteini. Hafa þá verið afhent 1550 skírteini frá skólanum frá því það var fyrst gert 1970. Nú í haust gat starfsemi skólans ekki hafist fyrr en í byrjun nóvember vegna óviðráðanlegra aðstæðna og varð því að endurskipuleggja alla kennsluáætlun vetrarins, þannig að skólinn verður þéttsetinn fram í júní. Vetrarstarfið hófst með því að 2. bekkur símvirkjanema og 1. bekkur póstnema byrjuðu 5. nóvember, en alls er gert ráð fyrir 13 hópum þetta skólaár. Sú umfangsmikla starfsemi sem var við skólann á síðastliðnum vetri hefði ekki verið möguleg nema góð sam- vinna sé með kennurum og starfs- mönnum stofnunarinnar, því þangað verður m.a. að leita eftir kennslu- kröftum. Vil ég nota hér tækifærið og þakka gott og farsælt samstarf á liðnu ári og óska þess að góð samvinna haldist í framtíðinni sem hingað til. Ég þakka nemendum ánægjulega við- kynningu og óska þeim til hamingju með þann árangur sem þeir hafa náð á vegum skólans og óska þeim góðs gengis í framtíðinni. T Látnir félaqar Kristján Sigurðsson póstfulltrúi F. 27. maí 1892 D. 23. nóvember 1984 Kristján Sigurðsson starfaði ífjölda ára á Endurskoðun póstávísaná og var þar full- trúi þar til hann lét afstarfi árið 1962. Þegar Lífeyrisþegadeild PFÍ var stofnuð árið 1979 tók Kristján sœti ístjórn deildarinnar. í minningargrein Tónlistarfélagsins um Kristján segir: „Kristján gerðist þá einn aj tólf stofnfélögum Tónlistarfélagsins. Hann var að eðlisfari hlédrægur og vildi lítt hafa sig í frammi, en fastur fyrir og fylginn sér þegar á reyndi. Hann varfús til starfa þegar til hans var leitað og fór allt vel úr hendi, sem hann tók að sér. Hann var ritfœr í besta lagi ogfróður vel ogþví hinn nýtasti félagi. “ Guðmundur Þórðarson yfirpóstafgreiðslumaður F. 17. júní1916 D. 19. október 1984 Guðmundur Pórðarson var fœddur að Bœ í Hrútafirði 17. júní 1916. Hann flutti til Reykjavíkur árið 1941 og hóf störf sem bréfberi hjá Pósti og síma árið 1951. Hann starfaði lengi á R-1 og Bögglapóststofunni en síðustu árin á Tollpóststofunni. Guðmundur var mikill bókamaður. Hann gaf sjálfur út bœkur og skrifaði. Einnig hafa birst eftir hann sögur og ritgerðir í blöðum og útvarpi. Síðasta Ijóðabók Guðmundar „Horft í myrkrið" kom út árið 1979. Pétur Guðmundsson póstafgreiðslumaður F. 13. apríl 1912 D. 19. maí 1985 Pétur fœddist 13. apríl 1912 að Sœnauta- seli i Jökuldalshreppi. Hann stundaði nám t Kennaraskóla íslands og var kennari i Sandgerði í nokkur ár. Síðan fékkst hann við ýmis störf, einkum við bólstrun, sem hann lagði stund á. Pétur þótti mjög van.dvirkur og hœfur bólstrari. Árið 1955 kom Pétur til starfa hjá póst- þjónustunni. Fyrst sem bréfberi á Pósthús- inu í Pósthússtrœti ogþegar póstútibúið við Hlemm var opnaðflutti hann sig þangað og var þar bréfberi og póstafgreiðslumaður síðustu árin, þar til hann lét af störfum árið 1980. 16 PÓSTMANNABLAÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.