Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 20

Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 20
Pálína Ármannsdóttir, póstvarðstjóri: STUTTFERÐASAGA Tildrög þess að ég settist niður og fór að skrifa þessa þanka voru þau, að mig langaði að koma fram þakklæti, þó seint sé, til Flugleiða fyrir ferðavinning sem ég hlaut 1983 á árshátíð Póstmannafélagsins. Við hjónin fórum á árshátíð félagsins, hina ágætustu skemmtun, en eins og allir vita geta eftirkost eftir svona árshátíðir orðið margvísleg. En hjá mér urðu þau á þann veg, að ég vaknaði upp með nokkur listaverk (5 stk.) og svo aðalhappdrætt- isvinning kvöldsins, flugfar innanlands fyr- ir tvo að eigin vali með Flugleiðum. Að vakna upp á sunnudagsmorgni eftir ball með hálft listaverkasafn og flugmiða kemur ekki fyrir á hverjum degi og tók nokkra stund að átta sig á ósköpunum. Pví var það að við notfærðum okkur ekki miðana fyrr en síðla árs. Og til að gera langa sögu stutta ákváðum við að fara til Bolungarvíkur í fertugsafmæli góðvinar okkar. Við flugum með einum Fokkernum til ísafjarðar í blíðskaparveðri, en þau ný- mæli voru viðhöfð um borð í flugvélinni og vonandi er svo enn, að fólki var boðið uppá kaffi og kökur og var það mjög vel þegið. Við dvöldum í Bolungarvík í tvo daga í góðu yfirlæti. „En allt regn styttir upp um síðir“. Eins var með þessa ferð og var þá flogið síðdegis frá ísafirði til Reykjavíkur. Þetta var stórkostleg ferð í alla staði. Þökk sé skemmtinefndinni og Flugleið- um. Úr afgreiðslusal R-ll. Valdís Vilhjálmsdóttir, fulltrúi fyrir miðju og henni sín til hvorrar handar eru Guðrún L. Guðmundsdóttir, póstnemi og Þórdís Björnsdóttir, póstafgreiðslu- maður. 20 PÓSTMANNABLAÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.