Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 22

Póstmannablaðið - 01.09.1985, Page 22
Árshátíð PFÍ1985 Árshátíð Póstmannafélagsins var haldin laugardaginn 9. febrúar sl. Póstmenn af höfuðborgarsvæðinu og víðar fjölmenntu til hátíðarinnar sem þótti í alla staði takast mjög vel. Hjördís Alda Hjartardóttir setti hátíðina og bauð gesti velkomna fyrir hönd skemmtinefndar. Sigrún Sturlu- dóttir, veislustjóri tók síðan völdin í sínar hendur og hélt þeim með reisn þar til dansinn tók yfir og dunaði langt fram eftir nóttu. Mjög var vandað til skemmtiatriða sem þóttu frábær og augljóst var að mikil vinna lá að baki þeirra. Þorbjörg Kvaran flutti annál ársins og þótti hún leysa það vel og skemmtilega af hendi. Þorbjörg kom víða við í starf- semi félagsins á árinu. „Póstkvinnur“ sungu af sinni alkunnu snilld, frumort- ar vísur um póstinn og helstu stjórn- endur hans. Hópur ungra póstmanna sýndi ótvíræða leikhæfileika og góð tilþrif við flutning frumsamins leik- þáttar um starf og starfsaðstöðu póstmanna. Var þar brugðið upp ýmsum athyglisverðum og hnitmiðuð- um atriðum úr starfsreynslu bréfbera. Halli og Laddi fluttu hefðbundinn grínþátt. Sitthvað fleira var til skemmtunar, en eins og fyrr segir þótti árshátíðin takast mjög vel. Skemmtinefnd PFÍ bað ritstjórn blaðsins að koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu við undirbúning árshátíðarinnar og lögðu sitt af mörkum til að gera hana að þeirri árshátíð sem stefnt var að; Sigrúnu Sturludóttur, veislustjóra, Þorbjörgu Kvaran, annálsritara, póst- kvinnunum „JEGAS“, leikhópnum, fyrirtækjunum Velti og Heildverslun Rolf Johansen sem gáfu happdrættis- vinninga, kokkum og framreiðslu- fólki sem sáu um matinn, sem bæði var góður og vel fram borinn, og loks öllum gestum, fyrir komuna. Nokkrir þeirra semjengu nafnbót á árinu 1984 og voru kallaðir fram á árshátíðinni. Frá vinstri. Gísli Jón Sigurðsson, útibússtjóri R-5, Haraldur Karísson, stöðvarstjóri í Grindavík, Björn Björnsson, póstmeistari og Birna Jakobsdóttir, stöðvarstjóri Garðabœ. Sigríður Hansdóttir segir einn góðan. Talið frá vinstri: Erla Björnsdóttir, Sigriður ogjenný Jakobsdóttir. Frá vinstri: Ingveldur Bjarnadóttir, í stjórn PFÍ, Þorbjörg Kvaran og Þórdís Guðjóns- dóttir, kona Þorgeirs formanns PFÍ. Frá vinstri: Pétur Pétursson, verkstjóri, Sigrún Stefánsdóttir, R-1 og Jódís Birgis- dóttir R-l. Veislustjóri Sigrún Sturludóttir. 22 PÓSTMANNABLAÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.