Morgunblaðið - 15.03.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011
Sudoku
Frumstig
6 9 8
1 6 5
4 7 9 6
1
3 7
9 4 8
5
6 8 1 9 3
8 3 5 4
1 3 9
6 7 9 1
9 5 6 4 3
3 9
8 7 6
5 4 9
1 4 8
4 7
1 4 9 8
3 8 2
2 4 7
2 5 3
8
3 2
3 2 4 5
4 8 7
8 4 9
6 7 8 3 2 4 1 5 9
2 9 4 8 1 5 7 6 3
3 1 5 6 9 7 4 2 8
5 3 9 4 6 2 8 1 7
4 2 1 7 8 9 5 3 6
8 6 7 1 5 3 9 4 2
7 8 2 5 4 6 3 9 1
1 4 6 9 3 8 2 7 5
9 5 3 2 7 1 6 8 4
1 9 3 8 4 7 6 5 2
5 6 7 9 3 2 8 4 1
4 8 2 1 6 5 3 9 7
9 7 4 3 8 6 2 1 5
6 2 5 4 7 1 9 3 8
8 3 1 5 2 9 4 7 6
3 1 8 2 5 4 7 6 9
2 5 6 7 9 3 1 8 4
7 4 9 6 1 8 5 2 3
3 8 2 7 6 5 1 4 9
6 7 5 4 1 9 3 8 2
9 4 1 8 2 3 7 5 6
7 1 6 3 5 2 4 9 8
5 9 4 1 8 6 2 7 3
8 2 3 9 4 7 6 1 5
2 6 7 5 9 1 8 3 4
1 5 8 6 3 4 9 2 7
4 3 9 2 7 8 5 6 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 15. mars,
74. dagur ársins 2011
Orð dagsins: „Á því munu allir
þekkja, að þér eruð mínir lærisvein-
ar, ef þér berið elsku hver til annars.“
(Jh. 13, 35.)
Víkverji heyrir til fámennum hópisérvitringa í þessu landi, hann
er ekki á Snjáldru (e. Facebook).
Ástæðan er fyrst og fremst tvíþætt.
Annars vegar finnst honum fyr-
irbærið helst til skráargatslegt og
hins vegar virðist það vera hinn
mesti tímaþjófur.
Það er eitthvað ankannalegt við
það að fylgjast með öllu, stóru og
smáu, í lífi fólks en út á það virðist
Snjáldran ganga. „Var að koma úr
baði. Líður yndislega.“
So what!
Merkilegt að heilu hóparnir skuli
hanga yfir þessu daginn út og inn.
Það hlýtur að hafa dregið úr fram-
leiðni í íslenskum fyrirtækjum frá
því fyrirbærið komst í hámæli. Sumt
fólk virðist hreinlega ekki hafa neinn
tíma til að vinna vegna stöðugra
Snjáldrurannsókna.
x x x
Víkverji hitti á dögunum vel gefnaog harðduglega unga konu sem
upplýsti að hún væri steinhætt á
Snjáldru.
„Þetta gekk ekki lengur,“ trúði
hún Víkverja fyrir. „Eins og ástand-
ið var orðið mátti ég hvorki upplifa
neitt merkilegt né heyra eitthvað
skemmtilegt án þess að reykspóla
heim og setja það í „statusinn“ hjá
mér. Ég var orðin algjör þræll
Snjáldrunnar.“
Þetta er án efa ekkert einsdæmi.
Þess er ugglaust ekki langt að bíða
að opnuð verði meðferðarstofnun
fyrir Snjáldrufíkla á Íslandi. Fólk
sem getur ekki slitið sig frá skráar-
gati náungans.
Og svo gefum við okkur út fyrir að
vera vel uppalin þjóð!
x x x
Margir hafa lagt að Víkverja aðganga Snjáldrunni á hönd en
hann hefur varist af fimi með ofan-
greindum rökum. Lætur sér í léttu
rúmi liggja þótt hann fái fyrir vikið á
sig stimpil sérvisku og miðalda-
hyggju.
Sumir hafa reynt að leika á Vík-
verja með þeim orðum að stöðugt sé
verið að tala um hann á Snjáldrunni.
Vont sé fyrir hann að missa af því. O,
sei-sei. Ætli nú það. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tannhvalur, 8
trjástofnum, 9 koma und-
an, 10 ambátt, 11 manns-
nafns, 13 nytjalönd, 15
hringiðu, 18 ótryggur, 21
rödd, 22 hindri, 23 út, 24
konungur.
Lóðrétt | 2 sköp, 3
stækja, 4 minnast á, 5
ýlfrar, 6 mestur hluti, 7
nagli, 12 fálka, 14 glöð,
15 slátraði, 16 kirtli, 17
umgerð, 18 hljóminn, 19
vitlausu, 20 heimili.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gráta, 4 sigla, 7 ljáin, 8 öldum, 9 sæl, 11 urta, 13 saur,
14 kaldi, 15 maka, 17 frek, 20 ógn, 22 lepur, 23 æskir, 24 iðrar,
25 annar.
Lóðrétt: 1 guldu, 2 áfátt, 3 agns, 4 svöl, 5 gedda, 6 armar, 10 ær-
leg, 12 aka, 13 Sif, 15 mælti, 16 kopar, 18 ríkan, 19 kórar, 20 ór-
ar, 21 næða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. Rf3 Bg4 4. Bb5+
Rbd7 5. h3 Bh5 6. c4 e6 7. g4 Bg6 8.
De2 a6 9. dxe6 axb5
Staðan kom upp á MP Reykjavík-
urskákmótinu sem lýkur í Ráðhúsi
Reykjavíkur á morgun, miðvikudaginn
16. mars. Íslenski stórmeistarinn
Hannes Hlífar Stefánsson (2.557) hafði
hvítt í fyrstu umferð mótsins gegn
Spánverjanum Jordi Herms (2.098).
10. exf7+! og svartur gafst upp enda
mát eftir 10. … Kxf7 11. Rg5+ Kg8 12.
De6+. Óvenjulegt er að kappskák ljúki
með uppgjöf eingöngu eftir 10 leiki og
þá sé jafnframt ljóst að sá sem gaf
verði mát eftir 13 leiki! Þrátt fyrir
þessa góðu byrjun á mótinu fataðist
Hannesi flugið, hann tapaði m.a. fyrir
hvítrússnesku skákkonunni Önnu
Sharevich (2.323) í annarri umferð
mótsins.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sparnaður. S-NS.
Norður
♠Á85
♥ÁKD8
♦K52
♣D97
Vestur Austur
♠DG1072 ♠9643
♥974 ♥G653
♦6 ♦G4
♣G432 ♣Á85
Suður
♠K
♥102
♦ÁD109873
♣K106
Suður spilar 6♦.
Þegar Gölturinn grimmi leggur upp í
„sannaðri stöðu“ fylgir því gjarnan
hæversk yfirlýsing: „Þið fyrirgefið mér
þótt ég nenni ekki að spila þetta til
enda – það væri sóun á hitaeiningum,
enda hlýtur hverjum manni að vera
ljóst hvernig spilið rennur heim …“
Bjarni Einarsson lagði upp í 6♦,
ekki til að spara hitaeiningar, heldur
tíma: „Við kunnum þetta allir, bara
spara tíma,“ útskýrði Bjarni. Spilið er
frá Íslandsmótinu í tvímenningi, sem
Bjarni og Aðalsteinn Jörgensen unnu.
Bjarni vakti á 1♦, vestur sagði 1♠, Að-
alsteinn doblaði neikvætt og austur
stökk í 3♠. Bjarni sagði 4♦ og Að-
alsteinn 6♦. Útspilið var ♠D.
Bjarni drap heima, tók tvisvar tígul
og ♠Á, lagði síðan upp með yfirlýsingu:
„Tek trompin í botn og á restina ef sá
með ♣Á valdar líka hjartað.“
15. mars 1905
Bæjarsíminn í Reykjavík var
formlega opnaður með því að
leikið var á fiðlu í símann. Þá
höfðu fimmtán símar verið
tengdir. Framkvæmdir voru á
vegum Talsímafélags Reykja-
víkur en þegar Landsíminn
tók við rekstrinum sjö árum
síðar voru á fjórða hundrað
talsímar í bænum.
15. mars 1916
Andrés Björnsson skáld varð
úti, sunnan við Arnarnesvík,
32 ára. „Hann var allra manna
næmastur,“ sagði Vísir, og
„hvers manns hugljúfi.“
15. mars 1919
Þrumuveður gerði í Reykja-
vík, hið mesta sem menn
mundu eftir. Eldingu laust
niður í loftnet loftskeytastöðv-
arinnar. Senditæki stöðv-
arinnar eyðilögðust en mót-
tökutækin skemmdust lítið.
Einnig skemmdu eldingar
götuljósker og fleira.
15. mars 1942
Bandarísk flugvél hrapaði í
Vatnsmýrinni í Reykjavík og
átta menn fórust.
15. mars 1953
Þjóðvarnarflokkur Íslands var
stofnaður. Hann starfaði í ára-
tug og barðist einkum fyrir
brottför varnarliðsins.
15. mars 1983
Litlu munaði að farþegaþota
frá Arnarflugi og herflugvél
lentu í árekstri skammt vestan
við Vestmannaeyjar. Herflug-
vélin hafði farið út fyrir sitt
svæði.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Þorsteinn Ólafsson efnafræðingur er sextugur í
dag. Þorsteinn er forstöðumaður rekstrar-
vörudeildar Olís, en starfaði að loknu námi hjá
Efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri. Áður en
Þorsteinn hóf störf hjá Olís starfaði hann hjá
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna, en auk
þess að koma að stofnun félagsins var hann fyrsti
formaður þess og síðar fyrsti framkvæmdastjóri.
Hann kveðst ekki ætla að blása til stórrar veislu í
tilefni af afmælinu, en bjóða þess í stað fjölskyldu
og nánustu vinum í teiti á heimili sínu í Reykjavík.
Þorsteinn er sennilega þekktastur fyrir afrek
sín á knattspyrnuvellinum, en hann er einn fremsti markvörður Ís-
lendinga fyrr og síðar. Á ferli sínum varði hann meðal annars mark
Keflavíkur, Þórs og Magna frá Grenivík, auk þess að spila undir
stjórn Sven-Göran Eriksson hjá IFK Gautaborg í byrjun níunda ára-
tugarins. Þá var hann landsliðsmarkmaður Íslands um árabil. Þor-
steinn hefur ekki lagt takkaskóna á hilluna og spilar enn með félögum
sínum. Viðmælandi blaðsins, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði
Þorstein enn liðtækan sem útivallarleikmann en hann þætt hins vegar
nokkuð grófur. einarorn@mbl.is
Þorsteinn Ólafsson er sextugur í dag
Teiti með vinum og fjölskyldu
Nýirborgarar
Reykjanesbær
Kristín Dalrós fædd-
ist 31. júlí kl. 11.03.
Hún vó 3.270 g og var
49 cm löng. Foreldrar
hennar eru Ásdís
Geirsdóttir og Skarp-
héðinn Guðmunds-
son.
Flóðogfjara
15. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.20 3,0 8.56 1,4 15.06 2,8 21.20 1,2 7.47 19.27
Ísafjörður 4.41 1,6 11.19 0,5 17.27 1,4 23.34 0,4 7.53 19.31
Siglufjörður 0.23 0,6 6.41 1,1 13.20 0,4 19.52 1,0 7.36 19.14
Djúpivogur 6.02 0,7 12.08 1,4 18.16 0,6 7.17 18.57
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gerðu hreint fyrir þínum dyrum áður
en það er um seinan. Hugsanlega á það vel
við í ástum að setja úrslitakosti. Einhver trúir
þér fyrir leyndarmáli.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þetta er góður dagur til að njóta sam-
vista við vini þína. Einbeittu þér að því að
læra eitthvað nýtt, annars áttu á hættu að
staðna og stífna í hvívetna.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú þarft að fá einhvern til liðs við
þig svo að þér takist að koma hugmyndum
þínum í framkvæmd. Reyndu að gefa fyr-
irmæli á mjúkan, nærgætinn hátt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ástvinur hefur rétt fyrir sér og leyfir
þér ekki að gleyma því á næstunni. Gerðu
það að takmarki þínu að gera sem mest úr
hæfileikum þínum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vertu ekki svo alvörugefin/n að þú
gleymir barninu í þér. Sýndu þeim þakklæti
sem hafa stutt við bakið á þér.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert úthaldsgóð/ur og það kemur
sér vel núna þegar þú ert beðin/n um að
taka að þér hin ýmsu verkefni. Vertu
raunsæ/r í rómantíkinni, ólofaðra bíður ást-
arsamband.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hafðu varann á þegar kemur að samn-
ingum í dag. Láttu það eftir þér að njóta
hringiðunnar á þessum tímamótum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er nauðsynlegt þegar fjár-
málin eru skoðuð að reyna ekki að blekkja
sjálfan sig með hundakúnstum. Gættu þess
að ganga ekki á rétt annarra einstaklinga.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Stundum eru hlutirnir of góðir til
þess að vera sannir. Klappaðu sjálfum þér á
bakið fyrir að þora að íhuga að snúa baki við
því sem þú þekkir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert bjartsýn/n og full/ur af eld-
móði. Reyndu að koma í veg fyrir rugling
varðandi sameiginlegar eignir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Líttu á björtu hliðarnar og þá
sérðu að margt er í góðu lagi. Einhver fylgist
með þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Góður undirbúningur tryggir farsæla
framkvæmd. Hæfileikar þínir til samskipta
eru í hámarki núna.
Stjörnuspá