Morgunblaðið - 05.05.2011, Síða 10

Morgunblaðið - 05.05.2011, Síða 10
10 5. maí 2011fasteignir ÞAÐ ER MEIRA AÐ GERA Á FASTEIGNA- MARKAÐINUM EN ÞIG GRUNAR. LÁTTU MIG SELJA FYRIR ÞIG, HRINGDU NÚNA Hafðu samband 699 5008 Hannes Steindórsson Sölufulltrúi hannes@remax.is Sími: 699 5008 Þórarinn Jónsson hdl. lögg. Fasteignasali Spöngin 37, 2. hæð. 112 Reykjavík Sími 575 8585. Fax 575 8586 GSM 824-0610 Sími 575 8585 FASTEIGNASALAN ÞÍN www.fmg.is Sigrún Stella Einarsdóttir Lögggiltur fasteignasali VÆTTABORGIR - EINBÝLISHÚS Glæsilegt einbýlishús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr við Vættaborgir. Frábært útsýni er úr eigninni. Stór bílskúr. Gólfefni eru granítflísar, keramikflísar og parket. Baðherbergi nýlega innréttað á glæsilegan hátt. Stórt opið eldhús með eyju. Arinn í stofu. Lítil auka íbúð með sérinngangi á 1. hæð. Glæsilegur garður með stórum palli, heitum potti og sundlaug. Húsið er skráð í Fasteignaskrá Íslands sem 214,5 fm en óskráð rými því til viðbótar er 50-60 fm. Gleðilegt grillsumar www.weber.is - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Á hverju heimili þarf að eiga til gott hurð- arstopp. Oft þarf að halda hurðum vand- lega opnum, t.d. þegar verið er að flytja muni inn og út úr húsi eða hreinlega þegar þarf að lofta út og tryggja greiðan umgang á góðum degi. Svo hafa hurðarstoppin ákveðnu öryggis- hlutverki að gegna, og þá sérstaklega þar sem hætta er á gegnumtrekk sem getur fengið hurðir til að skella og skemmast eða jafnvel klemmt litla fingur og skott. Hurðarstopp þurfa ekki að vera afgangs- stærð á heimilinu heldur má finna fjölmarg- ar útfærslur sem búa yfir karakter og krútt- leika og geta verið bráðsniðugt skraut. Á myndunum hér um kring má sjá nokkr- ar góðar útgáfur og öruggt að allir ættu að geta fundið sér hurðarstopp sér að skapi sem hæfir í húsinu. ai@mbl.is Segðu stopp Dýr merkurinnar eru hönnuðum innblástur með ýmsu móti og hér gegna þau hlutverki hurðastoppara. Antík hurðarstopp úr steinungi. Virðulegur og veglegur og kostar 495 dali á zandkantiques.com. Þessir ofurkrúttlegu belgir eiga vel við í barna- herberginu eða á heimilum þar sem stelpulega hliðin fær að njóta sín. Skór í nýstár- legu hlutverki. Skemmtileg hurðarstopp Unnendur hraðskreiðra bíla fengu glaðning á dögunum þegar Lam- borghini og Ferrari kynntu nýja sportbíla á bílasýningunni í Genf. Bíll Lamborghini, Aventador, dregur nafn sitt af illskeyttum bola sem í nautaati í október árið 1993 þótti bera af fyrir hugrekki. Aventador LP 700-4 er líka heljarinnar tuddi, með 700 hestafla V12-vél sem koma á bílnum upp í 100 km/klst á 2,9 sek- úndum. Vélin á að vera 20% spar- neytnari en næsta kynslóð á undan en skilar samt sem áður 8% meiri krafti. Aventador er arftaki hins vinsæla Murcielago og virðast fyrstu tölur boða gott fyrir Lamborghini, en nú þegar er búið að selja upp fyrstu ársframleiðsluna, eða um 700 ein- tök á litla 370.000 dali stykkið. Bíll Ferrari heitir einfaldlega FF og er von á 800 slíkum á götuna í ár. Með 660 hestafla V12-vél kemst kagginn í hundraðið á 3,7 sek- úndum og með örlítið hærri há- markshraða en Aventadorinn í 335 km/klst. Ferrari FF er agnarögn ódýrari á 359.000 dali. Sömu sögu er að segja með FF og Aventador að bíllinn er uppseldur ár fram í tímann. Útlitslega minnir FF-týpan á Panamera frá Porsche, og má kalla hann praktískari en leikfangið Aventador. Sæti eru fyrir fjóra og rúmgott farangursrými í Ferr- aríinum en varla hægt að koma fyr- ir meiru en ökumanni og íturvöxn- um farþega. . Nýir sportbílar kynntir í Sviss Tuddi frá Lamborghini og kaggi frá Ferrari Í flestum löndum eru Kók og Pepsí allsráðandi á gosmarkaðinum. Í Perú leynist hins vegar harðskeyttur og heimatilbúinn keppinautur sem sölsað hefur undir sig um þriðj- ung gossölunnar í landinu og nánast bolaði Pepsí úr landi á tímabili: Inca Kola. Bragðinu má líkja við tyggjó, dísætt og með keim af vanillu og ýmsum öðrum bragð- tegundum sem erfitt er að sundurliða en auðvelt að njóta. Sumir greina bananabragð, aðrir ananas, enn aðrir „cream soda“ bragð, en leynihráefnið á að vera perúvísk jurt sem gefur drykknum óvenjulegt sítrusbragð. Fagurgulur liturinn gefur Inca Kola svo enn meiri sérstöðu og fer það vel bæði í flösku og glasi. Ekki þarf að koma á óvart að Inca Kola passar vel við flesta perúvíska rétti, eins og t.d. ceviche. Hitt er merkilegra að drykkurinn á sérlega vel við sushi og gerir það mun betur en aðrir gosdrykkir, hvort heldur eru dökkir eða ljósir. Inca Kola má finna í mörgum bandarískum verslunum, en sá sem þetta skrifar er ekki frá því að drykkurinn bragðist öðruvísi þar en í Perú. Til að smakka „ekta“ drykkinn verður því að fljúga suður fyrir miðbaug. ai@mbl.is Hefurðu smakkað… Inca Kola? Gylltar guðaveigar frá Perú

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.