Morgunblaðið - 05.05.2011, Blaðsíða 19
5. maí 2011 19 bílar
Viðvörunarljós í Hilux
Spurt: Ég er á 2007 árg. af Toyota
Hilux, með TurboDiesel-vél og sjálf-
skiptingu. Bíllinn er lítið breyttur
(33“), ekinn 120 þús. km. Búið er að
endurnýja spíssa. Ég var að aka í
sandi í lága drifinu án sérstakra
átaka þegar viðvörunarljós kviknaði
í mælaborðinu („A/T-oil-temp“) og
slokknaði svo eftir 10 sek. eða svo.
Ekkert óeðlilegt var merkjanlegt við
bílinn. Viku seinna kviknaði og
slokknaði þetta sama ljós nokkrum
sinnum í venjulegum akstri á jafn-
sléttu á þjóðvegi. Í handbókinni er
sagt að þetta ljós vari við ofhitnun
sjálfskiptingarinnar. Hvað er þetta
alvarlegt mál og er mér óhætt að
nota bílinn svona?
Svar: Reglan er sú að taka enga
áhættu þegar viðvörunarljós lýsir.
Pantaðu tíma hjá Toyota-verkstæði
sem fyrst. Hins vegar er ekki ástæða
til að hafa sérstakar áhyggjur af
þessu ljósi svo lengi sem það slokkn-
ar í akstri og ekki sjást merki um
olíuleka undir bílnum. Í sjálfskipt-
ingunni er hitaskynjari sem stjórnar
þessu ljósi. Oftast er það skynjarinn
sjálfur sem er bilaður. Hann kostaði
um 10 þús. kr. síðast þegar ég vissi
og fljótlegt að skipta um hann. Þá
ætti þetta vandamál að vera úr sög-
unni. Séu einhver merki um leka,
sem er sjaldgæft, er ástæða til að
láta athuga það sérstaklega.
Ný kerti í gamlan risa
Spurt: Ég er með Chevy Van af
ágerð 1975, sjálfskiptur með 350 V8-
bensínvél. Nú er hann farinn að
ganga leiðinlega. Mér var bent á að
líklega væri komið að því að end-
urnýja kertin. Þeir hjá N1 segjast
eiga kerti í þetta gamlan bíl og virð-
ast þau vera á nokkuð sanngjörnu
verði, rúmar 700 kr. stykkið. Og þá
er það spurningin: Verð ég ekki að
stilla bilið á nýju kertunum og hvað á
það að vera mikið? Hvað annað ætti
ég að hafa í huga í þessu sambandi?
Svar: Þessi kerti hjá N1 eru af teg-
undinni Autolite. Bilið á þeim á að
vera 1,5-1,6 mm. Ef við gefum okkur
að kertaþræðirnir séu í lagi þarftu
ekki að gera annað en að þrífa útfell-
ingar af töppunum innan í kveikju-
lokinu. Sé mikil útfelling á töpp-
unum bendir það til þess að
þræðirnir séu lélegir. Hjá N1 eiga að
vera til amerískir kertaþræðir frá
STANDARD á skikkanlegu verði.
Eðalvagn en eyðslufrekur
Spurt:Ég er að velta fyrir mér kaup-
um á Porsche Cayenne S af árgerð
2004. Veistu hvernig þeir hafa
reynst hérlendis varðandi bilanir og
viðhald? Verð á svona bíl er 3,5-4,2
m.kr. Þar sem ég bý fyrir norðan er
ég að velta fyrir mér hvort ég muni
lenda í einhverjum vandræðum með
þjónustuna. Er þetta ef til vill von-
laust dæmi?
Svar: Þetta eru mjög vandaðir en
eyðslufrekir bílar (sem endur-
söluvirðið endurspeglar), enda efn-
ismiklir og hlaðnir þægindabúnaði.
Bensínbílarnir hafa komið mjög vel
út með lága bilanatíðni. Aksturseig-
inleikar og torfærugeta Porsche Ca-
yenne eru í sérflokki. Ég á ekki von
á öðru en að þjónustan sé ekki lakari
fyrir norðan en hér á höfuðborg-
arsvæðinu. Porsche Cayenne með
Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál
Eyðslufrekir jeppar falla mest í verði
Morgunblaðið/Golli
Toyota Hilux á ferðinni. Reglan er sú að taka enga áhættu þegar viðvörunarljós lýsir, segir í bílapistli Leós þessa vikuna.
Leó M. Jónsson véltæknifræðingur
leoemm@simnet.is
(Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og
ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com)
Sumarið er komið og fram-
undan eru bílferðir um landið.
Nú er ráð að huga að þrýstingi
í varadekkinu og að öll áhöld
séu í bílnum til að skipta megi
um hjól. Í bílabúðum og á
bensínstöðvum eru til útdrag-
anlegir felgulyklar fyrir al-
gengustu stærðir. Með þeim
má losa rær/bolta sem venju-
legir lyklar ráða ekki við.
Margir nýir bílar, t.d. BMW,
eru án varahjóls (er þinn einn
þeirra?). Innan í felgunum er
sérstakur meiður eða rim
sem gerir kleift að aka á loft-
lausu dekki á takmörkuðum
hraða. Í handbókinni er sagt
hve langt má komast á þeim
búnaði.
ÁBENDING
Hugið að
þrýstingi
í dekkjum
V6-TurboDiesel-vél er hins vegar
með sparneytnustu lúxusjeppum. Af
þeirri ástæðu og að hann kom ekki á
markaðinn fyrr en 2009 árgerð er
endursöluverð hans miklu hærra.
JAZZ COMFORT
Nýskráður 6/2010, ekinn 1200 km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.840.000
HONDA
CIVIC EXECUTIVE
Nýskráður 3/2010, ekinn 10 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 3.390.000
HONDA
IMPREZA SPORT
Nýskráður 10/2007, ekinn 40 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.890.000
307 SW 2.0i
Nýskráður 4/2007, ekinn 98 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.790.000
PEUGEOT
RAV-4
Nýskráður 5/2002, ekinn 119 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.390.000
TOYOTA
206 PERFORMANCE S 1.6i
Nýskráður 3/2007, ekinn 36 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.690.000
PEUGEOT
MITSUBISHI LANCER COMFORT
Nýskráður 3/2004, ekinn 135 þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Ásett verð kr. 990.000
Tilboðsverð kr. 749.000
OPEL ASTRA ENJOY 1.8i
Nýskráður 5/2007, ekinn 39 þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Ásett verð kr. 2.090.000
Tilboðsverð kr. 1.599.000
OPEL MERIVA ENJOY
Nýskráður 2/2006, ekinn 52 þ.km, bensín, 5 gírar.
Ásett verð kr. 1.390.000
Tilboðsverð kr. 990.000
TILBOÐ DAGSINS TILBOÐ DAGSINS TILBOÐ DAGSINS
HR-V SMART
Nýskráður 4/2005, ekinn 140 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.190.000
HONDA
ACCORD TOURER EXECUTIVE
Nýskráður 10/2007, ekinn 96 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.690.000
HONDA
CR-V ES
Nýskráður 1/2006, ekinn 88 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 2.350.000
HONDA
FOCUS C-MAX GHIA
Nýskráður 12/2005, ekinn 58 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 1.750.000
FORD
Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.isVið seljum bílinn fyrir þig!
Opið laugardaga milli kl. 12:00 og
16:00
NOTAÐIR BÍLAR Á FRÁBÆRU VERÐI
SUBARU