Morgunblaðið - 05.05.2011, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 05.05.2011, Qupperneq 21
5. maí 2011 21 bílar endur eru nú að þróa er skammt að bíða þess að bílar geti alfarið ekið sjálfir. Tæknin býður einnig upp á það að bílar geti ekið hæfilega langt hver frá öðrum og haldi þeirri fjar- lægð á miklum hraða. Slíkt fyr- irkomulag gerir það að verkum að bílarnir brjóta vind hver fyrir annan og með því sparast mikið eldsneyti. Að sjálfsögðu þola alls ekki allir vegir hækkun hámarkshraða upp að þessu marki, en sumar hraðbrautir þó. Mætti þá búast við breytilegum hámarkshraða eftir vegum en einnig akreinum og mestur hraði þá leyfður lengst til vinstri. Hámarkshraði gæti líka verið breytilegur eftir tíma dags eða umferð. En er hraði hættulegur? Svona breyting yrði líklega til þess að fáum dytti í hug að stíga upp í flugvél nema áfangastaðurinn væri 1.000 km frá eða meira. Fullyrða má að sú tækni sem komið hefur nú þegar fram og er í þróun hjá bílaframleið- endum býður upp á breytingu sem þessa á næstu árum svo fremi sem vegakerfið bjóði einnig upp á það. Því má segja að þessar vangaveltur eigi rétt á sér ef slys á fólki og elds- neytiseyðsla eru hverfandi áhrifa- þættir og hver kýs ekki styttan ferðatíma. Viktoría drottning á Englandi fyr- irskipaði á lestarferðalögum sínum að ekki mætti fara hraðar en 40 mílur (65 km) því það væri hverjum manni lífshættulegt að fara hraðar. Kannski ætti heimsbyggðin bara aftur að taka upp svoleiðis kreddur. Kannski verð- ur þó hlegið eftir 50 ár að þeirri trú okkar að ekki megi setja hámarks- hraða við 240 km á klukkustund fljót- lega. finnur@reykjavikbags.is Hámarkshraði í 240! Engar hraðatakmarkanir voru á tíma Ford A Tudor árgerð 1930, en hver verður hámarkshraðinn 2030? Chevrolet er 100 ára. Bílabúð Benna stendur fyrir alls konar uppákomum um þessar mundir í tilefni af 100 ára afmæli Chevrolet, ári slaufunnar. Nú er lokið spurn- ingaleiknum Veistu Chevrolet- svarið, sem fram fór á þremur stöðum á landinu: í Reykjavík, á Ak- ureyri og í Reykjanesbæ. Sextán nöfn voru dregin úr pottinum og fyrstu verðlaun hlaut Hörður Þor- móðsson. „Ég fékk að vita um vinninginn daginn eftir að ég varð áttræður. Þetta var svo skemmtileg tilviljun að ég framlengdi bara fagnaðinn,“ sagði Hörður sem hefur haft bíla sem áhugamál og ævistarf. Fylgist með af lífi og sál og fagnar því að bílar séu orðnir nettari og léttari en var. sbs@mbl.is Fékk Chevrolet í afmælisgjöf Kátir Hörður Þormóðsson og Jón Kr. Stefánsson, sölustjóri Chevrolet.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.