Morgunblaðið - 09.05.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Bíldshöfða 12 · 110 RVK · 577 1515 · www.skorri.is
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
MEÐ
ALLIR ÚT AÐ HJÓLA
„Þessi orðaskipti voru á milli mín og viðmælenda minna
og koma starfi Þingvallanefndar ekkert við,“ segir Þráinn
Bertelsson, fulltrúi VG í Þingvallanefnd Alþingis. Á fundi
nefndarinnar á fimmtudag var tekist á um hverja skyldi
velja í dómnefnd vegna hugmyndavinnu um framtíð Þing-
valla.
Eftir að fundi var slitið mun Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hafa sagt við Þráin
að engu hefði skipt hvaða nöfn hefðu komið frá Sjálf-
stæðisflokknum, Þráinn hefði hafnað þeim öllum. Þá mun
Þráinn hafa snöggreiðst og sagst ekki í neinum vandræð-
um með að ræða við sjálfstæðismenn. Hann talaði bara
ekki við „fasistapakk“ og beindi þá orðum sínum að Þor-
gerði og Ragnheiði Elínu Árnadóttur. Þær hafa lagt fram
bókun, krefjast afsökunarbeiðni og segja nefndina annars
óstarfhæfa. Á fundinum gerðu þær athugasemdir við að
formaðurinn, Álfheiður Ingadóttir, vildi með einstreng-
ingslegum hætti koma ákveðnu fólki inn í dómnefndina.
Þær hefðu lagt til ný nöfn í þeirri von að hægt yrði að ná
samstöðu en ekki hefði verið neinn vilji til þess.
Samkvæmt heimildum mun mestur styr hafa staðið um
að Álfheiður vildi fá rithöfundinn Andra Snæ Magnason í
dómnefndina, en verk hans eru umdeild.
En er Þráinn, sem síðan hefur farið ófögrum orðum um
Þorgerði á Facebook-síðu sinni og m.a. kallað hana „kúlu-
lána- og íhaldsbelju,“ reiðubúinn að biðjast afsökunar til
að skapa frið um nefndina? „Ekki fyrr en það frýs í víti,“
segir hann, en „það er velkomið að biðjast afsökunar þeg-
ar þær og Sjálfstæðisfokkurinn hafa beðist afsökunar á
því að valda hér þjóðfélagshruni.“ onundur@mbl.is
Biður forláts þegar frýs í víti
Þráinn Bertelsson segir sjálfsagt að biðjast afsökunar þegar sjálfstæðismenn
biðjast afsökunar á hruninu Fór ófögrum orðum um fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Tengist ekki nefndinni
» Álfheiður segir í yfirlýsingu
að deilur Þráins og fulltrúa
Sjálfstæðisflokks tengist ekki
starfsemi Þingvallanefndar.
» Fundurinn hafi verið mál-
efnalegur, en atkvæði hafi ver-
ið greidd um tvo lista með til-
lögum um fólk í dómnefndina,
ekki um einstaklinga.
Nokkuð óvenjuleg guðsþjónusta var haldin í Akureyrarkirkju í gærkvöldi
sem hluti af Kirkjulistaviku. Um var að ræða dansmessu þar sem sr. Svavar
A. Jónsson messaði og dansaði ásamt söfnuði sínum á milli þess sem hann
las upp úr ritningunni. Kirkjugestir voru á öllum aldri, frá börnum og upp
úr og var frjálsleg stemning í kirkjunni. Það voru dansarar frá Point dans-
stúdíói sem leiddu dansinn en höfundur dansa var Sigyn Blöndal og lék
hljómsveit vikunnar undir. Markaði messan upphaf Kirkjulistaviku sem nú
er haldin í Akureyrarkirkju í 12. sinn og stendur til 15. maí. Hafa helstu
markmið hennar frá upphafi verið að efla samvinnu og tengsl listafólks við
kirkjuna og gefa Akureyringum kost á að njóta þar góðra lista.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson.
Kirkjulistavika hófst með dansmessu í Akureyrarkirkju
Dansandi prestur og söfnuður á Akureyri
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var kallað út síðdegis í gær að tón-
listar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu,
en boð höfðu borist frá brunaboða í
húsinu. Nokkur viðbúnaður var
vegna þessa en þegar fyrsti slökkvi-
bíllinn kom á vettvang varð ljóst að
ekki var um eldsvoða að ræða held-
ur höfðu boðin borist vegna þess að
verið var að tengja öryggiskerfi
hússins.
Slökkvilið var einnig kallað út
aðfaranótt sunnudags vegna sinu-
bruna í Elliðaárdal. Þegar þangað
var komið var ljóst að eldur logaði í
áningarbekk neðan við Bakka-
hverfið í Breiðholti. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn en þeir sem
kveiktu hann voru á bak og burt og
náðust ekki.
Slökkvilið kallað út
að tónlistarhúsinu
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
„Við ákváðum að byrja í Norðlinga-
skóla þar sem skólastefnan þar er
mjög sveigjanleg. Síðan vonumst við
til að fólk fari að skoða betur heild-
rænar lausnir og fleiri skólar sláist í
hópinn,“ segir Sigríður Jónsdóttir,
ADHD-markþjálfi og ráðgjafi, en fé-
lagið Lifðu lífinu hefur undirritað
samkomulag við skólann um að
halda námskeiðið „Hvernig má auð-
velda vinnuumhverfið í skólastofunni
fyrir ADHD og aðrar raskanir“.
Markmið félagsins er að aðstoða
fólk við að öðlast betri andlega og
líkamlega líðan til að það nái stjórn á
lífi sínu og námskeiðin eru ætluð til
að veita bæði kennurum og foreldr-
um betri upplýsingar um hvað hægt
sé að gera „en í meðferð á ADHD er
meðal annars mikilvægt að börnin
fræðist um hvernig þau geti unnið
með sjálf sig. Sjálf byrjaði ég að
blómstra í mínu lífi þegar ég fór að
skilja sjálfa mig,“ segir Sigríður.
Meiri fræðsla um úrræði
Börn með ADHD
læri aðferðir til að
vinna með sjálf sig
Ljósmynd/hag
Samstarf Forsvarsmenn félagsins Lifðu Lífinu og Norðlingaskóla undirrita
samning um námskeiðshald er varðar meðferðarúrræði við ADHD.
Ráðning umsjónarmanns á Bessa-
stöðum var ekki í samræmi við fyrir-
mæli stjórnsýslulaga, að mati Um-
boðsmanns Alþingis. Í auglýsingu
um starfið var tekið fram að meira-
próf væri skilyrði fyrir ráðningu en
sá sem var ráðinn hafði ekki slíkt
próf. Honum var síðar gert að afla
sér þeirra réttinda.
Umboðsmaður telur einnig að for-
setaskrifstofan hafi ekki hagað
málsmeðferð sinni við öflun um-
sagna og skráningu upplýsinga úr
viðtölum við umsækjendur í sam-
ræmi við upplýsingalög. Einnig tel-
ur hann að rökstuðningur fyrir ráðn-
ingunni hafi ekki verið í samræmi
við stjórnsýslulög.
Tveir umsækjendur kvörtuðu til
umboðsmanns vegna ráðning-
arinnar. Hann segist í niðurstöðu
sinni telja ólíklegt að annmarkarnir
á meðferð málsins leiði til ógildingar
ráðningarinnar, vegna hagsmuna
þess sem ráðinn var, en beinir hins
vegar þeim tilmælum til forseta-
skrifstofu að leita leiða til að rétta
hlut umsækjendanna. Það sé verk-
efni dómstóla að fjalla um hugsan-
legar afleiðingar annmarkanna sem
voru á meðferð málsins.
Forseta-
embættið
braut lög
Ráðning braut í bága
við stjórnsýslulög
Á morgun, þriðjudag, verður opið
hús hjá félaginu Lifðu lífinu. Þar
munu forsvarsmenn þess, sem all-
ir hafa persónulega reynslu af
ADHD-sjúkdómnum, deila reynslu-
sögum sínum. Einnig munu gestir
geta deilt reynslu sinni ef vill og
kynnt sér starfsemina. Félagið
miðar að því að vinna bug á sjúk-
dómnum án lyfja, meðal annars
með breyttu mataræði og aðstoð
við uppeldisaðferðir.
Meðferð án lyfja
BREYTT MATARÆÐI OG AÐSTOÐ VIÐ UPPELDISAÐFERÐIR