Morgunblaðið - 09.05.2011, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
meðal félagsmanna um nýgerðan kjarasamning VR og SA
hefst miðvikudaginn 11. maí kl. 9:00.
Nánari upplýsingar um samninginn og atkvæðagreiðsluna
á heimasíðu VR, www.vr.is
Kjörstjórn VR
Rafræn allsherjar-
atkvæðagreiðsla
heilbrigðara umhverfi = betri líðan = bjartari framtíð
Ráðstefna Vistbyggðarráðs og Vistmenntar
Norræna húsinu, fimmtudaginn 12. maí 2011
kl. 9:00-16:00
Fyrri hluti: erindi kl. 9:00 - 12:30
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Martin Haas, arkitekt hjá Behnisch Architekten í Þýskalandi.
Mikael Koch, arkitekt hjá Danskeark í Danmörku.
Mark Clough, verkfræðingur hjá Genex í Bretlandi.
Helga J. Bjarnadóttir, sviðsstjóri Umhverfissviðs EFLU.
Harpa Birgisdóttir, sérfræðingur hjá SBi í Danmörku.
Dennis Carlberg, arkitekt og forstöðumaður sjálfbærnimála
við Boston University.
Seinni hluti: málstofur kl. 13:30 - 16:00
Vottunarkerfi – mikilvæg tæki eða markaðsvara ? (á ensku)
Kynning á starfi vinnuhópa Vistbyggðarráðs (á íslensku)
Skráning og nánari dagskrá á www.vbr.is og www.ai.is
Fólksflóttinn frá Líbíu heldur áfram. Greint var frá því
í gær að björgunarmenn frá Ítalíu hefðu unnið þrek-
virki þegar 400 líbískum flóttamönnum var bjargað úr
sjónum undan ströndum eyjunnar Lampedusa. Þessi
börn voru hins vegar mynduð í gær í flóttamannabúð-
um staðsettum við landamæri Líbíu og Túnis.
Reuters
Ekkert lát á fólksflótta frá Líbíu
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), sagði í viðtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina CNN í
gær að farsælla væri að leysa vanda-
mál Líbíu á pólitíska sviðinu fremur
en með vopnavaldi. „Spilið er búið
hjá Gaddafi. Hann hlýtur að átta sig
á því fyrr en síðar að stjórn hans á
sér enga framtíð,“ sagði Fogh
Rasmussen. Atlantshafsbandalagið
hefur staðið fyrir loftárásum á hern-
aðarmannvirki í Líbíu frá því í mars.
Hins vegar hefur ekki tekist að
koma í veg fyrir árásir líbíska hers-
ins á óbreytta borgara þar í landi.
Fleiri nefndu ástandið í Líbíu í
gær. Dick Cheney, fyrrverandi vara-
forseti Bandaríkjanna, sagði að
Bandaríkin hefðu hingað til átt að
beita herafla sínum af meiri þunga í
Líbíu. Stefna bandarískra stjórn-
valda hefði hingað til ekki verið
nægilega skýr í málinu. thg@mbl.is
„Spilið er
búið hjá
Gaddafi“
Vill leysa málið á póli-
tískum forsendum
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Réttu ári eftir að Evrópusambandið (ESB) veitti
gríska ríkinu 110 milljarða evra neyðarlán (18.000
milljarðar króna) þurfa Grikkir nú að endursemja
um skilmála lánsins. Fulltrúar Grikklands og ESB
funduðu í Lúxemborg síðastliðinn föstudag, en
fram kom á þeim fundi að Grikkir gætu ekki staðið
við ákveðna skilmála neyðarlánsins. Eitt skilyrða
sem ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn settu fyr-
ir veitingu neyðarlánsins til Grikkja í maí 2010 var
að ráðist yrði í skuldabréfaútboð á alþjóðamörk-
uðum snemma á árinu 2012. Grískir embættis-
menn þykjast nú vita að slíkt útboð myndi ekki
bera árangur sem skyldi.
Heildarskuldir gríska ríkisins nema um 340
milljörðum evra. „Markaðir eru ennþá fullir
vantrúar á Grikklandi,“ var haft eftir fjármálaráð-
herra Grikklands, George Papaconstantinou, í
gær. Grikkland þarf á 25 til 30 milljörðum evra að
halda á næsta ári til að geta mætt fyrirliggjandi
gjalddögum. Sú fyrirgreiðsla sem þegar hefur
fengist úr neyðarsjóði ESB nægir ekki til að mæta
gjalddögunum. Haft var eftir ónefndum grískum
embættismanni á vef Financial Times í gær að
Grikkir kynnu að freista þess að semja um leng-
ingu á hluta útistandandi lána. Financial Times
greindi síðan frá því í gær að evrópskir embættis-
menn hefðu komið því til skila við Grikki að lítið vit
væri í því að leggja alla áhersluna á auknar lántök-
ur, meðan hagræðing í ríkisrekstri og baráttan
gegn skattsvikum þar í landi sætu á hakanum.
Deildar meiningar eru meðal aðildarþjóða ESB
um hvernig eigi að taka á vandamálum Grikkja.
Bretar hafa til að mynda gefið skýrt til kynna að
þeir muni ekki taka þátt í stækkun björgunarsjóðs
til handa Grikklandi. Fjármálaráðherra Breta,
George Osbourne, sagði í gær að breytingar á
samkomulaginu við Grikki væru óumflýjanlegar.
„Við viljum sannarlega ekki vera hluti af nokkurs
konar björgunaraðgerð til handa Grikklandi,“
sagði Osbourne. „Ég sé okkur varla skrifa undir
ávísun frá breskum skattgreiðendum til Grikkja
eða Portúgala eða nokkurra annarra. Írland var
hins vegar sérstakt tilfelli,“ en Bretland hefur
þegar veitt Írum fyrirgreiðslu.
Grikkland þarf aukna aðstoð
Eitt ár liðið frá björgunarpakka ESB Þurfa að endursemja um skilmála
„Markaðir eru ennþá
fullir vantrúar á
Grikklandi.“
George Papaconstantinou,
fjármálaráðherra Grikklands
Bandarísk stjórnvöld segjast ekki
hafa nein sönnunargögn undir
höndum sem sýni fram á að pak-
istönsk stjórnvöld hafi haft vitn-
eskju um að hryðjuverkamaðurinn
Osama Bin Laden hafi dvalist í fel-
um þar í landi. Thomas E. Donilson,
háttsettur þjóðaröryggisráðgjafi,
segir að Pakistan sé mikilvægur
bandamaður í baráttu Bandaríkj-
anna gegn hryðjuverkasamtök-
unum al-Qaeda. Pakistönsk yfir-
völd hafa nú fjölskyldumeðlimi Bin
Ladens í haldi, en hafa ekki gefið
Bandaríkjamönnum heimild til yf-
irheyrslna á því fólki hingað til.
thg@mbl.is
Segja pakistönsk
stjórnvöld ekki hafa
vitað af Bin Laden
Bandarískir
embættismenn
halda áfram að
þrýsta á kín-
verska kollega
sína um að gjald-
miðli Kína, jú-
aninu, verði leyft
að styrkjast.
Fjármálaráð-
herrar Banda-
ríkjanna og Kína,
Tim Geithner og Wang Qishan,
ræddu þau mál og önnur á fundi um
helgina. Hingað til hafa Kínverjar
ekki viljað leyfa júaninu að styrkj-
ast til að halda útflutningi landsins
öflugum. Hins vegar gæti það
breyst núna, vegna versnandi horfa
um verðbólgu í Kína. thg@mbl.is
Þrýsta enn á um
styrkingu júans
Tim Geithner fjár-
málaráðherra
Stjórnvöld í afríska ríkinu Búrkína
Fasó lýstu í gær yfir þjóðarsorg
vegna rútuslyss sem átti sér stað í
nágrannaríkinu Tógó fyrir helgi.
Alls fórust 28 manns í rútuslysinu,
en þar af voru 24 frá Búrkína Fasó.
Rútan var á leið frá höfuðborg
landsins, Ouagadougue, en slysið
átti sér stað við þorp í Tógó. Auk
þeirra 28 sem létust slösuðust 42.
Fánar verða dregnir í hálfa stöng á
öllum opinberum byggingum í
Búrkína Fasó í dag. thg@mbl.is
Þjóðarsorg í Búrkína
Fasó vegna slyss