Morgunblaðið - 09.05.2011, Side 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ER EITTHVAÐ FLJÓTANDI Í
KJÚKLINGASÚPUNNI MINNI
ÞETTA ER
KJÚKLINGABITI
EN
ÞAÐ ER MEÐ
VÆNGI
KJÚK-
LINGAR ERU
MEÐ VÆNGI
MIG
LANGAR
EKKERT AÐ
VERÐA
FORSETI
MIG LANGAR BARA AÐ VERÐA
HÚSMÓÐIR OG GÓÐ MAMMA,
ÞEGAR ÉG VERÐ STÓR
ÞANNIG AÐ ÞAÐ ER ENGIN
ÁSTÆÐA FYRIR MIG AÐ FARA
Í LEIKSKÓLA
EINU SINNI LOFAÐIR
ÞÚ MÉR AÐ ÞÚ MYNDIR KAUPA
ÞENNAN KASTALA HANDA MÉR
JÁ,
EN NÚNA ER
EKKI RÉTTI
TÍMINN...
ÉG ER AÐ BÍÐA
EFTIR ÞVÍ AÐ HANN
FARI Á
NAUÐUNGARUPPBOÐ
ÞÉR
TÓKST
ÞAÐ ÁSTIN
MÍN!
JÁ, EN
ÞESSIR 40 KM VORU
MIKLU ERFIÐARI EN
ÉG HÉLT AÐ ÞEIR
YRÐU
ÉG ER SVO ÁNÆGÐ MEÐ
AÐ ÞÚ SKULIR HAFA
HJÓLAÐ Í MINN STAÐ
ÞRÁTT FYRIR AÐ ÞÚ
HEFÐIR ÞÍNAR
EFASEMDIR
JÁ, ÉG
LÆRÐI
SVOLÍTIÐ
ÞAÐ ER MIKLU MEIRA
GEFANDI AÐ LEGGJA
EITTHVAÐ Á SIG
FYRIR MÁLSTAÐ,
HELDUR EN AÐ SENDA
BARA ÁVÍSUN
SVO
AÐ ÞÚ
KEMUR MEÐ
NÆST?
ÉG ER
EKKI Í NÓGU
GÓÐU FORMI TIL
AÐ GERA ÞETTA AÐ
STAÐALDRI
HVAÐ
ÆTLARÐU AÐ REYNA
AÐ FÁ MIG TIL AÐ
GERA FYRIR ÞIG?
ÉG
ÞARF Á
KRÖFTUM ÞÍNUM
AÐ HALDA,
VIÐ AÐ FREMJA
RÁN
ÉG
ÆTLA EKKI
AÐ LEGGJA
GLÆPI FYRIR
MIG
ÞÚ
ÞARFT EKKI AÐ
GERA ÞAÐ
ÞÚ
ÞARFT BARA
AÐ FREMJA EITT
RÁN OG SVO
EKKI MEIR
EFTIR
ÞAÐ VERÐ
ÉG ORÐINN
MOLDRÍKUR
OG SÁTTUR
ÞAÐ ER
EKKERT SKRÍTIÐ
AÐ HANN LÍTI
KJÁNALEGA ÚT,
HANN ER
“ÚR HAFNA-
FYRÐINUM”
Ódýr matur
Allnokkuð er bæði
rætt og ritað um fá-
tækt á Íslandi um
þessar mundir. Í því
sambandi langar mig
til þess að benda
þeim, sem eiga varla
til hnífs og skeiðar, á
ódýrt fæði, sem er
bæði hollt og gott.
Í þau ár, sem ég
var búsettur í Sló-
vakíu var mikið um
þjóðarrétti á borð-
um. Einn þeirra
samanstóð af soðn-
um kartöflum, brúnuðum lauki og
súrmjólk. Þessi matur var oft á
borðum hjá Slóvökum og sér-
staklega á stríðstímum, þegar lítið
annað var að hafa. En uppskriftin
er þessi: Laukur er brúnaður á
pönnu í sólblómaolíu og síðan eru
soðnar kartöflur með skrælinu
skornar niður á pönnuna, þegar
laukurinn er orðinn hæfilega
brúnaður. Þessu er blandað saman
á pönnunni og smá salti stráð yfir.
Síðan er þetta borið fram með
glasi af súrmjólk. Matur þessi er
bæði ódýr og fljót-
lega matreiddur.
Hann er einnig hollur
og bragðast vel og
sem allir ættu að
ráða við að elda, þó
þeir kunni ekki mikið
fyrir sér í matreiðslu.
Þó fólk í Slóvakíu búi
almennt betur nú til
dags en á stríðs-
tímum eru ennþá
margir, sem hafa
þennan mat á borð-
um og njóta hans.
Sumir taka hann
jafnvel fram yfir nú-
tímalegri rétti. Þessa
einföldu máltíð ætti fólk að geta
haft á borðum án mikils tilkostn-
aðar og fyrirhafnar. Því datt mér í
hug að deila þessu, ef það gæti
komið einhverjum að gagni í
kreppunni. Eða er „fátæktin" á Ís-
landi kannski af annarri stærð-
argráðu og af öðrum toga spunn-
in?
Einar Ingvi Magnússon.
Ást er…
… svefnfélagar.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9. Út-
skurður/myndlist kl. 13. Félagsvist kl.
13.30.
Árskógar 4 | Handavinna/Smíði/
Útskurður kl. 9. Félagsvist kl. 13.30.
Myndlist kl. 16.
Dalbraut 18-20 | Myndlist og postu-
lín kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8,
bænastund kl. 9.30, leikfimi kl. 11.
Upplestur á 2. hæð kl. 14. Listamaður
mán.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30.
Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9.
Botsía kl. 11. Handverksklúbbur Val-
dórs kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofa, leiðbeinandi til hádegis,
botsía kl. 9.30, lomber kl. 13, kanasta
kl. 13.15.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Postulín kl. 9, ganga kl. 10, handa-
vinna og brids kl. 13, félagsvist kl.
20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10, 11, vatns-
leikfimi kl. 12.10. Hluti vorsýningar
ennþá í Jónshúsi, poolsalur lokaður til
miðvikudags.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Þann 11. maí ferð í Listasafn
Kópavogs, Gerðarsafn, þar stendur yf-
ir sýning á listaverkum Barböru Árna-
son. Einnig verður farið í Nátt-
úrufræðistofu Kóp. í næsta húsi. Lagt
af stað kl. 13 frá Hlaðhömrum. Skrán-
ing í síma 5868014 og 6920814.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
kl. 9, m.a. fjölbreytt handavinna.
Vatnsleikfimi kl. 9.50. Frá hádegi er
spilasalur opinn. Kóræfing kl. 15.30.
Fimmtud. 12. maí leikhúsferð í Þjóð-
leikhúsið, ,,Allir synir mínir“.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Félagsvist kl. 13, kaffi og samfélag.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
bænastund kl. 10, Helga fótafræðingur
á staðnum, tímapantanir í síma
6984938. Hárgreiðslustofa Fjólu er
opin kl. 9-14, tímapantanir í síma
8946856.
Hraunsel | Ganga kl. 10 frá Hauka-
húsi, glerbræðsla kl. 13, tréskurður kl.
13, félagsvist og botsía kl. 13.30,
vatnsleikfimi kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30,
9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9. Brids
kl. 13. Hádegisverður, miðdagskaffi.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listasmiðja kl. 9. Félagsvist kl.
13.30. Baráttuhópur um bætt veðurfar
miðvikudag kl. 13.30; Páll Berþórsson.
Tónar og Trix frá Þorlákshöfn í heim-
sókn hjá Sönghóp Hjördísar Geirs
fimmtudag kl. 13.30.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár-
anum kl. 11.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Egils-
höll kl. 10 í dag og botsía í Eirborgum,
Fróðengi kl. 13.30. Sjúkraleikfimi kl.
14.30 á sama stað. Á morgun þriðju-
dag er sundleikfimi kl. 9.30.
Norðurbrún | Botsía kl. 10, handa-
vinna kl. 9. Samvera með djákna kl.
14. Útskurður kl. 13.
Vesturgata 7 | Handavinna, botsía,
leikfimi kl. 9.15. Tölvukennsla kl. 12.
Kóræfing kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bókband og postulín kl. 9. Morg-
unstund kl. 9.30. Botsía kl. 10. Fram-
h.saga kl. 12.30. Handavinnustofa kl.
13. Spil kl. 13. Stóladans kl. 13.
Davíð Hjálmar Haraldsson lasum það á Mbl.is að kaffi-
drykkja, kynlíf og það að snýta sér
gæti aukið hættuna á heilablóðfalli
samkvæmt niðurstöðum hollenskra
lækna við Háskólann í Utrecht. Allt
ylli þetta hærri blóðþrýstingi sem
gæti sprengt æðar. Honum varð að
orði:
Í lífinu menn leika að eldi,
læknar segja þig fá slag
við hnerra að morgni, kaffi að kveldi
og kynlíf eftir sólarlag.
Pétur Stefánsson er ánægður
með hlýrri og bjartari tíð:
Árstíð þessi er eins og draumur,
ilm af gróðri að vitum ber.
Um mig hríslast unaðsstraumur
alltaf þegar vora fer.
Árni Jónsson í Kotabyggð fór að
vinna flag í gærmorgun og sáði
korni í flagið seinnipartinn.
Tæti ég gráan tyrfinn svörð,
torfið hráa saxa,
fræin smáu fel í jörð
fljótt svo nái að vaxa.
Davíð Hjálmar Haraldsson
heyrði af því og sendi honum
kveðju:
Árni sá ei svanga hjörð
er svipti gráu stéli.
Grjónum sáði í grýtta jörð.
Gæsir náðu méli.
Kristján Eiríksson er einnig í
vorhugleiðingum og slær á létta
strengi:
Víst gaman er þá golan hlý
gleður fugl í mónum
og Austurvöllur enn á ný
angar af gömlum rónum.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af kaffi og kynlífi